NT - 02.09.1984, Blaðsíða 7

NT - 02.09.1984, Blaðsíða 7
góðan kennara í átta ára bekk. Svo skipti ég um skóla og lenti hjá fremur skrítnum kennara. Ég bað nokkrum sinnum um frí og fékk það. Þegar ég hætti að biðja um frí, spurði hann mig bara hvort ég vildi ekki frí. Og ekki stóð á strák að fá sér frí og fara niður á höfn og skoða skipin. Andvaraleysi foreldra Það má kannski líka kenna andvaraleysi foreldra um, sagði Jón. Alla vega voru til mömmur, sem ekki gátu sætt sig við að börnin þeirra væru í versta bekk. Þær fóru til stjóra og sögðu - barnið mitt á ekki að vera í svona bekk. Og þær fengu þau flutt í betri bekk. Það var alltaf svolítil hreyfing á fólki upp úr tossabekk á haustin vegna þessa. Fann fyrst fyrir námsgetu í 4. bekk Ég tók gagnfræðapróf. úr verknámsdeild og fór til Nor- egs og vann í eitt ársagði Asta. Aður en ég fór hafði ég sótt um Hjúkrunarskólann og byrjaði í honum strax og ég kom heim aftur, þá var ég komin með námsáhuga og gekk alveg ágætlega í skólanunt. Ég fór líka í verknámsdeild, sagði Erla. I verknámsdeild- inni var bekkjunt ekki skipt í betri bekki og tossa bekki heldur eftir deildum. Það var hússtjórnardeild, saumadeild og sjóvinnudeild. það var voða mikil breidd í bekkjunum hvað viðkemureinkunnumog miklu betri kennsla. Ég fannífyrsta sinn fyrir því að ég gat lært og fór að fá virkilegan áhuga á náminu í fjórða bekk. Ég sem aldrei hafði getað neitt í reikn- ingi fór allt í einu að ganga vel. Og ég útskrifaðist með yfir sjö í aðaleinkunn á gagnfræða- prófi. Iðnskólinn bjarg- aði málunum Hvorki Páll né Jón luku gagnfræðaprófi. Eftir ungl- ingapróf tók ég mér frí og fór á sjóinn, sagði Jón. Svo vildi ég komast í verknám og gerði mér ferð upp í Verknám og óskaði eftir inngöngu. Mér var tjáð að skólarými væri ekki það mikið að það yrði að taka úrvalsliðið. Þó einkennilegt megi virðast var ekkert eftir nema Iðnskólinn. Eftir unglingapróf fór ég beint í Iðnskólann og má með sanni segja að hann hafi bjarg- að mér fyrir horn, sagði Páll. Þetta var opinn skóli, við tókum inntökupróf og var þannig síað úr, en ekki litið á einkunnir manna. Ekkikomiðaðsök að læra meira í hausinn á sér Ég er viss um að þessi lélega undirstaða sem ég hlaut í skóla hafi komið mér í koll, sagði Erla. En það er erfitt um það að segja, því ég hef engan samanburð. Mér gekk ágæt- lega með enskuna í Öldunga- deildinni, náði öllum áföngum og þótti það ekki slæmt með svona gamalt gagnfræðapróf. En égveitað efnafræðin, eðlis- fræðin og stærðfræðin eiga eftir að vera mér erfiðar. Þetta eru erfiðustu fögin og við fengum minnstu kennsluna í þeim. Það háði mér að kunna ekki sumt af því, sem ég átti að læra í skóla. Ég hefði til dæmis mátt læra enskuna, bókfærslu, landafræði og reikning betur, sagði Páll. Þetta kemur ekki eins mikið að sök og það gerði, það er alltaf hægt að sækja alls konar námskeið og endur- mennta sig. Hvað mig varðar þá hefði ég viljað fara út í eitthvað annað nám en það iðnnám sem ég lagði fyrir mig. þó aldrei hefði ég farið út í langskólanám. En það hefði ekki komið að sök að læra meira í hausinn á sér. Þó ég verði aldrei bókamað- ur þá hefur bókaáhugi minn vissulega