NT - 21.07.1984, Blaðsíða 7
Af tékkneska meistaramótinu og „broddgaltarafbrigðinu“
Þó Jóhann Hjartarson hafi ekki
riðið feitum hesti frá skákmótinu í
Leningrad á dögunum þá fór ekki hjá
því að hann tefldi nokkrar góðar skákir
sem hann getur verið fullsæmdur af.
Sigurskákir hans tvær gegn Pólverjanum
Pytel og Sovétmanninum Ermolinsky
voru báðar afbragðsvel tefldar af hans
hálfu og það sama gildir í raun um
nokkrar þær skákir sem hann tapaði.
Hann byggði upp vinningsstöðu gegn
Kochiev, einum sterkasta skákmanni í
Leningrad, en tímahrak og yflrsjónir af
því tagi sem menn þekktu ekki frá
honum sl. vetur urðu þess valdandi að
Kochiev vann skákina. Hann hafði
reyndar boðið Jóhanni jafntefli a.m.k.
einu sinni en Jóhann þurfti nauðsynlega
á vinningi að halda til að laga stöðu sína
í mótinu og hafnaði. Afleiðingin varð sú
að Kochiev vann sína einu skák í þessu
móti; hann gerði jafntefli í öðrum
skákum.
Gegn Spánverjanum Rivas byggði
Jóhann upp vinningsstöðu, vann peð og
hafði alla þræði í hendi sér er hann féll
í lúmska gildru hins taktíska Spánverja.
Ekki var þó öll nótt úti en þegar leið á
setuna féll Jóhann aftur í laglega gildru
og eftir það varð taflinu ekki bjargað.
Rivas er, eins og margir samlandar hans,
taktískur í betra betra lagi og fær marga
vinninga af ódýrari sortinni.
Besta skák Jóhanns var án efa viður-
eign hans við Pytel. Eftir byrjun sem á
íslensku skákmáli hefur hlotið nafnið
„broddgaltar - afbrigðið" velur Pytel
leið sem Svíinn Ulf Andersson gerði
vinsæla fyrir nokkrum árum og hefur
síðan fælt marga af unnendum „brodd-
galtar - afbrigðisins“ frá. Hvítur sækist
snemma eftir miklum uppskiptum - 10.
Bxfó, sem síðar þvingar fram uppskipti
á biskupi svarts á b7. Pytel leikur í 12.
leik Dxf3, en algengara er 12. Bxf3.
Þannig hafa teflst m.a. nokkrar skákir
Andersson og Browne, Bandaríkja-
mannsins sem tefldi hér á landi 1978 og
1980.
Hvítur virðist eiga erfitt með að
greina hvað það raunverulega er sem Ulf
sækist eftir með hinni hógværu byrjana
taflmennsku og er 17. leikur hans 17.
Ra4 gott dæmi um ráðleysislega tafl-
mennsku hans.
Eftir 20. - Bf6 má segja að svartur hafi
að fullu jafnað talfið, en hvítur virðist á
öðru máli og teflir greinilega stíft til
vinnings.
Sérhver breyting á „karakter" stöðu-
nnar krefst nýrra stefnumiða. 26. Bxf5
leiðir skákina í nýjan farveg og enn teflir
hvítur eins og hann hafi valdið. Eftir 27.
- b5 nær svartur frumkvæðinu í sínar
hendur, en hvítur heldur enn sínu striki
og opnar stöðuna svörtum í hag með 29.
g4.
Eftir 33. - Dxc7 sannast að það er ekki
algild regla að drottning og riddari vinni
betur saman en drottning og biskup.
Svartur hefur fjölmarga átakspunkta til
að herja á en áður en hann leggur til atlögu
treystir hann stððu sína 35. - f5. Eftir
hinn sterka leik 39. - Dc6! (sjá stöðu-
mynd) er Ijóst að hvítur verður að láta
eitthvert lið af hendi rakna.
Skákin fer í bið eftir 42. leik hvíts a2
- a4, en þá þegar er ljóst að stöðu hvíts
verður ekki bjargað. Svartur nýtir yfir-
burðina vel, hann lokar riddarann af á
lærdómsríkan hátt, 44-Bd2, ogeinungis
tregðulögmálið veldur því að hvítur gefst
ekki upp fyrr en í 54. leik.
