NT - 14.11.1984, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 14. nóvember 1984 25
Útlönd
Indland:
Kosningar á
aðfangadag
Nýja-Delhi-Reuter
■ Rajiv Gandhi, forsætisráð-
herra índlands, tilkynnti í gær
að kosningar yrðu haldnar á
Indlandi 24. desember næst-
komandi, tveimur vikum fyrr
en almennt var talið að þær
yrðu. Pykir þetta sýna að Rajiv
Gandhi sé mjög umhugað að fá
fljótt umboð þjóðar sinnar til að
stjórna og lægja þannig raddir
um að hann sé of ungur og
óreyndur til að fara með völd.
Rajiv hafði aðeins verið
fjögur ár í stjórnmálum áður en
hann skaust upp í hið valda-
mikla embætti sem afi hans og
móðir gegndu áður.
Reynt verður að Ijúka kosn-
ingu í öllum fylkjum Indlands
Biðja SÞ um stöðvun
aftaka í Pakistan
Karachi-Reuter
■ Fjórir pakistanskir lög-
fræðingar hafa beðið Samein-
uðu þjóðirnar að fá pakistönsku
herstjórnina til að hætta við að
taka fjóra stjórnarandstæðinga
af lífi vegna flugvélaráns 1981.
Mennirnir eru félagar í Al-
þýðuflokki Pakistans, sem nú er
bannaður. Fyrrverandi forsætis-
ráðherra Pakistans, Ali Bhutto,
var leiðtogi Alþýðuflokksins
áður en núverandi forsætisráð-
herra, Mohammad Zia-Ul-
Haq, steypti honum úr valda-
stóli og lét taka hann af lífi.
24. desember, en ef þörf krefur
verða framhaldskosningar 27.
desember. Atkvæði verða talin
28. desember. Vegna ótryggs
stjórnmálaástands verður ekki
kosið um 13 þingsæti í sikkafylk-
inu Punjab, þar sem eru í gildi
herlög, og um 14 sæti í Assam-
fylki.
Flokkur Indiru Gandhi,
Kongress (I), hefur nú meiri-
hluta, 354 þingsæti, í indverska
þinginu, en kjörtímabilinu átti
að ljúka 20. janúar næstkom-
andi. Fylgi flokksins hafði
minnkað stórum undir lok
veldistíma Indiru, en nú telja
sérfræðingar líklegt að flokkur-
inn vinni góðan sigur, því hann
njóti samúðar almennings eftir
morðið á Indiru Gandhi.
Stjórnarandstæðingar, með
flokk Ch^ran .Singh, fyrrum
forsætisráðherra, Flokk bænda,
verkamanna og ósnertanlegra
í fararbroddi segja hins vegar
að Kongressflokkurinn hafi
misst samúð almennings í upp-
þotunum sem fylgdu í kjölfar
morðsins og segjast vissir um
sigur.
Kosningabaráttan sjálf hefst
1. desember og kemur þá í ljós
hvort Rajiv tekst að halda jafn
einarðlega á málum og móðir
hans í kosningunum 1980 þegar
hún komst aftur til valda. Pá var
lykilmaður í kosningabaráttu
hennar Sanjay, yngri bróðir
Rajivs, sem lést í flugslysi
nokkru síðar.
■ „Það er hægt að taka sér margt skynsamlegra fyrir hendur í
Chad en að heyja borgarastríð,“ segir Cheysson, utanríkisráðherra
Frakklands. Það eru víst orð að sönnu; á hverjum degi deyr nú fólk
í hundraðatali á þurrkasvæðunum í Chad og er álitið að þúsundir
muni týna lífinu ef ekki kemur til utanaðkomandi hjálp.
Eftir samkomulag Frakklands og Líbýu:
Níunda fórnarlambið
■ Eins og skýrt var frá í NT í gær hefur slegið óhug á frönsku þjóðina vegna óhugnanlegra morða sem framin hafa verið
þar í landi síðasta mánuðinn. Mesta athygli hafa vakið morðin á níu eldri konum. en lögregla telur að þar hafi verið að verki
eiturlyfjaneytandi eða neytendur í leit að einhverju fémætu til að kosta fíkn sína. Allar hafa konurnar verið beittar ofbeldi,
þær bundnar og keflaðar og síðan myrtar. í fyrradag heimsótti Mitterrand Frakklandsforseti líkhús í París til að votta
fórnarlömbum morðingja virðingu sína. Þessi mynd er tekin um helgina þegar níunda fórnarlambið var tlutt af morðstaðnum
í íbúð sinni í París. Símamynd-POLFOTO
Blossar borgarastríð-
ið upp á nýjan leik?
