NT - 23.11.1984, Blaðsíða 12
Föstudagur 23. nóvember 1984 12
Rás 2 föstudag kl. 23.15-3.
Aldeilis ekki einmana-
legt á næturvaktinni!
■ Næturvaktina á Rás 2 hafa
þeir með höndum Vignir
Sveinsson og Þorgeir Ástvalds-
son. Hún stendur yfir frá kl.
23.15-3.00, en Rásir 1 og2 eru
samtengdar kl. 24.
Vignir segir þá félaga fara
rólega af stað í kvöld og fyrstu
45 mínúturnar spiii þeir bland-
að efni, gamalt og kannski lítið
þekkt. En strax þegar rásirnar
samtengjast taka þeir til við að
spila ný lög, bæði innlend og
erlend, en nú er hljómplötu-
markaðurinn einmitt að fyllast
af nýjum plötum.
En þeir félagar fást við fleira
en að setja plötur á fóninn.
Þeir fá leigubílstjóra í heim-
sókn, sem ætlar að segja frá
næturlífinu á höfuðborgar-
svæðinu frá sínum bæjardyrum
séð. Þá hafa þeir einnig í
hyggju að hringja eitthvað út á
land og jafnvel út á sjó, til að
forvitnast um hvað fólk er að
fást við á þessum tíma sólar-
hrings. Þá er mikið að gera við
að svara í símann, en fleiri
hringja en hægt er að svara.
„Fólk virðist hlusta mikið og
vill alveg taka þátt í þess'u,
maður verður var við það,“
segir Vignir og bætir því við að
það sé aldeilis ekki einmana-
legt á næturvaktinni á Rás 2,
„það er eilíft líf og fjör,“ segir
hann.
■ Vignir Sveinsson hefur
langa reynslu í stjórn popp-
þátta í útvarpi, en hann var í 5
ár samfleytt stjórnandi Popp-
hornsins. Svo er hann líka
lögregluþjónn og ökukennari,
svo að hann hefur mörg járn í
eldinum.
Utvarp föstudag kl. 10.45:
„Allir Islendingar
þekkja Jón Helga-
son af kvæðum hans“
■ Þáttur Torfa Jónssonar,
„Það er svo margt að minnast
á“ er á dagskrá útvarps í dag
kl. 10.45. Þar verður fjallað
um Jón Helgason, prófessor í
Kaupmannahöfn.
„Þetta verður svona samtín-
ingur og sitthvað," segir Torfi
Jónsson. Þetta smásafn er tek-
ið upp úr tímaritum og
blöðum, að meginefni til úr
aldarspegli, sem birtist í Vik-
unni fyrir alllöngu. Ekki er
tekið sérstaklega efni úr Ijóða-
bókum Jóns, en þó flýtur
kvæðið í Árnasafni með í
þættinum, þar sem það er birt
i einni greininni, sem leitað er
fanga í. En „það þekkja allir
Islendingar Jón af kvæðum
hans,“ segir Torfi.
Jón Helgason er fæddur 30.
júní 1899 og varð því 85 ára í
sumar sem leið. Hann var
orðinn doktor rúmlega tví-
tugur, prófessor áður en hann
varð þrítugur og starfaði í
Árnasafni í Kaupmannahöfn
sinn starfsaldur, auk þess sem
hann var prófessor í íslenskri
tungu og bókmenntum við
Kaupmannahafnarháskóla.
Flytjandi með Torfa er dótt-
ir hans, Hlín.
■ Jón Helgason prófessor er
m.a. höfundur Ijóðabókarínn-
ar Úr landsuðri.
■ Þær Anna Hinriksdóttir og Anna Kristín Hjartardóttir hafa
séð um Skonrokk-þættina síðan í júní.
Sjónvarp föstudag kl. 21.20:
Eitthvað fyrir
alla í Skonrokki
■ Oft heyrast þær raddir
meðal unglinga, að lítið sé
fyrir þá gert í sjónvarpinu. Það
eru þættir fyrir yngstu börnin
og fullorðna fólkið, en þessi
óútskýrði mannflokkur, ung-
lingarnir verða alltaf útundan.
Eina undantekningin segja
þeir allra bölsýnustu er
Skonrokk, en þó ekki nema á
hálfsmánaðarfresti og þá að-
eins hálftíma í senn.