Leningrad 1984
7. umferð:
Hvítt: K.Pytel
Svart: Jóhan Hjartarson
Enskur leikur
1. Rf3 Rf6 21. Khl Rc6
2. c4 c5 22. D13 Rd4
3. Rc3 e6 23. Df2 Rf5
4. g3 b6 24. e3 g6
5. Bg2 Bb7 25. Be4 Dd8
6. 0-0 Be7 26. Bxf5 gxf5
7. d4 cxd4 27. Df3 b5
8. Dxd4 d6 28. cxb5 axb5
9. Bg5 a6 29. g4 fxg4
10. Bxf6 Bxf6 30. Dxg4t Kh7
11. Df4 Bxf3 31. Hxc8 Dxc8
12. Dxf3 Ha7 32. Hcl Hc7
13. Hfdl 0-0 33. Hxc7 Dxc7
14. Hacl Hd7 34. De2 Bh4
15. b3 Dc7 35. Kgl f5
16. De3 Hc8 36. Kg2 Dc6t
17. Ra4 Bd8 37. Df3 Dc2t
18. Rb2 h6 38. Kh3 Bf6
19. Rd3 Bg5 39. e4 Dc6
20. f4 Bf6
40. Rb4 Dxe4
41. Dxe4 fxe4
42. a4 bxa4
43. bxa4 Bc3
44. Ra2 Bd2
45. Kg2 d5
46. Kf2d4
47. Ke2 Ba5
48. Rcl d3
49. Kdl Kg6
50. h4 Kf5
51. h5 Kxf4
52. Rb3 Bc3
53. Rc5 Kf3
-Hvítur gafst upp
Tékkneska
meistaramótið
Það fannst fleirum en þeim, sem
þessar línur ritar, heimsliðið svokallaða
sem atti kapp við Sovétmenn í Lundún-
um á dögunum ansi sundurleitur hópur
og vera sumra í því liði orka tvímælis svo
ekki sé fastar að orði kveðið. Svo virðist
sem valinu hafi ráðið geðþóttaákvörðun
einhvers liðsstjóra sem enginn vissi deili
á önnur en þau að hann var og er í nánu
vinfengi við Campomanes forseta FIDE.
Áður hefur verið vikið að því að í
heimsliðið hafi tilfinnanlega vantað þá
Lajos Portisch og Vlastimil Hort. Hort
gat ekki verið með þar sem að á sama
tíma fór fram (og er ekki lokið eftir því
sem næst verður komist) tékkneska
meistaramótið. Þó Hort búi ekki lengur
í heimalandi sínu hefur hann samt
tékkneskt ríkisfang og teflir jafnan fyrir
Tékka í sveitakeppnum s.s Olympíu-
mótum og Evrópukeppnum. Tékkar
urðu í 2. sæti á síðasta Olympíumóti og
ætla sér ekki lægri sess í Olympíumótinu
í ár sem fram fer í Saloniki í Grikklandi.
Meistaramótið verður að nokkru látið
ráða um það hverjir skipa lið Tékka nú
og þó þrír fremstu Tékkarnir um þessar
mundir Vlastimil Hort, Lubomir Ftacnik
og Jan Smejkal eigi víst sæti í liðinu var
lagt hart að þeim að vera með og Hort
gat ekki skorast undan.
Keppendur eru 16 og ekki byrjaði
mótið vel fyrir Hort. Hann glutraði
niður vinningsstöðu í tap strax í fyrstu
umferðunum en hefur þó náð sér á strik
og virðist ætla að blanda sér í baráttuna
um efsta sætið. Staða efstu manna að
loknum 8 umferðum var þessi: 1. Jansa
og Prandstetter 6 v. 2. Smejkal 5!ó v.
4.-6. Ftacnik, Prandstetter og Mokry
5 ]A v. 7.-8. Hort og Franzen 4 \h v. + 1
biðskák hvor.
Hvað sem þessu móti líður þá mun
Hort áreiðanlega skipa 1. borð Tékka á
Olympíumótinu. A nýja Elo-listanum er
hann í 11.-12. sæti með 2605 stig jafn
Mikhael Tal. Ftacnik er ekki langt
undan með 2595 stig í 15.-16. sæti og
næstur kemur Smejkal með 2540 stig.
