NT - 21.07.1984, Blaðsíða 4

NT - 21.07.1984, Blaðsíða 4
Aukið launaskrið á vinnumarkaði: „Sýnir að taxt- arnir eru undir öllu velsæmi“ segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur L; j & m Laugardagur 21. júlí 1984 4 ■ Ljósl er að launaskrió á vinnuniarkaðnum hefur mjög verið að aukst undanfarna mán- uði. Fréttir hafa borist frá fyrir- tækjum eins og Flugleiðum, Sláturfélagi Suðurlands, Hamp- iðjunni, Mjólkurstöðinni í Keykjavík og fleirum um yfir- borganir til einstakra hópa eða jafnvel alls starfsfólks fyrirtækj- anna. „Þetta sýnir okkur bara það eitt að atvinnurekendur cru margir hverjir sammála okkur um að lægstu taxtarnir, þeir sem eru milli 13 og 20 þúsund, séu hreinlega fyrir neöan allt vel- sæmi. Þeir sjá líka að þeir halda ■ Magnús L. Sveinsson. ekki fólki á þessum töxtum," sagði Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.. í samtali við NT. Magnús sagðist í sjálfu sér ekkert hafa út á yfirborganir til einstakra starfsmanna eða hópa að setja. Þær sköpuðu þó óneit- anlega mismunandi aðstöðu fyr- ir einstaklinga í sömu stéttarfé- lögum og rækju þar með fleyg í samstöðu félagsmanna. „Eðli- lega hugsa þeir yfirborguðu sig tvisvar um áður en þeir fara út í verkfali, sem kannski færir þeim ekki einu sinni kauphækk- un umfram það sem þeir þegar hafa,“ sagði Magnús. Engir galdramenn-nema undir jökli ■ Jón Jónsson á Stykkishólmi hefur verið að snyrta aðeins umhverfið í góðviðrinu undanfarið. Til þess notar hann orf og Ijá enda vanur að bera orfið í tún. Jón er fæddur á Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit þann 7. apríl 1911 og hefur búið þar alla tíð þangað til sl. haust að hann flutti á Dvalarheimili aldraða í Stykkishólmi. „Það er hvergi betra en á Snæfellsnesi - nei við erum engir galdramenn - kannski þeir undir jökli.“ Jón sagði að það væri gott að vera á Dvalarheimilinu, en lítið um tómstundastarf. Hann fylgist vel með þjóðmálum og sagði að NT hefði stórbatnað, nema hvað of mikið væri af auglýsingum. NT-mynd: Árni Sæberg Pillúna á rúðusprautuna Hún er óbrigðult meðal við óhreinum framrúðum! (£sso) Olíufélagið hf Splendo pillan fæst á bensínstöóvum ESSO Nleðal efnahags- tiWagna Verslun- arráðs: Frjálsir vext- ir, frjálst verð, og samningar um stóriðju Árnað heilla ■ 80 ára veröur á mánudaginn 23. júlí Ingimunda Gextxdóttir, áður til hciinilix að Hlíðarvegi 44, Kópavogi. Hún tekurá móti gextum í dag laugardag 21. júlí á heimili xínu, Auxturtúni 2 Hólmavík. ■ Verxlunarráð íxlandx hefur lagt til að ríkixxtjórnin fylgi eftir þeim árangri xem hún hefur náð í efnahagx- málum með því að gefa ákvörðun vaxta frjálxa, með því að gefa verð- myndun frjálxa, og með því að leita xamninga við nýja xtórkaupcndur á raforku. Segir Verslunarráðið að þessi skref beinist að innri skilyrðum hagkerfis- ins, og því að „losa þarf um þær viðjar, sem atvinnulífið er enn í.“ Þá leggur Verslunarráð til að við- skipti með gjaldeyri verði frjáls og fyrirtæki fái rúmar heimildir til er- lendrar lántöku án ríkisábyrgðar, sölu ríkisfyrirtækjaverði haldið áfram af krafti, einokun ríkisins á sölu á áburði, áfengi, grænmeti og þjónustu á sviði fjarskipta og útvarps verði afnumin, frjáls verslun með landbún- aðarvörur á vinnslu- og dreifingarstigi verði hafin, og opinberir sjóðir verði sameinaðir í þrjá sjóði, sem síðan verði breytt í hlutafélög er starfi á grundvelli arðsemi. Síðast en ekki síst vill Verslunarráð að við nýtingu fiskimiðanna verði frjáls sala á aflakvótum heimiluð og undirbúið að koma á sölu veiðileyfa í þeirra stað. Hver getur sparað fyrir ríkið? Viðurkenningar fyrir um- boðsmannakerfi, persónu- afslátt, og örorkuvottorð ■ Fjöldi tillagna hefur borist til sam- starfsnefndar um hagræðingu í opinber- um rekstri. Hefur ncfndin, sem starfaði undir kjörorðinu Hagsýni ’84 - Betri þjónusta, lægri kostnaður, sent margar þessara tillagna til viðkomandi yfir- valda, ásamt ósk um að þeim verði hrundið í framkvæmd hið fyrsta. Samstarfsnefndin veitti sérstakar viðurkenningar fyrir þrjár tillögur. Hörður Barðdal hlaut viðurkenningu fyrir tillögu um að þeir sem búa við sannanlega örorku verði leystir undan þeirri kvöð að þurfa að skila árlegu læknisvottorði um örorku sína til Trygg- ingastofnunar ríkisins. Vottorðin hafa verið skilyrði Tryggingastofnunar fyrir þátttöku í kostnaði öryrkja vegna hjálp- artækja, en eru, segir Hörður, ástæðu- laus og til óþæginda. Jón Eiríksson, skattstjóri á Vestur- landi, fékk viðurkenningu fyrir tillögu um að umboðsmannakerfi skattstjóra- umdæmanna verði lögð niður. Jón telur kerfið orðið ónauðsynlegt og jafnvel hamla starfi skattstjóra. Þetta kerfi kostaði ríkið í fyrra a.m.k. tvær milljón- ir króna, en þær væri hægt að spara ef bæjar- og sveitastjórnir tækju starfið að sér án endurgjalds. Sigurður Kristjánsson, afgreiðslu- stjóri, og Sólveig Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri, fengu síðan viðurkenn- ingu fyrir tillögu um að persónuafsláttur verði framvegis látinn ganga til greiðslu sóknargjalda, kirkjugarðsgjalda og gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra, til viðbótar við útsvat eignaskatt og sjúkra- tryggingagjald eins og nú er. Segja þau að með þessu mætti spara innheimtu gjalda hjá skattgreiðendum með mjög lága álagningu, þar sem innheimta svari ekki kostnaði. En í Reykjavík einni er talið að fjöldi þessara gjaldenda sé á milli tíu og ellefu þúsund.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.