aukist rneð árunum, sagði Jón. Ég hef lagt mig eftir alls konar fróðleik í daglega lífinu og er alltaf að bæta við mig einhverju. Ég hef reynt að auka málakunnáttuna og svo finnst mér ákaflega gaman af landafræði og öllum sögu- legum fróðleik. Aðeins einn orðið undir Það er aðeins einn úr þessunt bekk, sem farið hefur illa og orðið brennivíninu að bráð, sagði Ásta. Það er ábyggilega ekkert hærra hlutfall en gengur og gerist í öðrum bekkjum. Það verða alltaf einhverjir undir. Hann lauk námi frá Sjómannaskólanum og var síst óefnilegri en við hinir, bætti Jón við. Þó enginn okkar hinna hafi farið í stórnám, sagði Jón, þá hefur ekkert okkar verið til vandræða í þjóðfélaginu. Við höfðum alla vega sómatilfinn- ingu og öll lagt okkar af mörkum og ekki orðið þjóðfé- laginu dýrkeypt, alla vega ekki enn. Ég er ekki viss um að við höfum gert það mikið verr en margir þeirra, sem hafa lang- skólanám að baki, sagði Páll. Ég sá ekki bctur hér í sjónvarp- inu um daginn að menntamenn sem vinna hjá ríkinu hafa síst betri laun en hinn almenni launamaður. Alla vega þá lenti enginn okkár í skurðinum, við komumst nær öll vel til manns og þetta er allt prýðisfólk. Hefðigengiðbetur með duglegri krökkum Það á alls ekki að hrúga öllum krökkum sem eru áhugalaus eða eiga erfitt með að læra snemma í sama bekk og stimpla þá eins og gert var, sagði Ásta. En það er voða erfitt að raða þessu svo allir fái út úr þessu það sem þeir vilja. Krakkarerusvomisfljót- ir. Sum börn þurfa kannski þrjú ár, sem aðrir geta lært á einu ári. Aðrir fá áhuga og blómstra seinna, en þeir sem seinni eru til hljóta alltaf að tefja fyrir þeim sem eru dug- legri. . Mér líst ekkert á að setja krakka í bekki, sem heita betri bekkir og tossabekkir og gera getu þeirra áberandi, sagði Erla. Ég lield að það væri miklu betra að hafa bekkina minni og kennarana fleiri. Sumir nemendur eru kannski góðir í einu fagi en lélegri í öðru og það ætti bara að vera eðlilegt að allir fengju hjálp á einhvern hátt. Það ætti engin stimplun að felast í því. Mannfólkið er svo misjafnt, sagði Jón. Eitt hentar einum meðan annað hentar öðrum. Sumir eru góðir í höndunum aðrir geta hugsað en geta ekk- ert í höndunum, bætti Páll við, og veljast menn kannski í skóla eftir því. En ég held að það þurfi að sýna mikla nærgætni í þessum málum, hélt Jón áfram. Það þarf að hlúa að þeim sem ekki eru jafnfætis hinum, því það er mesta hættan með þá sem eru verst settir. Ég er alveg viss um að ef okkur sem vorum í tossabekknum hefði verið dreift með duglegri krökk- unum hefðum við lagt okkur nteira fram og gengið betur í skóla, sagði Jón að lokum. I.D.B. Sunnudagur 2. september 1984 7 Viltþúáð bamið þitt sé í lélegasta bekk? ■ Sigrún Aðalbjarnardóttir uppeldisfræðingur starfaði sem kennari í sjö ár. Árið 1979 settist hún sjálf á skólabekk og lauk BA námi í uppeldisfræði við Háskóla íslands vorið 1983. Vorið 1984 tók hún masters- gráðu í uppeldis- og kennslu- fræði við Harvard háskólann í Boston og mun hefja doktors- nám í sörnu greinum þar nú í haust. Auk kennslu og náms hefur Sigrún unnið að náms- efnisgerð í samfélagsfræðum. Ég vil byrja á því að nefna að ég er afar