NT - 15.11.1984, Qupperneq 11
11
Fimmtudagur 15. nóv> 1984
■ „Hálkan gerði ísólfsskálaleiðina enn skemmtilegri en ella fyrir okkur þar sem þá gerir kraftleysi ekkert til,“ sögðu Omar og Jón,
og myndin ber það með sér að nú sé gaman.
Mynd Auðunn Amórsson
Síðasta rall ársins
Vertíðarlok Rallmanna
■ Sigur Bjarma Sigurgarð-
arssonar og Eiríks Friðriksson-
ar í haustralli Hjólbarðahallar-
innar var afdráttarlaus, þeir
óku manna hraðast. Rúm mín-
úta skildi þá og Ómar og Jón
Ragnarssyni að þegar upp var
staðið og snérist dæmið þar við
frá Ljómarallinu síðasta. Þar
sem Islandsmeistarartitlar
voru í húfi fyrir báðar áhafnir
var ekki teflt á tvær hættur og
náðu báðir því sem þeir ætl-
uðu, Ómar titil ökumanna og
Eiríkur titli aöstoöaröku-
manna.
Birgir og Hreinn Vagnssynir
tefldu þó á tvær og fleiri
hættur að vanda. Gamla Cort-
inan var flengd áfram án mis-
kunnarvotts og er nú í stuttu
máli ónýt einu sinni enn. En í
mark komst hún, og það í
þriðja sæti! Þótt ljósin slokkn-
uðu, stýrið festist, og hjólin
blöktu ógnuðu Hjólbarðahell-
ingarnir stöðugt fyrsta sætinu
en misstu af þegar sprakk
dekk. Þótt Michelin kallinn á
toppnum segði þeim til tók
það hjólbarðasérfræðingana
allt of langan tíma að skipta.
Á hæla Birgis og Hreins
komu Þorsteinn Ingason og
Sighvatur Sigurðsson, aðeins
13 sekúndum á eftir. Þar mun-
aði þeim tíma sem tapaðist
aðeins 20 metrum frá enda-
marki síðustu sérleiðar á
hálkubletti í vinkilbeygju sem
fellt hefur marga í gegnum
árin. Bíllinnsneristviðávegin-
um, en Þorsteinn var fljótur að
hugsa og í stað þess að eyða
tíma í að snúa við bakkaði
hann í mark! Sannarlega
óvenjuleg aðferð til að klára
sérleið og vakti mikla lukku
áhorfenda.
Óhöpp eða útafferðir voru
venju fremur fá hjá keppend-
um, þeir Hörður og Steinar
tóku þó hliðina úr Datsuninum
sínum þegar misheppnaðist
beygja og bíllinn fór á hlið út
af. Dalabóndinn kunni, Örn
Halldórsson mætti í rallið með
liðsauka, son sinn akandi
öðrum Trabant. Gengu veð-
mál um Dalasýslu endilanga
um hvor hefði betur, faðir eða
sonur. „Dali“ senior hafði yfir-
höndina þar til Trabbinn hans
tjúnnaði lenti illa í ræsi og
„brotnaði", stýrismaskínan
mun m.a hafa farið.
Ekki færri en fjórar vélar
gáfu upp öndina, Escortinn
hans Ævars Hjartarsonar
stakk meira að segja stimpil-
stöng út í bert loft á þriðju
leið, sem er þó einni leið
lengra en vélin dugði síðast.
Birgir Bragason og Gestur
Friðjónsson urðu að hætta eftir
aðeins eina leið þar sem vélin
urgaði og surgaði og gaf hið
versta í skyn, en þcgar hún kóln-
aði fór hún í gang og skilaði
bílnum í bæinn. Enginn skilur
enn livað var að, en þarna hurfu
möguleikar Birgis á íslands-
meistaratitli. Hann er þó í
þriðja sæti ökumanna vertíð-
ina ’84 næstur á eftir Halldóri
Úlfarssyni sem ekki komst frá
Danmörku þar sem hann dvel-
ur nú og gat því ekki varið
íslandsmeistaratign sína frá í
fyrra og góða stigatölu frá
þessu vel heppnaða sumri.
