NT - 20.01.1985, Side 22
Sunnudagur 20.janúar 1985 22
■ Humingjiisöni fjölskylda. Hinn
frægasli allra Tar/anleikara, .lohnny
Weissmiiller nieð leikkonunni
Maureen O'Sullivan (Jane) oj> John
Slieflield (drengurinn).
Edgar Itiee Burroiighs skrifaöi fyrslu
l'ar/an sögtina 1911. I’ær iiröu 26
talsins dj» liundii enda á fátækl
liöfundar á ynj»ri áruni. Hann les liér
inn á diktafön kalla í eina liökanna.
■ Hinn sjöundi lávarður af Graystoke í móðurkfaðmi Kala. Apagervin þykja með ólíkindum.
■ í blaðinu þessa lielgi segj-
um við frá upphafsáruin kvik-
myndanna. en þar kom Tarzan
snemma við sögu. Hann hefur
reyndar verið filmaður allra
hetja mest í áranna rás. í fyrsta
sinn 1918. Tarxan mun nú 72
ára og menn liafa gert úr
honum æsíðan þennan Herkú-
les sem geislar af kröftum og
þrötti. en sem jafnframt er
riddari mikill í samskiptum við
konur. sem ekki þurfti að öttast
um öryggi sitt í sterkum örm-
um hans.
Komið hefur í Ijós að því
eru lítil takmörk sett livað
kvikmyndastjórar, handrita-
höfundar, teiknarar og fleiri
geta gert sér úr afrckum Tarz-
ans og ritsmíðum höfundar
hans, Edgar Rice Biirroughs.
Þrátt fyrir mörg fáránleg uppá-
tæki og hugaróra sem birtast á
sjónvarpsskerum og bíótjöld-
um virðist alltaf vera rúm fyrir
dagdrauma um frelsi. kraft.
kjark og frjálsa náttúru í andti
Tarzansagnanna.
Enski leikstjörinn og Osear-
verðlaunahafinn llugh Hud-
son hyggst nú dusta rykið af
Tarzan karlinum enn einu
sinni. „Ég ætla að segja sögu
hans í myndinni, rétt eins og
hún hefði getað átt sér stað,"
segir hann. Hann hyggst til
dæmis ekki nefna Tarzan á
nafn (meö því nafni). Tarzan
mun i nýju mvndinni nefnast
John Clayton af skosku Greys-
toke ættinni og vcrður hann
sonur lávarðarins Jaek Clayton
og konu hans Aliee, en þau
hjón farast eftir skipsstrand
við strönd Vestur-Afríku.
Á strönd Afríku fæðir frúin
þö áður drenginn John. sem
apynja nokkur rænir og elur
upp í apahöpi. Lífsbaráttan í
skóginum er hörð og drengur-
inn, sem hjá Burroughs hét
Tar-Zan. veröur höföingi ap-
anna.
Hann á það að þakka skot-
glöðum hópi leiðangursmanna
að liann kemst á ný í tengsl við
siömenninguna. Hann lærirað
tala hját belgíska landkönn-
uðinum d'Arnot, svo og að
klæöast fötum. Þegar vinur
Itans leiðir honum fyrir sjónir
hverra manna hann er. heldur
liinn aðalborni apaleiðtogi til
Skotlands og gerir kröfu til
arfs eftir afa sinn. En lög og
hefðir Viktoríutímans reynast
hinum nýbakaða sjöunda jarli
af Greystoke andsnúin. Því
leitar hann á náðir frumskógar-
ins aftur. Meira aö segja Jane.
sem hann (öðru vísi en segir í
bókinni) kynnist í Graystoke
kastalanum. fær ekki haldið
aftur af honum.
í mynd Hudsons er frutn-
skógurinn gerður að nokkurs-
konar risavöxnu óperusviði.
Gufuslæður læðast um trjá-
þykknið og dimm ský eru á
himni. Eldingar leiftra og eld-
fjöll gjósa. Kraftmagn filmu-
tökunnar. er aukið mcð 6 rása
stereo hátölurum þar sem
þrumur drynja, skelkuð dýr
emja og allt leikur á reiði-
skjálfi.
