NT - 23.11.1984, Page 15

NT - 23.11.1984, Page 15
(slenska hljómsveitin: Tvennirtímarí þýskri tónlist Föstudagur 23. nóvember 1984 1 5 Helgin' framundan Franskur kúnstner í Listamiðstöðinni: Grafísk ópera við Ijóðlist ■ Sýning á grafíkverkum franska listamannsins Jean Paul Chambas verður opnuð kl. lóámorguni'Listamiðstöð- inni við Lækjartorg. Sýningin ber heitið „Mon Opera" og er unnin út frá Ijóðum George Trakl. Chambas er 37 ára gamall og nam í Toulouse. Hann hef- ur haldið yfir 20 einkasýningar auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga víða urn heim. Hann hefur mikinn áhuga fyrir ljóðlist og leik- húslist og hefur m.a. starfað sem leiktjaldasmiður með þekktustu leikstjórum Evr- ópu, s.s. Wim Wenders og J.P. Vincent. í óperu sinni beitir hann aðferðum steinprentunar og innleiðir þar ýmsar nýjung- ar. verkin eru til sölu. Þeir sem eiga myndir á sýn- ingunni eru: Ágúst Petersen, Björn Birnir, Bragi Ásgeirsson, Ein- ar Baldvinsson, Einar Porláks- son, Elías B. Halldórsson, GunnarÖrn, Guðmunda And- résdóttir, Hafsteinn Aust- mann, Jóhannes Geir, Jóhann- es Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson, Kristján Davíðs- son, Sigurður Sigurðsson, Steinþór Sigurðsson, Valtýr Pétursson, og Vilhjálmur Bergsson. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9 til 17 og laugar- daga og sunnudaga kl. 14 til 18. Sýningunni lýkur 26. nóv- ember. Sýning í Hafnarborg í Hafnarfirði ■ Sl. laugardagopnaði Krist- bergur Pétursson sýningu í Hafnarborg í Hafnarfirði. Hann sýnir þar grafíkmyndir, teikningar og vatnslitamyndir. Sýningin er opin alla daga frá kl. 2-7 (14-19), og aðgangur er ókeypis. Kristbergur Pétursson lauk námi í grafík frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1982, og hann var einn af fjórum ungum myndlistarmðnnum sent tóku þátt - fyrir hönd íslands - í Norrænni myndlistarsýningu ungra manna í Þrándheimi í Noregi sl. vor. Leir og leður ■ I Gallerí Langbrók stendur nú yfir sýning á leðurfatnaði og teikningum eftir Evu Vil- helmsdóttur og jarðbrenndum leir eftir Lisbetu Sveinsdóttur. Sýningin stendur frani á sunnudagskvöld, en svo á mánu- dag verður opnuð í Gallerí Langbrók „Jólasamsýning Langbróka" og stendur sú sýn- ing út desember. Opnunartími er: Virkir dag- ar 12-18, en um helgar frá -14-18 og a laugardögunt^ii- desmeber frá kl. 12-18. Sýningumlýkurað. Kjarvalsstödum ■ Á sunnudagskvöld kl. 22.00 lýkur eftirtöldum sýn- ingum: Sýningu Ásgerðar Búadótt- ur, sem hlaut starfslaun Reykjavíkurborgar 1984, en sýning hennar hefur staðið yfir á Kjarvalsstöðum að undan- förnu. Sýningu Valgerðar Hafstað lýkur sömuleiðis á sunnudags- kvöld. Sýning Valgarðs Gunnars- sonar og Böðvars Björnssonar endar einnig á sunnudagskvöld kl. 22. Skúlptúrsýningu Guttorms Jónssonar lýkursömuleiðisum helgina. Sýningu Steinunnar Mar- teinsdóttur lýkur einnig á sunnudagskvöld kl. 22. Nú sem stendur er því engin sýning á Kjarvalsstöðum, nema sýning Alþýðuleikhúss- ins, sem er einn angi af starf- semi hússins. Sýning á Mokka ■ Hrefna Lárusdóttir opnaði sýningu þann 16. nóvembersl. á 29 vatnslitamyndum í Mokka- kaffi við Skólavörðustíg. Hrefna er Reykvíkingur, bú- sett í Luxembourg og hefur ekki sýnt hér á landi fyrr. Þessa dagana sýnir hún einnig acryl málverk á Trier í Þýska- landi. Sýningin á Mokka stendur yfir í 3 vikur. 