ánægð yfir að viðhorf fólks, sem voru nent- endur í svokölluðum hjálpar- eða tossabekkjum, skuli líta dagsins ljós. Það væri áhuga- vert að gera skipulagða könnun á viðhorfum þeirra til skólans, ekki síst þar sem upp koma alltaf við og við raddir nokkurra kennara og foreldra um að röðun í bekki eftir námsgetu sé heppilegra fyrir- komulag. Fylgjandi blöndun Sjálf er ég alfarið fylgjandi blöndun í bekki. Sem kennari hef ég kennt í bekkjum, þar sem nemendum var raðað eftir námsgetu og eins hef ég kennt bekk þar sem námsgeta barn- annavarmjögmisjöfn. Ástæð- urnar fyrir því að ég er fylgj- andi blöndun eru margar. Þaö sem er mér ofarlegast í huga er að flestar erlendar rannsóknir (innlendar rannsóknir hafa því miður ekki verið gerðar) sýna að þegar litið er á námsár- angursýnagetuminni nemend- ur betri námsárangur í blönd- uðum bekkjum en sambæri- legur hópur í röðuðum bekkjum. Miðlungs- og getu- meiri nemendur sýna hins vegar svipaðan árangur í blönduðum og röðuðum bekkjum. Þetta bendir til að ekki sé rétt að getulitlir nemendurdragi hina geturmeiri niður eins og sumir halda fram. Það er stórkostlegt að sjá hve hinir getumeiri nemendur geta aðstoðað hina getuminni við námið. Hinir síðarnefndu virðast jafnvel oft skilja betur orðalag og ábendingar félaga sinna en kennara. Slíkt fyrir- komulag innan bekkjarins er einnig talið ýta undir samvinnu og samhjálp nemenda, en það er einmitt hinn félagslegi þáttur, sem finnst hvað veiga- mestur í þessari umræðu. Væntingarkennara og velgengni nemenda Þeir nemendur sem voru í svokölluðum tossabekkjum fengu á sig ákveðinn stimpil eins og glöggt kemur fram í viðtölunum við fólkið hér að framan. Enginn vænti neins af þeim, hvorki nemendur né kennarar og þá er að sjálfsögðu ekki von á miklum framförum. Margar kunnar rannsóknir eru einmitt til um hve væntingar kennarans til nemenda hafa mikið að segja um námsárang- ur. Oft er vitnað í rannsókn sem framkvæmd var þannig að nokkrir kennarar fengu það hlutverk að kenna börnum, sem gekk mjög vel í námi, en var fyrirfram sagt að börnin væru miðlungsnemendur. Aðrir kennarar kenndu börn- um sem talin voru getulítil, en þeim var sagt að börnin væru ■ Sigrún Aðalbjarnardóttir dugleg. Skemmst er frá því að segja. að slöku nemendurnir ’sýndu mun betri námsárangur en vænst hafði verið af þcim, en hinir duglegu sýndu mun slakari námsárangur. Að setja sig í spor annarra Eins og fram kemur í viö- tölunum var algengt að nem- endur í betri bckkjunum litu niður á þá getuminni og höfðu víða lítið samneyti við þá. Slíkt samskiptaleysi tel ég hvorki hollt fyrir getumeiri né getuminni nemendur. I blönd- uðum bekkjum hafanemendur oft ólíkan bakgrunn og reynslu- heim, fleiri hliðar á málum koma gjarnan fram og tel ég að í því skipulagi fái fleiri tækifæri en í raðfyrirkomulagi til að setja sig í spor annarra, skoða málin frá ólíkum hliðum og sýna hvert öðru tillitsemi, sem ýtir undir félagsþroska þeirra. Þetta er að rnínu rnati áherslu- þáttur í þeirri viðleitni að gefa nemendum gott veganesti í mannlegum samskiptufn fyrir lífið. Neikvæð sjálfsmynd Nemendur í hjálpar- eða tossabekkjum missa oft trú á sér og hæfni sinni