NT - 28.01.1985, Blaðsíða 4
Mánudagur 28. janúar 1985
Sambandið:
Gefur sparsömum íslend
ingum nýja gróðaleið
„I skuidabréfaflokki Sambandsins fclst spcnnandi nýjung þar sem allt að
11% ávöxtun er í boði fyrir skuldabrcf að nafnvirði aðcins 10 þúsund
krónur, þ.c. brcf sem cru ekki staerri cn það að allir ráða við að kaupa
þau. Jafnframt tryggir ný aöferð viö cndurgrciðslur í senn bestu ávöxtun
og að auövelt verður að selja bréfin þegar eigendum lientar best“, sagði
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings hf. m.a. er hann kynnti
fyrir fréttamönnum nýjung sem nú stendur til boða á almennum
verðbréfamarkaði.
Kaupþing hefur tekið að sér að
sjá um fyrsta almenna lánsfjárút-
boð íslensks fyrirtækis á innlend-
um lánamarkaði. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga gefur
bréfin út, en Samvinnusjóðurinn
framselur bréfin til væntanlegra
kaupenda á almennum markaði.
Einn hðfuðtilgangur þessa skulda-
bréfaútboðs er sá að afla innlends
lánsfjár til atvinnuuppbyggingar í
staö þess að auka enn við erlendar
skuldir þjóðarinnar. Heildarupp-
hæð þessa skuldabréfaútboðs er
50 milljónir króna á nafnverði,
sem Sambandið hyggst verja til
atvinnuuppbyggingar jafnt í nýj-
um sem hefðbundnum atvinnu-
greinum. Meðal þeirra verkefna
cru fiskeldi á Reykjanesi og upp-
bygging á rafeindaiðnaði.
Að sögn Péturs hafa íslendingar
á undanförnum árum borgað út-
lendum sparifjáreigendum mun
hærri vexti en þeim íslensku hafa
staðið til boða. Tilgangur þessa
nýja skuldabréfaútboðs sé m.a.
sá að breyta erlendum skuldum í
innlendar - og þar með að greiða
íslenskum sparifjáreigendum hina
góðu vexti í stað útlendinga. Tak-
ist með þessu að auka sparnað í
landinu leiði það til minnkandi
þenslu og þar með minnkandi
verðbólgu. Erlendar lántökur hafi
þveröfug áhrif.
og 100 þús. krónur. tryggð mcð
lánskjaravísitölu og eru til 5 ára.
Nafnvextir eru 5%, en ávöxtunar-
krafan 11%. þannig að þau eru
seld með afföllum. Verð 10 þús.
króna bréfs er nú um 7.000 krónur,
sem með 11% vöxtum og vaxta-
vöxtum gefur um 12.900 krónur í
endurgreiðslu, auk vísitölubóta,
að 5 árum liðnum. Raunávöxtun á
tímabilinu er því um 67%. Vegna
þess að lántakinn (Sambandið) er
skuldbundinn til að kaupa umtals-
vert magn bréfa til baka á hverjum
ársfjórðungi, sagði Pétur að ætíð
verði mjög auðvelt að selja þau.
Þau séu því bæði heppileg til
fjárfestingar í stuttan og langan
tíma, t.d. fyrir ungt fólk scnt er að
safna fyrir fyrstu íbúðinni sinni.
Bréfin verða seld hjá Kaupþingi
og í Samvinnubankanum.
Fyrirlestur
um lyfjamál
■ Deildarstjóri lyfja-
máladeildar Alþjóöaheil-
brigðismálastofnunarinn-
ar (WHO) í Kaupmanna-
höfn, iVI.N.G. Dukes mun
dvelja hér á landi dagana
27.-30. jan. á vegum lyfja-
nefndar. Hann er talinn
einn fremsti sérfræðingur
um aukaverkanir lyfja og
ritstýrir þekktri árbók um
þau efni.
M.N.G. Dukes flytur
erindi fyrir lækna og lyfja-
fræðinga um aukaverkanir
lyfja og verkefni WHO á
sviði lyfjamála mánudag-
inn 28. janúar í stofu 101
í Lögbergi kl. 20.3(1
Ennfremur mun hann
flytja erindi á fundi lyf-
lækningadeildar Landspít-
alans þriðjudaginn 29.
jan. kl. 13.00.
■ Sigrún Edda Lövdal og höfundur myndagátunn-
ar, Atli Magnússon, blaöamaöur, draga úr réttum
lausnum.
Með þessum bréfum sagði Pétur
fólki gefast valkostur mitt á milli
spariskírteina ríkissjóðs og al-
menna skuldabréfamarkaðarins.
Sambandsbréfin séu í minni ein-
ingum og jafnframt öruggari en
almennu bréfin, en vcxtir þeirra
hins vegar mun hærri en á ríkis-
skuldabréfunum.
Bréfin eru að nafnverði 10 þús.
■ Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Kaupþings skýrir út hvernig mikið eða lítið framboð getur haft
áhrif á verð skuldabréfa á almennum verðbréfamarkaði. Til vinstri eru: Eggert Agúst Sverrisson,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sambandsins og Sigurður B. Stefánsson hjá Kaupþingi.
Stríðið um hraðahindranirnar á Vesturgötu:
„Óánægð með þessa f ramkvæmd
eins og hún blasir við núna“
- segir Magnús Skúlason formaður foreldra- og kennarafélags
Vesturbæjarskólans sem vilja heldur fá „sofandi lögregluþjón“
■ „Við erum óánægð með framkvæmdina á þessum hraðahindr-
unum og teljum að frekar hefði átt að setja þarna bungiir," sagði
Magnús Skúlason formaður foreldra- og kennarafélags Vesturbæj-
arskólans í samtali við NT um hraðahindranirnar sem komið hefur
verið fyrir á Vesturgötunni og leitt hafa til þess að vagnstjórar á leið
2, Grandi - Vogar, hættu að aka um götuna fyrir nokkrum dögum.
Taldi Magnús að breytingin
væri barla lítið skref í rétta átt
því hún drægi ekki úr aðalum-
ferðarhraðanum og hefði ein-
ungis skapað þeim, sem barist
hafa fyrir því að draga úr hraða
í Vesturbænum, óvild vagn-
stjóranna. „Viðviljumeigagott
samstarf við SVR því þetta
þjónustufyrirtæki er okkur í
Vesturbænum mikils virði,“
bætti hann við.
íbúasíÆitök Vesturbæjar og
foreldra- og kennarafélagið
hafa í mörg ár barist fyrir því að
tryggja gönguleiðir skólabarna,
sérstaklega á mestu umferðar-
götunum sem eru Vesturgata,
Bræðraborgarstígur og Ægis-
gata. Nokkur árangur hefði
náðst í þeirri baráttu þegar
„sofandi lögregluþjónn", þ.e.
upphækkun var sett á Öldugöt-
una árið 1983 en SVR hefði
lagst gegn því.
Kvaðst Magnús vonast til þess
að einhverjar raunhæfar lausnir
fyndust til þess að draga úr
umferð á áðurnefndum götum
því það væri full þörf á því.
Staðan í Vesturgötustríðinu
er nú sú að beðið er eftir fundi
borgarráðs á morgun til að leysa
hnútinn og sagði Davíð Odds-
son borgarstjóri að borgaryfir-
völd myndu liorfa í gegnum fing-
ur sér vegna ákvörðunar vagn-
stjóranna að breyta akstursleið-
inni upp á sitt einsdæmi en hann
vonaðist til að lausn fyndist á
þeim fundi.
Pangað til mun vagninn á leið
2 aka Vesturgötu, niður Ægis-
götu og vestur Mýrargötu en
beygja síðan upp Seljaveg og Vesturgötu, um 100 metra frá Vesturgötuna áfram og í Ána-
stoppa á horni Seljavegar og stoppistöðinni, og síðan aka naust á leiðinni vestur úr.
■ Hraðahindranirnar sem settar hafa verið upp á Vesturgötunni vekja litla hrifningu hvort sem um
er að ræða strætisvagnastjóra eða íbúa hverfisins. Þjóna þær illa þeim tilgangi sem þeim var ætlað,
þ.e. að draga úr umferðarþunga og tryggja gönguleiðir í skóla. NT-mynd: Róben
Sænskuróperu-
söngvari í stað
Nicolai Gedda
■ Það verður sænskur
barytónsöngvari, Karl
Johan Falkman, sem
hleypur í skarðið fyrir ten-
órsöngvarann heims-
fræga Nicolai Gedda og
kemur fram hjá Tónlistar-
félagi Reykjavíkur mánu-
daginn 2. febrúar. Fyrir-
hugað var að Gedda kæmi
fram hjá Tónlistarfélaginu
n.k. mánudagskvöld,- en
vegna veikinda hans gat
ekki af því orðið. Vonir
standa til að Gedda sjái
sér fært að koma til íslands
næsta haust.
Falkman starfar hjá
konunglegu óperunni í
Stokkhólmi. Hann mun
flytja hér verk eftir
Ravel, Rangström og
ýmsar óperuaríur. Undir-
íeikari hans verður Jan
Eyron píanóleikari.
Miðar, sem ætlaðir voru á
tónleika Nicolai Gedda,
gilda á tónleika Falkmans,
en seldir aukamiðar fást
endurgreiddir ef óskað er.
Leiðrétting:
Meirihluti ávísana-
falsana upplýstur
■ Ranghermt var í'frétt NT á
forsíðu þann 25.1.að fæst þeirra
mála sem upp koma vegna fals-
aðra ávísana upplýsist. Stað-
reyndin er að mjög stór hluti, ef
ekki meirihluti þessara mála
upplýsist en í fæstum tilvikum
reynast skálkarnir borgunar-
menn skulda sinna. Því eru það
tilmæli Rannsóknarlögreglu að
fólk sýni aðgát í ávísanamálum.