17málarar sýna að Vesturgötu 17 ■ Félagar í Listmálarafélag- inu sýna um þessar mundir 29 verk í Galleríinu íslensk list að Vesturgötu 17. Þar er um að ræða olíumálverk, vatnslita- myndir, teikningar og grafik eftir 17 listamenn, sem allir eiu-r-iueðal-rlrcmstu myncilist- armanna þjóðarinnar. Öll Föstudagur 23. nóvember 1984 14 Tónleikar um helgina: I Austur- bæjarbíói og Norræna húsinu Tónfeikar á Akranesi ogReykjavík um hefgina Trómet-blásarasveit framhaldsskólanna. Hljómleikar tró- met í Hamrahlíð ■ Þýsk tónlist, frá því fyrir og íslensku hljómsveitarinnar um skapast af þessari mynd. ■ 3. og 4. tónleikar á starfsári íslensku hljómsveitarinnar verða fluttir nk. helgi, fyrst á Akranesi í Bíóhöllinni kl. 14.30 á laugardag og síðan verður sú efnisskrá endurtekin í Bústaðakirkju daginn eftir kl. 17 og eru það jafnframt 2. áskriftartónleikar hljómsveit- arinnar í Reykjavík. Stjórnandi á tónleikunum verður sænski hljómsveitar- stjórinn Kurt Lewin, sem er íslendingum að góðu kunnur, en hann stjórnaði hljómsveit- inni í fyrra á jólatónleikunum við mikinn og góðan orðstír. Einleikari verður klarinettu- leikarinn Sigurður Snorrason en jafnframt kemur fram bar- intónsöngvarinn John Speight. Efnisskráin ber yfirskriftina Tvennir tímar og er þar um að ræða germanska tónlist frá tvennum tímum. Annars vegar verk eftir Mozart og Dimler frá 19. öld og hins vegar verk sem samin eru uni og eftir aldamótin. Höfundar þeirra eru Hanns Esler og Hugo Distler. Jafnframt verða flutt sönglög eftir Jón Leifs, en hann var einmitt við nám og störf í Þýskalandi á þessum umbrotatímum um og uppúr aldamótum. Vel fagnað á Selfossi Að sögn Guðmundar Emils- sonar stjórnarformanns ís- lensku hljómsveitarinnar var prýðileg aðsókn að tónleikun- eftir aldamót, verður á dagskrá helgina og ættu rétt hughrif að um á Selfossi um sl. heigi og var þeim rnjög vel tekið. Vill hann koma á framfæri þakklæti til forráðamanna bæjarfélags- ins sem tóku þeim opnum örmum og kvaðst hann halda að tónleikagestir hefðu verið hrifnir, enda Stephanie Brown alger snillingur og leikið sig inní hjörtu Selfyssinga. Tvísýnt um framhald Guðmundur sagði hins veg- ar tvísýnt um framhald þessara dreifbýlistónleika og réðist það að nokkru af viðtökunum sem íslenska hljómsveitin fengi á Akranesi um helgina. Hins vegar væri epn stefnt að því að fara út á land með hverja einustu efnisskrá. Væri álit þeirra hjá íslensku hljómsveit- inni að ekki mætti gefast upp við fyrstu tilraun, enda hefði hljómsveitin aldrei komist á laggirnar ef sá hugsunarháttur hefði verið ríkjandi. Kvað hann þurfa að finna annan rekstrarlegan flöt á þessu máli, sem væri lands- byggðarmál, og væri það mjög leiðinlegt ef ekki tækist að framkvæma þetta. Hvetur hann tónlistaráhugamenn og forsvarsmenn bæjarfélaga