NT - 04.12.1984, Page 10

NT - 04.12.1984, Page 10
Þriðjudagur 4. desember 1984 ncflur haf Haukur Clausen, íþróttastjarna á „gullaldarárunum“ - nú aðhlátursefni útlendinga. Davíð Scheving býður. íslenskir tannlæknar aðhlátursefni! - og svo er það Soda-stream hugsjónin ■ Tveir gríðarlegir kapps- menn og dugnaðarforkar hafa haft uppi stórar yfirlýsingar í hlöðum nýveriö og þykir báð- um nokkuö gert á sinn hlut. Haukur Clausen, hlaupa- gikkur og tannlæknir, lætur hafa eftir sér citthvað á þá leið að íslenskir tannlæknar gcti vart látið sjá sig lengur meðal erlendra starfsbræðra sitrna. Ástæðan er sú að þegar ís- lenskir tannlæknar birtast á alþjóðavettvangi setur slíkan hlátur að útlendum tannlækn- um aö þeir mega ekki vatni halda og vart mæla. Peir hlæja, segir Haukur, vegna þess að íslenskir tann- læknar þéna svo lítið og búa nánast við sultarkjör. Ég sem dyggur stuönings- maður tannlæknastéttarinnar- sjálfsagt hcf ég ekki síður en aörir lagt mitt af mörkum í eitthvað af steinsteypunni í Arnarnesinu - skal lofa Hauki Clausen því, fyrir mína liönd og annarra, að hlæja aldrei að íslenskum tannlæknum. þess- um þrautpíndu galeiðuþræl- um. Eina rangfærslu lield ég að Haukur liafi farið með í blaða- viðtalinu. Hann segir að ís- lendingar sem búsettir eru er- lendis komi hingað til lands til að láta gera við tennurnar í sér og nefnir sem dænti flugfólk sem býr í Luxemburg. Ég hef góðar heimildir fyrir því að þessu sé ekki svona farið. Öðrum atorkumanni þykir nokkuð gert á sinn hluta þessa dagana. Það er hann Davíð Sch. Thorsteinsson, sem ekki má gefa einhverjum af tuttugu þúsund íslenskum eigendum sóda-stream tækja ítalska fíat- bifreið. Davíð vill gefa bílinn og er reiðubúinn að fara á Litla-Hraun til að verja þenn- an rétt sinn. Þessi veglega gjöf, segir hann, komi því ekkert við. segir hann, að hann sé nteð ofsafenginni auglýsingaher- ferð í fjölmiðlum þessa dagana að reyna að koma sóda-stre- am-tæki inn á hvert íslenskt heimili. Hann langar einfaldlega að gefa bílinn, sem er greiddur af ágóða fyrirtækisins, en samt ekki með ócðlilega háu verði á soda-stream tækjum. Er hann þá kannski greiddur með óeðlilega háu verði á smjörlíki eða amerískum app- elsínusafa? Ég beini þeim tilmælum til Davíðs Sch. Thorsteinssonar að fyrst gjafmildin brennur svona á honum, ætti hann kannski frekar að nota þessa dularfullu fjármuni til að gleðja starfsmenn fyrirtækja sinna um jólin - eða kannski einfaldlega til að hækka hjá þeim kaupið. Magnús Kjartansson rit- stjóri skrifaði einhvern tíma fræga austragrein um smjörlík- ishugsjónina og man ég ekki betur en að Davíð Sch. Thor- steinsson hafi átt þar einhvern hlut að máli. Kannski er hér í burðarliðnum ný hugsjón - soda-stream hugsjónin? Örvar 10 Og það varst þú ■ Eg var fullur eftirvænt- ingar þegar mér barst í hendur platan „Og það varst þú", sem Útgáfan Skálholt sendir frá sér nú fyrir jólin. I’að er þó ekki svo að hér sé á ferðinni jólaplata í hefðbundnum skilningi þess orðs, heldur hefur hún að geyma 11 lög og texta, sem notuð hafa verið í barna- og æskulýðs- starfi þjóðkirkjunnar og auk þeirra eru 2 lög úr öðrunt farvegi með textum sem fjalla um hið daglega líf og vekja mann til um- hugsunar. Mér finnst vel hafa tekist til við val og blöndun efnis, við val á flytjendum svo og við útsctningar upptöku og frágang. Plata mcð boðskap. Eins og áður sagði eru flest lögin þekkt úr barna- og æskulýðsstarfi þjóð- kirkjunnar en það var ein- mitt á hennar vegunt sem út kom árið 1977 söngheftið „Allt er þitt“, þar sem eru yfir 50 söngvar úr ýtnsum áttuim Sænski presturinn Lars Áke Lundberg á þar mörg lög og hefur sr. Krist- ján Valur Ingólfsson þýtt texta við þau öll utan eitt, en þar er textahöfundur óþekktur. Þessir söngvar eru uppistaða efnis plöt- unnar, en þeim til viðbótar eru lögin „í bljúgri bæn“, bandarískt lag en texti eftir sr. Pétur Þórarinsson og sr. Kristján Val, „Er vasapen- ing ég fæ“, ókunnur höf., texti: Iðunn Steinsdóttir, „Hringrás" lag: Joni Mitc- hell.texti: Iðunn Steinsdótt- ir, „Sumarmorgunn“ lag: Torgny Erséns, texti: sr. Kristján Valur og „Á surnrtn" lag: Per