NT - 03.07.1984, Page 11

NT - 03.07.1984, Page 11
tt Athugasemd frá Fuglaverndarfélagi íslands: Arnarstofninn vex mun hægar en af er látið ■ Allt tal um að arnarstofninn hafí vaxið um þriðjung á undan- förnum þremur árum er út í hött, segir í athugasemd Fugla- verndarfélags íslands. ■ Nokkuð hefur verið skrifað undanfarið um hafernina á Is- landi, meinta fjölgun þeirra og tjón sem þeir eru sakaðir unt að valda. Þar hefur verið fremstur í flokki Árni G. Pétursson, hlunnindaráðunautur, en hann virðist hafa misskilið upplýsing- ar sem hann fékk hjá Náttúru- fræðistofnun Islands. Því vill Fuglaverndarfélagið taka fram eftirfarandi: 1. Skv. athugun sem gerð var sumarið 1983 eru nú 30-40 arn- arpör á landinu. Hærri talan er fengin nteð því að telja par alls staðar þar sent fullorðinn örn sást um sumarið og eins ef gert er ráð fyrir pari á þeim stöðum sem ekki voru kannaðir 1983, en ernir hafa sést á undanfarin ár. Til samanburðar má geta þess að á árunum 1974-76 töldust vera 30-35 pör á iandinu svo að fjölgun um 10 pör á undanförn- um þrem árunt, eins og haldið hefur verið fram, hefur ekki átt sér stað. Arnarstofninn hefur vissulega farið vaxandi undan- farna tvo áratugi (á miðjum sjöunda áratugnum voru um 20 pör á landinu), en aukningin hefur verið mjög hæg og allt tal um að stofninn hafi vaxið um þriðjung á þrem árum er út í hött. Slíka stofnstærðaraukn- ingu væri frekar að finna hjá kanínum en haförnum. Þess má geta að hjá nokkrum af arnarpörunum hérlendiserann- ar fuglinn ókynþroska en slíkt er merki þess að stofninn sé langt fyrir neðan eðlilega stærð. 2. Ungir ernir eru á flakki fyrstu árin og sjást því víða unt land. Það er því ekkert nýtt að ernir sjáist utan hcfðbundinna arnarsvæða. 3. Undanfarinn áratug hafa ernir byrjað að verpa á nýjum stöðum en á móti kemur að arnarvarp hefur lagst af á nokkr- um gömlum og grónum stöðum. 4. Því er haldið fram að skýring á dauða þeirra arna sem fundist hafa sjóreknir sé sú að þeir hafi drukknað við veiðar, en ekki farist af eitri. Þessi skýring stenst ekki því örninn veiðir oft fisk með því að skella sér í sjóinn og á þá ekki í neinum vandræðum með að ná sér aftur á fiug. Mörg dænii um slíkt hafa verið kvikmynduð og má t.d. minna á breska mynd um haförninn sem sýnd var í sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu. 5. Það er ekki unnt að sanna að þeir ernir sem fundist hafa dauðir hafi drepist af svefnlyfi því (fenemali), sem dreift er á arnarsvæðum, en það er þó ekki 'ólíkiegt. Eitrinu er dreift á slor og hræ og er eins líklegt að ernir komist í eitrið eins og svartbak- ur og hrafnar. Einnig getur örninn étið hræ þeirra fugla sem drepist hafa af völdum eitursins. S.l. ár var dreift tæplega55 kg af fenemali á strendur landsins. Banvænn skammtur fyrir rnann er um 1 g og á einu ári var því dreift eitri sem nægir til að bana fjórðungi íslendinga. Má telja furðulegt að slíkt skuli viðgang- ast, sér f lagi þar sem slíkur eiturútburður ergersamlega til- gangslaus til fækkunar ntáfum. Það hefur margoft komið fram að álit