NT - 04.12.1984, Blaðsíða 12

NT - 04.12.1984, Blaðsíða 12
Þriðjudagur 4. desember 1984 12 Skemmtileg plata frá Frankie Frankie Goes To Hollywood - Welcome To The Pleaseure Dome Útg. Útg. ZZT • Fálkinn ■ Flestir ættu að kannast við hljómsveitina Frankie Goes To Flollywood (FGTFI) frá Liverpool á Englandi. Þessi hljómsveit hefur átt tvö gííur- lega vinsæl lög í Bretlandi, Relax og Two Tribes. Þessi lög hafa bæði selst vel yfir 1 milljón hvort um sig, og er hljómsveit- in sú langvinsælasta í Englandi á þessu ári. FTér á fslandi hefur hljómsveitin ekki orðið eins vinsæl, en liefur þó verið að vinna á. Líklegt má teljast að með þessari plötu, LP-plötunni Welcome To The Pleasure Dome, muni FGTH auka mjög vinsældir sínar hér á landi. þar sem hljómplötumarkaðurinn hér er meira LP-markaður en smáskífumarkaður. Welcome To The Pleasure Dome er tvöfalt albúm, og þar af leiðandi fjórar hliðar, sent heita F,G,T, og H. Á hlið F eru lögin The World Is My Oyster og Welcome To The Pleasure Dome (aðallega). Fyrra lagið er mjög stutt, en það síðara tekur yfir næstum alla hliðina. Þetta lag, titillag plötunnar, er í rólegra kantin- urn, en þó töluvert kröftugt. Lagið er í þessum sérstaka Frankie diskó stíl sem ein- kennir hljómsveitina, en mér finnst það líka minna töluvert á Simple Minds. Þetta er mjög gott lag sem batnar við hverja hlustun. Á annarri hlið, eða hlið G, eru lögin frægu Relax og Two Tribes ásamt laginu War, sem var á B-hlið Two Tribes öll þrjú lögin eru að sjálfsögðu í nýjum útsetningum, og öll er hliðin hin áheyrilegasta. Það eru þó kannski nokkur von- brigði að hafa ekki eitthvað nýtt á þessari hlið. Á hlið T, þriðju lilið, eru síðan þau lög sern mest koma á óvart. Fyrst er gamalt Mers- ey-Beat lag að því að mér skilst, Ferry Ácross The Mersy. Það er stutt, en síðan kemur skyndilega lagið Born To Run eftir Bruce Springste- en, eins og sprengja. FGTH flytja það mjög vel, eru trúir upprunalegu útgáfunni, en bæta samt miklu við frá eigin brjósti. Síðan kemur ljúftdæg- urlag eftir Bacharach, San Jose. Hliðinni lýkur svo á lagi eftir FGTH sjálfa, og er það síðasta lagið á þessari hlið, en þó alls ekki slæmt, heldur bráðskemmtilegt og sprell- fjörugt. Síðustu hliðina er ég enn ekki búinn að melta að fullu (kurt- eislegt orðalag fyrir að mér finnist ekkert gaman að þess- ari hlið). Það ríkir þó engin lognmolla þarna, fremur en annarsstaðar á plötunum 2. Eitt frábært lag er þó á þessari hlið, The Power Of Love. Það er eina raunverulega vangalag- ið sem frá Frankie kemur í þessari unrferð. Heildardómur yfir plötuna er sá að hér sé um verulega hressilega plötu að ræða. Hún hefur sjaldgæfan og sérstakan eiginleika, hún rífurmann með sér upp úr sleninu og hleypir fjöri í tilveruna. Ekki skaðar frábær upptökustjórn og hljómur á plötunni, fyrsta flokks vinna Trevor Horn. Það er ferskur blær yfir þessu. (9af 10) Margt gott hjá Kan!! - Kan-Í ræktinni Bjartsýni ■ Ég tek ofan hattinn í að- dáunarskyni við hljómsveitina Kan sern hefur nú oftast nær gert út frá henni