NT - 15.11.1984, Blaðsíða 14

NT - 15.11.1984, Blaðsíða 14
Vandræðabarnið Wankel vaxið upp Mazda uppsker loks launtryggðarinnar við Wankel-vélina ■ Svona lítur ein nýjasta og kraftmesta Wankelvélin út. Jafn létt, einföld og fyrirferöarlítil 300 hestafla vél fæst ekki í dag. ■ Af Mercedes Benz Clll voru smíöuð nokkur eintök til prófunar á ýmsu varðandi hraöakstursbíla og vélarnar voru kraftmestu Wankelvélar sem gerðar hafa verið, fjögurra snúða og yfír 320 hö. ■ Þverskurður af Wankelvél Mercedes Benz frá 1970. Hún var afar fullkomin eins og ætla mátti frá Benz, en fullnægði þó ekki öllum kröfum sem gerðar voru til hennar og öll eintökin voru eyðilögð, nema eitt sem Felix Wankel kom undan og setti í eigin bfl. ■ Frá því að fyrsti stimpil- hreyfíllinn byrjaði að berja út átak og færa hestlausar kerrur milli staða með gauragangi og látum hefur menn dreymt um bflvél án stimpla og sveifarása, ventla og með knastása sem skoppa upp og niður og út á hlið. Þetta tókst ungum manni að fínna upp í Þýskalandi eftir fyrri heimsstyrjöldina, kallaði Kreiskolbenmotor, eða snún- ingsstimpilvél og skráði einka- leyfí fyrir. Það nafn festist þó ekki við þessa cinföldu, ventla- lausu vél, heldur hefur hún jafnan verið kennd við „skapara" sinn: Felix Wankel. Ekki munaði miklu að Wankel hyrfi á valdatíma Hitl- ers þar sem hann lenti þversum í hálsi kerfisins og var ekki nægilega sammála nasistum. Verkfræðingi nokkrum hátt- settum í flokknum var falið að skoða uppfinningu Wankelsog komast að þeirri niðurstöðu að hún væri einkis virði, en hann skilaði áliti þess efnis að þessi hugmynd gæti komið Þriðja ríkinu að afar góðum notum og tókst að ná Wankel úr steininum og setja upp rann- sóknarstofur fyrir hann. Sjálf- ur Goebbels jós í þær fé. Þar hefur Wankel starfað að mestu síðan og unnið stöðugt að endurbótum á grunnhug- myndinni að Wankel-vélinni og fleiri uppfinningum. Felix Wankel er maður vandvirkur og flanar ekki að neinu. Fyrst prófaði hann snúningsstimpilvél sína sem forþjöppu fyrir mótorhjól því hann vissi að þéttikantar í hornum stimpilsins væri aðal- vandamálið og einbeitti sér að því að finna efni og form sem dygðu. NSU bílaverksmiðjan þýska gerði einkasamning við Wankel og NSU Spider, fyrsti bíllinn með Wankelvél, lítill sportbíll, kom á markað 1964. Spiderinn litli var fram- leiddur í sárafáum eintökum sem lítið er til af nú, en 1967 byrjaði sala á NSU Ro80, ein- um mesta framúrstefnubíl í sögunni, 5 manna með afar litla loftmótstöðu, fullkomna fjöðrun, ríkulegan útbúnað og tveggja hólfa Wankelvél. Bíll- inn var frábær nýr en þétt- ingarnar fyrrnefndu dugðu ekki baun. NSU fékk bílana í hausinn aftur og þeir hættu að seljast, fyrirtækið varð gjald- þrota og rann saman við Audi. A tímabili í kringum 1970 lega þannig að ekkert verði eftir, og mikill varmi úr elds- neytinu tapast í gegn um yfir- borð sprengirýmisins og út um kælikerfið. Þennan galla verður aldrei hægt að yfirstíga en sé Felix Wankel bent á þetta segir hann það eigi ekki að skipta máli. Þegar hannaður sé bíll með Wankelvél geti hann verið minni, léttari o.s.frv. og auk þess hafi Wankelvélin mun minni innri núningsmótstöðu. Þannig sparast bensíneyðsla og fleira segir hinn áttatíu og tveggja ára gamli maður sem af óbilandi trú og bjartsýni hefur varið nær allri sinni löngu starfsævi í þágu þessarar vélar sem ber nafn hans. Samningurinn sem Yama- moto og félagar hjá Mazda gerði við NSU á sínum tíma hljóðaði.m.a. upp á að bílarnir utan Japansmarkaðs mættu ekki vera kraftmeiri en 115 hestöfl. Þegar það ákvæði rennur út nú um áramótin fáum við Evrópubúar líka RX7 Turbo eins og verið hefur í Japan um allnokkra hríð og getur hann þá farið að hrella Porsche 944 og slíka. For- þjappan er af verksmiðjunum sögð passa mjög vel við eigin- leika Wankelvélarinnar og eyðslan sé afar lítii. Þegar arftakinn, RX8 kemur til okkar er búist við að hann verði mjög fullkominn miðað við verð og ef fram fer sem horfir með Evrópubúana munu þeir ekkert svar eiga við honum, það cru helst hinir Japanirnir sem gætu keppt á jafnréttisgrundvelli - en þá vantar