NT - 20.01.1985, Blaðsíða 16

NT - 20.01.1985, Blaðsíða 16
■ Síðastliðinn laugardag hirtist hér í blaðinu grcin eftir undirritaðan um íþróttaafrek og íþróttafréttamenn með hug- leiðingum um kjör íþrótta- manns ársins 1984. í þessari grein, sent her birtist er fjallað um framkvæmd kjörsins og þá afstöðu, sent fjölmiðlar virðast liafa til íþrótta. Fljótt á litið er svo að sjá að flestir fjölmiðlar telji íþróttir málaflokk, sern standi skör lægra en almennar fréttir. Al- mennt viróast fjölmiðlar líta svo á að íþróttir séu einkamál íþróttafréttamannsins og litlu máli skipti hvort efnistök h;ms séu í samræmi við aðra um- fjöllun fjölmiðilsins. Leynd er slæm Kjör íþróttamanns ársins á íslandi fer fram í leynilegri atkvæðagreiðslu. Iþrótta- frcttaritararnir raöa þeim íþróttamönnum, scnt þeir greiða atkvæði í röö. Sá, sem efstur cr á blaði fær 10 stig. Sá, sent kemur í öðru sæti fær 9 stig og svo framvegis. Einungis tíu atkvæði frá hverjum frdttamanni. Sá íþróttamaður, sem fær flest atkvæði saman- lagt, er síöan kjörinn íþrótta- maður ársins. Hin leynilega kosning skap- ar visst faglegt ábyrgðarleysi hjá þeim. sem kýs. Hún ýtir undir að fréttamaðurinn fari frekar eftir tilfinningu en rök- studdri cinkunnagjöf. Einnig er þessi lcynd slænt gagnvart almenningi, sem á þess ekki kost að hcyra þær röksemdir. sem liggja að baki kjöri á ákvcðnum manni. Þá er alkunna að í leynileg- um atkvæðagreiðslum geta menn beitt ýmsum leiðinda- brögðum. Þannig er unnt að veita ntanni stuöning á tvo vegu. í fyrsta lagi með því að færa liann ofar á lista og í ööru lagi með því aö færa hclsta keppinaut hans eins neðarlega og kostur er. Þessi brögð eru meðal annars kunn úr prófkjör- um stjórnmálaflokka. Hinn almenni borgári veit að þessir möguleikar eru fyrir hendi í leynilegum kosningum. Ef kjörið gefur óvæntar niður- stöður virkar leyndin því á þann veg að gcra sjálfa kosn- inguna tortryggilega og þá að- ila einnig, sem greiða atkvæði í þessu lokaða kjöri. Með þessum orðum er að sjálfsögðu alls ckki verið að gefa til kynna að brögðum sé beitt við kjör íþróttamanns / Sunnudagur 20.janúar 1985 16 Ásgeir og Bjarni, hvor þeirra er betur að heiðrinunt kominn? Þá kemur það almennum borgara í landinu, sent fylgst hefur með fréttamati ríkis- fjölntiðlanna á nýliðnu ári, á óvart þegar því er haldið fram að talið sé að hvorugur þeirra hafi sett Ólympíuverðlauna- hafann í efsta sæti í kjöri íþróttamanns ársins 1984. Honunt veröur ósjálfrátt hugsað til fréttaflutnings út- varps og sjónvarps frá þeint atburöi þegar Bjarni Friöriks- son vann Olympíusilfrið. Hann minnist þess að mennta- málaráðherra landsins tók á FUSK EÐA FAGMENNSKA? ársins á Islandi. Einungis er bent á þá hættu, sem þessu lokaöa fornti fylgir. Opið kjör - meiri kröfur Meö opnu kjöri íþrótta- manns ársins væri allri tor- tryggni eytt. Þegar um opið kjör er að ræða leggur hver fjölmiöill fyrir sig fram kjör á þeim tíu íþróttamönnum. sem hann telur besta. Jafnframt væri listi fjölmiðilsins hans op- inbcra kjör. Ekki er sjáanlegt að þetta fyrirkomulag ætti að vera íþróttafréttariturum fjötur um fót því sumir þeirra hafa þegar tekiö upp einkunnargjafir til íþróttamanna í vissum grein- um og rneta frammistöðu þeirra þannig tölulega. Mtiöur, sem vill kalfa sig fagmann í einhverri grein, verður ætíö að vera undir það búinn að vera dæmdur af verk- um sínum. Tij þess að það sé hægt veröa þau að vera kunn þcim, sem hyggst leggja á þau mat. Kosning íþróttamanns árs- ins á íslandi er eitt af þeim verkum, sem íþróttafréttarit- arar inna af hendi í sínu starfi. Samkvæmt þcirra eigin ákvörðun er hér unt opinberan titil að ræða enda eru niður- stöður tilkynntar með viðhöfn og verðlaun afhent opinber- lega. Af því að hér er um opinber- an