NT - 15.11.1984, Side 9
Jf ílí? Fimmtudagur 15. nóvember 1984 9
jL lL Lesendur hafa orðið
Hver á að borga
- Camparíglas sem hellist niður á bar?
Skallapopp og diskóvæl
■ Til þessa hefur undirritað-
ur yfirleitt átt ágætis samskipti
við dyraverði og barþjóna á
Óðali' og líkað betur við þá en
stéttarbræður þeirra á öðrum
öldurhúsum. Sannast sagna oft
undrast umburðarlyndið sem
þessir menn sýna. Staðurinn er
að vísu lítill og þröngur en það
er önnur saga.
En núna á laugardagskvöld-
ið brá til verri vegar með
samskipti mín við Óðalsbænd-
ur. Að áliðnu kvöldi gekk ég
að barnum á miðhæðinni og
pantaði tvöfaldan Campari.
Talsverður troðningur var við
barinn eins og svo oft. Stúlkan
setur í glasið og lætur á borðið.
Þá í öllum troðningnum vill
það til að einhver hreyfing er
E&B vilja heyra Rolling Stones
■ Við undirritaðir höfum
orðið fyrir því, að rokkmúsík
hefur heltekið okkur, og þar af
leiðandi höfum við orðið fyrir
geysilegum vonbrigðum með
bæði hljóðvarp og sjónvarp.
Við tveir horfðum á þátt í
imbanum þann 9. 11. í þeirri
von að sjá gott rokk, jú þar
kom aðeins eitt gott band á
skerminn með efnilegri hljóm-
sveit sem nefnist U2, - en þar
sem þáttur þessi heitir
Skonrokk, finnst okkur það
langt frá því að vera réttnefni
yfir slíkan þátt.
Hvernig væri að hafa t.d.
einn klukkustundar þátt einu
sinni í viku í sjónvarpi þar sem
eingöngu yrði spilað rokk með
hljómsveitum eins og Rolling
Stones - Led Zeppelin - Yes -
U2 - Big Country - Echo and
the Bunnyman o.s.frv. o.s.frv.
Að vísu er í lagi að hafa einn
og einn þátt eins og Skonrokk
en núna þar sem alls kyns
skallapopp og diskóvæl ræður
ríkjum, en diskó er úrkynjun
á allri tónlist og telst þar af
leiðandi engan veginn til lista.
En þetta væl selst og það eru
þess vegna engir aðrir en pen-
ingapiokkarar sem græða mest
á þeim vasaaurum sem ungl-
ingarnir fá hjá foreldrum.
Við höfum skrifað niður í
Rás 1 og 2 eða þetta blessaða
næturútvarp í þejrri von að bót
verði á (það skal tekið fram að
næturútvarpið er það eina sem
heyrist út um allt land frá Rás
2), en enn hefur ekkert skeð.
■ Einn þátt í viku með Rolling Stones og öðrum slíkum, takk.
fyrir aftan mig þannig að mér
er lauslega ýtt til og rek mig
um leið í glasið með þeim
afleiðingum að það hellist úr
því á borðið.
Að sjálfsögðu hið versta
mál, nema hvað ég segi stúlk-
unni að hún verði að fylla aftur
í glasið þegar hún hafði gert sig
líklega til þess að rukka mig
um tómt glasið. Hún gerði það
heldur snúðugt og rukkaði mig
svo um tvö glös af Campari.
Ég sagði slíkt ekki koma til
mála og ákvað þá heldur að
vera Canrparilaus en líða slíkt.
Með það yfirgaf ég barborðið
og skildi glasið eftir.
En málið var ekki búið.
Stúlkan rauk frá afgreiðslunni
þar sem margir biðu, rauk á
eftir mér niður og benti þar
tveimur dyravörðum á að
henda mér út nema ég borgaði
þessar krónur, líklega 60 eða
70 ég man það ekki. Þannig
stóð á að ég var þarna með
fleira fólki og gat ekki hugsað
mér að fara út við svo búið.
Því varð það úr að ég borgaði
Camparíinn sem hafði hellst
niður fyrir slys. Slys sem ein-
hverjir, sjálfsagt margir, þar á
meðal ég voru valdir að. En
líka Campariglas sem tvímæla-
laust var ennþá í eigu hússins
og alfarið á ábyrgð þess.
Þess vegna vonast ég til að
forsvarsmenn Óðals fyrirverði
sig fyrir þessa framkomu
starfsmannsins og sjái sóma
sinn í því að láta mig fá þetta
Campariglas sem ég hef
borgað, næst þegar ég kíki við.
X
- Svar um hæl
■ Við bárum það undir Þor-
stein Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Óðals, undir
hvaða kringumstæðum gestir
staðarins væru látnir borga glös
sem helltust niður.
Þorsteinn kvað eiginlega
ekki hægt að marka neina
ákveðna stefnu í þessum
efnum, þar eð atvikin væru svo
mismunandi. Að sjálfsögðu
væru gestir ekki látnir greiða
fyrir glös sem helltust niður ef
starfsfólk bæri á einhvern hátt
ábyrgð á atvikinu.
