NT - 23.11.1984, Page 27

NT - 23.11.1984, Page 27
UM helgina: Körfubolti: ■ Körfuboltinn verður nokk- uð á ferðinni um helgina. A laugardaginn verður einn ieikur í úrvalsdeildinni, Hauk- ar fá ÍS í heimsókn í Fjörðinn og hefst leikurinn kl. 14.00. Strax á eftir þeim ieik spila Haukar gegn KR í 1. deild kvenna. Tveir leikir verða í 1. deild karla. í Hagaskóla leika Fram og Þór Akureyri kl. 14.00 og í Keflavík ÍBK og Grindavík á sama tima. Á sunnudag verða tveir leik- ir í úrvalsdeildinni, KR og Valur leika í Hagaskóla og í Seljaskóla eigast við IR og UMFN. Þessir leikir fara fram á sama tíma, kl. 20.00. Strax á eftir leik IR og UMFN í úrvaldsdeildinni leika sömu félög í 1. deild kvenna. Einn leikur verður í 1. deild karla, á sunnudag, Laugdælir leika gegn Þór Ák. í íþrótta- húsinu á Selfossi kl. 14.00. Handbolti: ■ Enginn leikur verður um helgina í 1. deild karla vegna Evrópuleikjanna, en í 1. deild kvenna leika í kvöld á Akra- nesi ÍA og FH kl. 20.00 og í Laugardalshöll Valur og Þór kl. 21.15 í 2. deild karla leika á Akureyri KA og Haukar Id. 20.00 og á sama tíma í Laugar- dalshöll Fram og Ármann. Á laugardag leika Haukarn- ir við Þór á Akureyri kl. 20.00 og í Kópavogi mætast HK og Grótta. í fyrstu deild kvenna verður einnig leikið á laugar- dag. Tveir leikir eru á dagskrá og báðir í Höllinni. Víkingur og Þór leika kl. 13.30 og KR mætir Fram kl. 16.00. ■ Pálmar Sigurðsson er ekki árennilegur í vörninni, með sína miklu útsjónarsemi og sprengikraft. Það linnst Árna Lárussvni líka og svipur hans ber það með sér. Árni og félagar höfðu þó betur að lokum. NT-mynd: Sverrir. Njarðvíkurmaskínan mallaði snurðulaust Föstudagur 23. nóvember 1984 Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Stúdentar sigruðu ÍR 67-65 - ÍR-liðið hörmulega lélegt ■ Þau tíðindi gerðust í íþrótta- húsi Kennaraháskólans í gærkvöld, að lið ÍS vann leik í úrvalsdeildinni. Fórnarlambið var hið óútreiknanlega lið IR. Stúdentar unnu leikinn verð- skuldað 67-65 og eiga hrós skilið fyrir mikla baráttu. Stúdentar byrjuðu strax af mikluni krafti. Þeir komust yfir og voru ával.lt yfir eftir það, ef frá er skilið þegar IR-ingar skoruðu 51-50. cn það var strax leiðrétt af Stúd- entum. í fyrri hálfleik var mun- urinn 4-6 stig, en ÍR tókst að minnka ntuninn fyrir luilfleik og þá var staðan 31-30. í síðari háltleik var uppi svipuð staða. í lokin var ÍR fimm stigum undir, en skoraði og fiskaði svo boltann. Víti var dæmt eítir brot á Kristni Jör- undssyni, og hann skoraði úr fyrra vítaskotinu. ÍR náði frá- kastinu þegar 8 sek. voru eftir, en skotið fór framhjá. Leikurinn var illa leikinn, sérstaklega af Itálfu ÍR. Sókn liðsins var óákveðin og menn sofandi í vörninni. Stúdentar voru baráttuglaðir og upp- skáru samkvæmt því. Árni Guðntundsson var þeirra besti maður og gerði mikinn usla í vörn IR. Hreinn og Ragnar voru skástir hörmulegra ÍR- inga. Dómarar voru Jón Otti Ólafsson og Bergur Stein- grímsson og voru á svipuðu plani og ÍR-ingar. Stigin: ÍS: Arni 21, Valdi- mar 13, Guðmundur 12, Þröstur 10, Eiríkur 4, Ágúst 4 og Jón 3. ÍR: Hreinn 15, Ragnar 15, Gylfi 10, Karl 9, Hjörtur 8, Kristinn 4 og Jón Örvar 4. Norðurlandamót í karate um helgina: Island með ■ Norðurlandamótið í karate ve'rður haldiö í Kalstad í Svíþjóð á morg- un 24. nóvember. Keppt verur í 6 þyngdarflokkum karla og 3 þyngdarflokk- um kvenna, liðakeppni og kata (skylduæfingar) karla og kvenna. Valið hefur verið í það lið sem taka mun þátt í mótinu fyrir íslands hönd. Þau eru Atli Erlendsson, Árni Einarsson, Karl Sigur- jónsson, Stefán Alfreðs- son, Ómar ívarson, og Jónína Olsen. Þjálfari landsliðsins er Ölafur Wallevik. Markviss undirbúning- ur hefur farið frant fyrir keppnina síðan í septeni- ber. Landsliðsþjálfari er vongóður urn að hinar ströngu æfingar skili sér í góðum árangri á mótinu. Spennandi verður að sjá hvernig íslenska liðinu reiðir af í