Bolungarvík. Fimm ágætis hljóðfæraleikarar og lagasmiðir hafa þrykkt 8 lög á plast og gefa þetta út sjálfir. Flott hjá ykkur strákar. Það þarf töluvert hugrekki til að fara út í svona „mál" og ckki fyrir hvern sem er að standa í að gefa út plötu. Það er dýrt fyrirtæki og mjög ó- sennilcgt að það borgi sig, þó skal maður aldrei segja. Platan sem strákarnir í Kan hafa gefið út heitir í ræktinni og inniheldur vel danshæfa tónlist, 8 lög í allt sem t'yrr segir. Þekktasti meðlimur sveitarinnar er e.t.v. söngvar- inn Herbert Guðmundsson, fyrrum söngvari Pelican og Éikar nt.a. Ásamt honum skipa hljómsveitina þeir Magn- ús Hávarðarson, gítarleikari, Finnbogi Kristinsson, bassa- leikari Alfreð Erlingsson, hljómborðsleikari og trymbill- inn Hilmar Valgarðsson. Platan hefst á laginu Brjálið. Það er einfalt að uppbyggingu eins og reyndar flcst lögin, í þrumutakti og vel grípandi. Líklegasti smellur plötunnar og Herbert stendur sig vel í söngnum. Hins vegar einkenn- ir það þetta ágæta lag hve ferlega slakur textinn er. Það sama gildir um hina texta plötunnar og það dregur hana nokkuð niður, segi ég. Likkið á gítarinn er gott. Þá kernur lagið Steypa og glcr, í svona Dúkkulísustíl, svo lagið Ertu í ræktinni sem er ágætis rokkari og í síðasta laginu á hlið eitt syngur Her- bert ekki ósvipað Bryan Ferry í Roxy Music, lagið Megi sá draumursem erágætt. Herbert nær Ferry-stílnum bara skrambi vel. Vestfjarðaóður og Hver er orginal? heita fyrstu tvö lögin á hlið 2. Þau eru með gamal- dags hljómsamsetningum finnst mér, forhljóms„fílingurinn“ heldur mikill. Höfum liátt er grípandi melódía og gæti orðið vinsælt lag en textinn afleitur. Flogið suður er síðasta lagið og það venst ágætlega. Útkoman hjá strákunum í Kan er bara nokkuð góð og næsta plata ætti að geta orðið enn betri ef rétt er haldið á spöðunum. Sándið er mjög gott. Gítarleikur Magnúsar er sérlega snyrtilegur og sándið hjá honuni skemmtilegt. Ég hafði að mörgu leyti gaman af þessari plötu og hér er á ferð- inni ágætis aíþreying. NB: Umslagið er skemmti- legt... (6 af 10) j„i Frábær plata Pax Vobis - Pax Vobis Útg. Steinar B Pax Vobis hafa nú sent frá sér sínu fyrstu plötu, LP-plötu með 8 lögum. Þeir sem að þessari hljómsveit standa hafa verið lengi í bransanum, leng- ur en flesta grunar, og löngu kominn tími til að þeir sendu frá sér piötu. Meðlimir Pax Vobis eru þeir Ásgeir Sæmundsson söngvari og hljómborðsleikari, Skúli Sverrisson bassaleikari og Þor- valdur Þorvaldsson gítarleik- ari. Auk þeirra leikur Stein- grímur Sigurðsson á trommur, en hann er nú hættur í hljóm- sveitinni. Tómas Tómasson sá um upptökustjórn. Bassaþurs- inn og Stuðmaðurinn virðist vera orðinn guðfaðir nærri allr- ar nýrrar og áhugaverðrar popptónlistar í landinu. Platan er sjaldgæft dæmi um fágun, markvissar laga- smíðar, alúð, vandvirkni og eitthvað sem kalla mætti list- rænt eðli í íslenskri rokktón- list. Þetta eru engin dægurlög, heldur vel gert rokk á línu með Simple Minds, Japan og öðrum vandaðri hljómsveitum ný- rómantískrar