NT - 16.08.1984, Page 8

NT - 16.08.1984, Page 8
 Þórhallur Ágústsson bóndi Langhúsum Fljótsdal Fæddur 14. september 1901. Dáinn 25. júní 1984 Þann 25. júní síðastliðinn lést á sjúkrahúsinu Egilsstöðum Þórhalldur Ágústsson bóndi Langhúsum, liðlega 83 ára. Jarðarför hans fór fram frá Valþjófsstaðakirkju þriðjudag- inn 3. júlí á einum heitasta degi sumarsins að viðstöddu fjöl- menni. Þórhallur var fæddur á Lang- húsum 14.9.1901. Foreldrar hans voru hjónin ísak Ágúst Jónsson og Vilhelmína Eiríks- dóttir frá Ormalóni N-Þing- eyjarsýslu. Þau búa á Langhús- um frá 1897 til 1909. En þá missir Vilhelmína mann sinn frá fjórum ungum börnum þeirra hjóna. En þau voru: Þorhallur sem hér er minnst, Jón Beck bílstjóri Reykjavík, Soffía húsfr. Þuríðarstöðum Fljótsdal, lést 1944, og Her- mann skrifstofumaður um ára- tuga skeið hjá K.H.B. Reyðar- firði. Það hefur verið mikill dugn- aður í Vilhelmínu að halda áfram búskap á Langhúsum með svo ung börn, en hún kom börnunum vel til manns, og hafa þau reynst dugmiklir þjóð- félagsþegnar. Eins og fyrr er gefið ólst Þórhallur upp hjá móður sinni á Langhúsum og hefur vafalaust farið ungur að taka til hendinni við heimilisverkin. Vandvirkni og snyrtimennska hafa eflaust verið honum meðfædd og bar Langhúsaheimilið þess glögg merki. Þórhallur hlaut ekki aðra menntun en tilskilda barna- fræðslu fyrir fermingu. Árið 1930 giftist Þórhallur heitkonu sinni Iðunni Þorsteins- dóttur frá Klúku og taka þau við búi á Langhúsum. Þau eignuð- ust níu börn talin í aldursröð: Ágúst bóndi Langhúsum, Þor- steinn starfsm. Reyðarfirði, Re- bekka búst. Langhúsum, Ingi- björg hfr. Arnaldsstöðum, Sig- urður, Soffía hfr. Selfossi, Ósk- ar í Reykjavík, Bragi á Eskifirði og Ragnhildur á Langhúsum. Þessum stóra barnahóp komu þau upp án allra fjölskyldubóta. Sigurður ólst upp hjá ömmu sinni í Klúku og móðursystkin- um sínum, er þar bóndi nú. Ég kynntist Þórhalli lítið fyrr en ég flutti að Flögu. Þar gisti hann hjá okkur á haustin þegar hann var að reka lömbin sín til slátrunar til Reyðarfjarðar. Þór- hallur var alltaf snyrtilegur til fara og sama snyrtimennska var á reiðtygjum hans og farangri. Þessi hægi og prúði maður virtist mér við fyrstu kynni hlédrægur, en við nánari kynni var hnn skemmtilegur og sagði vel frá, var greindur og stálminnugur. Þórhallur var listaskrifari svo orð fór af. Ég hef heyrt talað um bréf sem hann skrifaði Þorsteini Jónssyni kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði. Þorsteinn áað hafa sagt að það væri fallegasta og best skrifaða bréf sem hann hefði fengið, og haft það gjarn- an til sýnis. Þórhallur var um langt árabil fulltrúi á aðalfundum K.H.B. Þar sem annarsstaðar var sama prúðmennskan, hann fylgdist vel með og tók sína afstöðu til mála. Ég sótti oft rekstra á haustin norður í Fljótsdal, og þá í Víðivallarétt. En eitt haust fór ég upp á Múlarétt, en hún var stutt frá Langhúsum. Á réttinni var fjölmenni og var Þórhallur réttarstjóri. Eftir að við Þórhall- ur höfðum heilsast, segir hann strax: Nú kemur þú heim með mér og færð þér kaffisopa. Hann bað einn nágranna sinn að sjá um réttarstjórn, tók síðan hest og við riðum heim. Ég veitti sérstaklega athygli útihús- um sem stóðu þarna á renni- sléttu túni, veggir allir hlaðnir úr torfi og grjóti og svo vel gerðir að þeir litu út eins og hefluð fjöl, hvergi var rusl eða óþarfa hlutir. Sama var þegar komið var heim að íbúðarhúsi, sem var steinhús. Þórhallur bauð mér að ganga í bæinn, þar var Iðunn kona hans og börn, voru þau vel klædd og allt vel um gengið. Yfir kaffinu ræddu þau