Umsjónarmenn Skonrokks
eru nú Anna Hinriksdóttir og
Anna Kristín Hjartardóttir og
hafa þær séð um þáttinn síðan
í júníbyrjun. Þær reyna að
vera sem síðast á ferð við að
taka til efni í þáttinn, bæði til
að hafa úr sem mestu að velja
og svo að tryggt sé, að efnið sé
eins nýtt og kostur er á.
Efni Skonrokks í kvöld segir
Anna Hinriksdóttir okkur
vera:
Philip Okay með lagið
Together in Electric Dream,
Hall and Oates með lagið Out
of Touch, Paul McCartney
með lagið No More Lonely
Nights, Kiss með lagið Hea-
vens on Fire, Duran Duran
með lagið Wild Boys, Billy
Ocean með lagið Carribean
Oueen og Ray Parker jr. með
lagið Ghost Busters.
Flestöll þessi lög segir Anna
hafa verið mjög ofarlega á
vinsældalistum síðustu vikur
og reyndar séu sum þeirra það
ennþá.
Útvarp kl. 21.30:
KORRÍRÓ
- fræðilegur tónlistarþáttur
■ Tónlistarstjóri Útvarpsins,
Jón Örn Marinósson, var beð-
inn að útskýra fyrir lesendum
(og hlustendum) hvers konar
tónlistarþáttur væri á dagskrá
kl. 21.30 og nefndist í kynn-
ingu KORRÍRÓ.
- Þetta eru 3 þættir, sem
hafa verið kalíaðir einu
nafni KORRÍRÓ, sagði Jón
Örn.
Umsjónarmenn þessara
þriggja þáttaeru ungt fólk^em
lauk prófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík í vor í því, sem
hægt er að kalla „músíkólógía“
eða tónlistarfræði. Karólína
Eiríksdóttir tónskáld var kenn-
ari þeirra.
Eitt af því sem tiiheyrir
þessu námi, er að nemendur
eiga að læra að skrifa um eða
kynna tónlist við fjölmiðla, sjá
um þætti, skrifa fræðilegar rit-
gerðir um tónlist og svo fram-
vegis. Við eigum hér tiltölu-
lega fáa tónlistarfræðinga enn
þá, en þau - umsjónarfólk
Korríró-þáttanna voru á þess-
ari sérstöku námsbraut og luku
prófi sl. vor. Hluti af prófverk-
efni þeirra var að setja saman
þætti um eitthvað úr tónlist
fyrir útvarpið, og þá urðu þess-
ir þættir til. Þau unnu þetta í
vor undir leiðsögn kennara
síns, og það eru þessir Korríró-
þættir, sem við erum nú að
útvarpa á föstudagskvöldum.
- Sá fyrsti, sem var á
dagskrá sl. föstudag, fjallaði
um samband texta og tónlistar.
Þau Hulda B. Guðmundsdóttir
og Ríkharður H. Friðriksson
veltu þessu efni fyrir sér og
léku tóndæmi með.
í kvöld tala þeir ívar Aðal-
steinsson og Ríkharður H.
Friðriksson um það sem við
köllum „hljóðblæ" í músík, og
þeir verða líka með mikið af
tóndæmum.
Þessir þrír tónlistarþættir
eru frekar fræðilegir og til-
gangur þeirra er fræðsla. Þetta
er hluti prófverkefnis flytjenda,
eins og áður segir.
- Ja, nafnið KORRÍRÓ
bendir helst til að þáttur þessi
sé „eitthvað til að svæfa fólk
með“, eins og tónlistarstjóri
sagði, en hann tók fram að
nafngiftin væri ekki frá útvarp-
inu komin, en hafði orðið til
hjá flytjendum er gengið var
frá þáttunum.
■ Jón Örn Marinósson tónlistarstjórí: KORRÍRÓ, - ja
kannski er þetta eitthvað til að svæfa fólk með...“
Föstudagur
23. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurö-
ar G. Tómassonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Jón Ó.
Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Breiðholtsstrákur fer í sveit" eftir
Dóru Stefánsdóttur. Jóna Þ. Vern-
harðsdóttir les (18).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkvnningar
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Frettir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Það er svo margt að minnast
á“. Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Á bókamarkaðinum Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýjum
bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 Á léttu nótunum. Tónlist úr
ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar a. Daniel
Benyamini og Parísarhljómsveitin
leika Víólukonsert eftir Béla
Barfok; Daniel Barenboim 'stj. b:
Robert Cohen og Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna leika Sellókonsert
eftir Joaquin Rodrigo; Enrique Bát-
iz stj.