og gera minni kröfur til sín en ástæða er til. Þeir fá oft neikvæða sjálfsmynd og jafnvel vanmeta- kennd, sem getur fylgt þeim alla ævi. Sem betur fer rísa sumir upp, en það hlýtur að vera mikið átak eftir þá niður- lægingu, sem þeir hlutu í skóla. Auk þess verða þeir oft andsnúnir skólastarfi. Þeir eru sífellt undir og eru látnir finna það. Erlendis er talað um að í þessum bekkjum geti myndast menningarkimar, þar sem börnin hafa aðrar siðareglur en þær sem gilda almennt í þjóðfélaginu og hneigist jafn- vel til ofbeldis og afbrota. Námsgeta getur breyst Þá kemur einnig upp í hug- ann stóra spurningin um þau viðmið, sem notuð eru þegar raðað er í bekki eftir náms- getu. Venjulega var raðað samkvæmt námsmati á árangri við upphaf fyrsta námsárs og oftast héldu bekkirnir sér upp frá því. I slíku fyrirkomulagi er gengið út frá því að náms- geta nemenda geti ekki breyst. Fræðimenn hafa nú hinsvegar sýnt fram á hiö gagnstæða, börn þroskast mishratt og taka sum börn seint út þroska. Mörg börn lentu einnig í slökum bekkjum af öðrum ástæðum en skorti á náms- hæfni. Má nefna erfiðar heim- ilisaðstæður og aðra umhverf- isþætti, sem ætla má að hafi komið róti á tilfinningalíf þeirra, hindrað eðlilegan þroska og námsáhuga. Þannig hefur það kornið í Ijós að forspárgildi urn námsgetu við upphaf skólagöngu er ekki einhlýtt. „Þau voru fædd svona“ Það þarf engan að undra að í þessum bekkjum eru hegðun- arvandamál tíð. Vinnufriður er þar oft lítill og oft voru það ungir og óreyndir kénnarar sem fcngu það hlutverk að sinna þessum nemendunt. Ég held að því miður hafi það viðhorf verið algengt að til lítils væri að kenna þessum nemendum, þau væru fædd svona. í dagcr viðhorfið bjart- sýnna. í kenningum um þroska- sálarfræði cr litið á að þroski sé ekki síður háður áhrifum umhverfis en erfðurn. Það að þroski aukist við samspil cin- staklings og umhverfis. Um- hverfið. foreldrar, kennararog skólafélagar geta því örvað eða jafnvel tafið fyrir eðli- legum þroska. Slíkt viðhorf eykur að sjálfsögðu ábyrgð uppalenda. Ekki stefnt að meðalmennsku Ásanit breyttum hugmynd- um manna um þroska hefur verið lögð áhersla á jafnrctti til náms, sem í raun þýðir að hver einstaklingur skuli fá tækifæri til að nýta hæfileika sína sem best. Ég hef orðið vör viö þann misskilning bæði hjá nokkrum kennurum og foreldrum að í skólum skuli stefnt að meðal- mennskunni, þeir getuminni séu hífðir upp en þeir getu- nieiri bældir niður. Þetta cr mikill misskilningur á hlut- verki skólans og kennarans. I grunnskólalögunt er skýrt kveðiö á um að hlutverk skól- ans sé að stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins. Það er því nemandinn sjálfur, þroski hans og velferð, sem er í brennidepli en ekki einhver meðalmennsku- sjónarmið. Sveigjanlegir kennsluhættir Sumir hafa áhyggjur af aö getumeiri börn fái ekki við- fangsefni við sitt hæfi þegar blandað er í bekki og að það réttlæti röðun á ný. Ég vil svara því til að í hvaða bekk sem er.hvort sem raðað er eftir námsárangri eða ekki, höfum við ólíka einstaklinga. Þótt nemendur sýni svipaðan náms- árangur í reikningi og lestri geta þeir verið um fleira ólíkir. Þar má nefna