hjónin við mig og fræddu. En tíminn leið fljótt og skyldan kallaði Þórhall til réttarstjórnar og ég að sækja rekstur og vildi síður láta samferðarmenn mína bíða. Þórhallur missti konu sína 1966. Bjó hann áfram með börnum sínum og síðustu árin eftir að heilsan fór að bila dvaldi hann í skjóli þeirra. Ég þakka Þórhalli góð kynni og sendi börnum hans, bræðrum og öðrum vandamönnum samúð- arkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Blessuð sé minning Þórhalls á Langhúsum. Stefán Bjarnason Flögu. AUGLYSENDUR ATHUGŒ) Fylgirit NT um byggingariðnað kemur út 4. viku í ágúst. Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu þurfa að hafa borist auglýsingadeild NT í síðasta lagi föstudaginn 17. ágúst. Símarnir eru 18300 - 687648 - 686300 Fimmtudagur 16. ágúst 1984 8 Síðbúin umsögn um gítartónleika ■ Hinn 24. júlí hélt Arnaldur Arnarson gítarleikari tónleika í Norræna húsinu, og endurtók þá tveimur dögum síðar í Menn- ingarmiðstöðinni við Gerðu- berg. Arnaldur hefur búið á Spáni undanfarið, við nám og störf, en upphaflega skólun sína í gítarleik fékk hann hjá Gunn- ari Jónssyni í Tónskóla Sigur- sveins og síðar í Manchester. Nú er hann sem sagt róinn á spænsku miðin. Arnaldur hefur alloft haldið tónleika á liðnum árum, þ.á. m. tvisvar í Norræna húsinu. Enginn hefur efast um hæfileika hans og gáfur, en stundum voru áhöld um að hann væri nógu iðinn við að æfa sig. Meðal annars þess yegna var áhugavert að heyra hvernig honum farnaðist nú eftir tónlist- artörn á Spáni. Og niðurstaðan var almennt sú, að vel hefði tekist til, og að Arnaldur sé mjög vaxandi gítarleikari að kunnáttu og öryggi. Efnisskráin spannaði þrjú mismunandi skeið: Fimm verk eftir John Dowland (1563-1626) voru fulltrúar barokk-tímabils- ins, Nocturnal eftir Benjamin Britten (1913-1976) hins nýja breska skóla (en verkið er ti- leinkað brautryðjandanum og snillingnum Dowland), og loks tvö verk úr spænska heiminum, Cavatina eftir Alexandre Tansman (f. 1897) og Þrjú spænsk stykki eftir Joaquin Ro- drigo (f. 1902). Sjálfum fannst mér tónlist Dowlands bera af, falleg og tær eins og mörg hin bestu verk þessa tímabils. Arn- aldur spilaði nú á 10 strengja gítar, eins og Frakkinn Pierre Laneau sem hér kom í apríl til að kynna Eric Satie, en hvað sem olli tókst flutningurinn lak- ast á þessu verki. Hin verkin þrjú flutti hann prýðisvel, en þó bezt það sem mér þótti síst, Cavatinu Tansmans. Og loks spilaði hann nokkur aukalög, bráðvel. Klassískur gítar, eins og hljóðfæri Arnalds Arnarsonar og tónlist þess nefnist, á tal- sverðu fylgi að fagna hér á landi, svo sem góð aðsókn að gítartónleikum sýnir. En jafn- framt verður hinu ekki neitað, að rútubíla- og barnaheimilagít- ar, eins og sama hljóðfæri í höndum viðvaninga nefnist, er háskalega algengt. Og mætti ég leggja orð í belg í þeirri menningar- og skólamálaum- ræðu sem fram fer hér á landi þessi misserin, vildi ég stinga upp á því, að til að hljóta réttindi fóstra á barnaheimilum þurfi hvorki stúdentspróf né háskólamenntun, heldur stað- góða undirstöðukunnáttu í æðri hljóðfæraleik, t.d. klassískum gítar. Röksemdina fyrir þessu er að finna í tilraunum atferlis- fræðinga sem hafa sýnt, svo ekki verður um villst, að „lengi býr að fyrstu gerð“: Þeir sem byrja æviferil sínn með lélegri tóníist og aulavísum fá „slæmt start í lífshlaupinu", svo notað sé fimleikamannamál um tón- listar og bókmenntauppeldi. 