baráttunni við hin Norðurlöndin, sem eru einhver hin sterkustu í karate í heiminum í dag. Sent dæmi má nefna að Svíar höfnuðu í 2. sæti á heimsmeistarmót- inu í október. Öll hin Norðurlöndin unnu til verðlauna á sama móti. 27 og var of sterk fyrir Hauka - úrslit 93-87 í skínandi leik ■ í skínandi leik þar sem leikgleði. góður körfuknatt- leikur og spenna voru öll til staðar, sigruðu Njarðvíkingar Hauka í íþróttahúsinu í Hafn arfirði í gærkvöld 93-87, er liðin mættust þar í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik. Liðin léku bæði mjög góðan sóknar- leik, og varnarleikurinn var af hæstu gæðum. Þriggja stiga skot. fallegar fléttur, frábærar blokkir og harðfylgi í frá- köstum sáust á báða bóga. Haukar byrjuðu af miklum krafti og höfðu forystu mest- allan fyrri hálfleik, t.d. 17-13 og 27-17, en Njarðvíkingar jöfnuðu 41-41. Haukar höfðu svo yfir 47-44 í hálfleik. Njarð- víkingar voru ákveðnari í síð- ari hálfleik, náðu fjögurra stiga forystu, og höfðu 1-4 stig yfir fram yfir miðjan hálfleik. Svo náðu þeir góðum kafla og sneru stöðunni úr 72-73 í 82- 72. Það gerði útslagið. Valur Ingimundarson, aðal- sprauta Njarðvíkinga var útaf þegar Haukar komust í 73-72. En án Vals með ísak Tómas- son í fararbroddi skoruðu Njarðvíkingar grimmt. ísak skoraði m.a. úr tveimur þriggja stiga skotum í röð, og staðan varð 82-72. Haukar söxuðu aðeins á, en munurinn var 6-8 stig til loka. ísak og Valur voru langbest- ir Njarðvíkinga, og hittu nán- ast úr hverju skoti hvar sem var. Árni Lárusson var lipur og Gunnar Þorvarðarson traust kjölfesta. Pálmar Sig- urðsson og ívar Webster voru bestir Hauka. Pálmar lék af snilld þó hann væri í gæslu tveggja manna allan tímann. Það hélt honum þó niðri í stigaskoruninni. ívar Webster var magnaður í vörn i og tók alls 18 fráköst, jafnmörg stig- unum sem hann skoraði. Ólaf- ur var ágætur og Hálfdán sterkur. Dómarar voru Kristinn Al- bertsson og Sigurður Valur Halldórsson. Þeir áttu við erf- itt verkefni að glíma og kom- ust vel frá. Hefðu þó mátt taka ögn harðar á brotum. Stigin: Njardvik: Valur 30, ísak 22, Árni 19, Gunnar 12, Jónas 6, Helgi 4. Haukar: Pálraar 24, Webster 18, Ólafur 17, Hálfdán 14, Kriatinn 6, Reynir 6 og Henning 2. Staðan i úrvalsdeildinni: Njardvik .......... 7 6 1 610-492 12 Valur.............. 5 3 2 425-395 6 Haukar............. 5 3 2 434-408 6 KR ................ 4 2 2 301-288 4 ÍR................. 6 1 5 422-468 2 ÍS ................ 5 1 4 332-472 2 Aðalfundur ■ Aðalfundur íþrótta- félags Kópavogs og jafn- framt aðalfundur knatt- spyrnudeildar verður haldinn á Þinghóli, Hamraborg 11 á morgun laugardag 24. nóv. og hefst kl. 14.00. Frakkland vann Búlgaríu: Platini skorar og skorar... ■ Frakkar unnu Búlgari í undankeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu í fyrrakvöld með einu marki gegn engu. Frakkar sóttu látlaust allan leikinn en tókst ekki að pota inn nema þessu eina marki sem Platini skoraði úr víta- spyrnu. Frakkar hafa nú unnið 11 landsleiki í röð og Platini hefur- skorað mark í síðustu sjö leikjum. Hann skoraði í öllum 5 leikjunum í úrslitum Evrópu- keppninnar sem Frakkar unnu og hann skoraði einnig er Frakkar unnu Lúxemborg 4-0 í síðasta mánuði. Frakkar eru efstir í sínum riðli hafa 4 stig eftir tvo leiki og Júgóslavar koma næstir með 3 stig eftir jafn marga leiki. italía: Maradona í bann ■ Argentínski knattspyrnuguU- kálfurinn Maradona var dæmdur í eins leiks bann vegna atviks sem leiddi til þess að hann var rekinn af leikvelli í deildarleik með Napólí um síðustu heigi. Nicolini, fyrirliði Ascola, sem var rckinn af velli um leið og Maradona fékk hinsvegar tveggja leikja bann svo segja má að lukku- dísirnar hafi verið Maradona hlið- hollar. Fyrir bragðið missir kappinn af heimaleik Napólí á sunnudaginn gegn Cremonse sem er neðsta liðið í ítölsku 1. deildinni. J

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.