NT - 23.11.1984, Síða 9
Föstudagur 23. nóvember 1984 9
■ Veislugestir Leikfélags Hafnarfjarðar gæða sér á guðaveigum.
Samsýning þriggja leikfélaga í Hafnarfirði:
„Græn brúðkaupsveisla“
á fjölunum í Bæjarbíói
■ Á ferð til skugganna grænu er lýsing á lífsgöngu konu frá
VÖggU til grafar. Sveni,
■ Leikfélag Hafnarfjarðar,
Leikfélag Kópavogs og Leik-
félag Mosfellssveitar frumsýna
á morgun, laugardag, 3 ein-
þáttunga með samheitinu
„Græna brúðkaupsveisian“ í
Bæjarbíói í Hafnarfirði kl.
20.00.
Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir „Veisluna" eftir ungverska
höfundinn Ferenc Molnár í
þýðingu Vigdísar Finnboga-
dóttur og leikstjóri er Pétur
Einarsson. „Veislan" er glettin
lýsing á óvæntri uppákomu í
kvöldverðarboði og taka 13
leikarar þátt í henni.
Leikfélag Kópavogs sýnir
„Brúðkaupsferðina“ eftir
bandarískan höfund, Dorothy
Parker, í þýðingu og leikstjórn
Bergljótar Stefánsdóttur og
Helgu Harðardóttur. „Brúð-
kaupsferðin" lýsir á skoplegan
hátt samskiptum nýgiftra
hjóna á brúðkaupsferð. Tveir
leikarar taka þátt í sýningunni.
Leikfélag Mosfellssveitar
sýnir „Ferðina til skugganna
grænu" eftir danann Finn
Methling í þýðingu Jóns Sævars
Baldvinssonar, sem einnig
leikstýrir ásamt Guðmundi
Daníelssyni og Bjarna Stein-
grímssyni. „Ferðin til skugg-
anna grænu“ lýsir á áhrifamik-
inn hátt lífshlaupi konu frá
vöggu til grafar. Aðeins einn
leikari kemur fram í sýning-
unm.
Ástæðan fyrir samvinnu
leikfélaganna er sú að Leikfé-
lag Kópavogs og Leikfélag
Mosfellssveitar eru húsnæðis-
laus í vetur en þar sem Leikfé-
lag Hafnarfjarðar hefur nýver:
ið tekið við rekstri Bæjarbíós
þótti tilvalið að efna til sam-
vinnu þessara þriggja stærstu
áhugaleikfélag á höfuðborgar-
svæðinu.
2. sýning verður 27. nóv., 3.
sýning 29. nóv. og 4. sýning
sunnudaginn 2. desember og
hefjast þær allar kl. 20.30.
islenskur módernismi kynntur í Norræna húsinu:
Birtingsárin í brennidepli
Tónlist, upplestur og um-
fjöllun kl. 20.30 í kvöld.
■ Úr sýningu Leikfélags Kópavogs á Brúðkaupsferðinni eftir
Dorothy Parker. Leikendur eru Helga Harðardóttir og Finnur
Magnússon. NT-my»d: Sv«t»
■ Norræna húsið gengst fyrir
kynningu á íslenskum mód-
emisma á næstu mánuðum og
verður fyrsta dagskráin í kvöld
kl. 20.30. Hefur hún hlotið
nafnið „Birtingsárin“ og verð-
ur helguð tónlist og bók-
menntum. Eysteinn Þorvalds-
son cand. mag. flytur erindi
um upphaf módernismans i.
bókmenntum, flutt verður
tónlist frá Birtingsárunum eftir
Magnús Blöndal Jóhannsson,
Leif Þórarinsson, Atla Heimi
Sveinsson og Fjölni Stefáns-
son. Atli Heimir leikur þessi
verk á píanó og Elísabet Erl-
ingsdóttir syngur við undirleik
Kristins Gestssonar. Þá munu
rithöfundarnir Einar Bragi,
Thor Vilhjálmsson og Jón
Óskar lesa úr bókum sínum,
sem komu út á þessum árum.
Ennfremur fjalla tónskáld um
tónlist þessa tíma og í anddyri
Norræna hússins verður sýning
á bókum, tímaritum, hand-
ritum og myndum fráBirtings-
tímanum.
Knut Ödergárd, forstöðu-
maður Norræna hússins, sagði
á blm. fundi sl. miðvikudag að
þetta tímabil í íslenskri menn-
ingu hefði alltaf heillað sig og
því hefði hann ákveðið að
byrja dagskrá Norræna hússins
undir sinni stjórn með kynn-
ingu á þessum umbrotatímum.
Róttæk stefnubreyting varð í
íslenskri listsköpun kringum
1950, ný stefna, módern-
isminn tók við af liinum hefð-
bundnu tjáningaformum í bók-
menntum, tónlist, myndlist og
víðar. í þessu umróti var tíma-
ritið Birtingur, sem kom út á
árunum 1953-1968 í brenni-
depli og boðberar módernism-
ans á Islandi sátu í ritstjórn.
Það voru þeir Einar Bragi,
Thor Vilhjálmsson, Hörður
Ágústsson, Jón Óskar og síðar
Atli Heimir Sveinsson og fleiri.
Birtingur var vettvangur ís-
lenskra módernista og þó að
ýmsir listamenn af eldri kyn-
slóðinni hefðu áður hneigst að
stefnunni, var það fyrst með
útkomu tímaritsins Birtings,
sem módernisminn náði að
festa sig í sessi og marka tíma-
mót í íslenskri list.
Á næstu mánuðum ætlar
Norræna húsið að freista þess
að kynna þetta gagnmerka
tímabil í íslensku menningar-
lífi enn frekar og verða settar
upp sýningar á myndlist, bygg-
ingarlist og hönnun og fluttir
fyrirlestrar og erindi.
■ Knut Ödegárd á tröppum Norræna hússins ásamt þremur af
boðberum módernismans á íslandi, þeim Thor Vilhjálmssyni,
Atla Heimi Sveinssyni og Einari Braga. NT-mynd: Róben