atburð að ræða má draga þá ályktun að á vissan liátt sé starfsheiður stéttarjnnar lagð- ur að veði í þessu kjöri. Því miður virðast æði fáir taka hugtökin „starfsheiður" eða „faglegar kröfur" alvar- lega þegar umfjöllun um íþróttir á í hlut. Sumir af fjömiðlum okkar virðast leyfa íþróttafréttaritur- um sínum að „ganga sjálfala" hvað, sem stefnu fjölmiðlanna í almennum fréttaflutningi líður. Þetta er til dæmis um að íþróttaskrif séu Iteldur talin til léttmetis en þess efnis, sem gera þarf kröfur til. Hver er stefnan? Miöað við þær spurnir, sern höfundur þessarar greinar hef- ur haft af atkvæðagreiðslunni í ár eru nokkur atriði, sem vekja sérstaka athygli. Þegar almenn stefna ákveðinna fjölmiöla í fréttaflutningi og efnistökum er athuguð annars vegar og skoðun íþróttafréttamannsins hins vegar virðist vanta talsvert upp á að samræmis gæti. Þannig mætti til dæmis ætla að sá fjölmiðill, sem kennir sig viö sósíalisma og kjarabaráttu alþýðuheimilanna, og cr auk þess mjög þjóðernissinnaður í skrifum sínum, hefði tekið áhugamann í íþróttum.sem styrktur er til Ólýntpíufararog vinnur þar til verölauna fram yfir atvinnumann í íþróttum. sent sjaldan keppir fyrir hönd lands síns. Samkvæmt því sent undirrituðum er tjáð er þessu á annan veg farið. Einnig' hefði hinn almenni lesandi dagblaðs, sent opinber- lega sæmir ákveðinn mann titl- inum „Maður ársins á íslandi 1984“, talið sjálfgefið að það teldi Itann einnig (þróttamann ársins í landinu það árið. Er nokkur furða þó lesandinn verði undrandi þegar honum er tjáð að svo sé í raun ekki? móti Ólympíufulltrúum suður á Keflavíkurflugvelli sérstak- lega vegna afreks þessa eina manns á leiknum. Þá leiðir hinn almenni borg- ari einnig hugann aö því að forseti (slands, sem er virtasti og dáðasti borgari þessa lands, hélt sérstakt boð til að heiðra Ólympíufarana. Upp í hugann koma myndir af „bronsmann- inum" við hlið forsetans. Er nokkur furða þó hin dæmigerði íslendingur, sem er mjög stoltur af þjóðerni sínu, undrist það að síðan kjósi íþróttafréttamenn ríkisfjöl- miðlanna t'rekar atvinnumann í íþróttum, sem svo til aldrei keppir núorðið undir þjóðfán- anum, fyrir íþróttamann ársins á íslandi. Þegar þvf er síðan haldið fram að fulltrúi ríkisfjölntiðils hafi sett Ólyntpíumanninn í þriðja sæti neitar maður hrein- lega að trúa því. Getur það verið? Einkaklúbbur - ekkií ár Vel má vera að í meðalári þegar íþróttaatburðir snerta fólk í landinu lítið, skipti ekki miklu hver sé kjörinn íþrótta- maður ársins. Þegar sérstakir atburðir gerast. sent höfða til fólks langt út vfir raðir hins almenna íþróttaunnanda, er gullið tækifæri fyrir þá, sent fjalla um íþróttir til þess að vinna þeim gagn með jákvæðri umfjöllun. Fólk fær þá innsýn í gildi íþrótta og fleiri fá áhuga á að iðka þær. Ef hins vegar tekst til eins og gerðist við kjör íþróttamanns ársins 1984 þegar gengið var fram hjá þeint íþróttamanni, sent flestir landsmenn töldu fremstan, virkar kjörið neik- vætt. Einmitt í ár var tækifæri til að útnefna mann til íþrótta- manns ársins, sem höfðaði til hins alntenna borgara í land- inu. Var það ekki einmitt vegna afreks Viíhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum 1956 að íþróttafréttamenn stofnuðu til þessa kjörs og þessa titils til að heiðra mesta afreksmann okk- ar í íþróttum og jafnframt að vinna að framgangi þeirra? A bak við allt íþróttastarf hvort, sent unt er að ræða fréttamennsku eða keppni, verður að vera yfirveguð víð- sýn stefna. Hún verður að vinna að framgangi íþrótta á breiðum grundvelli á faglegan hátt. íþróttastarf í landinu er af- skaplegu háð þeirri umfjöllun, sem fjölmiðlarnir veita. Ef fjölmiðiarnir líta hins vega á íþróttir, sem annars flokks málaflokk og gefa frcttaritur- um lausan