NT - 14.11.1984, Blaðsíða 21

NT - 14.11.1984, Blaðsíða 21
 flT? Miðvikudagur 14. nóvember 1984 21 LlL Myndasög ■ Kraftaverk, sögðu margir þegar leik Pólverja og Austur- ríkismanna í undanúrslitum 01- ympíumótsins í Seattle var • lokið. Og það var von því þegar einu spili var ólokið í öðru herberginu voru Austurríkis- mennirnir 3 impum yfir og í þessu síðasta spili höfðu þeir fengið hámarksskor í hinu her- berginu. Vestur * A752 * AK * G64 + A974 Norður ♦ 10 * D1073 ♦ K10 4 KDG1086 4»allir Austur * 864 * 865 * 98752 + 52 Suður 4 KDG93 4 G942 4 AD 4 3 Við annað borðið sátu Pólverj- arnir Gawrys og Wolny NS og Austurríkismennirnir Fucik og Terraneo. Þar komust Pólverj- arnir í 4 hjörtu í NS sem Fucik vestur doblaði. Vörnin fékk sína fjóra augljósu slagi og uppskar 200. Þar sem AV gátu ekki gert betur þótti augljóst að Austur- ríkismennirnir hefðu unnið leik- inn og þar með komnir í úrslitin. Spurningin var aðeins hvort Austurríkismennirnir myndu græða á spilinu, annaðhvort með því að spila bút eða 3 grönd sem vinnast auðveldlega. Ahorfendur í sýningarsalnum voru því farnir að tínast í burt og einstaka mcnn höfðu þegar óskað Austurríkismönnunum til hamingju. En þá féll sprengjan, þegar korn í Ijós að Austurríkismennirnir í NS höfðu ekki aðeins spilað 4 hjörtu dobluð á spilið heldur farið tvo niður, 500 til Pólverj- anna sem höfðu þá unnið leik- inn með 4ra impa mun. Flestir héldu að þarna væri urn mistök hjá skrifurunum að ræða: Það virtist ekki vera mögulegt að ta fimm slagi í vörninni. En þetta reyndist allt vera rétt skráð. í þessu herbergi höfðu Pólverjarnir Romanski og Tuszynski setið AV og Aust- urríkismennirnir Kubak og Mil- ares NS. Austur spilaði út litlu laufi sem vestur tók á ás og hann spilaði síðan spaðaás og meiri spaða. Einhverra hluta vegna trompaði Milares í borði með tíunni og spilaði síðan hjarta heim á níuna og ás vesturs. Vestur spilaði meiri spaða og t, i trompaði Milares með drottn- ingunni. í borði. Enn spilaði Milares hjarta sem vestur tók á kóng og þegar hann spilaði nú fjórða spaðanum fékk austur slag á hjartaáttu. Það hlýtur að vera martröð líkast fyrir spilara að lenda í svona löguðu. Milarcs og Ku- bak höfðu spilað mjög vel fram að þcssu en þetta spil er það sem allir korna til með að muna eftir úr þessum ieik þegar fram líöa stundir. DENNIDÆMALAUSI /O-& „Gina segir að hundurinn hennar sé spældur... og að hann hafi komið úr spældu eggi." 4455. Lárétt 1) Þjóðhöfðingjar. 5) III- æri. 7) Ái. 9) Liðin tíð. 11) Líta. 12) Svik. 13) Óhreinka. 15) Sjór. 16) Belja. 18) Hlutar. Lóðrétt 1) Ákærir. 2) Maður. 3) Líta. 4) Öskur. 6) Slótt- ugur. 8) Fum. 10) Spýja. 14) Keyra. 15) Tog. 17) Sepa, Ráðning á gátu No. 4454 % r~ V ■ ■ 5 . ■ 7 8 1 /o d ®it» * /y '■ /f ■ ■ ■ r Lárétt 1) Lagleg. 5) Rit. 7) Mjó. 9) Asi. 11) Pó. 12) Ól. 13) Alt. 15) Lap. 16) Ósa. 18) Glásin. Lóðrétt 1) Lampar. 2) Gró. 3) Ll. 4) Eta. 6) Vilpan. 8) Jól. 10) Sóa. 14) Tól. 15) Las. 17) Sá.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.