NT - 21.07.1984, Blaðsíða 30

NT - 21.07.1984, Blaðsíða 30
é^eOí^eIeIeJeJeJeJeJeIeIeJeIeIeJeIeIeJEJ GJ SKRIFSTOFUSTARF Starfsmaður óskast í innkaupadeild spítalansviðtölvuskrán- ingu, vélritun, símvörslu og til almennra skrifstofustarfa. Umsækjendur hafi samband við innkaupastjóra í síma 81200 (309) Sjúkraþjálfarar 1. Starfsmannasjúkraþjálfari óskast við Borgarspítalann. Um er að ræða 50% starf á móti öðrum sjúkraþjálfara, sem hefur sinnt stöðunni um árabil. Starfið er aðallega fólgið í: - ráðgjöf um vinnuaðstöðu í núverandi húsnæði spítalans og nýbyggingu, - ráðgjöf við innkaup tækja, húsbúnaðar o.fl. - námskeiðahaldi/fræðslu um vinnutækni - hópleikfimi fyrir starfsfólk. Einnig kemur til greina 100% staða, þar sem viðkomandi vinnur sem sjúkraþjálfari á sjúkradeild á móti. 2. Sjúkraþjálfarar óskast í 100% starf á sjúkradeildir og endurhæfingadeild. Ath. ný glæsileg aðstaða í sjónmáli. Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í síma 81200 (315 eða 356 kl. 13.00-14.00). Lausar eru stöður: Hjúkrunarfræðinga Á skurðdeild, dagvinna, kvöldvinna. Á hjúkrunar- og endurhæfingadeild, Grensás. Dagvinna, kvöldvinna, næturvinna. Sjúkraliða Á skurðdeild, dagvinna. Á hjúkrunar- og endurhæfingadeild, Heilsuverndarstöð v/Barónsstíg. Upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 81200 kl. 11-12. Við ræstingu, afleysingar. Upplýsingar eru veittar hjá ræstingastjóra í síma 81200/320' virka daga kl. 13.00-14.00. Reykjavík 22. 07. ’84. Borgarspítalinn. BORGARSPÍTALINN Q 81-200 EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ EJ eJeJEJeJeJeIeIeIöIeIöJeJeIeIeJeIeJeJe] e! íw uJU „Þetta kemur af sjálfu sér!!“ ■ „Þetta kemur nú bara af sjálfu sér, ef maður er bara nógu hreyfanlegur þarna frammi. Við erum með góða miðvallarspilara, og þeir, sérstaklega Gústaf Björnsson þjálfari, mata mig á góðum sendingum sem ég reyni að nýta“, sagði Tryggvi Þór Gunnarsson knattspyrnumaður í ÍR í samtali við NT. Tryggvi hefur skorað 26 mörk, fyrir ÍR-liðið í 4. deildarkeppninni í knattspyrnu í sumar, í aðeins 8. leikjum. Það eru rúmlega 3 mörk í leik og ekki á hvers manns færi. Hann leikur einnig með 2. flokki í íslandsmótinu, og hefur skorað 7 mörk þar, og með 1. flokki IR í Reykjavíkurmótinu og hefur skorað alls 45 mörk í sumar. 1. flokkur ÍR mun leika til úrslita gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu. „Ég held að við eigum góða möguleika á að komast upp úr fjórðu deildinni í ár, það stefna allir á það og við verðum eiginlega að ná því takmarki. Það er nú eða aldrei", sagði Tryggvi. Tryggvi sagði að ÍR hefði góða aðstöðu í Breiðholtinu til knatt- spyrnuiðkana og starfið væri öflugt Þegar hann var spurður hvort stóru liðin í knattspyrnunni væru farinn að biðja hann um að koma til liðs við sig, sagði Tryggvi að slíkt væri ekki alvarlegt ennþá. „Ég hef vissulega heyrt í mönnum, en ég lít á alít slíkt sem gamanmál enn sem komið er.