tónlistar. Ef Pax Vobis eru t.d. bornir saman við Bara-Flokkinn, aðra aðal- hljómsveit nýrómantíkur hér á landi, hafa Pax Vobis vinn- inginn. Pax Vobis er ekki mjög frumleg hljómsveit. Áhrif frá erlendum fyrirmyndum eru of áberandi til að hægt sé að segja það með góðri samvisku, en það verður að gera greinarmun á geldri eftiröpun og hrárri stælingu annars vegar og því að nýta sér áhrif hins veganPax Vobis falla í seinni flokkinn. Hljóðfæralcikur er allur til fyrirmyndar, sérstaklega er bassaleikurinn eftirminnileg- ur. Gítarleikuroghljómborðs- leikur er einnig mjög vandað- ur, og trommuleikurinn fjöl- breyttur og traustur. Ásgeir hefur ágæta rödd og beitir henni vel. Ef telja á upp og nefna bestu lög plötunnar verður að byrja á því fyrsta, og halda svo áfram og telja upp nær öll lögin. Warfare, fyrsta lagið, er taktfast og danshæft, Mirror Eyed, það næsta er gullfallegt og ljúft lag. I Refill byggir á skemmtilegri bassalínu og svíf- ur áfram yfir í Somebody Somebodies Affair, sem bygg- ist á undarlegum og skemmti- legum taktskiptum. Á seinni hliðinni er fyrst mest „commercial" lagið á plötunni, Coming My Way, grípandi og gott lag. Þá kemur Men’s Hair Stylist sem er í svipuðum dúr, og síðan Living Drum, sem er eina lagið sem ég sætti mig ekki við, vegna þess að það er í meðallagi meðan hin lögin eru yfir með- allagi. Síðasta lagið er bráð- skemmtilegt, Religions. Semsagt, meiriháttar skemmtileg plata, og líklega besta plata ársins ásamt með Auga Kuklsins. Þessár plötur eru þó svo ólíkar að það er eiginlega ekki hægt að bera þær saman. (9 af 10) ádj Tvær tradisjónir U2 The Unfor- gettable Fire Island/Fálkinn ■ írska hljómsveitin U2 hef- ur nú sent frá sér sína fimmtu LP-plötu, og að þessu sinni er það Eno, hinn frægi synthesis- erleikari og tónsmiður, sem eitt sinn var í Roxy Music, sem stjórnar upptökum. Stundum hefur verið talað um að U2 sé hin nýja Led Zeppelin. Ýmislegt er til í því, að þó er sá reginmunur á að Led Zeppelin voru heavy-rock hljómsveit og sköpuðu í raun- inni heavy-metal tónlistina, en U2 hefur litlar tilhneigingar í þá átt. Það er lítið um karl- rembu og stæla í tónlist U2, en því meira um mannlega hlýju. Margir telja að þessi nýja plata U2, Unforgettable Fire, sé þeirra besta. Hún er a.m.k. klárlega betri en sú síðasta, War. Það er einhvern veginn ntiklu meira varið í þessa plötu, og maður endist jafnvel til að hlusta á báðar hliðar í einu, en það var gjörsamlega ómögulegt með War. Aðalsmerki U2 er dramatísk og tilþrifamikil rokktónlist. Fánum er veifað, gítarar syngja hátt og mikið og Bono, söngvari hljómsveitarinnar er mikið niðri fyrir. Gítarleikari hljómsveitarinnar, The Edge er oft tilnefndur þegar nefna á nútíma gítarhetju. Víst er að hann spilar skemmtilega á hljóðfærið, mun skemmtilegar en Jimmy Page í Led Zeppelin að mínu mati. U2 hefur spilað mikið í Bandaríkjunum og eru banda- rísk áhrif áberandi á plötunni. Það er sungið um Martin Luth- er King, í tveimur af tíu lögum, um „Elvis Presley and Amer- ica“ og þjóðhátíðardag