NT - 04.12.1984, Blaðsíða 6

NT - 04.12.1984, Blaðsíða 6
[lU_____Viðskiptalífið_ Fara 10-15 skip á nauðungaruppboð? ■ Ríkisstjórnin mun í dag ræða um hvort grípa eigi til sérstakra aðgerða til að koma í vega fyrir að 10-15 íslensk fiskiskip fari á uppboð á næst- unni vegna vanskila á lánum við Fiskveiðasjóð. Þegar hefur einn togari, Óskar Magnússon, verið boðinn upp vegna van- skila við sjóðinn, og telja margir að ekki verði komist hjá þvf að á annar tugur skipa fylgi í kjölfarið eftir að Ijóst var að þau gátu ekki uppfyllt skilyrði um skuldaveð og greiðsluábyrgð sem Fiskveiða- sjóður setti. Enn hefur ekki verið birtur listi yfir þau skip sem hér um ræðir. Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ, sem sæti á í stjórn Fiskveiðasjóðs, sagði NT þó í gær að skipin væru öll nýleg og öll smíðuð í íslenskum ■ Cafe Torg-konditori, heitir nú kaffihúsið á annarri hæð Hafnarstrætis 20, við Lækjartorg. Valdimar Bergsson hefur tekið við rekstrinum á kaffihúsinu, og er það nú rekið í tengslum við Kökubankann í Hafnarfirði. Þar verður, auk rjúkandi kaffis, boðið upp á fjölbreytti úrvai af tertum og kökum. ■ Agnar F. Hjartar, deildarstj óri, t.v., og Sveinn Matthíasson, verslunarstjóri, í hinni nýju varahlutaversl- un Búnaðardeildar Sambandsins. NT-mynd Kóhert Sameinuð varahluta- verslun ■ í framhaldi af samein- ingu Véladeildar Sam- bandsins og Dráttarvéla h.f. hefur hin nýja Búnað- ardeild Sambandsins flutt varahlutaverslun sína í glæsilegt húsnæði að Ár- múla 3, Hallarmúlamegin. f>ar er rekin umfangsmikil varahlutaverslun fyrir all- ar þær vélar sem deildin hefur umboð fyrir, og véladeildin og Dráttarvél- ar höfðu áður, en alls eru um 35 þúsund varahluta- númer á skrá verslunar- innar. Meðal umboða Búnað- ardeiidar eru Massey Ferguson, Perkins, Alfa Lava, Yamaha og Inter- national. Nýlega urðu eigenda- skipti á International Har- vester; nýi eigandinn er bandaríska vélafyrirtækið Tenaco, en fyrirtækið á fyrir Cays vélaverksmiðj- urnar. Að sögn Agnars F. Hjartar, deildarstjóra hjá Búnaðardeild, er enn ekki Ijóst hvað þessi eigenda- skipti hafa í för með sér varðandi framleiðslu- breytingar hjá Internati- onal, eða umboðsverslun Búnaðardeildar. pr skipasmíðastöðvum. Er um að ræða ýmsar tegundir skipa, togara, loðnuskip og smærri báta. „Það er að koma í ljós, sem við höfum áður sagt, að það var ekki af umhyggju fyrir útveginum heldur fyrir íslensk- um skipasmíðastöðvum sem þessar skipasmíðar voru leyfð- ar og greitt var fyrir þeim,“ sagði Kristján. Nú kæmu smíðarnar niður á útgerðarmönnum, sem ekki gætu uppfyllt skuldbreytinga- skilyrði fiskveiðasjóðs. Þeir hefðu sett verulega fjármuni í kaupin á skipunum, en myndu nú líklega tapa öllum þessum peningum. 1500 milljóna léttir Sigurður P. Sigmundsson, fulltrúi í sjvárútvegsráðuneyt- inu, sagði að aðgerðirnar til að létta byrðum af útgerðinni, þar með taldar lánveitingar fyrir vanskilum, lenging lána frá einu til sjö ára, og 60% afsláttur á vöxtum, þýði samanlagt um 1500 milljónir króna á árunum 1984 og 1985. En á verðlagi í árslok 1983 er talið að afborganir og vextir útgerðarinnar á þessu og næsta ári nemi samtals 2,6 milljörð- um króna. Sigurður sagði að reikna mætti með að heildaráhvílandi skuldir hjá skipum í Fiskveiða- sjóði næmu 6-7 milljörðum króna. Milljarða- hagnaður SAS ■ SAS hefur tilkynnt um methagnað samsteypunnar á nýliðnu reikningsári, sem byrjaði á síðari hluta árs 1983. Hagnaðurinn nemur 1,2 milljörðum danskra króna eða 4,4 milljörðum íslenskra króna. Er þetta 61% meiri hagnaðurenfyrir- tækið skilaði á síðasta ári. Af einstökum þáttum í starfsemi SAS varð lang- mestur hagnaður af fluginu, eða sem nemur 3,3 milljörð- um króna. Flutti félagið 10,1 milljón farþega á reiknings- árinu, og fjölgaði farþegum um 10%. Pað vekur athygli að velta SAS á árinu varð um 82 milljarðar íslenskra króna, og hafði aukist aðeins um 13%. ■ í húsnæði fyrirtækisins við Bolholt er tekið á móti framleiðslu yfir 300 manna sem prjóna söluvörur Hildu. Hilaa er og í stöðugum vexti ■ 150 milljóna króna útflutn- ingur á síðasta ári; 50% aukn- ing á föstu verðlagi - frá því fyrir fimm árum; 100% aukn- ing frá því fyrir sjö árum. Hilda h.f. hefur öðlast veg- legan sess í útflutningi ís- lenskra ullarvara síöan fyrir- tækið var stofnað fyrir réttum tuttugu árum. Um 30% af öllum útflutningi okkar á þess- um vörum fer nú frarn á vegum fyrirtækisins, um 38% af út- flutningnum til Vesturlanda, og um 60% af útflutningnum til Bandaríkjanna. Hjónin Tomas og Hanna Holton, stofnendur og aðal- eigendur Hildu, buðu blaða- mönnum nýlega í heimsókn í tilefni tvítugsafmælis fyrir- tækisins. Þau sögðu meðal annars frá því að í byrjun hefðu þau sjálf orðið að máta allar þær lopapeysur sem þau tóku við til sölu til þess að ákveða stærð þeirra. Nú starfa hins vegar hjá Hildu um 90 manns; á skrifstofu, sauma- stofu, hönnunardeild, útflutn- ingsdeild, ullarvöruverslun og prjónastofu. Ullarpeysur, sem Hilda kaupir af 3 til 4 hundruðum prjónafólks víðs vegar um landið, nema nú aðeins 12% af útflutningi fyrirtækisins. Megnið af sölunni er í vélofn- um ullarfatnaði af ýmsurn gerðum, en allur þessi fatnaður er hannaður á hönnunardeild Hildu; fatnaðurinn er m.a. framleiddur á saumastofunni Hlín h.f., sem er í eigu Hildu. Hilda á ennfremur prjóna- stofu á Selfossi, og hluta í sex verslunum erlendis; þreniur í Bandaríkjunum, tveimur í Japan og einni á Bermuda. Hilda selur um þessar mund- ir 154 tegundir af stórum flíkum, um 40 gerðir af hand- prjónuðum lopapeysum og 90 tegundir af smávöru.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.