“ - Því má bæta við að samkvæmt heimildum NT hafa allmörg 1. deildarlið haft auga með Tryggva, og einnig mun umboðsmaður erlends liðs hafa haft samband við hann. - Er einhver sérstök uppskrift að því að skora svona mörg mörk? „Nei, það verður bara að hreyfan sig nóg þarna frammi. Miðjan hjá okkur er góð, og þeir mata mig vel á sendingum, sérstaklega Gústaf þjálfari." - Ekki eru öll þín mörk potmörk? „Nei, þau eru alls konar. Flest þeirra verða að vísu þannig til að ég hleyp af mér varnarmennina. Ég fæ nóg af boltum til að vinna úr, og það er númer eitt.“ Tryggvi Þór er aðeins 19 ára, og á því framtíðina fyrir sér. Þess má geta að hann og Gústaf Björnsson þjálfari ÍR eru systrasynir, og virðast þeir frændur ná vel saman á leikvelli. Gústaf matar, og Tryggvi skorar. Gústaf er þekktur á knattspyrnuvellinum, lék með Fram við góðan orðstír íyrir táum árum, og í fyrra var hann markahæstur leikmanna í 3. deild íslandsmótsins, með Tindastóli á Sauðárkróki. .1 » Laugardagur 21. júlí 1984 30 ■ Tryggvi Þór kann svo sannarlega galdurinn að skora. Hér hefur hann náð boltanum rétt á undan varnarmanni og veður í átt að marki, þar snýr hann manninn skemmtilega af sér og pikkar svo boltanum undir markvörðinn á réttu augnabliki. Mark. Þeir titra örugglega markverðirnir þegar þeir sjá Tryggva nálgast. NT-myndir Ámi Bjarna VARAHLUTIR HF Fyrir japanska bíla Daihatsu Datsun Honda Isuzu Mazda Mitsubishi Subaru Suzuki Toyota Vatnsdælur - Vatnslásar Viftureimar - Tímareimar Startarar - Alternatorar Kveikjukerfi - Framljós Bremsudælur - Dælusett Bremsuborðar - Bremsuklossar Frambretti - Grill - Stuðaðar á Datsun o.fl. o.fl. VARAHLUTIR HF Ármúla 22 - Sími 31-9-19 Kallaðir í Björgunarleit Frá Guðmundi Gíslasyni fréttamanni NT á Kskifirði: ■ Þegar keppni var að ljúka fyrsta kvöldið í meistaramóti Golfklúbbs Eskifjarðar 11-14. júlí, varð útkall hjá björgunarsveit staðarins, týnst hafði trilla og ruku menn upp til handa og fóta. Kylfur sáust fljúga út í loftið og ruku sumir keppendur af stað án frekari fyrirvara. Allt fór þetta þó vel, trillan fannst undir morgun og keppendur, sem ekki höfðu náð að Ijúka keppni daginn áður, luku bara við daginn eftir. En líklegt er að björgunarsveitar- menn hafi orðið þreyttir, a.m.k. þeir sem tóku þátt í golfkeppninni. Þeir höfðu gengið 20-30 kílómetra um nóttina, eftir 10-12 km labb fyrsta keppnisdaginn, og síðan þrjá næstu daga fengu þeir 10-12 km skammt á hverjum degi Mikil vinna hefur verið lögð í golfvöllinn á Eskifirði, og er völlur- inn kominn í gott stand og er í aðlaðandi umhverfi. í meistaramótinu voru leiknar 72 holur hjá 1. og 2. flokki karla( 54 holur í kvennaflokki og 36 holur í drengjaflokki. Keppendur voru alls 29, af 56 félögum í klúbbnum, sem verður að teljast góð prósenta. Úrslit urðu þessi: 1. flokkur: högg 1. Bogi Bogason 297 2. Jón Baldursson 337 3. Guðni Þór Magnússon 337 Jón sigraði Guðna í bráðabana. Kvennaflokkur: ' 1. Agnes Sigurþórsdóttir 312 2. Dagmar Oskarsdóttir 315 3. Erla Cbarlesdóttir 353 Drengjaflokkur: 1. Pétur Jónsson 231 2. Helgi Georgsson 287 2. flokkur karla: 1. Sigurður Freysson 421 2. Kristinn Guðmundsson 455 3. Hilmir Ásbjörnsson 468

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.