NT - 21.07.1984, Blaðsíða 28
Bridge-
spilara
rænt
Washinglon-Reuler
■ Alríkislögreglan í
Bandaríkjunum leitar nú
þekkts bridgespilara, sem
talið er aö hafi veriö rænt.
Edith Rosenkranz, sem
býr í Mexíkó en er banda-
rískur þegn, var rænt af
manni vopnuðum byssu í
bílageymslu Sheradon
hótelsins í Washington í
fyrrinótt.
Frúin er 60 ára aö aldri
I og er ásamt manni sínum
George í Washington til
að taka þátt í miklu
bridgemóti þar.
George Rosenkranz. er
| vellauðugur og á fyrirtæki
[ sem framleiðir lyf og
snyrtivörur. Ekki hefur
verið látið uppi hvort
lausnargjalds hafi verið
krafist.
San Franiisco-Reuter
■ Geraldine Ferraro stal sen-
unni frá Walter Mondale þegar
hún var einróma kjörinn vara-
forsetaefni í kosningunum sem
fram fara í haust. Gífurlegur
fögnuður ríkti í lok flokksþings
demókrata í fyrrinótt. Þá
ávarpaði Mondale þingheim og
val hans á Ferraro sem varafor-
setaefni var staðfest.
Bæði lögðu þau höfuðáherslu
á að það væri þjóðarnauðsyn að
fella Reagan forseta í kosning-
unum í haust og lofuðu Banda-
ríkjamönnum glæstri framtíð ef
það tækist.
Baráttan um útnefningu hef-
ur verið hörð innan fiokksins og
hann margtvístraður vegna inn-
byrðis átaka. En á flokksþing-
inu snéru fyrrum stríðandi fylk-
ingar bökum saman og þeir
Gary Hart og Jesse Jackson
hvöttu til einingar um Mondale
Ferraro og Mondale eru nú sameiningartákn demókrata..
Við munum sigra
- hrópaði Ferraro og kosningabaráttan er hafin
Bretland:
Verkfalli
lokið
I.ondon-Keutcr
■ Breskir hafnarverkamenn
hófu vinnu í gærmorgun eftir 11
daga verkfall, sem kom mjög
illa við efnahag Breta og kom
ríkisstjórninni í slæma kiemmu.
Hafnarverkamenn í Dover
hófu fyrst vinnu og starfsbræður
þeirra í öðrum höfnum fylgdu
síðan á eftir. Búist er við að
vinna hefjist í öllum höfnum
landsins um helgina.
Leiðtogar hafnarverkamanna
samþykktu í fyrrinótt að aflétta
verkfallinu. Því kemur ekki til
þess að neyðarlög verði sett í
Bretlandi, enorðrómurvaruppi
um að ríkisstjórnin mundi setja
slík lög í næstu viku og láta
hermenn ferma og afferma skip.
119 flóttamenn
Vín-Reuter
■ 119 Pólverjar sem voru á
leið til Rómar, yfirgáfu lang-
ferðabíla, sem þeir voru í og
báðust hælis sem pólitískir
flóttamenn í Vín í gær.
Þetta er fjölmennasti hópur
Pólverja sem beðist hefur hælis
í Austurríki síðan 1981.
og Ferraro og hétu að liggja
ekki á liði sínu í kosningabarátt-
unni.
Eftir kosningu Ferraro hróp-
aði hún: „Við munum sigra, við
munum sigra." Og kjörmennirn-
ir fjögur þúsund hrópuðu Gerri,
Gerri, Gerri, og allt ætlaði af
göflunum að ganga af fagnaðar-
látum.
Edward Kennedy öldungar-
deildarþingmaður, sem dró sig
út úr baráttunni um tilnefningu
fyrir 18 mánuðum og bar við
fjölskylduvandamálum, kynnti
Mondale forsetaefni flokksins
og einingartákn. Hann hældi
honum fyrir val á varaforseta-
efni og sagði að með því hafi
Mondale gert nieira fyrir
Bandaríkin en Reagan forseti á
fjórum árum.
