NT - 23.11.1984, Síða 25
nu
Föstudagur 23. nóvember 1984 25
Utlönd
Þing Palestínuaraba:
Arafat vill al-
þjóðaráðstefnu
Amman-Reuter
■ Á þingi Palestínuaraba sem
hófst í Amman í Jórdaníu í gær
lýsti Yasser Arafat, formaður
PLO, því yfir að hann styddi
hugmyndir um alþjóðaráð-
stefnu um málefni Miðaustur-
landa þar sem allir deiluaðilar
ættu fulltrúa.
Hussein Jórdaníukonungur,
sem ávarpaði þingið, hvatti Pal-
estínuaraba til sameiningar og
bauðst til að tala máli þeirra í
arabaheiminunr og annars
staðar.
Margir höfðu áhyggjur af því
að ekki tækist að fá tilskilinn,
fjölda þingmanna til að mæta
á þingið þar sem hluti af þeim
skæruliðasamtökum, sem eiga
aðild að PLO, neituðu að sækja
það. En Arafat segir að sér hafi
samt tekist að fá rúmlega tvo
þriðju þingmanna ti! að koma
sem gerir þingið löglegt.
Utgóngubann
í Sri Lanka
Colombo-Reuter
■ Stjórnvöld á Sri Lanka settu
á útgöngubann í gærmorgun til
að koma í veg fyrir kynþátta-
átök eftirmannskæða árásskæru-
liða af Tamila þjóðflokki á
lögreglustöð fyrr í þessari viku
en þá létust 29 lögregluþjónar.
Utgöngubannið gilti í allan
gærdag og þvf átti ekki að
aflétta fyrr en um sexleytið nú í
morgun.
í yfirlýsingu frá stjórnvöldum
segir að nokkrar tilraunir hafi
verið gerðar til að skapa óróa
sumstaðar og væri útgöngu-
bannið sett á til að koma í veg
fyrir að það tækist.
Stjórn Sri Lanka heldur því
fram að öfgamenn erlendis hafi
skipulagt árásina á lögreglu-
stöðina síðastliðinn þriðjudag.
Með þessu á hún greinilega
við hópa Tamila á Indlandi þar
sem Tamilar eru mjög fjöl-
mennir. Einnig segist stjórnin
telja að árásin standi í sambandi
við fyrirhugaðar kosningar á
Indlandi.. Samtök Tamila, sem
kalla sig Tamil Eelam frelsis-
samtökin, hafa lýst ábyrgð á
hendur'sér vegna árasarinnar í
fréttatilkynningu sem þau sendu
frá sér í indversku hafnarborg-
inni Madras.
Um fimmtíu þúsund Tanrilar
eru á Indlandi og styðja margir
þeirra sjálfstæðisbaráttu Tamila
í Norður-Jaffna á Sri Lanka. í
yfirlýsingu stjórnar Sri Lanka
er fullyrt að ofbeldisaðgerðir
Tamilaskæruliða á Sri Lanka
sé m.a. ætlaðar til að efla þá
indversku stjórnmálamenn sem
styðja sjálfstæðisbaráttuTamila
á Sri Lanka.
Fyrrverandi njósna-
foringi fellur frá
London-Reuter
■ Graham Russell Mitchell,
fyrrverandi aðstoðarfram-
kvæmdastjóri gagnnjósna-
þjónustu Breta lést síðastlið-
inn mánudag 79 ára að aldri.
Mitchell var um tíma grun-
aður um að vera sovéskur
njósnari vegna mikils skák-
áhuga sem m.a. varð til þess að
hann hafði samband við sov-
éska skákmenn. Breskir leyni-
þjónustumenn létu rannsaka
bréfaskriftir Mitchells vegna
gruns um að leikirnir væru
leynileg boð til sovésku leyni-
þjónustunnar. Breskir skák-
sérfræðingar fundu hins vegar
ekkert grunsamlegt við leik-
ina.
