NT


NT - 04.12.1984, Síða 4

NT - 04.12.1984, Síða 4
Þriðjudagur 4. desember 1984 4 Útsýnar og FRÍ-klúbbskvöld á Broadway: Léttur andi og fólkáðllum aldri ■ FKÍ-klúbburinn ug Útsyn héldu skemmtikvöld á Broadway í gærkvöldi með tilheyrandi FRÍ-klúbbsfjöri og skemmtiatriöum. Vetrarstarfsemi klúbbsins var kynnt og boðið var uppá skemmtiat- riði og dans, að ógleymdum Ijúffengum kvöldverði. Þótt þáttaka væri frekar í minna lagi náðist þó upp hinn eini sanni FRI-klúbbsandi, sem ku ríkja í Útsýnarferðum, og skemmtu gestir sjálfum sér og öðrum með alls kyns sprelli og uppákomum, undir ötulli stjórn FRÍ-klúbbsfararstjóra frá liðnu sumri. FRÍ-klúbburinn var stofnað- ur í janúar sl. og voru helstu hugmyndafræðingar á bakvið tilurð hans Ingólfur Guðbrands- son forstjóri Dtsýnar og Jónína Benediktsdóttir sem flestum landsmönnum er vel kunn úr leikfimiþáttum útvarps. Klúbb- ■ Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar, bauð gesti velkomna á FRÍ-klúbbskvöld og kynnti nýráðinn framkvæmdastjóra klúbbsins, Pálma Pálmason. ■ FRÍ-klúbbsgestir skemmtu sjálfum sér og öðrum með ýmsu sprelli og einbeitingin og keppnisskapið leynir sér ekki hjá þessum FRI- klúbbsfarþega. urinn er byggður á reynslu ná- grannaþjóða okkar í ferðamál- um og sérstaklega eru breskir ferðaklúbbar hafðir að leiðar- ljósi. „Ingólfur skoraði glæsi- lega í blá hornið með FRÍ- klúbbnum", voru orðkynnisins, Hermanns Gunnarssonar, við opnun hátíðarinnar, en nýráð- inn framkvæmdastjóri FRÍ, er Pálmi Pálmason. Fyrir fóik á öllum aldri Pað konr fram í viðtali við Pálma rnilli skemmtiatriða að FRÍ-klúbburinn væri alls ekki ætlaður ungu fólki eingöngu, eins og sumir virðast halda, heldur getur hver sá er hefur áhuga á að ferðast og fer í ferð með Útsýn orðið félagi. Pegar eru yfir 6000 manns orðnir meðlimir og njóta hinna sér- stöku kjara sem klúbburinn býður uppá. Má þar m.a. nefna hagstæðari kjör á ferðum með Útsýn, afslátt í verslunum heima og erlendis allt frá 10-20%, auk lánafyrirgreiðslu í Útvegsbank- anum, svo eitthvað sé nefnt. Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá FRÍ-klúbbnum í vetur og ber þar fyrst að nefna tungu- málanámskeið, þar sem reyndir og hæfir leiðbeinendur munu veita væntanlegum FRÍ-klúbbs- farþegum tilsögn í tungutaki ■ Þessi dama sýndi ótrúlega takta á þríhjólinu í keppninni á milli farþega á Spáni, Italíu og Portúgal á síðasta sumri. Var hún ekkert að tvínóna við hlutina, kippti upp um sig pilsinu og lagði grundvöllinn að frækilegum sigri portúgölsku sveitarinnar. þeirra þjóða er þeir hyggjast sækja heim og einnig verður kynning á menningu og matar- gerðarlist viðkomandi þjóða. Af öðrum þáttum má nefna leiðsögn í ljósmyndun og allt á þetta að stuðla að því að ferða- langar geti notið betur frísins á erlendri grund. Út á land eftir áramót Þjónusta FRÍ-klúbbsins er af nokkuð öðrum toga en hin hefð- bundna fararstjórn og meira gert af því að virkja hvern einstakling og auka fræðslu og NT-myndir: Árni Bjarna þjónustu við hvern farþega og sinna sérþörfum hvers og eins. Gat Pálmi þess að það fylgdu því engar kvaðir að vera með- limur í FRÍ-klúbbnum. Hann væri opinn öllum farþegum Út- sýnar í gegnum árin, núverandi og verðandi. í framhaldi af þessu fyrsta kynningarkvöldi FRÍ-klúbbsins verður farið á stærstu staði úti á landsbyggðinni eftir áramótin og í maí á næsta ári verður mikil Útsýnar og FRÍ-klúbbshátíð í Reykjavík þar sem valdir verða fulltrúar Útsýnar á næsta starfs- ári, Herra og Ungfrú Útsýn. ■ Dansnýjung Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur skemmti gestum með danssýningu og í tilefni kvöldsins var kynntur nýr dans, Arena, sem þessar ungu stúlkur dönsuðu af mikilli innlifun við músík hljómsveitarinnar Duran Duran. ■ Ester Albertsdóttir stakk af með 25 þúsund króna vinninginn í bingóinu og var að vonum yflr sig ánægð. Engar vöflur voru á henni þegar spurt var hvert ferðinni yrði heitið í september. „Auðvitað til Spánar" svaraði hún að bragði. Veislustjórinn, Hermann Gunnarsson, afhendir henni hér aukavinning- inn sem var mánaöar þjálfunarprógram í einni af mörgum vaxtarræktum borgarinnar. Blaðbera vantar fyrir Laugaveg Síðumúlil 5. Sími 686300

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.