úti á landi til að hafa samband við sig til að ræða málin og kanna hvaða möguleikar finnist, til að koma á einhverskonarsam- starfi. Taldi Guðmundur að ekki hvað síst ætti að vera hægt að finna einhverjar leiðir til samstarfs við bæjar- og sveitar- félög sem næst eru höfuðborg- arsvæðinu landfræðilega séð. ■ Trómet-blásarasveit fram- haldsskólanna heldur hljóm- leika í sal Menntaskólans við Hamrahlíð á sunnudaginn kl. 17.00. Á efnisskrá eru ein- göngu 20. aldar tónverk eftir tónskáldin Jónas Tómasson, Matyas Seiber, Vincent Persi- cetti, Pierre Max Dubois og Bernd Alois Zimmermann. Aðgangur að hljómleikun- um er ókeypis og eru nemend- ur framhaldsskólanna og þá sérstaklega eldri félagar sveit- arinnar boðnir velkomnir á hljómleikana. Stjórnandi Trómet-blásarasveitarinnar er Þórir Þórisson. ■ Blásarakvintett Reykjavíkur og Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari. Kammermúsikklúbburinn: Tónleikar í Bústaðakirkju ■ Kammermúsikklúbburinn heldur aðra tónleika á starfsár- inu 1984-1985 í Bústaðakirkju sunnudaginn 25. nóvember kl. 20.30. A efnisskrá eru þessi verk: Kvintett fyrir flautu, óbó, klarinettu, horn og fagott op. 43 eftir Carl Nielsen, són- ata fyrir flautu og píanó eftir Francis Poulenc, og kvintett eftir Beethoven fyrir píanó, óbó, klarinettu, horn og fagott op. 16. Flytjendur eru Blásarakvint- ett Reykjavíkur og Anna Mál- fríður Sigurðardóttir píanó- leikari. ( blásarakvintettinum eru: Bernharður Wildinsson (flauta), Daði Kolbeinsson (óbó), Einar Jóhannesson (klarinetta), Joseph Ognibene (horn) og Hafsteinn Guð- mundsson (fagott). ■ Laugardaginn 24. nóvem- ber halda þau Margareta Ha- verinen, sópran og Collin Hansen, píanóleikari, tónleika á vegum tónlistarfélagsins. Tónleikarnir verða haldnir í Austurbæjarbíói og hefjast kl. 14.30. Margareta Haverinen er af rússneskum og finnskum ættum. Hún hóf tónlistarnám sitt á fiðlu og Iauk Mastersprófi við Sibelíusar Akademíuna í Helsinki. Hún lauk einnig sams konar prófi í söng við sama skóla. Framhaldsnám stundaði hún síðan í París og Róm og í heimalandi sínu Finnlandi. Hún hefur unnið til margvíslegra verðlauna fyrir söng sinn. Collin Hansen er bandarísk- ur ríkisborgari en fæddist í Þýskalandi. Hann stundaði tónlistarnám í Bandaríkjun- um, á Ítalíu og í Finnlandi. Margareta Haverinen og Collin Hansen héldu „debut"- tónleika í Carnegie Hall árið 1982 og komu auk þess fram á tónleikum á vegum Scandi- navia Today. Á efnisskránni á laugardag verða sönglög eftir Mozart, Fauré, Liszt og Rachmaninov. Aukamiðar verða til sölu við innganginn. Á sunnudaginn 25. nóv. kl. 20.30 halda þau tónleika í Norræna húsinu. Þar verða á efnisskrá verk eftir Edv. Grieg, Jean Sibelius og Oskar Mirikanto. Margareta Haverinen Bmmmmmmmmi Eitt grafíkverka Chambas úr seríunni „Mon Opera“. Gallerí Borg: Sýning Bjargar Atladóttur ■ Nú stendur yfir í Gallerí Borg sýning á verkum Bjargar Atladótt- ur. Þetta er síðari sýningarhelgin. Sýnd eru málverk, teikningar og verk með blandaðri tækni. Aðsókn hefur verið mjög góð og margar myndir