Kínverjar kaupa
vopn frá ísrael
London-Reuter
■ Breska varnarmála-
tímaritið „Jane's defence
weekíy" fullyrðir að Kín-
verjar hafi keypt vopn frá
ísrael allt frá árinu 1979
þótt Kína og ísrael hafi
ekki stjórnmálasamband
sín í milli.
Tímaritið segir að fyrstu
merkin um hernaðarsam-
vinnu milli Kínverja og
ísraela hafi verið ísraelsk-
ar fallbyssur á kínverskum
skriðdrekum á hersýningu
1. október síðastliðinn í
tilefni af 35 ára afmæii
byltingarinnar. Kínverjar
hafi sérstakan áhuga á
hernaðarsamstarfi við ísra-
ela vegna þekkingar hinna
síðarnefndu á sovésk-
um vopnum sem þeir hafa
náð á sitt vald í stríðum
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Samkvæmt tímaritinu
hafa Kínverjar og ísraelar
skrifað undir samninga um
hernaðarsamvinnu sem
séu metnir á 3 milljarða
Bandaríkjadala.
Sjötugur
sundmaður
með sjötíu
báta
■ Fólk heldur upp á afmæl-
in sín með ýmsum hætti.
Jack Lance nokkur lét sig
ekki muna um að synda um
höfnina í Long Beach í Kali-
forniu með sjötíu smábáta í
eftirdragi í tilefni sjötugs af-
mælis síns fyrr í þessari viku.
POLFOTO-Símamvnd
Tölvutengt tollakerfi
fyrir öll EBE-löndin
Brussd-Reuler
■ Stjórn EBE hefur lagt til við
aðildarríki Efnahagsbandalags-
ins að þau komi á fót samtengdu
tölvukerfi sem tengi saman toll-
stöðvar og tollskrifstofur í
bandalaginu til að auðvelda og
flýta fyrir verslun á milli þeirra
tíu ríkja sem eiga aðild að
bandalaginu.
Slíkt kerfi myndi tengja sam-
an allar stærstu tollstöðvar í
EBE. Alþjóðaflugvellir og
hafnir myndu tengjast því að
mörg stór verslunarfyrirtæki
gætu fengið beinan aðgang að
því. Slíkt myndi auðvelda mjög
allar skjalavinnu vegna verslun-
ar á rnilli bandalagsríkjanna.
Nú þegar hefur náðst sám-
komulag um eitt staðlað tollskj-
al fyrir öll ríki EBE í stað 60 til
70 skjala sern hingað til hafa
verið notuð.
Stjórn EBE tók samt fram að
þessar hugmyndir um einföldun
tollamála feli ekki í sér brott-
hvarf frá fríverslunarhugmynd-
um. Markmiðið sé eftir sem
áður að afnema alla tolla milli
Ibandalagsríkjanna.
;
■ Spænskir lögreglumenn við vegatálmanir í Bilbao í gær en þá var þar eins dags allsherjarverkfall
vegna jarðarfarar stjórnmálaleiðtogans, Santiago Brouard, sem barðist fyrir sjálfstæði Baskalanda.
Símamvnd-POI.FOTO
Oeirðir í Bilbao
Egyptaland:
Lögregla ber
á stúdentum
Kairó-Reuter
■ Egypskir lögregluþjónar
réðust að stúdentum, börðu þá
með kylfum og beittu táragasi
gegn þeim í Al-Azhar háskóla í
gær.
Al-Azhar háskólinn er uni
þúsund ára gamall. Stúdentarn-
ir kröfðust betri aðstöðu við
skólann auk þess sem þeir
kröfðust þess að kvennemendur
klæddust í samræmi við arabísk-
ar hefðir. Sjónvarvottar segja að
um 2000 lögregluþjónar hafi
umkringt mótmælendur sem
lokuðu sig inni á skólalóðinni
með götuvígjum. Margir stúd-
entar særðust í átökunum.