sérfróðra manna er að dráp nokkurra þúsunda, jafnvel tugþúsunda máfa árlega hefur lítil sem engin áhrif á stofnstærð þeirra. Miklu árang- ursríkara væri að reyna að minnka hið takmarkalausa framboð á fæðu í formi fiskúr- gangs, sem þessir fuglar hafa aðgang að. Á þetta hefur aldrei verið hlustað, enda mundu um- svif embættis veiðistjóra minnka mjög.ef þessi leið væri farin. Það er Ijóst að arnarstofninn er enn mjög lítill og því full ástæða til að vara við þeim áhrifum sem útburður svefnlyfs kann að hafa á arnarstofninn. Nægir þar að minna á að eitrun fyrir refi hafði nær útrýmt örn- um af landinu. ■ Dúkkurnar frá Kaliforníu og þjálfarinn þeirra. Talið frá vinstri: Vicki Frederick, Peter Falk og Laurence Landon. Nýja bíó: Góð glíma er gulli betri Stúlkurnar frá Kaliforníu (The California Dolls). Bandaríkin 1981. Handrit: Mel Frohman. Leikendur: Peter Falk, Vicki Frederick, Laurence Landon, Burt Young, Tracy Reed, Ursa- line Bryant-King. Leikstjóri: Robert Áldrich. ■ Það gerist allt of sjaldan, að auglýsingar kvikmyndahúsanna eigi við einhver rök að styðjast í raunveruleikánum. Slíkt cr þó tilfellið með mynd Nýja bíós að þessu sinni. Hún er bráö- skemmtileg eins og auglýsingin segir, en hún er líka mcira nefnilega hörkuspennandi. Það er heldur ekki neinn aukvisi, sem stjórnar ferðinni, sjálfur Robert Aldrich. Dúkkurnar frá Kaliforníu eru tvær bráðhuggulegar fjöl- bragðaglímukonur, sem fcrðast milli borga Bandaríkjanna, ásamt þjálfara sínunt, bílstjóra og umboðsmanni (sem er einn og sami nraðurinn) í leil að frægð og frama. Það er gamal- kunn staðreynd, að leiðin upp á toppinn er þyrnum stráð, og þessi mynd gengur ekki í ber- högg við þau sannindi. En eins og í öllunt móralskt uppbyggj- andi sögurn, tekst hetjunum það, sem þær ætla scr. Áður en því takmarki er náð, gengur hins vegar á ýmsu, bæði í samskiptum þrenningarinnar innbyrðis, svo og í samskiptum hennar við aðra glímukappa og skipuleggjendur kappleikja. Yfirbragð Stúlknanna frá Kalilörníu er allt á léttari nótun - um, þó svo að einstaka drama- tísk augnablik fái líka að fljóta með. Leikararnir eru í essinu sínu, einkum Peter „Colombo" Falk í hlutverki ltins óperusinn- aða þjálfara, sent vill stúlkunum sínum vel. Óborganlegur maður. Þær Vicki Frederiek og Laurence Landon eru einnig framúrskarandi, en bestar í glímuatriðunum, þar sem þær haga sér eins og fæddir meistar- ar. Öll úrvinnsla efnis er fyrsta flokks, sérstaklega eru glímu- atriðin góð, þarseni myndavélin er bæði áhorfandi og þátttak- andi í senn. Stúlkurnar frá Kaliforiiíu er sannkölluð sumarmynd. Guðlaugur Bergmundsson HINIR VIÐURKENNDU Tl N DAR FRÁ CLOSE YOULE í ALLAR HEYVINNU- VÉLAR FRÁ OKKUR MJÖG HAGSTÆTT VERÐ ÁRMÚLA3 REYKJAVIK SIMI 38900 VARAHLUTAVERSLUN SÍMI 39811 H BÆNDUR Nú -eins og undanfarin sumur bjóöum viö bændum sérþjónustu. Á laugardögum er mriRup varahluta- verslun okkar opin frá kl. 10.00.til 14.00. 0 IfEmper Komið eða hringið, IhH|IH|II|! þjónustusíminn er 91 -39811 BÚNADARDEILD ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.