lunderni, trum- leika, hugmyndaauðgi, sköp- unargáfu, tjáningarmáta sumum hentar skrifleg tjáning, öðrum munnleg tjáning og enn öðrum myndtjáning. Þeir geta einnig verið á misjöfnu stigi félags- og tilfinningaþroska. Það sem skiptir miklu í þeirri leit að koma til móts við þarfir hvers nemenda eins og gert er ráð fyrir í grunnskóla- lögum. eru sveigjanlegir kennsluhættir. Sveigjanlegir í því tilliti að þeir stuðli að virkni nemenda, að þeir bjóði nemendum upp á tjölbreytta kennsluhætti og fjölbreytt við- fangsefni þar sent hver nent- andi getur fundið verkefni við sitt hæfi. Verkefni, sem hann hefur áhuga á að glíma við og giæðir frumleika hans og sköpunargáfu og vekur forvitni hans til að afla sér upplýsinga. í slíku námi eru skoðanaskipti og umræður némenda mikil- væg , sent örva hugsun þeirra og hvetur þá til að miðla af reynslu sinm og þekkingu. Getumeiri nentendur fá ckki síst notið sín í svona starfi og tel ég þvi að ekki þurfi að óttast að þeir fái ekki verkefni til að glíma við. Minni hópar innan bekkjarins Þetta fyrirkomulag leyfir einnig að innan bekkjarins séu starfandi minni hópar. Það geta verið blandaðir hópar að vinnu við hin ýmsu verkcfni, en það eflir unt leið samvinnu nemenda og leggúr hver sitt að mörkum til hópstarfsins. Sá sem gcngur vel í reikningi þarf ekki cndilega að vera vel ritfær né duglegur að teikna. Það getur cinnig stundum verið heppilegt að hafa nemendur saman í hópi, með svipaða námsgetu til dæmis í rcikningi og lcstri sent þýðir þö ckki að slíkir hópar þurfi að haldast óbreyttir allan veturinn. Sumir spyrja kannski hvort slík röðun innan bckkjarins vcrcii til þess að þeir getumeiri líti niður á þá getuminni og kalli þá tossa. Þeir kcnnarar, scm ég hcf talað við.eru sam- mála um að svo sé alls ekki. Þvert á inóti taki nemendur þessu sem sjálfsögðum hlut að fólk sé ólíkt og sýni hvert öðru tillitsscmi. Kennarar ncfna einmitt að félagsandi bekkjar- ins sé oft til fyrirmyndar í blönduðum bekkjum. Vandasamt hlut- verk kennara Framkvæmd og skipulagn- ing fyrir hina sveigjanlegu kennsluhætti krefjast mikils tímaogundirbúnings. Kennar- ar þurfa að mcta þarfir og þroska hvers nemenda og út- búa fjölbreytt verkefni viö hæfi hvers og eins. Það getur oft veriö erfitt, sérstaklega vegna þess að nemcndur eru oft á milli 20-30 í hverjum bekk. Ég hef einnig orðið v.ör við að sumum kennurum finnst hið breytta valdahlutverk sitt crfitt. Löngum hefur starf þeirra falist í að skipa nemend- um fyrir, hlýða þeim yfir og stjórna sama hraða allra nem- endanna á yfirferð námsefnis- ins. Nú er það hlutverk þeirra að vera fremur leiðbeinandi og vinnufélagi nemendanna. Ekkert af þessurn vanda finnst mér réttlæta að horfið sé frá blöndun í bekki, heldur brýnt að þreifa sig áfram með breytt kennslufyrirkomulag. Og ég held að meirihluti kennara sé ntér sammála, því það er barnið sjálft, þarfir þess og þroski sem skólinn og starfslið þess þarf að laga sig aö. Ég vil að lokum konia á framfæri spurningu sent ég gjarnan spyr þá sem eru fylgj- andi röðun eftir námsgetu í bekki: vilt þú að barnið þitt sé í lélegasta bekk?

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.