alia eitt tromp sem er á hendi Mazda: Wankelvélina. AA 15. nóvember 1984 14 voru flestallir alvarlegir bíla- framleiðendur að hamast við að búa til Wankelvélar (með einkaleyfi frá Audi-NSU sem keypti réttinn af Wankel fyrir slikk) og sýndu stoltir eintök af bílum með „framtíðarvélinni" sem fékk fólk hreinlega til að halda að stimpilvélin væri b'úin að vera. Sterkar fullyrðingar voru settar fram um hina al- geru yfirburði Wankelvélar- innar en alltaf stóð á því að fólk fengi kost á að kaupa Wankelbíla. Og þá kom reiðarslagið. Tæknimönnunum gekk illa að fá vélarnar til að endast og svolgra minna bensín og þegar GM (sem sýnt hafði m.a. Cor- vettur sem að sögn áttu að fara í framleiðslu, og tilkynnt um komu Wankelbíla inn á mark- aðinn innan eins til tveggja ára) tilkynnti að þeir hefðu lagt niður alla starfsemi í kring um Wankelhugmyndina og brætt upp tilraunastykkin, gerðu nær allir aðrir eins því í þá daga hafði GM alltaf rétt fyrir sér. Þessi ákvörðun var gerð mjög snögglega og var ýmislegt komið í framkvæmd þá sem eimir eftir enn. Chevrolet Monza og fleiri bílar frá amer- ískum framleiðendum voru gerðir til að taka fyrirferðarlitl- ar Wankelvélarnar með miðju- ás vélarinnar frekar hátt uppi. Þess vegna er td. svo erfitt að komast að kertum í t.d. V6 og V8 Chevrolet Monza og stokk- urinn milli sætanna hár. Citroén voru að setja fram- leiðslu í gang, Mercedes-Benz gerði miklar og afar kostnaðar- samar tilraunir eins og svo margir aðrir, en svo var það allt búið, allar milljónirnar í vaskinn, nema á þrem stöðum í heiminum. Það var hjá einka- leyfishafanum Audi, Curtiss- Wright í Bandaríkjunum og Toyo Kogyo í Japan sem fram- leiddi Mazda bíla. Curtiss- Wright heldur enn áfram há- þróuðum rannsóknum til að finna landamæri Wankelvélar- innar en hluthafar Audi felldu áætlanir um framleiðslu á Wankel vélum endanlega 1980 vegna hræðslu um að fá minni arð greiddan í nokkurn tíma. Bíla með Wankelvél var því hvergi að fá nema frá Mazda og svo er enn. Hársbreidd munaði að stolt Toyo Kogyo yrði banabiti þess, því véla- þéttingar fyrstu bílanna entust illa og höfðað var mál á mál ofan í Bandaríkjunum og kraf- ist skaðabóta. Bara þar numu beinar bótagreiðslur milljón- um dollara, en Mazda gafst ekki upp. Þeir hönnuðu nýjan bíi utan um Wankelvél- ina sína, sportbíl með vélina fram í (allir fyrri Wankelbílar Mazda höfðu verið upphaflega gerðir fyrir stimpilvél og feng- ust þannig líka), og þar er Wankel vélin einmitt á réttri hillu. í sportbílum skiptir eyðsla ekki eins miklu máli og í öðrum bflum, þar er hægt að nýta sér hina litlu fyrirferð út í ystu æsar, gangurinn er silki- mjúkur (ekkert æðir upp og niður, vélin er í jafnvægi) og hún snýst eins mikið og menn vilja án titrings. Vegna þess hvað vélin er létt verður þyngdardreifing Mazda RX7 jöfn framan og aftan og verðið er hagstætt. Þó er annað sem öðru frem- ur hefur tryggt árangur Mazda RX7, það er lausn á þéttikubbavandamálinu. Hún felst í því að í álhúsið sem þríhyrningslagaður snúðurinn snýst í er rekin járnslíf sem er harð-krómuð að innan, en síð- an er krómið krómað með „mjúku“ krómi með sérstakri ■ Meðan rallbflar verða æ flóknari þarf Mazda ekki annað en að einfalda sína vél til þess að nærri þrefalda orkuna. Tæknimenn Mazda hafa náð mjög langt í þróun Wankelvélarinnar en þeir vita líka vel að enn er löng leið eftir. tækni sem gerir að smurolían loðir við. Þéttingarnar sjálfar eru bara úr venjulegu járni og þetta hefur reynst duga yfir 100.000 km áður en skipta þarf um þéttikubbana. Þurfi að skipta um eitthvað getur það aldrei orðið margt, í tveggja snúða Wankelvél eru nefnilega þrisvar til fjórum sinnum færri hlutir en í sambærilegri stimpilvél. Ef þetta er orðið svona gott, afhverju eru þá ekki allir komnir með þetta? Jú, Wank- elvélin eyðir meira og eitrar meira vegna lögunar sprengi- rýmisins. Það er langt og mjótt, bruninn tekur langan tíma og lýkur sjaldnast alger- ■ Þetta er japönsk útgáfa af RX7 með forþjöppu og um 165 heslöfl, væntanlegur á næsta ári hingað til F\ röpu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.