NT - 21.07.1984, Blaðsíða 29
fíQ
wgmi
V
EB
Laugardagur 21. júlí 1984 29
Vestur-Þýskaland:
Sovéski „sendiráðs-
pósturinn“ kyrrsettur
Bonn-Reuter
■ Sovéski flutningabíllinn sem Sviss-
lendingar neituðu að hafa í landi sínu og
merktur var sem sendiráðspóstur er nú
í Vestur-Þýskalandi og hafa stjórnvöld
þar neitað unt leyfi til að hleypa diplóm-
atapakkanum yfir austur-þýsku landa-
mærin. Krefjast þau þess að gefin sé
viðhlítandi skýring á hvað sé í bílnum
og á ferðalagi hans um Þýskaland.
Svisslendingar innsigluðu bílinn, en
Sovétmenn sögðu að í honum væru níu
tonn af sendiráðspósti en vildu ekki
leyfa tollvörðum né öðrum að sjá inn í
farangursrýmið.
Bíllinn var í vikutíma á lóð sovéska
sendiráðsins í Genf og gættu lögreglu-
menn hans. Síðan fékk bíllinn að fara
úr landi, en tveir ökumenn eru í honum.
Dularfulli bíllinn er af Mercedes Benz
gerð, hvítmálaður og merktur sovésku
ílutningafyrirtæki. Talsmaður stjórnar-
innar í Bonn segir að grunur leiki á að
„sendiráðspósturinn" sé fullkomin raf-
eindatæki til að nema sendingar og skrá
þær. Bílnum verður haldið í Vestur-
Pýskalandi þar til Sovétmenn geta fært
sönnur á að í honum séu þau diplómata-
gögn, sem réttlæti að farmurinn sé
friðhelgur.
Bíllinn var stöðvaður um hádegi á
fimmtudag skammt frá landamærum
Austur-Þýskalands. Sovéska sendiráð-
inu í Bonn var skýrt frá því að skýringar
þess á ferð bílsins og farmi væru ófull-
nægjandi og frekari útskýringa væri
krafist.
Talsmaður þýsku stjórnarinnar sagði
á blaðamannafundi í Bonn, að Sviss-
lendingar hafi fyllst grunsemdum varð-
andi bílinn þegar hann var að sniglast í
námunda við herflugvöllinn í Dueben-
dorf, skammt frá Zúrich.
Flutningabíllinn er nú í vörslu vestur-
þýsku lögreglunnar en tveir bílar frá
sovéska sendiráðinu eru nærri og er
fylgst með öllum hræringum í námunda
við bílinn. Blaðamönnum er bannaður
aðgangur að svæðinu, þar sem þýskir og
sovéskir gæta hvíta bílsins.
Bíll þessi hefur áður farið yfir Vestur-
Þýskaland á leið til Sviss. Þá var hann
lengi á leiðinni og fór grunsamlegar
leiðir og sama var að segja eftir að
farartækið hélt heimleiðis frá Sviss. Allt
þetta hátterni hefur vakið grunsemdir.
Formælandi stjórnarinnar í Bonn,
sagði að Vestur-Þjóðverjar væru ekki
að reyna að stofna til árekstra, -en þeir
kærðu sig ekki um að láta hafa sig að
fíflum. Hann sagði að það hafi tekið
langan tíma að komast að niðurstöðu í
þessu máli í Sviss, og það gæti einnig
tekið langan tíma í Vestur-Þýskalandi.
Verð á olíu I Atómstöð veld-
úr Norðursjó 1 ur krabbameini
fer lækkandi
RoUerdam-Reuter
■ Verð á olíu úr Norðursjó
hefur fallið mjög á Rotterdam-
markaði og hefur ekki verið
lægra síðustu 16 mánuði. Svo
undarlega sem það hljómar staf-
ar verðlækkunin af árásum á
• olíuskip á Persaflóa. Þegar
hættan við að flytja olíu þaðan
magnaðist birgðu olíuhreinsun-
arstöðvarnar sig upp og eru nú
allir geymar fullir og verðið fer
lækkandi.
Verðið á Norðursjávarolí-
Heróínið
flæðir
yfir
Vestur-
Evrópu
Hamborg-Reuter
■ Tollverðir í Hamborg
klófestu í gær 10 kíló af
heróíni. Tollarar í Bret-
landi létu starfsbræður
sína í Hamborg vita um
sendinguna og fundust eit-
urlyfin í gámi, sem annars
hafði húsgögn inni að
halda.
í Bretlandi voru nokkrir
menn handteknirgrunaðir
um að eiga hlutdeld að
smyglinu. Fyrir nokkrum
dögum náði lögreglan í
Bæheimi 32 kílóum af
heróíni, sem faiið var í
vöruflutningabíl, sem
kom frá Tyrklandi.
Tollverðir í Búlgaríu
komust einnig í feitt og
fundu 3 kíló af heróíni í
bíl sem Júgóslavi ók og
var á leið til Vestur-Evr-
ópu. A tveggja mánaða
tímabili hafa Búlgarar náð
þrem stórum heróínsend-
ingum.
unni er nú komið niður fyrir 28
dollara tunnan, en opinbert
heimsmarkaðsverð er 30 dollar-
ar. Á fundi ráðherra OPEC-
ríkjanna í Vín fyrir skömmu var
ákveðið að hækka ekki verð né
rýmka framleiðslukvóta og
hafði það áhrif til að lækka
veðrið.
