NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 16.08.1984, Qupperneq 11

NT - 16.08.1984, Qupperneq 11
Fimmtudagur 16. ágúst 1984 11 ■ Veröa örlög kynslóðarinnar, sem sótti Kinkstónieikana í Austurbæjarbíói um árið, að verða eilíft vandamál. Á unglingsárum þóttu þau óstýrlát og nú er því spáð að þegar þau komast á gamalsaldur verði iðnríkin að springa af ellilífeyrisþegum. streymiskerfi getur haft áhrif á sparnað. Þeir sem greiða til gegnumstreymissjóða gera sér grein fyrir að þeir munu trú- lega fá nokkra viðbót á eftir- laun í styrk frá börnum sínum. Þeir muni því reyna að leggja fyrir til þess að láta börnum sínum eftir sem einskonar endurgreiðslu fyrir styrkinn. Aðgerðir stjórnvalda til þess að stýra sparnaði fólks og setja reglur um arf munu ekki hafa áhrif heldur einungis leiða til nýrra aðferða en útkoman verður sú sama. Hagnýtar rannsóknir hafa meira beinst að því að finna sparnaðaráhrif opinberra líf- eyrissjóða samanborið við einkasjóði. Martin Feldstein formaður ráðgjafanefndar Re- agans forseta um efnahagsmál (reyndar mun hann segja af sér Mynd no: 2 innan skamms) hefur fram- kvæmt nokkrar rannsóknir og benda niðurstöður þeirra til þess að einkaneysla hafi aukist og sparnaður minnkað þegar Bandaríkin tóku upp opinbert eftirlaunakerfi. Nýrri hag- fræðirannsóknir hafa ekki leitt til þeirrar niðurstöðu að opin- ber eftirlaunakerfi dragi úr sparnaði. Hver sem niðurstaðan verð- ur í þessari deilu er ljóst að þörfin til þess að sjá vaxandi fjölda lífeyrisþega fyrir lífeyri ógnar efnahagslegri fram- vindu. Ef það verður ekki vegna minni sparnaðar þá vegna minni hvata til vinnu: Hinir háu skattar sem spáð er að leggja þurfi á til þess að standa straum af lífeyriskerf- unum munu leiða til þess að atvinnuleysisbætur verða hærra hlutfall af tekjum eftir skatta og því mun verða meiri freisting til þess að skrá sig atvinnulausan án þess að það sé í raun nauðsynlegt. Þetta er vítahringur: æ færri vinnandi menn, æ fleiri lífeyrisþegar og meira álag á félagslega aðstoð. Þá er viðbúið að hærra skatt- hlutfall muni leiða til aukinnar „svartrar" atvinnustarfsemi og þannig enn auka áþján og byrðar þeirrar atvinnustarf- semi sem eftir er. Hinn ört vaxandi kostnaður við lífeyriskerfin er samt að- eins toppurinn á ísjakanum. Jafnframt breyttri aldursskini- ingu í iðnríkjunum virðist gæia hneigðar til aukinna útgjalda til félagsmála. Skuldadagar Þótt unnt væri að fá stjórn- Eftirlaunabyrðin Hlutfall þeirra sem fá eftirlaun á móti þeim / sem greiða til lífeyriskerfanna. 7 Bandarikin Spá g°. % 70 60 $o Ýo 30 2qx lO —i-----1----1----1---»---------1--------»----»-------------.— l<no T-5 So 35 90 95 2,000 os 10 IS 20 25 30 Ekki er allsstaðar um að ræða sömu hópa. Til dæmis eru opinberir starfsmenn ekki taldir í Vestur-Þýskalandi, en öllum skipt eftir aldri og miðað við 19-64 ára og 65 ára og eldri í Bandaríkjunum. málamenn til að hugsa þrjátíu ár fram í tímann eru ráðin til að draga úr kostnaði við eftir- laun takmörkuð og sársauka- full í framkvæmd. Ólíklegt er að horfið verði frá gegnum- streymiskerfum til sjóðsjöfn- unarkerfa og enn ólíklegra að það takist. Reynsla Japana sýnir okkur að jafnvel hagsýn stjórnvöld munu eyða ávinn- ingnum. Hætt er við að í öðrum löndum yrði freistingin til þess að nota digra sjóði til aukinnar eyðslu of sterk til að standast hana. Hinir raunveru- legu kostir eru því einungis: minni eyðsla eða hærri skatta- tekur. Stjórnvöld gætu aukið skatt- tekjur sínar með því að hækka skatta en mörgum finnst að núverandi skattheimta virki nú þegar hamlandi á efnahags- lífið. Hægt væri að draga úr lífeyrisgreiðslum ef sambandið milli vaxandi tekna og eftir- launa væri rofið en eftirlaun þess í stað tengd verðlagsvísi- tölu því verðlag hækkar hægar en laun þegar til lengri tíma er litið. Þetta er í samræmi við þá skoðun að eftirlaun skuli í raun einungis tryggja afkomu en ekki vera í hlutfalli við almennan kaupmátt. Þetta tekur hins vegar ekkert tillit til þess að fátækt í hinum ríku iðnaðarlöndum er mestan part „hlutfallsleg“ - fólk er fátækt miðað við