13.8. Sigurður Steinþórsson Plötupunktar...plötupunktar...plötupunktar... JON ANDERSON og Van- gilis áttu árangursríkt sam- starf í eina tíð og nú hefur rjóminn af því verið gefinn út á „Best of“ safnplötu af Poly- dor. Meðal laga eru „l’ll Find My Way Home“, „I Hear You Now“ og „State Of Inde- pendence", sem Donna Summer gerði seinna frægt. Litlar líkur eru á því að þeir félagar taki upp þráðinn að nýju, Jón er aftur kominn á skrið með Yes og frést hefur að Polydor hafi nýlega vísað á bug nýjustu sólóplötu Van- gilis... THE HINDLE PICKETS er hljómsveit verkfallsmanna í Hindle Gears í Bradford í Englandi sem starfað hefur í 15 mánuði til að standa undir verkfallsaðgerðum. Þeir hafa þrykkt á plast sinni útgáfu af Woody Guthrie laginu, „Part Of The Union“ og gefa það út á eigin merki, Catch 22.... CHRIS NORMAN sem í eina tíð söng með Smokie gefur út aðra sólóplötu sína um þessar mundir og mun hún bera heitið „My Girl And Me“. Útgefandi er RCA... THE TIME, fúnkgrúppan sem kemur fram í mynd Prince „Purple Rain“ gefur út þriðju plötu sína hjá WEA þessa dagana og ber hún heitið „Ice Cream Castle"... BRUCE FOXTON er ný- kominn með litla plötu, gefna út hjá Arista sem heitir SOS (My Imagination)" Á hinni hliðinni tekur hann gamla Chicago lagið „25 Or 6 To 4“ og Temptations lagið „Get Ready“ á sinn hátt... GARY MOORE er nýlega kominn úr hljómleikaferð um Bandaríkin og spilar á risa- rokki við Donington kastala í Englandi. Nýlega kom lítil skífa með honum á 10 Records, sem ber heitið „Emty Rooms“ og er mikill bárujárnsóður... DAVE EDMUNDS er kom- inn með litla plötu, „Some- thing About You“ heitir hún og gefin út á Arista. Lagið er samið af Holland Dozier Hol- land og upptökustjóri var Jeff Lynne. Stór plata er væntan- leg með Edmunds síðar í sumar... JOE JACKSON, Donald Fagen, Dr. John, Todd Rundgren og Peter Framton eru meðal þeirra iistamanna sem leika á minningarplötu um Thelonious Monk, sem bera á heitið „Thats The Way I Feel Now“ og verður gefin út af A&M mjög á næst- unni.... DR. JOHN hefur gert það gott á hljómleikum í Englandi í sumar og væntan- leg er á markaðinn safnplata með kappanum. Eru lögin tekin af plötunum “In The Right Place“ og „Destively Bonnaroo" sem Atlantic gaf út á sínum tíma. Það er útgáfufyrirtækið Edsel sem gefur út... DON SNOV, sem í eina tíð lék á hljómborð í Squeeze, hefur stofnað sína eigin hljómsveit, Catch og hefur hún gert samning við Stiff um að gefa út litla plötu, „25 Years“ sem þegar hefur náð miklum vinsældum í Þýska- landi... DEEP PURPLE eru nú að taka upp plötu og er hljóm- sveitin eins skipuð og á „In Rock“, með Ian Gillan, Rit- chie Blackmore, Roger Glover, Ian Paice og Jon Lord í aðalhlutverkum. Hef- ur rignt yfir þá tilboðum frá hljómplötuútgefendum og ættu þeir ekki að vera í neinum vandræðum með að koma skífunni út... AC/DC undirstrika þátttöku sína í risarokkinu við Don- ington kastala 18. ágúst með því að gefa út litla plötu, „Nervous Shakedown“. Hin hliðin er „læf“ útgáfa af klass- íska laginu þeirra. „Rock And Roil Aint Pollution". 12 tommu platan inniheldur að auki lögin „Sin City“ og „This House Is On Fire“. SONS OF THE SOUL CLAN er nafnið á plötu þar sem Simon Le Bon, Tony Hadley, Boy George, Nick Heyward, Marc Almond og Pete Shelley gera garðinn frægan. Plata þessierinnblás- in af „Soul Clan“ plötu Atlantic sem býður uppá stjörnur eins og Wilson Pikett og Don Covay, meðal annarra. Á þessari nýju plötu eru teknir fyrir gamlir stand- ardar frá sjötta og sjöunda áratugnum og vonir standa til að hægt verði að fá The Tompson Twins og Wham til að slást í hópinn. Platan á að koma út hjá Small Wonder útgáfunni seinna á þessu ári...

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.