Þetta er annað rallið sem
Hjólbarðahöllin er viðriðin og
eins og við Bridgestone rallið í
fyrra héldu þeir mikla flugelda-
sýningu í kvöldmyrkrinu, þegar
bílarnir komu í mark, sem setti
spennandi blæ á fjölsótta sam-
komuna. Út á fyrirtækisbílinn
sinn, Cortinuna frægu, akst-
ur og gott skap ökumanna
fengu bræðurnir Stokkfiskbik-
arinn sem gefinn er í minningu
Hafsteins Haukssonar. Kepp-
endur velja sjálfir handhafa
bikarsins og einróma sammála
um þá útnefningu á rallyball-
inu þar sem verðlaunaafhend-
ingin fór fram að vanda.
Nú er eins og áður segir
lokið öllum röilum ársins. Eng-
in röll er hægt að halda á
veturna þar sem leiðirnar sem
eknar eru eru fáfarnir slóðar
sem ekki eru notaðir dags
daglega og verða ófærir strax
og snjór fellur. Leiðir eins og
Kaldidalur sem liggja hátt yfir
sjó hefur jafnvel þurft að fella
niður vegna ófærðar og engin
eru þar ruðningstækin eins og
við erum vön í þéttbýlinu. Til
útskýringar er rétt að geta
reglna sem tóku gildi í fyrra
sem skipta keppninni í tvennt;
ökumanns- og aðstoðaröku-
manns keppni, þannig að stig
eru talin sérstaklega fyrir
hvern einstakling. Þannig varð
Eiríkur Friðriksson íslands-
meistari aðstoðarökumanna
þar sem hann hafði flest stig
allra keppenda í sumar, 72 á
móti 63 stigum íslandsmeistara
ökumanna, Ómars Ragnars-
sonar. Ómar hefur ekið með
■ Það gekk vel hjá Þorsteini Ingasyni núna, lítið vantaði á að
þeir Sighvatur næðu verðlaunasæti á nýrri, nær óbreyttri
Mynd Gunnar Óskarason
Toyotunni.
bróður sínum Jóni í allt sumar
og því eru þeir með jafnmörg
stig, en Eiríkurekiðmeðtveim
ökumönnum sem hafa þó ekki
náð að safna sama stigafjölda
og Eiríkur. Þriðji aðstoðar-
ökumaðurinn er Hjörleifur
Hijmarsson.
í vetur byggja menn svo upp
nýja bíla eða bæta þá gömlu og
mæta tvíefldir til leiks í fyrsta
rallið á næsta vori, og sama
gerir NT.
A.A.
URSLIT
1. Bjarmi Sigurgarðarsson,
Eiríkur Friðriksson Ford
Escort RS2000 09.30.
2. Ómar Ragnarsson, Jón
Ragnarsson Toyota Coi-
olla GT 1600 10.38.
3. Birgir Vagnsson, Hreinn
Vagnsson Ford Cortina
2000 HH 13.47.
4. Þorsteinn lngason Sig-
hvatur Sigurðsson Toyota
Corolla GT 1600 14.00
5. Halldór Gíslason, Sigur-
jón Harðarson Vauxhall
Chevette 2300 18.53.
6. Kristján V. Halldórsson,
Konráð G. Valsson Lada
1600 21.46.
7. Daníel Gunnarsson,
Vésteinn Stefánsson Opel
Kadett 1900 25.17.
8. Þórður Þórmundarson,
Bjarni Haraldsson Mitsu-
bishi Lancer 1600 26.41.
9. Örn Stefánsson, Guð-
mundur Eiríksson Toyota
Corolla GT 1600 27.10.
10. Halldór Arnarson, Sigurð-
ur Svansson Trabant 600
1.26.07.
MGIobuse
Lágmúla 5, Rey kjavik,
síini 81555.
v4f 1E2DÍIII
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
©
BíLVANGURsf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
©
fjjj-ASgTfr
Hyrjarhöfða 2 - Sími 81666
©
cx
©
||S3EER“B
Mercedes-Benz
RÆSIR HF
Skúlagötu 59.
Sími19550
k
ELTir^