NT - 21.07.1984, Blaðsíða 3
Laugardagur 21. júlí 1984
Mengunarúttekt á járnblendinu:
Rykmengun víða yf ir hættumörkum
■ 8.7% sýna af örfínu ryki
og 28.9% sýna af heildarryki á
starfsmönnum járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundar-
tanga eru yfir hættumörkum.
Þá er kvarsmengun yfir hættu-
mörkum í 16.1% ryksýna, en
mikil kvarsmengun í langan
tíma getur valdið sjúkdómi,
sem kallast ryk- eða steinlungu.
Þetta kemur fram í úttekt,
sem vinnueftirlit ríkisins gerði
á mengun í járnblendiverk-
smiðjunni í september 1983.
Kvarsmengunin reyndist
meiri en búist var við og í
skýrslu vinnueftirlitsins er lögð
áhersla á að dregið verði úr
henni, þar sem hún er um og
yfir hættumörkum. Ryk-
mengunin er einkum yfir
hættumörkum í ýmsum
störfum, sem tilheyra flutninga-
deild verksmiðjunnar. Hins
vegar er hún yfirleitt fremur
lítil við framleiðslu- og við-
haldsstörf, þar sem aðstæður
eru yfirleitt góðar miðað við
það sem hefur þekkst til
skamms tíma við hliðstæða
framleiðslu.
Auk rykmælinga, voru
framkvæmdar mælingar á
nokkrum lofttegundum í verk-
smiðjunni. Sumar reyndust
vera undir hættumörkum, aðr-
ar yfir. Hávaðamælingar bentu
til, að víða þurfi að draga úr
mengun af þeim völdum. Loks
voru framkvæmdar takmark-
aðar loftslagsmælingar og
reyndist hitastig alls staðar
vera innan þeirra marka, sem
miðað er við.
í ályktunum skýrslunnar
segir, að aðstæður í
járnblendiverksmiðjunni séu
að mörgu leyti góðar, enda
hafi við hönnum verksmiðj-
unnar verið reynt að draga úr
og takmarka mengun. Segir
að öflugt loftræsti- og ryksugu-
kerfi eigi ríkan þátt í að
halda rykmengun í skefjum
víðast hvar.
Umsjón: Skafti Jónsson
Góð veiði í Fáskrúð
Fáskrúð í Dölum var opnuð þann
20. júní og lofaði byrjunin mjög
góðu. Fyrsta hollið tvær stangir í tvo
daga, fékk fjórtán laxa, en síðan
hefur veiðin verið minni, oft fimm til
tíu fiskar á hollið. Heildarveiðin var
80 laxar síðdegis á fimmtudaginn, en
þann daginn höfðu þrír grálúsugir
laxar fengist.
Stærsti fiskur sumarsins er 20 pund
og fékkst hann á maðk í Efri Brúar-
streng. Þegar heimildarmaður Veiði-
hornsins var á ferð við Fáskrúð á
fimmtudaginn voru þeir Kjartan
Guðmundsson og Jón Z. Sigríksson
við veiðar í ánni. Jón hefur um árabil
starfað í Stangveiðifélagi Akraness,
sem hefur haft Fáskrúð á leigu með
smáhléum frá 1941. Hann sagði að
hér á árum áður hefðu fengist á
sjöunda hundrað laxar úr ánni, en
seinni ár hefði veiðin verið mun
minni.
Fáskrúð er laxgeng upp að
Kjötlum, sem er um átta kílómetra
leið.
Frekar treg
veiði í Miðá
Miðá í Dölum hefur verið opin í
einn mánuð og um miðjan dag í gær
voru komnir einir 35 laxar á land, sem
þykir treg veiði. Nú er hins vegar
besti tími árinnar að ganga í garð og
gera menn sér vonir um að úr rætist
fljótlega.
Veitt er á þrjár stangir í ánni.
Stærsti laxinn sem fengist hefur í
sumar var 17 pund. Talsvert hefur
veiðst af bleikju í Miðá í sumar.
300 f iskar úr
Laxá í Dölum
Þokkaleg veiði hefur verið í Laxá í
Dölum undanfarna daga. Á miðviku-
dag og fimmtudag fengust 22 laxar úr
ánni á sjö stangir. Heildarveiðin var
á fimmtudaginn 300 laxar.
Athugasemd:
Togaraaf-
greiðslan
EIGUM ENIMÞÁ
ÖRFÁA NISSAN BÍLA
Á SÉRTILBOÐSVERÐI
NISSAN MICRA
Úmar Ragnarsson sagði í DV að
Nissan væri fisléttur, frískur bensín
sparari sem leyndi á sér og sem nær
útilokað væri að fá til að eyða
bensíni. Verð kr. 252.500,-
■ Ragnar Júlíusson, stjórnarformaður
B.Ú.R. og togaraafgreiðslunnar, vildi láta
eftirfarandi koma fram vegna ummæla Jó-
hannesar Ágústssonar og Þórhalls Helga-
sonar hjá Hraðfyrstistöðinni, í frétt NT í
gær. „Allir togaraútgerðarmenn sem hafa
skipt við togaraafgreiðsluna voru sammála
um að fyrirtækið yrði lagt niður í núverandi
mynd. Það er því alrangt að BÚR sé að
draga sig út úr samstarfinu. Að sjálfsögðu
heldur löndun áfram úr togurum, en finna
verður nýjar leiðir.
NISSAN STANZA 1800 GL
Framhjóladrifinn lúxusbfll með lúxus-
útbúnaði á kr. 383.000,- Aðeins örfáir
bflar. Sýning á bflum á sértilboðs-
verði á laugardag og sunnudag kl. 2-
5 að Melavöllum við Rauðagerði. Kr.
10.000. í afslátt ef bíllinn er greiddur
innan mánaðar. Tökum flesta eldri
bfla upp í nýja.
HJÁ OKKUR ER:
FJÖLBREYTNIN MEST OG KJÖRIN BEST.
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.