En þrátt fyrir alla þessa
Hollywoodtækni er víða kom-
iö við í hinni raunsæu endur-
sköpun Hudson á sögunni um
Tarzan apabróður. Vægðar-
laus lífsbarátta apanna erdreg-
in fram í myndinni. eins og
dýrafræðingar telja að hlutir
gangi þar fyrir sig. Raunveru-
legir sjimpansar og menn í
apabúningum. sem eru ótrú-
lega sannfærandi. berjast um
daglega fæðu. um valdastöður
í hópnum og gegn óvinaflokk-
um. En einnig kemur fram hve
dyggir vinir aparnir geta verið
og þá ekki síst apynja sú er
gengur mannverunni Clayton í
móðurstað. Dauði „móðurinn-
ar” Kala. er eitt átakanlegasta
atriði myndarinnar og það er
alls ekki væmið, segja þeirvísu
menn.
Síður sannfærandi þykir það
að hinn göfugi apabróðir virð-
ist ekki kunna svo illa við sig
„heima" í Skotlandi innan um
heföarfólk sem búið hefur um
sig innan um marmara og ma-
hogni-skrcytingar og gerir sér
upp tilfinningar og framkomu.
Þótt hann brjóti í bræði tvö
billiardprik og slíti utan af sér
fötin þegar liann er á ökuferð
með fína fólkinu. þá kemur
hann fyrst og fremst fyrir sem
viktorianskur herramaður.
Fyrst þá þegar Graystoke
lávarður er viðstaddur opnun
sýningar nokkurrar. þar sem
hann sér gamla vini sína úr
frumskóginum ýmist upp-
stoppaða eöa í búrum, gerir
hann sér grein fyrir að ekki er
allt sem skyldi. „Ég er aðeins
að hálfu leyti jarl." segir liann.
„Hinn helmingurinn af mér er
villimaður."
„Graystoke" er 42. Tarzan-
myndin sem gerð er frá því er
sú fyrsta kom fram 1918. Á
undan Christopher Lambert,
sem nú sveiflar sér í frum-
skóginum á hvíta tjaldinu, hafa
16 aðrir kraftajötnar komið
við sögu. Sá fyrsti hét Elmo
Lincholn, en liinn frægasti var
Johnny Weissmiiller. En aldrei
fyrr hafa menn verið svo trúir
raunveruleika sýninni og nú.
segja aðstandendur nýju
myndarinnar.
En samt styðst Hudson og
handritahöfundur hans við
sömu Tarzan-sögurnar og
fyrirrennararnir og víst er
myndin í anda Rousseau. sem
bauö mönnuin aö „hverfa aftur
til náttúrunnar."
Burroughs mun þó ekki hafa
haft Rousseau í Ituga þegar
hann tók að semja ævintýra-
sögur sínar haustið 1911. Hon-
um var meir í mun að bæta
átakanlegt fjárhagsástand sitt.
Samkvæmt frumskógalögum
mannfélagsins liafði hann ver-
ið dærndur tir leik. Herskólinn
í West Point vildi ekki taka við
honum og hann varð að víkja
úr bandaríska riddaraliðinu
vegna sjúkdóms. Þar sem hon-
um virtist ekki hcnta neitt
hetjugervi. vann hann lengi
fyrir sér eftir það sem kúreki
og lögreglumaður við járn-
brautirnar og seldi súkkulaöi
og blýanta.
En leiðindi voru farin að
hrjá Burroughs og því byrjaði
hann að skrifa. í október 1912
birtist í „All Story" tímaritinu
sagan „Tarzan apabróðir" og
„Tarzan hjá öpunum." Þessar
sögur færðu höfundinum 700
dollara í aðra hönd.
Burroughs sagði síðar að
sagan um tvíburana Romulus
og Remus, sem urðu stofnend-
ur Rómaborgar, en ólust upp
hjá úlfvnju nokkurri, hefði
orðið kveikjan að sögunum
urn Tarzan. Hann bar hins
vegar alla tíð á móti því að
hann hefði verið að stæla frum-
skógasögur Kiplings í ritum
sínum.
En víst er um að í 25 Tarzan
bókum sínum tefldi Burroughs
fram draumnum um einfalt en
ævintýralegt líf. gegn æ her-
skárri efnishyggjuheimi, þar
sem allt skal byggjast á afköst-
um og peningum. Hjá honum
á gott og illt sinn trvgga sess og
kraftur og hugrekki er tekið
fram yfir alla stéttaskiptingu
og peningavald.
En nú er glæsimynd Hud-
sons komin fram á sjónarsviö-
ið. þar sem segja má að loft-
kastalarnir hafi verið færðir
niður á jörðina.
■ Þau Jane og liinn ungi
John Clayton kyssast í skjóli
við runnagerði á óðalinu í
Skotlandi.