selst. Gallerí Borg er opið kl. 10-18 virka daga og 14-18 um helgar. Björg Atladóttir nam við Mynd- listaskólann í Reykjavík á árunum 1976-1979 og við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1979-1982. Þar lagði hún stunda á málun. Fyrr á þessu ári var Björg með einkasýningu í boði listkynningar Héraðsbókasafnsins í Mosfells- sveit. Einnig átti Björg verk á Kirkjulistarsýningunni að Kjar- valsstöðum 1983. Eitt verkanna á sýningunni. Dönsk kvikmynd í Norræna húsinu ■ Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós sýnir dönsku myndina „Den kære familie" frá 1962 í Norræna húsinu nk. sunnudag, 25. nóv. kl. 17.00, Leikstjóri er Erik Balling og aðalhlutverk leika Lise Ring- heim, Henning Moritzen, Ghita Nörby, Ebbe Langberg, Buster Larsen og fleiri þekktir danskir leikarar. Myndin gerist í Kaupmanna- höfn um aldamótin. Friis kaup- maður á þrjár gjafvaxta dætur. Friis er kominn í hóp brodd- borgara, orðinn Dannebrogs- riddari og verðandi etatsráð. Það verður að vanda val tengdasonanna, en mannkost- irnir eru ekki í réttu hlutfalli við-hina fínu titla, sem þeir bera. Þetta á sérstaklega við ... vonbiðil yngstu dótturinnar og fjallar myndin að mestu leyti um, hvernig koma megi í veg fyrir giftinguna. Ráðstefna um raungreinakennslu ■ Félag raungreinakennara boðar til ráðstefnu með grunn- skólakennurum um tengsl framhaldsskóla og grunnskóla- stigs á sviði raungreina- og stærðfræðikennslu. Ráðstefnan verður haldin kl. 13.00-17.30 laugardaginn 24. nóvember 1984 í salar- kynnum Sparisjóðs vélstjóra í kjallara hússins að Borgartúni 18, Reykjavík. Boðið er til ráðstefnunnar öllum kennurunt í raungrein- um á grunnskóla- og fram- haldsskólastigi og fulltrúum úr Menntamálaráðuneytinu. Ráðstefna að Hótel Borg: Hvað vill félagshyggjufólk? ■ Sami hópur og boðaði fyrip nokkrum mánuðum til ráð- stefnu í Gerðubergi um efnið: „ísland; velferðarríki fyrir hvern?" boðar nú til ráðstefnu að Hótel Borg um efnið: „Hvað vill félagshyggjufólk?“ Framsöguræður flytja: Ingi- björg Sólrún Gísladóttir og Kristín Ástgeirsdóttir, Mar- grét Björnsdóttir, Stefán Bene- diktsson og Guðmundur Árni Stefánsson, Ráðstefnustjóri er Ögmundur Jónasson. Á ráðstefnunni verður lögð fram tillaga um að stofna sam- starfsnefnd félagshyggjufólks. Ráðstefnan hefst kl. 13.30 að Hótel Borg laugardaginn 24. nóvember og er öllunt opin. Þátttökugjald er 50 krónur. Háskólafyrirlest- ur í Lögbergi ■ Fræðafundur í Félagi áhugamanna um réttarsögu verður haldinn laugardaginn 24. nóvember kl. 14 í stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeildar Háskólans (ath. breyttan fund- artíma). Fundarefni: Dr. Mons Nygard, prófessor í Bergen, flytur erindi, er hann nefnir: „Norsk sjöbruksrett í historisk lys". Fyrirlesarinn er prófessor í réttarsögu við háskólann í Bergen í Noregi og kemur hann hingað til lands í boði Félags áhugamanna um réttar- sögu. í erindi sínu mun hann einkum fjalla um sögulega þróun réttarreglna um eignar- og nytjarétt að strandsvæðum (í tengslum við fiskveiðar og útræði), urn rétt landeigénda og