NT


NT - 02.09.1984, Side 4

NT - 02.09.1984, Side 4
IKína eru 56 þjóðflokkar sem allir hafa sína sérstöku siði og venjur. Meðal sumra þjóð- tlokkanna er til dæmis mikið sungið og dansað. En um % prósent Kínverja eru af Han- þjóðflokki scm hcfur frckar litla danshefð og dansar helst ckki nema þjóðdansa á sviði. Þannig hefur þctta að minnsta kosti verið hingað til. En danshefðir breytast eins og aðrar hefðir. Kínversk ungmenni hafa nú mikið yndi af því að dansa vals, polka og aðra klassíska dansa. Eitt kvöldið þegar ég var á leiðinni heim í Pekinghá- skóla nú í sumar hárust á móti mér gamlir valsar frá Evrópu úr hátalarakerfi við einn af íþróttavöllum skólans. Þetta hátalarakerfi var áður notað til aö boða nemendum pólitískan boðskap og byltingarlög og það er orðiö háll' lélegt vegna mikillar notkunar. Mikiö brak og brestir fylgdu þess vegna völsunum sem voru spilaðir cins hátt og hátalarakerfið þoldi. Eg gekk á hljóðið og sá þá hvar mörg hundruð ung- menni dönsuðu gömlu dansana af mikilli innlifun í rökkrinu. Piltarnir voru í leöurskóm og bestu skyrtunni sinni og stúlk- urnar voru í sparikjólum. Götuljósker vörpuðu daufri birtu inn á íþróttavöllinn. Nokkrar vandræðalegar stúlk- ur stóðu fyrir utan völlinn og horfðu á danscndurna og dömulausir piltar gutu viö og við augunum í áttina til þeirra en hötðu samt ekki uppburði í sér til að.bjóða þeint udd. Aundan hyerjum dansi út- skýrði þulur hvernig spor- in skyldu stigin og dansendurn- ir gerðu sitt besta til að fylgja leiðbeiningum hans. Því ntiður hafði ég ekki myndavél við höndina þannig að ég gat ekki fest þetta dansiball á filmu. Einn af áhorfendunum út- skýrði fyrir mér að nemendur við Pekingháskóla væru að æfa sig fyrir danssýningu sem halda ætti á 35. þjóðhátfðardegi Kín- verja þann I. október næst- komandi. SýninginyrðiáTorgi hins himneska friðar í miðborg Peking og dansatriði nemend- anna yrði ekki nema lítill hluti af henni en þaö væri sanit mikilvægt að æfa sig vel. Annars niunu opinberir dansleikir vera frekar fá- tíðir enn sem komið er í Peking. Það er sagt að suntir Kínverjar af eldri kynslóðinni séu ekki svo ýkja hrifnir af dansáhuga unga fólksins og þess vegna hafi stjórnvöld á- kveðið að fara hægt í það að skipuleggja almenna dansleiki. En sums staðar í Suður-Kína munu þeir vera algengir og það er örugglega ekki langt í það að laugardagsböll verða fastur hluti af skemmtanalífi ungra Kínverja. Ef dansleikir eru ekki leyfðir opinberlega Sunnudagur 2. september 1984 lot á almannafæri. Þettaájafnt við um Kínverja á meginland- inu sem um samlanda þeirra í Hongkong og á Taiwan. En siðferðishöft Kínverja duga ekki til að halda aftur af ungu kynslóðinni sem nú leitar sér maka. Eitt sinn sá ég nteira að segja ungan pilt stela smákossi af unnustu sinni í strætó. Þetta var unt kvöld þannig að það sáu ekki margir til þeirra og það var svo þröngt að það voru hvort eð er ekki nema nokkrir sentimetrar á milli andlitanna á þeim. Þau horfðu dáleidd á hvort annað og hún þrýsti sér fast upp að honum. Hendur piltsins voru greinilega eitthvað uppteknar og það var eins og þau væru ein í heiminum þótt í rauninni væru þau klesst á milli tíu annarra farþega enda er nýting kínverskra strætisvagna á aðal- annatímanum mjög góð og 12 farþegar á livern fermetra. Meira að segja ég fór hjá mér þótt ég þættist ekki taka eftir neinu frekar en aðrir samfar- þegar þeirra. H Astin er orðin áberandi þáttur í kínversku þjóðlífí. Maðurinn á þessari inynd er reyndar frá Hongkong en unn- ustan frá Shanghai. Ungir ógiftir pipar- sveinar í Hongkong fara stundum til meginlands Kína til að leita sér að góðum konuefnum. Það má varla á milli sjá hvort þeirra er hamingjusamara, maður- inn yfír því að hafa náð í svona fallega kærustu eða stúlkan yfír þvi að hafa náð í vel stæðan Hongkongbúa. NT-mynd, sumar 1984 í Shunghai, rb. skipuleggur unga fólkið þá bara sjálft heima hjá sér. í Peking ganga meira að segja um þaö sögur að á heimadans- leikjunt séu Ijósin stundum slökkt og dansaðir vangadans- ar. ✓ Iþessari ferð minni til Kína var mér það stöðugt unarefni hvað samskipti kynj- anna höfðu breyst mikið. Kín- verjum hefur hingað til þótt í hæsta máta ósiðsamlegt að kyssast eða sýna önnur ástarat- Klassíski ir dansar og ástarat/ot fxi T0 HKínverskir strætisvagnar eru stundum svo troðnir að 12 farþegar eru á hvern fermetra. Ungir elskendur nota stundum tækifærið og stelast til að kyssast á kvöldin í strætó þegar enginn sér til og það er svo troðið í vagninn að elskendurnir geta faðmast án þess að það veki athygli. NT d sumar 19g4 rb Mér er sagt að það þekkist nú meira að segja að ung pör búi saman í óvígðri sambúð, þótt slíkt sé ennþá mjög sjaldgæft. Flestir Kín- verjar gifta sig ekki fyrr en þeir eru komnir á þrítugsaldur og láta nánustu ástaratlot sín bíða þar til á brúðkaupsnóttinni. En það er samt greinilegt að þetta stranga siðferði er á undanhaldi. Einu sinni þegar ég var að borða hádegisverð á þétt- setnum veitingastað varð ég vitni að því að ungur maður þuldi langa ástarjátningu fyrir stúlku sem hann var með þótt fimm aðrir einstaklingar sætu við sama borð. Á móti parinu sat gamall maður með syni sínum, vinstra megin við þau voru ráðsett miðaldra hjón og sjálfur sat ég á vinstri hönd þeirra. Það var svo þröngt setið að þótt ég gerði mitt besta til að hlera ekki samtal unga fólksins heyrði ég samt glefsur úr ástarjátningu piltsins. Hann sagði meðal annars að hann hefði elskað hana lengi og dreyntdi um hana á nóttunni. Fyrir framan þau var hálftóm tveggja lítra kanna af bjór sem pilturinn greip öðru hverju til þegar hann átti erfitt með að korna fyrir sig orði. Hægri höndina hafði hann á læri stúlkunnar mest allan tím- ann og að máltíðinni lokinni var höndin komin ótrúlega langt upp eftir lærinu. Stúlkan lét sér þetta vel lynda þótt þau væru greinilega ekki gift. Þrátt fyrir þetta kom enginn siðferð- ispostuli til að benda þeim á takmörk velsæmisins. Fólkið sem var með þeim við borðið lét sem það tæki ekki eftir neinu og einbeitti sér að rétt- unum. (t næstu grein minni mun ég m.a. fjalla um hefðbundið til- hugalíf. Kínverja) Ragnar Baldursson 4

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.