Fyrst eftir að árásir hófust á
olíuskip hækkaði verðið lítils
háttar og búist var við að draga
myndi úr útflutningi, sérstak-
lega frá Saudi-Arabíu, sem er
langstærsti olíuútflytjandi
heims. En þetta hefur ekki haft
önnur áhrif en offramboð á olíu
og jafnvel hin dýrsótta Norður-
sjávarolía verður fyrir barðinu
á offramleiðslunni.
Izvestia:
London-Reuter
■ Rannsókn sem bresk stjórnvöld stóðu að,
sýna að samband er á milli staðsetningar á
atómstöð sem eyða á úrgangi úr kjamorkuverum,
og krabbameins í næsta nágrenm. Hvítblæði er
10 sinnum algengara meðal barna i sjávarþorp-
inu Seascale í Norður-Englandi en að meðaltali
í landinu öllu.
I námunda við þorpið er úrgangseyðingar-
stöðin. Stjórnin fyrirskipaði rannsóknina eftir
að sjónvarpsstöð í Yorkshire skýrði frá hinni
háu tíðni hvítblæðis og annarra tegunda krabba-
meins í íbúum sem heima eiga nærri stöðinni.
Á síðustu 30 árum hafa 11 börn í Seascale
fengið hvítblæði en það er tíföld meðaltíðni
miðað við landið allt.
Þekktur vísindamaður, Sir Douglas Black,
stjórnaði rannsókninni og segir hann, að þótt
bein tengsl milli tíðni krabbameins og atóm-
stöðvarinnar séu ekki vísindalega sönnuð bendi
há tíðni blóðkrabba í börnum eindregið til þess
að orsökina megi rekja til úrgangsefna úr
kjarnorkuverum og að með meiri rannsóknum
verði örugglega hægt að sanna hver tengslin eru
milli geislavirkninnar og krabbameinsins.
Þessi niðurstaða er mikið áfall fyrir kjarn-
orkuiðnaðinn í Bretlandi sem varla má við
miklu eftir að upp komst að mikið af geislavirku
efni var sleppt af slysni í írlandshaf í nóvember
s.l.
Erfitt að stjórna án
Kommúnistaflokksins
Moskva-Rcutcr.
■ Stjórnarmálgagnið Iz-
vestia í Moskvu lýsti í gær
yíir samþykki við þá
ákvörðun franskra kommún-
ista að hætta stjórnmálaþátt-
töku,- Sagði málgagnið að
franskir sósíalista fram-
kvæmdu stjórnarstefnu sem
væri á móti hagsmunum al-
þýðunnar.
Stefna nýja forsætisráð-
herrans í efnahagsmálum
mundi ekki verða til þess að
draga úr atvinnuleysi, en
kommúnistar væru trúir
þeirri stefnu sem upp var
tekin 1981, að skapa atvinnu
fyrir alla.
Izvestia sagði, að skoðana-
kannanir sýndu að fylgi
stjórnarinnar hafi minnkað
mikið og nyti hún ekki lengur
stuðnings meirihluta kjós-
enda, en samt væru sósíalist-
ar ekki á því að breyta um
stefnu. Efnahagslífið er á
niðurleið og ástandið í innan-
landspólitík fer versnandi,
bætti málgagnið við og stað-
hæfði að stjórn Fabiusar
mundi eiga í erfiðleikum
með að leysa vandamál þjóð-
arinnar án stuðnings komm-
únista.
Kína tapar stórfé á ári
- vegna ófullnægjandi vöruumbúða
Peking-Reuter
■ Egg að andvirði 50 millj-
ón dollara, sem Kínverjar
fluttu út á síðasta ári, eyði-
i lögðust vegna lélegra umbúða
og 20% allra glervara til
útflutnings brotnaði, að sögn
kínverska dagblaðsins China
Daily.
Blaðið sagði einnig að
fimm milljónir tonna af sem-
enti hefðu farið forgörðum
af sömu ástæðu en Kínverjar
flytja um 100 milljónir tonna
af sementi út árlega. Þá
krömdust eða rotnuðu um
20% allra ávaxta sem Kín-
verjar fluttu út á síðasta ári.
Öfullnægjandi umbúðir
kosta landið um 5 milljarða
doliara á ári að sögn blaðsins.
Það hafði eftir háttsettum
embættismanni að núverandi
fjárveiting til umbúðafram-
leiðslu, 50 milljónir dollara,
yrði margfölduð á næstu
fimm árum.
VÖNDUÐ
DÖNSK HÚSTJÖLD
10 ára reynsla í íslenskri
veðráttu
4ra manna, 14,5 m2 kr 14.000,-
4ra manna, 15,5 m2 kr. 18.200,-
5 manna, 18.0 m2 kr. 22.000,-
5 manna, 19,0 m2 kr. 22.300,-
Göngutjöld m/himni kr. 4.700,-3,1 kg.
Tjaldstólar kr. 200,-
TJALDBÚÐIR
Geithálsi. S: 44392.
Til sölu
Toyota Crown Diesel árg. 1981. Ekinn 116.000
km. Upplýsingar hjá bílasölu Selfoss. Símar:
99-1416 og 99-6412.
Áríðandi orðsending
til allra þeirra
sem hafa pantað
Fiatl27
Fyrstu bílarnir eru nú á leið til landsins
og verða til afgreiðslu um
miðjan ágúst.
Þegar liggja fyrir fleiri pantanir en
hægt er að anna úr fyrstu sendingu.
Þeir sem vilja tryggja sér bíl
til afgreiðslu í ágúst þurfa
að staðfesta pöntun sína
með innborgun nú þegar.
EGILL
VILHJÁLMSSON HF.
1 m zmm mwt1
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.