tauminn til að haga sínum vinnubrögðum eftir eig- in hugdettum er hætta á því að umfjöllun unt íþróttirnar falli í algjöra lákúru. Stefán Ingólfsson verkfræðingur, fyrrv. form. KKÍ. Ég kann ekkert og get ekkert ■ Heiðraði Páll, þakkir skaltu hafa fyrir ágæt svör þín en ég geri mér grein fyrir því að það hlýtur að vera erfitt oft á tíðum að svara fólki sem sendir þér vanda- mál sin í pósti ef svo má að orði komast. Ég á við minnimáttar- kenndir að stríða og ég held að svohafi verið allt frá barn- æsku. Það var mikil óreiða á heimili mínu þegar ég var barn en einhvern veginn héngu nú foreldrar minir samt saman þar til dauðinn skildi þau í sundur. Faðir minn lifði móður mína en hann er nú fallinn frá og ég á tvö systkini á lífi sem bæði eru eldri en ég. Ég varreynd- ar yngstur og það þótti held ég aldrei mikið til mín koma. Ég þótti seinn . til og átti alltaf erfitt með að læra en hinum eldri gekk mun betur og urðu sum hverlangskóla- fólk. Þetta fór einhvern veg- inn allt saman öfugt í mig og það greip míg kergja og ég vildi ekki læra nokkurn skapaðan hlut. Síðan þegar ég fór að vinna fyrir mér þá var ekki um auðugan garð að gresja og ég var líka óheppinn og hefur alltaf gengið illa að hanga lengi í sömu vinnunni. Ég stend nú á fertugu og þegar ég lít yfir farinn veg þá finnst mér einhvern veginn að líf mitt hafi ekki verið tilneins. Ég er hálf misheppnað eintak ef svo má að orði komast. Ég er samt ekki að biðja um neina vorkunn en einhvern veginn finnst mér þetta nú svona. Ég get ekki neitað því að ég hafði á tíma hærri hugmynd- ir um líf mitt en nú er orðið og ég hélt alltaf innst inni að einn góðan veðurdag mundi ég detta í lukkupottinn. Hann hef ég þó ekki séð enn og sjálfsagt er það sjálfum mér að kenna. Sumir eru þó heppnari en aðrir, það mikið hef ég séð. Stundum langar mig mest að hætta í þessari vinnu sem ég stunda fara að leita mér að einhverju öðru en svo fer ég að hugsa að það sé bara að byrja upp á ríýtt og ég hef svo oft verið í þeim sporum. Minnimáttar- kenndir mínar lýsa sér í því aðmér finnst ég ekkert geta, kunna né vilja. Ég vantreysti sjálfum mér til alls og það gengur ekkert upp hjá mér. Er einhver von til að svona lagað lagist að sjálfu sér eða hvernig er hægt að taka svona mann eins og mig í gegn? Lilli. Þú vanmetur sjálfan þig og hæfileika þína Kæri Lilli ■ Þakka þér bréfið sem mér þótti vænt um að fá þar sem mér finnst þú á vissan hátt koma fram sem einskonar talsmaður fyrir svo marga, sem finnst þeir hafa orðið undir í lífsbaráttunni. Mér finnst bréf þitt góð áminning um að á meðan stór hluti þjóðarinnar leggur sig í líma við að safna fé handa hungr- uðum og sveltandi í öðrum heimsálfum er til fólk hér á íslandi sem líður illa. Því miður verð ég að segja að mín reynsla bendir til þess að æ fleiri íslendingar eigi við fjárhagsleg vandamál að stríða og margir eigi varla til hnífs og skeiðar. Sumir eiga fyrir við geðræn vandamál að stríða og margir kikna undan fjárhagslegum byrð- um og „fara á taugum". Því miður er oft auðveldara að sjá flísina í auga bróður síns en bjálkann í sínu eigin auga. Við íslendingar höfum lengi verið stoltir af okkur sjálfum, talið okkur greind- ustu og gáfuðustu þjóð í heimi og grobbað af að hér kunni allir að lesa og skrifa og allir hafi það gott fjár- hagslega. Á námsárum mín- um trúði ég þessu. Eftir að ég hóf kennslu jafnframt námi og vann sem sumar- maður í lögreglunni í Reykja- vík varð ég áþreifanlega var við að lífið hér á íslandi var mörgum kannski ekki eins auðvelt eins og ég hafði haldið. Eftir að hafa starfað erlendis og komið heim aftur fannst mér ég sjá hlutina í dálitlu öðru ljósi en áður. Því miður finnst mér við hér á íslandi hafa allmikla til- hneigingu til að sjá vanda- mál annarra