E. Styf, texti: sr. Kristján Valur. Allir textarnir flytja boðskap, boðskap um Guð, sem gefur lífinu tilgang og manninum von, um lífið sem er svo fjölbreytt og hefur margar hliðar og um þörf mannsins fyrir elsku og umhyggju. Lögin eru fjölbreytt að gerð, en hafa yfir sér ein- faldleika og hreinleika og þjóna textunum yfirleitt mjög vel. Hugmyndir Sverris Guðjónssonar og Jónasar Þóris uni framsetn- ingu efnisins eru frekar skemmtilegar og útsetning- ar Jónasar Þóris eru fjöl- breyttar og góðar og greini- lega unnar af natni, vand- virkni og mikilli virðingu fyrir efninu svo að textar og lög fá notið sín og gefa plötunni um leið góðan heildarsvip. Þá er öll tækni- vinna, svo sem upptaka, hljóðblöndun, pressun og frágangur til fyrirmyndar og fyrir minn smekk finnst mér hljómur (sánd), plöt- unnar mjög góður. Þess ber að geta að efnið er líka fáanlegt á snældu sem einn- ig hefur mjög góðan hljóm. Flutningur efnisins rekur svo smiðshöggið á það sem á undan er talið, ef ég má orða það svo. Þar á stærstan hlut gamla barnastjarnan, sem nú er mótaður, mjög góður söngvari, Sverrir Guðjónsson, ásamt Páli Hjálmtýssyni, sem nú í lok barnasöngferils síns heillar mann með hreinni og tærri, en um leið styrkri og ör- uggri rödd. Þeir skila báðir söng sínum og túlkun frá- bærlega vel og raddir þeirra hljóma mjög vel saman og einnig finnst mér frábært hvernig þeir skipta með sér hlutverkum og syngja til skiptis í hinum ýmsu lögum, án þess að nokkurs misvægis gæti. Þá koma börnin sem syngja með þeim líka vel út, bæði stúlkna- kórinn úr Melaskóla og 6 ára krakkarnir, nemendur Sverris úr Fossvogsskóla. Þar finnst mér Sverri takast sérstaklega vel að ná fram óþvinguðum og lifandi blæ, í samtali sínu við börnin og söngnum með þeim. Bak- raddir og kór fullorðna fólksins er til prýði og í undirleiknum er valinn maður á hverjum stað. Hér er því um plötu að ræða, þar sem fer saman vandað efni, góð tónlist og frábær flutningur, sem á erindi til allra, a.m.k. allra sem ekki hafa glatað hinu barnslega úr hjarta sínu. Mér kæmi ekki á óvart þó mörgum þyki þessi plata vera friðar og gleðisending inní eril dagsins og allt stressið og veki til lífs barn- ið í hjörtum þeirra - ef þeir gefa sér tíma tií að hlusta. Umslag plötunnar er tvöfalt, smekklegt og líflegt og hæfir vel tilefninu. Það gefur því aukið gildi að textarnir eru allir prentaðir á það, en þess má einnig geta að í söngheftinu „Allt er þitt“ eru allir textarnir nema tveir og þar fylgja þeim nótur og gítargrip, ef einhvern langar til að syngja og spila sjálfur, en langbest er að eignast plötuna, hlusta, læra lögin og syngja með. Góða skemmtun. Þorvaldur Halldórsson. ■ Þorvaldur Halldórsson skrifar um söng þeirra Páls Hjálnitýs- sonar og Sverris Guðjónssonar á nýju plötunni „Og það varst þú.“ ekki Skorpa Skopra Heiðraða blað. ■ Um daginn birtist í NT stóðhestaskrá, sem mér þótti mikið framfaraspor hjá blað- inu. Kærar þakkir. Það hefur nefnilega fleirum en mér þótt með ólíkindum hvað NT hefur sneitt hjá hesta- mennsku og því sem henni fylgir í sumar. T.d. voru haldin 2 fjórðungsmót í sumar og óteljandi önnur mót. Það er hart að þurfa að kaupa Mogg- ann til að fá fréttir af þessu. Svo var annað sem mig lang- aði til að koma á framfæri, en það er hvort ekki væri hægt að fá sjónvarps og útvarpsdagskrá fyrir alla vikuna, því hér kemur föstudagsblaðið á þriðjudegi, svo þá eru ekki eftir nema tveir dagar af dagskránni. Aðalerindið var þó að koma á framfæri leiðréttingu við stóðhestaskrána, eða öllu heldur til þess sem samdi hana. í þessari skrá er Stjarni 948 frá Húsafelli. Móðir er sögð Skorpa 5052 en þessi hryssa heitir ekki Skorpa heldur SKOPRA. Á þessum nöfnum er mikill munur (sjá orðabók). Þessa hryssu á bóndi nrinn og þykir okkur því ansi súrt í broti að nafnið skuli ekki með nokkru móti komast óbrenglað á prent. Á það við fleiri en NT. Gott væri að þetta kæmist til Þ.G. áður en þetta kemur fyrir aftur. Kærar þakkir. Kristín Gunnarsdóttir Skrífíð til: NT Lesendasíðan Síðumúla 15108 Reykjavík ...edahríngiðísíma 686300 millikl. 13og 14

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.