Upphafleg kveikja að mót-
mælaaðgerðunum var umferð-
arslys sern lögregla átti þátt að
þar sem einn nemandi frá skól-
anum lét lífið.
Evrópa árið 2000:
Helmingur
rafmagns
kjarnorku-
framleitt
Brussel -Reuter
■ Stjórn Efnahagsbandalags
Evrópu spáir því að árið 2000
verði um helmingur alls raf-
magns í löndum EBE framleitt
í kjarnorkuverum.
Kjarnorkuframleitt rafmagn
verður um 35% af öllu rafmagni
í EBE árið 1990 samkvæmt
þessari spá og fimm árurn síðar
verður það um 40%.
Bilbao-Reuter
■ Verkalýðsfélög í Baska-
löndum og stjórnmálaflokkar
þar lýstu yfir allsherjarverkfalli
í gær vegna morðsins á Santiago
Brouard einum helsta leiðtoga
aðskilnaðarsinna á þriðjudag.
Hann var fyrsti leiðtogi Herri
Batasuna, frelsisfylkingar
Baska, sem hefur verið myrtur
síðastliðin sextán ár.
Hörð átök urðu í gær og.í
fyrrakvöld milli lögreglu og
mótmælenda á ýmsum stöðum í
Bilbao vegna morðsins. Alls- |nfjj|í|||rf«
herjarverkfallið var kallað til að 1
minnast Santiago Brouard á
meðan útför hans stæði yfir.
Hann var myrtur af dauðasveit
sem berst gegn aðskilnaðar-
sinnum í röðum Baska með
morðum og öðru ofbeldi. Pessi
hópur hefur drepið níu aðskiln-
aðarsinna, sem hafa aðsetur sitt
í Frakklandi, frá því að hann
var stofnaður á síðasta ári.
300 þúsund pílagrímar
skoða líkama dýrlings
sem dó fyrir 434 árum
Goa, Indiandi-Reuter
Auknum flugvallarþrengslum
spáð í Evrópu á næsta sumri
Alþjóðasamtök flugfélaga,
IATA, spá því að mikil örtröð
á evrópskum flugvöllum geti
skapað vandamál næsta sumar.
í yfirlýsingu frá IATA segir að
tillögur flugfélaga um flugáætl-
anir næsta sumar sýni að þau
geri ráð fyrir fimm til tíu prósent
aukningu á ferðum sínum.
Margir flugvellir í Evrópu eru
því sem næst fullnýttir á mesta
annatímanum yfir daginn þann-
ig að líklega verður að fjölga
flugum utan þess tíma.
I yfirlýsingunni segir að það
sé stöðugt erfiðara að koma
tímaáætlunum flugfélaganna
saman þrátt fyrir ráðstefnur sem
fjalla sérstaklega um þær tvisvar
á ári.
■ Pílagrímar hvaðanæva að úr
heiminum þyrpast nú til gömlu
portúgölsku nýlendunnar, Goa,
í Indlandi til að sjá líkama
heilags Francis Xavier sem lést
í Goa árið 1552.
Heilagur Francis Xavier var
spænskur jesúítatrúboði sem
kom til Goa árið 1542 til að
boða kristna trú í Asíu. Einni
öld eftir lát hans rannsakaði
franski sagnfræðingurinn Simon
Bayard líkama hans og komst
að því að hann hafði varðveist
ótrúlega vel. Síðan hefur líkami
heilags Francis Xavier verið
geymdur í marmaragrafhýsi í
Goa sem merki urn heilagleika
hans.
Einu sinni á hverjum tíu árum
er líkami hans sýndur almenn--
ingi þar sem hann liggur í
silfurkistu. Að þessu sinni verð-
ur hann hafður til sýnis í 54
daga. Á þeim tíma vonast faðir
Vasco Rego, sem hefur yfirum-
sjón með þessari sjaldgæfu
helgiathöfn að um 300.000
manns muni koma til að sjá
dýrlinginn.