annarra rétthafa að landi til fiskveiða og annarra sjávar- nytja í námunda við land og um réttindi yfir landgrunninu í sögulegu Ijósi. Erindið verður flutt á norsku. Félagið vekur athygli á að hér er um athygl- isvert efni að ræða, sem um margt á sér hliðstæðu hérlend- is. Fundurinn er öllum opinn. SHA með landsfund Ratsjárstöðvar í brennidepíi ■ Herstöðvaandstæðingar halda sinn árlega Iandsfund á sunnudaginn kemur að Hverf- isgötu 105. Malcholm Spaven vígbúnaðarsérfræðingur frá Sussex háskólanum í Bretlandi mætir og flytur erindi um rat- sjárstöðvar. Nýjar upplýsingar um ratsjárstöðvarnar á íslandi rnunu koma fram. Þá verða hefðbundin aðal- fundarstörf og almennar um- ræðuráfundinum. Umkvöldið er svo vetrarfagnaður SHA þar sem rnenn munu skemmta sér við söng, bögglauppboð, samkvæmisleiki, drykkju, rímnasöng og margt fleira. Þar mun og Emil Bóasson flytja erindi um friðarráðstefnu sem hann sat nýlega austur í J apan. Kvennahúsið Laugardagskaffi ■ Konur komið í Kvenna- húsið kl. 13.30. Umræðuefni verður húmor kvenna. Kontið með skrítlur með ykkur og hlæjum saman yfir kaffibolla. Húsnefnd ■ Björgunarhundur við leit í snjó Flóamarkaður og kökubasar ■ Björgunarhundasveit íslands, ein aðildarsveita Landssambands hjálpar- sveita skáta, ætlar að halda flóamarkað og kökubasar laugardaginn 24. nóv. 1984 í Skátahúsinu við Snorrabraut til fjáröflunar fyrir starfsemi sína, en sveitin sérþjálfar fólk og hunda til leitar í snjóflóð- um, skriðum og húsarústum. Þeim, sem vilja leggja sveit- inni lið er vinsamlegast bent á, að tekið er á móti munum og kökum í Skátahúsinu við Snorrabraut föstudagskvöld frá kl. 17.00 og laugardag frá kl. 9 f.h. Austfirðinga- félagið I Reykjavík 80 ára ■ Það var á þorra 1904 að nokkrir Austfirðingar búsettir í Reykjavík komu saman til að minnast átthaganna. Það varð til þess að félagið var stofnað og er því Austfirðingafélagið í Reykjavík 80 ára á þessu ári. Það mun því elsta starfandi átthagafélag í borginni. Til að minnast 80 ára afmælis félagsins verður hóf að Hótel Sögu föstudaginn 23. nóvem- ber og hefst það með borðhaldi kl. 20.00. Dagskráin verður fjölbreytt og vonast forstöóumenn fé- lagsins til að Austfirðingar fjöl- menni. Spilavist í Kópavogi ■ Spiluð verður félagsvist í safnaðarheimilinu við Bjarn- hólastíg 26 í Kópavogi laugar- daginn24. nóvemberkl. 14.30. Útivistarferð á sunnudag ■ Sunnud. 25. nóv. kl. 13.00 verður farin dagsferð á vegum Útivistar. Ferðaáætlun er á þessa leið: Lambhagatjörn - Kleifarvatn - Gullbringa o.fl. Er skrímslið í Kleifarvatni komið á kreik? Þetta er létt ganga fyrir alla. Brottför frá BSI, bensínsölunni. í Hafnar- firði v. kirkjugarðinn. Sunnudagsferð Ferðafélags íslands ■ Sunnudaginn 25. nóvem- ber verður farin dagsferð F.í. kl. 13. Gengin verður varðaða leiðin á Hellisheiði - Hellis- skarð - Kolviðarhóll (gamla gönguleiðin). Þetta er létt og skemmtileg gönguleið. Brottför verður frá Umferð- armiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar til sölu við bílinn.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.