Af þeim skákum sem mér hafa borist
frá þessu móti vekur ein sigurskák Hort
nokkra athygli. Þar færir meistarinn sér
í nyt lærdóm sem hann dró af sigurskák
Karpovs heimsmeistara gegn Norð-
manninum Agdestein á skákmótinu í
Osló í vor:
Hvítt: Hort
Svart: Priehoda
Frönsk vörn
1. e4 e6
2. d4d5
3. Rc3 Bb4
4. e5 c5
5. a3 Bxc3t
6. bxc3 Re7
7. Dg4 Dc7
fl. Dxg7 Hg8
9. Dxh7 cxd4
10. Re2 Rbc6
11. 14 Bd7
12. Dd3 dxc3
13. Dxc3!
(Karpov lék þennan leik gegn Agde-
stein og vann snyrtilega. Læðist að
manni sá grunur að Norðmaðurinn hafi
fengið að smakka á bruggi því sem var
ætlað Kortsnoj í Merano þegar Karpov
varði titil sinn öðru sinni. Þeá sem
grannt hafa fylgst með þróun mála vita
að lengi vel beitti Karpov engu öðru en
Tarrach-afbrigðinu (3. Rd2) gegn
Frönsku vörninni en uppúr 1982 fór hann
að gefa kost á Vinawer-afbrigðinu (3.
Rc3 Eb4) í skákum gegn Seirawan í Mar
del Plata 1982 og Nigel Short í London
sama ár. Spasskí lék 13. Be3 í 2. skák
einvígisins við Kortsnoj í Belgrad 1977
en tapaði: 13. - d4! 14. Bf20-0-015. Rxd4
Rxd4 16. Dxd4 b6 og svartur mátti allvel
við una.)
13. ... Rf5
(Agdestein lék 13. - Hc8)
14. Bd2
(Einn kostur þess að hirða c3-peðið
er sá að þessum biskup eykst rými.)
14. ... Db6
18. ... Rd4
19. c3 Rb5
20. Db4!
(Möguleikar hvíts í þessari byrjun
liggja ekki síst í endataflinu. Þar
verður umframpeðið þungt á metun-
um svo og veikleikarnir á svörtu
reitunum kringum kónginn.)
20. ... Rxa3
(Svartur endurheimtir feng sinn en
kaupir hann dýru verði.)
21. Dxc5! Hxc5
Helgi
Ólafsson
skrifar
um skák
■ Vlastimil Hort, góðkunningi okk-
ar íslendinga frá Reykjavíkurmótinu
1972 og ’78 og einvíginu við Spasski
1977. Hann mun leiða tékknesku
sveitina á Ólympíumótinu í Saloniki
haust, en sveitin er ein sú sigurstrang
legasta og verður sú þriðja stiga
hæsta. Aðeins Sovétmenn og Ung
verjar standa þar framar.
15. Hcl Hc8
16. Db3 Dc5
17. Db2 Rh4
18. Rg3
(Hvítur vísar öllum atlögum svarts
auðveldlega á bug.)
22. Rh5!
(Nú má svartur fara að vara sig.)
22. ... Hh8
23. Rf6t Kd8
24. Be3 Ha5
25. BI2 Bc6
26. Bxh4! Hxh4
27. g3 Hh8
28. h4
(Þetta peð gerir út um taflið. Hort
ferst úrvinnslan afar vel úr hendi.)
28. ... Hc5
29. Hh2 Rb5
30. Bxb5! Bxb5
31. h5 Ke7
32. Kd2 Hd8
33. h6 d4
34. c4! Hxc4
35. Hxc4 Bxc4
36. h7 Hh8
37. Hh4!
(Svartur á enga vörn við hótuninni
Hg4-g8.)
37. ... Ba2
38. Hg4 Bbl
39. Hg8
- Svartur hugðist svara þessu með 39.
- Hxh7 40. Rxh7 Bxh7 og enn er von,
en hvítur leikur betur í 40. leik
nefnilega He8 mát!
Eigum ávallt fyrirliggóandi allar stærðir og gerðir af
skáfluskérum, með eða án tanna. Hagstætt verð.
Framleiðum allar gerðir af skoflum.
Endurbyggjum allar gerðir af skoflum.
Smxðum og gerum við Ripper-tennur (Shanka)
Flját og gáð afgreiðsla.
Kækjasalan hf
tæki í takt viótimann.
FIFUHVAMMI Kopavogi ‘S 91-46577