NT - 23.11.1984, Qupperneq 26
- fyrri leik sinn gegn Sigurði Gunnarssyni og félögum á Kanaríeyjum
■ Bjarni Friðriksson verður meðal keppenda á opna skandin-
avíska meistaramótinu.
Júdó:
■ „FerðirnarniðurtilSpánar
eru hreint ótrúlega dýrar. Pað
kostar um 400 þúsund krónur
að senda 16 ntanna hóp
þangað, og eftir Noregsleik-
ina, þar sem við töpuðum um
200 þúsund krónum var okkur
ekki fært að leika heima og að
heiman. Spánverjarnir voru
líka með á þessu, og það kom
aldrei annað til greina en að
báðir leikirnir yrðu leiknir ann-
að hvort þar eða hér. Við
buðum þeim sömu skilmála og
þeir buðu okkur, en niðurstað-
an varð sú að við förum niður-
eftir“, sagði Hallur Hallsson
stjórnarmaður í handknatt-
leiksdeild Víkings í samtali við
NT í gær, en í kvöld leika
Víkingar fyrri leik sinn gegn
Corona Tres de Mayo á Kanarí-
Fimm á opna
skandinavíska
eyjum í 16 liða úrslitum í
Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik.
„Við sleppum taplausir út úr
þessu, en hefðum horft fram á
amk. 200 þúsund króna tap ef
við hefðúm tekið Spánverjana
hingað upp. Jafnvel þó við
hefðum troðfyllt Höllina í báð-
unt leikjum hefðum við tapað
á þessu. Okkur leist ekki á að
hafa upp undir hálfa milljón í
mínus eftir tvær umferðir",
sagði Hallur.
Víkingar leika fyrri leik sinn
gegn Corona í kvöld. Hallur
sagði Víkinga ekki vita mikið
um liðið. „Þeir urðu í 6. sæti í
spænsku méistarakepninni í
fyrra og bikarmeistarar. Þeir
hafa sænska ntarkvörðinn
Hellgren, sem er mjögsterkur,
en fregnir herma að hann sé
meiddur. Nú Sigurður Gunn-
arsson leikur með liðinu og við
þekkjum hann, en við höfum
heyrt að liðinu hafi gengið
mjög illa það sem af er spænska
keppnistímabilinu. En við vit-
um ekki annað um leikmenn
liðsins en um þá Hellgren og
Sigurð, og svo spænskan lands-
liðsmann mjög' góðan sem
leikur í horninu", sagði Hallur
Hallsson.
Allir sterkustu leikmenn
Víkings verða með í leiknum.
„Víkingsliðið er á mikilli upp-
leið. Bogdansstimpillinn er að
koma á liðið og ég er mjög
bjartsýnn á veturinn",.. sagði
Hallur.
■ Opna skandinavíska
meistaramótið í Júdó verður
haldið í Gautaborg í Svíþjóð á
morgun og sunnudag.
Fintm keppendur frá íslandi
verða á mótinu og meðal ann-
arra Bjarni Friðriksson verð-
launahafi á Ólympíuleikununt.
Bjarni keppir í +95 kg.
flokki en hinir sem allir eru
landsliðsmenn í júdó eru:
Kolbeinn Gíslason + 95 kg
flokki.
Magnús Hauksson +86 kg
flokki.
Karl Erlingsson +71 kg
flokki.
Rúnar Guðjónsson +65 kg
flokki.
Tveir dómarar verða einnig
nteð í förinni og munu þeir
gangast undir alþjóðlegt dóm-
arapróf meðan mótið fcr fram,
svokallaö B-stigs próf.
Þeir eru Þóroddur Þórhalls-
son og Jóhannes Haraldsson.
Samkvæmt tilkynningu frá
Júdósambandinu hefur Bjarni
Friðriksson fengið freistandi
tilboð um að taka þátt í mótum
erlendis eftir áramótin en hann
hefur ekki enn ákveðið hvaða
mót verða fyrir valinu.
Það er því ljóst að Bjarni
hefur aukið Itróður sinn og
möguleika sent keppnismaður
mjög á Ólympíuieikunum í
sumar og verður ábyggilega í
mörgu að snúast hjá þessurn
frábæra íþróttamanni á næstu
árunt. Ekki myndi skemma
fyrir honum ef hann stæði sig
vel nú um helgina og legði
nokkra af frændum vorum.
■ Þorbergur Aðalsteinsson og félagar í Víkingi eru í eldlínunni um
helgina, leika báða leiki sína gegn Corona Tres de Mayo á
Kanaríeyjuin, hinn fyrri í kvöld og hinn síðari á sunnudag.
Blak:
Stórleikur
í kvöld
■ í kvöld er stórleikur í
1. deild karla í blaki, HK
í Kópavogi mætir íslands-
meisturum Þróttar á
heimavelli sínum í Digra-
ncsi í Kópavogi.