aðra en ekki vegna þess að það hafi ekki til hnífs og skeiðar. Breyting á viðmið- unarvísitölu eftirlauna mundi leiða til vaxandi tekjumunar í þjóðfélaginu. Líklegt er að mörg lönd muni þess í stað reyna að takmarka eftirlaun við „þörf“ hvernig sem hún yrði skilgreind, fremur en það eitt að viðkomandi hafi náð eftirlaunaaldri. Bæði í Bandaríkjunum og Japan eru uppi raddir sem telja að hækkun eftirlaunaald- urs (en hann er 60 ár í Japan og 65 ár í Bandaríkjunum) sé skynsamlegasta leiðin til þess að leysa vandann. í Evrópu er hins vegar, þótt merkilegt megi virðast, reynt að lækka eftir- launaaldur til þess að draga úr atvinnuleysi. Lönd sem það gera munu ekki draga svo mjög úr at- vinnuleysi. Þau munu hins veg- ar gera hina aðvífandi eftir- launakreppu erfiðari viðfangs. Grein þessi er þýdd úr The Economist fyrir tilstuðlan Sambands almennra líf- eyrissjóða. Málsvari frjálslyndis,: samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórárinn Þór^rinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 686387 og 686306. Verð í lausasölu 25 kr.og 30 kr. um helgar. Áskrift 275 kr. rnr JIVT Setnihg og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent hf. r Dagur í lífi hins atvinnulausa ■ í Vestur-Evrópu einni ganga nú tuttugu milljónir vinnufærra manna atvinnulausar. Það er sannmæli flestra, sem hafa kynnst því, að atvinnuleysið sé mesta böl, sem glímt er við í löndum Vestur-Evrópu um þessar mundir. Það brjóti fólk niður andlega og líkamlega. Ekkert verkefni sé því mikilvægara en að tryggja fulla atvinnu. Islendingar hafa notið þeirrar hamingju undanfar- in 15 ár, að vera lausir við atvinnuleysi. Nú blasir hins vegar sú hætta við að þetta geti brugðist. Þýðingar- mestu atvinnuvegirnir, eins og sjávarútvegur og fiskvinnsla, búa við mikla rekstrarerfiðleika og horfur eru dökkar framundan, m.a. vegna þrengri og lakari markaða. Hrynji þessar atvinnugreinar meira eða minna fylgir allt á eftir. Þá gæti orðið stórfellt atvinnuleysi með öllum þeim hörmungum, sem því fylgir. I Þjóðviljanum í gær er brugðið upp mynd af degi í lífi atvinnuleysingja, sem byggð er á rannsókn írskra félagsfræðinga. Hún sýnir vel hvernig atvinnu- leysið getur brotið menn niður líkamlega og andlega. Hún er dagskýrsla eins atvinnuleysingja, sem rann- sóknin náði til og hljóðar á þessa leið: „9.00 Fór á fætur. 9.30 Fór á vinnumiðlunarskrifstofuna. Fékk mér göngutúr. 10.00 Kom heim, fór í gönguferð með yngsta barninu. 11.00 Kom heim. Fékk mér te og las blaðið. 11.30 Settist á stól og góndi út í loftið. Það var skrúfað frá útvarpinu. 12.00 Enn sat ég á stól og glápti út í loftið. Útvarpið í gangi. 12.30 Kveikti á sjónvarpinu og horfði á það. 13.00 Fékk mér hádegismat. 13.30 Fór á veðmálaskrifstofuna. Hitti vini mína og kjaftaði við þá. 14.00 Enn var ég að tala við vini mína á veðmálaskrif- stofunni. 14.30 Fór heim. Leysti krossgátu. Gaf börnunum te þegar þau komu heim úr skólanum. 15.00 Hlustaði á kassettur, horfði á konuna í leikfimi. 15.30 Horfði á sjónvarp. 16.00 Reyndi að gera við reiðhjól stráksins. 17.30 Máltíð. 18.00 Horfði á sjónvarpið. 18.30 Hjálpaði krökkunum aðbúasigundir skólann. 19.00 Horfði á sjónvarp. 20.30 Fékk mér eina kollu á kránni. 21.30 Spilaði við krakkana áður en þau fóru að sofa. 22.00 Horfði á sjónvarp. 22.30 Strauk konunni um lærið. Ekkert gerðist. 23.00 Samtgerðisteitthvað. Slökkti ásjónvarpinu.“ Greinarhöfundur Þjóðviljans (Árni Bergmann) fylgir þessari dagskýrslu eftir með þessum orðum: „Breskur gálgahúmor felur að nokkru leyti þá örvæntingu sem tengist slíku lífi - en þar er af meiru en nógu að taka. Flestir hafa verið aldir upp við það, að þeir séu það sem þeir starfa, og þegar starfið er af þeim tekið finnst þeim að með öllu sé svipt fótum undan tilveru þeirra.“ Þetta er áreiðanlega ekki ofmælt. í þeim viðræðum stjórnarvalda og aðila vinnumarkaðarins, sem eru framundan, verður það að vega langmest að tryggja atvinnuöryggið. Það sjónarmið verður að móta þær ráðstafanir og kjarasamninga, sem fjallað verður um.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.