í öðru ljósi en okkar eigin vandamál. Við fárumst yfir vandamálum í Víetnam, Biafra eða Eþíópíu en gleymum því á meðan að hér er gamalt fólk sem býr við sult og seyru og hefur hvergi góðan samastað. Hópur unglinga sem neytir eiturlyfja stækkar óðum og virðast ýmsir, því miður loka augunum fyrir því og í þriðja lagi eru þeir margir sem eiga við geðræn vandamál að stríða sem gleymast í „kerf- inu“. Við íslendingar höfum átt það tii að falla í stafi yfir gáfum og greind og gleyma því að þeir hæfileikar eru ekki nógir ef þeir eru ekkert nýttir. Þú sjálfur segist hafa átt við minnimáttarkennd að stríða frá barnæsku og segir að mikil óreiða hafi verið á heimili þínu, þegar þú varst barn. Greinilegt er að ýmis vandamál hafa verið á heim- ili þínu í æsku þinni og þú segist halda að þú hafir aldrei verið háttskrifaður í þinni fjölskyldu. Ef barn eða unglingur fær ekki nægileg- an stuðning,blíðu og vænt- umþykju í æsku er ekkert óalgengt að þeir hinir sömu hafi átt í erfiðleikum með lærdóm af því að þeir hafa átt erfitt með að einbeita sér og hafa þá ekki getað nýtt sér meðfæddar gáfur sem skyldi. Viðbrögð þessara einstakl- inga sem í þessum vanda- málum lenda eru mjög mis- munandi og blandast þá oft saman erfðir og heimilisað- stæður. Fer eftir ýmsu hvort erfiðast er að vera yngstur, elstur eða einhversstaðar í miðjunni í barnahópi. Af bréfi þínu finnst mér ég lesa að það hafi verið erfitt fyrir þig að vera yngstur og kannski hefur þú á margan hátt orðið útundan í þinni fjölskyldu. Þú segir sjálfur að þú hafir verið seinn til, en oft er erfitt að berjast við systkini sem hafa fengið meiri athygli og aðstoð for- eldra. Fyllast þá ýmsir van- máttarkennd, svartsýni og finnst þeir ekkert geta og margir reyna þá að ná athygli á annan hátt og stundum óheppilegan, þeim sjálfum og umhverfi sínu. Þú segir sjálfur í bréfi þínu að þetta hafi einhvern veginn farið allt saman öfugt í þig og það hafi endað með því að þú háfir ekki viljað læra nokkurn skapaðan hlut. Þessi afstaða þín til lærdóms virðist hafa lokað á ýmsa möguleika, í bili allavega, til þess að þú getir nýtt þínar gáfur og greind. Bréf þitt virðist benda til þess að þú hafir ekki orðið útundan þeg- ar greindinni eða gáfunum var útdeilt, en að mínum dómi finnst mér þú fullmikið setja ábyrgðina á lífi þínu yfir á aðra. Þú segir að þú hafir verið óheppinn, þú sért að bíða eftir að detta í lukku- pottinn og þér hafi alltaf gengið illa að „hanga“ í sömu vinnunni. Eftir að hafa lesið bréfið get ég ekki að því gert að ég fæ það á tilfinninguna að þú • vanmetir sjálfan þig og þína hæfileika. Þú segist sjálfur hafa verið óheppinn, og ég fæ það á tilfinninguna að þér finnist allt vonlaust en samt sem áður hafir þú haft mjög háar hugmyndir um hvað þú gætir. S.l. ár hefur marga rekið á fjörur mínar sem hafa lýst lífi sínu svipað og þú. Þegar að er gáð kemur í ljós að þeir hafa bæði ágætar gáfur og greind en hvorugt hefur nýst þeim. Þú segist sjálfur vera misheppná'ð ein- tak sem stendur á fertugu. Að mínum dómi er það lítill aldur og margir af þeim sem ég hef fengið til meðferðar hafa einmitt verið á þeim vegamótum sem mér finnst þú standa nú. Þú segist áður hafa haft hærri hugmyndir um líf þitt og sért alltaf við að detta í lukkupottinn. Sumir detta kannski í þann pott en flestir þurfa að vinna ansi mikið til þess. Mikilvægt er að maður geri sér raunhæfar hugmyndir um hversu miklu maður get- ur áorkað í lífinu, gera raun- hæft mat á hæfileikum og getu. Þetta reynist sumum erfitt og er þá hægt að leita aðstoðar til sálfræðinga og geðlækna ef þetta gengur ekki of vel. Með bestu kveðjum. þinn Páll Eiríksson Páll Eiríksson geðlæknir svarar spurningum lesenda

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.