í ræðu sinni sagði Mondale,
að nú byggju Bandaríkjamenn
við stjórn hinna ríku, sem
stjórnaði fyrir hina ríku, og
ásakaði Reagan fyrir að standa
í vegi fyrir efnahagslegum fram-
förum og að safna ríkisskuldum.
Hann lofaði aö minnka þessar
skuldir um tvo þriðju á fyrsta
kjörtímabili sínu.
Mondale lofaði að koma á friði
í Mið-Ameríku og reyna að
koma á árlegum fundum með
æðstu mönnum Sovétríkjanna
til að ræða takmörkun vopna-
búnaðar og önnur málefni.
I gær var haldinn fundur leið-
toga Demókrataflokksins og
síðan fer Mondale á fiskveiðar í
vikutíma í heimaríki sínu,
Minnesota.
Eftir hinn vel heppnaða lands-
fund og alla þá umfjöllun sem
hann hefur fengið í fjölmiðlum
eru repúblikanar nú að stíga í
■ Reagan setur upp kúrekahattinn og dembir sér út í kosningabaráttuna þótt enn hafi hann ekld verið
útnefndur sem forsetaefni fyrir næsta kjörtímabil.
startholurnar og í gær var til-
kynnt að Reagan forseti, sem
sækist eftir endurkjöri, fari í
ferðalög til þriggja mikilvægra
ríkja í næstu viku og flytji þar
ræður. Þar með er kosningabar-
áttan hafin í alvöru, þótt lands-
fundur repúblikana verði ekki
haldinn fyrr en í næsta mánuði
þar sem forsetaefni þeirra verð-
ur valið.
Fyrrum kosningastjóri Reag-
ans gaf Mondale föðurlega
áminnngu í gær er hann ráðlagði
honum að fara ekki í veiðitúr-
inn, sem fyrirhugaður er, heldur
fylgja eftir þeirri tilfinninga-
bylgju sem landsfundurinn olli.
Nú væri ekki tími til að sofa á
verðinum.
Einkaframtakið á
fullu í Moskvu
Moskva-Keutcr
■ Sjónvarpið í Moskvu
skýrði svo frá í gær að lang-
flestir kælibílar sem flytja
vörur til Moskvu smygli
ólöglegum varningi, sem sé
landbúnaðarvörum utan úr
sveit. Sýnd var kvikmynd af
eftirlitsmönnum sem stöðv-
uðu 22 flutningabíla sem
voru á leið til höfuðborgar-
innar. í 18 þeirra fundust
melónur og aðrar afurðir,
sem bílstjórarnir sögðu að
ættu að fara á „bændamark-
að“ í borginni.
Bílstjórarnir sem voru að
smygla matnum, koma frá
ríkisreknum samyrkjubú-
um, þar sem þeir tóku farma
sína, en þeir sögðu í við-
tölum að nóg rými væri í
bílunum til að taka meira en
ríkisbúin sendu frá sér, þar
sem þeim hafði ekki tekist
að framleiða nægilega mikið
af grænmeti og ávöxtum til
að koma á löglega markað-
inn í Moskvu.
Einn bílstjóranna sagði að
hundruðir vörubíla hafi ver-
ið í biðröð við eitt ríkisbúið
til að ná í matvörður, en þar
voru engar afurðir til að
hlaða á þá.
Flutningabílstjórarnir fá
sektir fyrir að taka ólöglegan
varning, en þær eru yfirleitt
mun lægri en duglegir sveita-
menn greiða þeim fyrir að
flytja einkaafurðir sínar,
enda framleiða þeir mun
meira á skikum sínum en
grær á samyrkjubúnum.
Kalifornía:
Trygginga-
félög réðu
ekki við
skjálfta-
tjónið
■ Jarðfræðingar spá því að
búast megi við miklum jarð-
skálfta í Kaliforníu hvenær sem
er. Þar eru mjög virk jarð-
skjálftasvæði og miklir jarð-
skjálftar verða þar á margra
áratuga fresti. Skömmu eftir
aldamótin hrundi meginhluti
San Francisco í miklum sk jálfta.