Fréttaskýrendur velta því nú
fyrir sér hvað nánasta framtíð
beri í skauti sínu fyrir Chad,
þetta sárfátæka Mið-Afríkuríki,
þar sem borgarastyrjöld hefur
nú staðið yfir með hléum í
tuttugu ár. Um helgina hurfu
síðustu frönsku hermennirnir
frá Chad og í sama mund segjast
Líbýumenn hafa dregið 5000
hermenn sína í hlé í samræmi
við ákvæði sáttmála, sem gerður
var í september síðastliðnum.
Það var í ágúst í fyrra að
N’Djamena-Rcutcr
■ Hin opinbera fréttastofa
stjórnarinnar í Chad sagði í gær
að líbýskar hersveitir væru alls
ekki farnar frá Norður-Chad og
að stórsókn gegn stjórninni í
N’Djamena væri fyrirhuguð.
Samkvæmt fréttum höfðu bæði
Frakkar og Líbýumenn dregið
burt herlið sitt í Chad um helg-
ina í samræmi við samkomulag
sem stjórnirnar í París og Tríp-
óli gerðu með sér í september.
Stjórn Hissene Habre í Chad
er mjög óánægð með samkomu-
rúmlega 3000 franskir hermenn
voru sendir til Chad til að styðja
við bakið á Hissene Habre for-
seta og stjórn hans gegn sókn
uppreisnarmanna, sem nutu
stuðnings Líbýumanna. Á hern-
aðarlega sviðinu tókst þessi
aðgerð, sem gekk undir nafninu
„manta“, snuðrulaust. Frönsku
hersveitirnar komu í veg fyrir
að uppreisnarmenn næðu höf-
uðborginni N’Djamena, kæfðu
í fæðingu blóðbað sem virtist í
uppsiglingu og tókst að lokum
lagið, þótt gagnrýnin á hlut
Frakka í því hljóðnaði nokkuð
eftir að Habre átti fund með
Mitterrand Frakklandsforseta,
sem þar ábyrgðist að því er
virðist að Líbýumenn myndu
standa við sinn hlut af sam-
komulaginu.
En nú segir fréttastofan að
Líbýa hafi hreinlega narrað
Frakka til að hverfa á braut með
rúmlega 3000 hermenn án þess
að hafa þurft að hleypa af einu
einasta skoti. Ekki einn einasti
líbýskur hermaður sé farinn frá
að koma því í kring að líbýsku
hermennirnir héldu til síns
heima.
Útlendu hermennirnir voru
ekki fyrr farnir en erlendir
sendimenn í N’Djamena fóru
að spá því að borgarastrjðið
brytist út á nýjan leik. Árið
1982 dró líbýskur her, sem þá
var í Chad, sig burt og í kjölfarið
fylgdi uppreisn þar sem Hissena
Habre, þáverandi varnarmála-
ráðherra, steypti Goukoni Qu-
Chad, heldur fari þvert á móti
fram mikil hernaðaruppbygging
í norðurhéruðunum þar sem
líbýsku hermennirnir og skæru-
liðar Goukouni Queddei,
fyrrum forseta, hafa haft aðset-
ur.
Fréttastofan spyr ennfremur
hvaða hag Frakkar geti haft af
því að dylja fyrir heiminum
hina raunverulegu stöðu mála í
Chad með því að lýsa því yfir að
líbýsku hermennirnir séu á
brott.
eddei forseta af stóli. Þessir
menn hafa ekki enn gert með
sér neinn frið.
Víst er að Frökkum þykir
ekki æskilegt að hafa hersveitir
í Chad. I skoðanakönnun sem
gerð var meðal Frakka fyrr á
árinu kom í ljós að 58 prósent
aðspurðra vildu að Frakkar
drægju sig út úr Chad. Samt
halda Frakkar enn um 2000
hermönnum í Mið-Afríkulýð-
veldinu suður af Chad. Þetta lið
er reiðubúið að styðja við bakið
á Habre og stjórn hans ef Líbýu-
menn skerast aftur í leikinn.
Þrátt fyrir þennan viðbúnað
leggur stjórnin í París nú mikl-
ar áherslu á að Chad-búar finni
lausn eigin mála, enda hafa
Frakkar ekki góða reynslu af
styrjaldarátökum í fyrrum ný-
lendum sínum. Frakkar hafa
upp á síðkastið aukið þróunar-
aðstoð sína við Chad og ekki
vanþörf á í hungursneyðinni
sem nú ógnar þúsundum manns-
lífa í landinu. Claude Cheysson,
utanríkisráðherra Frakka, sagði
fyrir skömmu að franska stjórn-
in treysti á að stjórnvöld í Chad
„kynnu að nota þessa aðstoð á
réttan hátt og koma aftur á
friði. Það er hægt að taka sér
iraargt skynsamlegra fyrir hend-
ur í því landi en að heyja
borgarastríð,“ sagði Cheysson.
Chad:
Plataði Gaddafi Frakka?
Stjórnin segir að Líbýumenn séu ekki farnir