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Að vera vinur
dýranna Jórunn Ólafsdóttir frá
Sörlastöðum les úr Dýravininum
og flytur formálsorö. b. Ég syng
þér Ijóð Filippía Kristjánsdóttir
(Hugrún) les Ijóð eftir Guðrúnu
Valgerði Gísladóttur. c. (slenskar
kvenhetjur. Þáttur af Jakobinu
Jensdóttur Stær eftir Guðrúnu
Björnsdóttur frá Kornsá. Helga
Einarsdóttir flytur.
21.30 Korriró Tónlistarþáttur í um-
sjón ivars Aðalsteinssonar og Rík-
harðs H. Friðrikssonar. I þættinum
er rætt um hljóðblæ.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Djassþáttur - Tómas Einars-
son.
23.15 Á sveitalínunni: Umsjón Hilda
Torfadóttir. (RÚVAK)
24.00 Söngleikir í Lundúnum 7.
þáttur, „Jukebox". Umsjón: Árni
Blandon.'
00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút-
varp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Laugardagur
24. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorð - Halla Kjart-
ansdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.) Óskalög sjúkl-
inga, frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Herm-
ann Gunnarsson.
14.00 Hér og nú Fréttaskýringaþáttur
i vikulokin.
15.15 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. (RÚVAK).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 islenskt mái. Ásgeir Blöndal
Magnússon flytur þáttinn.
16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njörður
P. Njarðvík.
17.10 Ungversk tónlist 2. þáttur -
Franz Liszt. Umsjón: Gunnsteinn
Ólafsson.
17.55 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldslns.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Veistu svarið? Umsjón: Unnur
Ólafsdóttir. Dómari: Hrafnhildur
Jónsdóttir. (RÚVAK).
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum“ eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefánsson
les þýðingu Freysteins Gunnars-
sonar (5).
20.20 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
20.50 Sögustaðir á Norðurlandi 1.
þáttur: Munkaþverá i Eyjafirði.
Umsjón: Hrafnhildur Jónsdótfir.
RÚVAK).
21.35 Myndlistardjass - fyrri þáttur
Myndlistarmennirnir Lealand Bell,
Sigurður Örlygsson og Tryggvi
Ólafsson velja skífur og ræða við
Vernharð Linnet sem hefur umsjón
með þættinum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Uglan hennar Mínervu
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason,
23.15 Hljómskálamúsik Guðmund-
ur Gilsson kynnir.
24.00 Miðnæturtónleikar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturút-
varp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur
25. nóvember
8.00 Morgunandakt Séra Jón Ein-
arsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Hans Carste leikur.
9.00 Frétttir.
9.05 Morguntónleikar „Requiem"
i d-moll K. 626 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Rachel Yakar,
Orfrun Wenkel, Kurt Equiluz, Ro-
bert Holl og kór Vínaróperunnar
syngja með „Concentus musicus“-
hljómsveitinni i Vínarborg; Niklo-
laus Harnoncourt stj.
10.00 Frétttir. 10.00 Veðurfregnir.
10.35 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Skólaguðsþjónusta í Laug-
arneskirkju Prestur: séra Ólafur
.Jóhannesson. Organleikari: Sig-
ríður Jónsdóttir. Hádegistónleik-
ar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Glefsur úr stjórnmálasögu i
camantekt Sigriðar Ingvarsdóttur.
Þátturinn fjallar um Jón Magnús-
son og lausn sambandsmálsins.
Umsjón: Sigríður Ingvarsdóttir og
Sigríður Eyþórsdóttir.
14.30 Miðdegistónleikar: Frá tónl-
istarhátíðinni i Salzburg í sumar
Alfred Brendel leikur Píanósónötu
í B-dúr op. posth. D.960 eftir Franz
Schubert.
15.10 Með bros á vör Svavar Gests
velur og kynnir efni úr gömlum
spurninga- og skemmtiþáttum út-
varpsins.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um visindi og fræði. Sagnrit-
un og söguskýring meðal Hebrea.
Þórir Kr. Þórðarson, prófessor,
flytur sunnudagserindi.
17.00 Placido Domingo á tón-
leikum í sal Tónlistarfélagsins i
Vínarborg í janúar s.l. Placido
Domingo, Virginia Alonso, Paloma
Perez-lnigo og Sinfóníuhljómsveit
Útvarpsins í Vinarborg flytja
spænska tónlist; Garcia Navarro
stjórnar.
18.00 Á tvist og basts Jón Hjartar-
son rabbar við hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Á bökkum Laxár - Jóhanna
Á. Steingrimsdóttir í Árnesi segir
frá. (RÚVAK).