Tryggingafélög auglýsa
grimmt að húseigendur tryggi
eignir sínar fyrir jarðskjálfta,
en samt sem áður eru aðeins um
8% húseigenda í Los Angeles
og San Francisco sem keypt
liafa slíkar tryggingar, en þeim
fer fjölgandi.
En Tryggingaeftirlitið í Kali-
forníu hefur áhyggjur af jarð-
skjálftatryggingum og hefur
varað tryggingafélögin við að
færast ekki of mikið í fang. Ef
mikill jarðskjálfti verður telur
eftirlitið að tryggingafélögin séu
tæpast í stakk búin til að greiða
tjón af þeim tiltölulega fáu
tryggingum sem þegar eru
keyptar hvað þá ef þeim verður
að ósk sinni að enn fleiri húseig-
endur tryggi gegn jarðskjálfta
og greiða þarf út tjónið.
Formaður Repúblikana-
flokksins Frank Fahrenkopf,
sagði í sjónvarpsviðtali í gær, að
Mondale hafi unnið verulega á
með því að velja Ferraro sem
varaforsetaefni, að minnsta
kosti um sinn, en spurningin
væri hvort það mundi skipta
sköpum í nóvember, en þá fara
forsetakosningarnar fram.
Neysluvenjur
breskra eru
lífshættulegar
London-Keuler
■ Hjartasjúkdómar eru
að verða landlægir í Bret-
landi og er neysluvenjum
Breta þar helst um að
kenna, að sögn lækna-
nefndar sem rannsakað
hefur þetta vandamál.
Nefndin hefur skorað á
ríkisstjórnina að reyna að
vanda um fyrir fólki og
jafnvel skipa sérstakan
neysluráðherra.
Nefndin segir að hjarta-
sjúkdómar séu orsök um
40% allra dauðsfalla í
Bretlandi en þrátt fyrir
ítrekaðar viðvaranir éta
Bretar hlutfallslega lang-
mest af sykri í heiminum,
og hakka í sig mikið af
osti, rjóma og fituríkum
mat s.s. beikoni.
Beirut:
Eldflaug skotið á
sovéska sendiráðið
Beirut-Reuter
■ Eldflaug var skotið á sov-
éska sendiráðið í Beirut í gær.
Lenti flaugin á efstu hæð bygg-
ingarinnar og olli einhverjum
skemmdum, en ekki er vitað til
að neinn hafi særst. Eldur
kviknaði á efstu hæðinni en var
fljótlega slökktur.
Eldflauginni var skotið frá
bensístöð í um 150 metra fjar-
lægð frá sendiráðsbyggingunni.
Sérfræðingar segja að notuð
hafi verið eldflaugabyssa af
bandarískri gerð, sem ætluð er
til árása á skriðdreka. Sá sem
eldflauginni skaut var horfinn út
í buskann þegar að var komicj
með byssu sína, en hluti af
eldflauginni fannst á þeim stað
sem skotið var frá.
Sendiráðsmenn hleyptu
hvorki lögreglu né slökkviliðs-
mönnum inn í bygginguna
Verkamannaflokkur sigurstranglegur
Tel Aviv-Rcuter
■ Kosningar fara fram í
ísrael á mánudag. Líkur eru
á að Verkamannaflokkurinn
fái meirihluta og felli þar
með stjórn Likud-banda-
lagsins.
I tveim skoðanakönn-
unum sem birtar voru í gær
kom í Ijós að fylkingarnar
standa jafnar. En í síðustu
skoðanakönnunum þar á
undan hafði Likud-banda-
lagið heldur vinninginn.
Verkamannaflokkurinn er
því að vinna á meðal kjós-
enda og spá stjórnmálaskýr-
endur að Peres verði næsti
forsætisráðherra ísraels.