„Eg er ekki kunnugur þessu
sérstaka tilviki", sagði Þor-
steinn, „en ég er að sjálfsögðu
tilbúinn að ræða þetta við
manninn."
Hvers vegna skrifar Guðmund-
ur Jaki undir svona samning?
■ Mikið varðégánægðþegar
ríkisútvarpið greindi frá því að
í nýgerðum kjarasamningi
ASi og VSÍ fælist mest hækkun
til þeirra sem lökust hafa
kjörin. Þettaáttiþósannarlega
ekki að koma á óvart, því
fréttir höfðu borist af því síðan
í ágúst, að Guðmundur J.,
Karl Steinar og fleiri mætir
menn sætu á stöðugum fundum
í herbúðum vinnuveitenda.
Við óbreyttir félagsmenn feng-
um lítið að vita hvað var að
gerast. Engirfundir í verkalýðs-
félögunum. Engin fréttabréf.
Það átti sannarlega að koma
okkur á óvart.
Loks rann upp sú stund að
verkafólk fékk augum litið
kjarasamning, sem var þá þeg-
ar undirritaður, og mér brá
illilega í brún. Dagvinnutekju-
■ Það getur stundum orðið þröng á þingi við barinn. Hér er þó ekki að sjá að neinu sé hellt niður.
■ Hvers vegna skrifar þú undir svona samning, Guðmundur?
Rolling Stones hafa starfað
í 22 ár og eru þar af leiðandi
elsta, mesta og besta rokkband
allra tíma og fyrst forstöðu-
maður Rásar 2 hefur enn ekki
bætt úr væli Rásarinnar, látum
við eftirfarandi stöku fylgja:
Við eigum marga góða vini
sem bara hlusta á Stones
þó herra Ástvaldssyni
virðist það til tjóns.
E&B
tryggingin er sú sama út allt 14
mánaða samningstímabilið -
14.075 kr. á mánuði - meðan
þeir sem betur eru settir fá
umtalsverða launahækkun í
áföngum á samningstímanum.
Hvers eiga þeir að gjalda
sem taka laun samkvæmt
lægstu töxtunum?
Hvaða réttlæti er, að þeir fái
minnsta kauphækkun?
Hvers vegna skrifar Guð-
mundur J. Guðmundsson und-
ir svona samning? Hann hefur
oft komið i sjónvarpið og lýst
djúpri samúð sinni með þeim
sem eru á lægstu kauptöxtun-
um.
Hvað með ungt fólk, sem er
að byrja að vinna, er ekki
líklegt að það lendi á þessum
lægstu töxtum?
Hvar er nú öll umhyggjan
fyrir unga fólkinu, sem kom
fram við afgreiðslu kjarasamn-
inga á s.l. vetri?
Það er gott að NT hefur gert
rækilega grein fyrir því órétt-
læti sem felst í þessum kjara-
samningi. Sérstaklega er hann
óhagstæður fyrir þá sem vinna
ekki í bónus og taka laun
samkvæmt lægstu töxtum
verkalýðsfélaganna. Það eru
an efa fjölmargir sem. þannig
er ástatt fyrir og verða nú að
þola óréttlætið. Ég vil skora á
verkafólk að mótmæla svona
samningsgerð svo eftir verði
munað.
Láglaunakona á landsbyggð-
inni
Ókurteisi í
læknastétt
■ Kona hringdi og vildi
koma á framfæri athuga-
semdum við málfar lækna
á Landspítalanum. Þannig
kvast hún hafa séð í lækna-
skýrslum að kroppur á
barnfóstri væri kallaður
skrokkur, höfuð væri
aldrei neitt annað en haus
og fætur manna lappir.
Kvaðst hún vön því að
það væri nefnt fætur á
fólki og lappir á dýrum.
Þá hafði hún hlýtt þar á
sem roskinn læknir kallaði
sjúkling sinn „kall", og
fleiri dæmi um virðingar-
leysi þessara manna fyrir
þeim sem til þeirra leita.
Ennfremur vildi hún
benda á þá ókurteisi og
málvillu sem nú ríður yfir
að fólk kveður með því að
segjast heilsa viðkomandi.
„Bið að heilsa þér‘‘. Með
réttu er orðið að heilsa
notað þegar beðið er fyrir
kveðju til fjarstaddra en
annað er ókurteisi sagði
þessi kona.
Gangið betur
frá líkunum
■ Áslaug hringdi og
kvaðst vilja koma á fram-
færi ábendingu til krufn-
ingalækna um að ganga
betur frá líkum að lokinni
krufningu. Hún kvað nógu
sárt að þurfa að horfa á
eftir sínum nánustu, þótt
maður þyrfti ekki að horfa
upp á þá sundurskorna í
kistunni.
Krufningarlæknar ættu
að geta gengið þannig frá
líkum að örin eftir krufn-
inguna sæjust ekki. Þeir
hljóta að geta notað farða
til þess að hylja örin á
andliti líksins.