Banda- ríkjanna, 4. júlí. Bandarísku áhrifin eru ekki eins áberandi í tónlistinni, hún er blessunar- lega evrópskt og írskt rokk. En það er greinilega keyrt stíft á ameríska markaðinn með þessari plötu. Fyrstu þrjú lögin á plötunni eru verulega góð. Þau eru frekar ólík, fyrst kemur rólegt lag, A Sort Of Homecoming, svo Pride (In the name of love), sem flestir ættu að vera farnir að þekkja, og síðan kröftugt lag og fremur hratt, Wire. Annars er rólegur blær yfir plötunni, sérstaklega seinni hliðinni. Önnur lög en þessi þrjú renna frekar saman í eina Ijúfa heild en að vera sér- lega áberandi góð. U2 mun nú vera í íramlínu jarðneskrar rokktónlistar ásamt með hljómsveitum eins og Big Country, Simple Minds og Echo & the Bunnymen. Það sameinast tvær tradisjónir í þessum hljómsveitum, görnlu góðu rokkhljómsveitirnar frá því um 1970 (Led Zeppelin, Pink Floyd), og pönktradisjón- in frá 1976/78, að vísu í um- breyttri mynd. Af þessum ástæð- um hafa ofannefndar fjórar hljómsveitir víðtækan hljómgrunn og ættu að höfða bæði til yngri og eldri. U2, og þessi plata, Unforgettable Fire, er ágætt dæmi um þetta rokk eins og það gerist best. (8 af 10) ÁDJ Hugrakkur McCartney - Paul Mc- artney - Give my regards to Broad Street. Parlophone/ Fálkinn ■ „Vissirðu að Paul McCart- ney var í annarri hljómsveit áður en hann byrjaði í Wings“, sagði 14 ára stelpa við jafn- öldru sína eitt sinn, ég heyrði á tal þeirra og blöskraði. Paul á að vera í sögubókum sem fremsti dægurlagahöfundur allra tíma. Og ekki orð um það meir. McCartney hefur sent frá sér breiðskífu þá sem inniheld- ur lögin úr kvikmyndinni Give my regards to Broad Street. Það er ekki laust við að mann hlakkaði til útkomu plötunnar. í myndinni tekur Paul nefni- lega nokkur gömul Wings- og Bítlalög til meðferðar á ný. Gamlir Bítlaaðdáendur hafa margir hverjir hrist hausinn og sagt: „Hann betrumbætir ekki neitt", og þeir hafa rétt fyrir sér. Hins vegar eru rnargir eins og stelpan sem hóf greinina sem þekkja ekki tónlist Bítl- anna. Paul hefur hér með kynnt nokkur lög fyrir henni ef hún heyrir plötuna og það er vel. McCartney styttir flest göntul Bítlalögin og breytir útsetningum lítið sem ekki neitt, enda var það eina vitið. Þessi gömlu Bítlalög sem heyr- ast hér á ný eru Yesterday, Here, there and everywhere, Good day Sunshine, For no one, Eleanor Rigby og The long and winding road. Af gömlum Wings lögum má nefna Ball room Dancing og Silly love Songs. Nýju lögin eru No more lonely nights, Not such a bad boy og No values. No more lonely nights er hugguleg ball- aða að hætti McCartneys og flestir ættu að þekkja það nú- orðið. Not such a bad boy er þrumurokkari sem svíkur ei. Það sama má segja um næsta lag, það er noickuð flókin hljómasamsetning og nokkuð nútímaleg áberandi og kemur vel út. Diskóútgáfan á No more lonely nights er alveg glötuð, það er ekki deild herra McCartneys. Lokaorð: Paul er fínn og ekki síður hugrakkur að gefa aftur út gamlar perlur. (7 af 10) -Jól.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.