Fyrir leikinn er lið HK
taplaust og efst í deild-
inni. Liðið lagði ÍS að
velli fyrir hálfum ntánuði,
en IS lagði Þrótt einmitt
að velli síaðstliðinn mið-
vikudag. Allt stefnir því í
jafna keppni þessara
þriggja liða, og verður
fróðlegt að fylgjast nteð
viðureigninni í kvöld.
Leikurinn hefst klukk-
an 20.00.
í 1. deild kvenna verða
tveir leikir í kvöld, KA
og ÍS leika í Glerárskóla
á Akureyri kl. 20.15 og
UBK og Víkingur í Digra-
nesi kl. 21.30. Á laugar-
I daginn leika KA og ÍS
[ stclpurnar seinni lcik sinn
fyrir norðan kl. 15.00.
Föstudagur 23. nóvember 1984 26
Iþróttir
Barcelona
efst á Spáni
■ Barcelona er nú efst í
spönsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu og hefur fimm stiga for-
ystu eftir að hafa unnið Hercu-
les 2-0 á heimavelli sínum.
V-Þjóðverjinn Bern Schuster
gerði fyrra markið eftir 19 mín.
leik úr aukaspyrnu sem breytti
um stefnu af varnarmanni.
Julio Alberto, bakvörðurinn
knái, skoraði seinna markið
með föstu skoti fyrir utan víta-
teig eftir mikinn barning leik-
manna Barcelona við harða
vörn Hercules.
... Valencia sem nú er í öðru
sæti á eftir Barcelona náði að-
eins öðru stiginu gegn Sporting
Gijon á útivelli. Gijon náði
forystunni með marki Olaya en
gestirnir jöfnuðu rétt fyrir hlé er
Uruguay-maðurinn Wilmar Ca-
brera lék á tvo varnarmenn og
skoraði... Real Madrid sem
er í þriðja sæti var heppið að
vinna Osasuna með einu gegn
engu. Landsliðsmaðurinn Car-
los Santillana skoraði markið
nteð skalla síðla leiks.
■ Kristján Arason og félagar í FH mæta Honved í Höllinni á sunnudag. Þar verður fyrsti stórleikur
vetrarins í Höllinni.
FH-Honved á sunnudag
- í Evrópukeppni meistaraliða - FH á góða möguleika
■ Á sunnudag leika FH og
Honved Búdapest síðari leik
sinn í 16 liða úrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í hand-
knattleik. Leikið verður í
Laugardalshöllinni og hefst
leikurinn klukkan 20.30. FH
stóð sig frábærlega í fyrri leik
liðanna í Ungverjalandi fyrir
tæpri viku, tapaði 27-29, og á
verulega möguleika á að kom-
ast áfram ef liðið fær nægan
stuðning.
Ekki er spurning um að
boðið verður upp á topphand-
knattleik. Geta ungverskra
liða er þekkt, og líklegt að
Honved sé sterkasta lið Ung-
verjalands í dag. Liðið hefur
orðið ungverskur meistari
fjögur ár í röð, og vann góða
sigra síðastliðinn vetur á ung-
verska liðinu Tatabanya sem
sló FH út í fyrra. Liðið er
eingöngu skipað hermönnum,
sem fá að helga sig íþrótt sinni
algjörlega, svo aö í raun er um
atvinnumenn að ræða.
FH leikur á sunnudag sinn
42. Evrópuleik. Oft hefur liðið
staðið sig vel, og svo ætti
einnig að veröa nú. þar sent
liðið er það sterkasta hér á
landi um þessar mundir. einu
sinni áður hefur FH mætt
Honved, árið 1967. þegar Ung-
verjarnir slógu FH naumlega
út.
Enn fjármálahneyksli í Belgíu:
Anderlecht sektað
■ Anderlecht, lið Arnórs
Guðjohnsen í Belgíu, hefur
verið dæmt til að greiða 42
milljónir franka (725.000
dollara) í vangoldna skatta
og sektir, fyrir óreiðu og
misferli með söluverð leik-
manna.
Anderlecht var fundið
sekt að því að gefa ekki upp
allt söluverð leikmanna sem
seldir hafa verið frá félaginu
og leggja mismuninn inn á
bankareikning í Sviss.
Önnur félög t' Belgíu eru
einnig undir smásjánni hvað
þetta varðar, þar á meðal
Antwerpen og Standard
Liege.
Eins og enn er í fersku
minni er stutt síðan allt fór í
háaloft í Belgíu vegna mútu-
hneykslis.
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
Víkingar leika í kvöld
Dregið í
aðra umferð
■ í fvrrukvöld var dreg-
ið í aðra umferð í enska
bikarnum svo brátt fer að
saxast á fjöldann og von
á betri jiðunum í keppn-
ina. Önnur umferðin
verður leikin 8. desem-
ber.
Það bar helst til tíðinda
að Bristol liðin, Bristol
Rovers og Bristol City
lenda saman og leika á
heimavelli City.