NT - 28.01.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttirallan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónurfyrir hverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavik, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik:
STÓRKOSTLEGUR ÁRANGUR
Víkingar sigruðu Crvenka í báðum leikjunum og komnir í 4-liða úrslit
■ „Þetta var í einu orði stór-
kostlegt," varð einum stjórn-
armanna Víkinga að orði eftir
að Víkingar höfðu tryggt sér
farseðilinn í 4-liða úrslit í Evr-
ópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik með sigri á júgóslavn-
eska liðinu Crvenka í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi, 25-24.
I'etta var seinni leikur liðanna
en Víkingar sigruðu einnig í
fyrir leiknum, sem var á föstu-
dagskvöldiö, með 5 marka
inun. I'annig var vitaö fyrir-
fram að róðurinn yrði erfiður
fyrir Júgóslavana - sein og varð
raunin. Víkingar spiluðu mest-
an hluta leiksins af skynsemi og
náðu uin tíma 7 marka forystu,
16-9, í seinni hálfleik. Það þarf
ekki að fara mörgum orðum
um það hversu gott afrek þetta
er hjá Víkingum. Þeir sýndu
svo sannarlega hvað í þeim býr
og nú eru tvö íslensk hand-
knattleikslið komin í úrslit í
Evrópukeppni - alveg stórkost-
legt.
Leikurinn í gær byrjaði með
taugastrekking og fáti. Leik-
mcnn Crvenka ætluöu að verða
fyrri til að losa um spennuna
með því að gera Cirkus-mark
en það mistókst. Viggó skaut í
stöng úr fyrstu sókn Víkinga og
Crvenka reyndi annað Cirkus-
mark en það mistókst einnig.
Karl skaut svo í slá áður en
Þorbergur náði forystu fyrir
Víkinga og gaf tóninn að góð-
um leik sínurn og annarra Vík-
inga. Júgóslavarnir jöfnuðu en
Karl kom Víkingum yfir 2-1.
Víkingar komust síðan í 5-2 og
seinna í hálfleiknum varstaðan
orðin 8-5. Þorbergur gerði síð-
an þrjú mörk í röð fyrir Víking
rneð einu Júkkamarki á milli og
staðan í leikhlé var því 11-6
Víking í hag og bilið milli
liðanna orðið 10 mörk.
í hálflcik skemmti sterkasti
rnaður í heimi, Jón Páll Sig-
marsson og tókst honum að ná
upp enn meiri stemmningu hjá
áhorfendum sem voru sem einn
maður á bak við Víkingsliðið
og verður þeirra stuðningur
seint metinn til marka.
Upphafið á síðari hálfleik
gaf ekkert annað til kynna en
að Víkingar ætluðu sér sigur í
þessum leik. Þeir léku við
hvern sinn fingur og voru sér-
lega einbeittir í að hirða boltann
eftir að markvörður eða vörn
Crvenka hafði varið_ hann.
Slík eftirtekt gaf Víkingum
nokkur mörk í þessum leik eins
og þeim fyrri. Nú, Guðmundur
skoraði fyrsta mark hálfleiksins
og eftir um 10 mínútna leik var
staðan orðin 16-9 Víkingum í
hag og sigurinn virtist tryggður.
Þá tóku Júgóslavarnir til þess
ráðs að taka Þorberg og Viggó
úr umferð og riðla þannig leik
Víkinga. Þetta tókst að mörgu
leyti og smám saman ná leik-
menn Crvenka að minnka
muninn. Þeir jafna svo leikinn
19-19 og þá var allt komið á
suðupunkt í Höllinni. Enn
munaði þó 5 mörkum frá fyrri
leiknum svo Víkingarvoruekki
á því að fara á taugum.
Guðmundur skoraði 20-19
og nú var engin spurning um
hvort Víkingar væru komnir í
4-liða úrslit eður ei. Nú var
bara að vinna leikinn. Allt
gerðist mjög hratt á þessu síð-
ustu mínútum leiksins og er
nokkrar sekúndur voru til leiks-
loka þá jafna Júgóslavarnir.
24-24. Víkingar notuðu hins
vegar síðustu tíu sekúndur
leiksins til að tryggja sér sigur
og var það Hilmar Sigurgísla-
son sem það gerði. Sem sagt
frábær sigur Víkinga.
Leikurinn í heild var hin
bestaskemmtun. Víkingarléku
vel mestan hluta leiksins og
aðeins á kafla í síðari hálfleik
gekk dæmið ekki upp hjá þeim.
Þorbergur var markahæstur
Víkinga með 8 mörk, Viggó
gerði 7, Guðmundur og Karl 3
hvor og Steinar og Hilmar 2
hvor.
Dómarar leiksins voru
sænskir og geta Víkingar ekki
kvartað yfir dómgæslunni í
leiknum.
Lee ekki
tii KR?
Frá llcimi Bcrgssyni frcttaiiianni
NT í Kn|>landi:
■ Að sögn enska blaös-
ins Sunday People, er
Gordon Lee, sem koma
átti til KR næsta suniar,
ennþá að íhuga tilboð
sem honum hafa borist frá
Quatar, Flórída og ís-
landi.
Lee segir í samtali við
Sunday People um helg-
ina: „Eg hef þennan mán-
uð til að gera upp hug
minn, en það lítur út fyrir
að ég þurfi að fara til
útlanda.“
„Það er allt klappað og
klárt með Lee, hann
kemur til okkar, enda
hefur hann skrifað undir
samning við okkur.
Hann vill hins vcgar geta
haft allt í þoku úti í Eng-
landi, geta sagt að hann
sé enn á lausu af pers-
ónulegum ástæðum,"
sagði Lúðvik S. Georgs-
son í stjórn Knattspyrnu-
deildar KR í samtali við
NT í gærkvöld. Lúðvík
sagöist ekki óttast samn-
ingsbrot af hálfu Gordon
Lee, „þetta virðist mjög
áreiðanlegur maður og
við treystum honum,"
sagði Lúðvík.
■ Guðmundur Víkingsfyrirliði svífur hér inn af línunni og skorar. Víkingar sigruðu Crvenka í gærkvöldi 25-24.
NT-mynd: Sverrír
„Hef enn ekki áttað mig á þessu“
- sagði Bogdan þjálfari eftir leikinn
Bogdan:
„Við lékum 75% af þessum
leikjum vel en 25% verr. Þá
náðum við ekki að nýta okkur
færi en á móti kom að við
höfðum góða nýtingu er vel
gekk,“ sagði Bogdan þjálfari
Víkinga eftir leikinn. „Það að
vera komnir í 4 liða úrslit er
aldeilis ótrúlcgt og ég er enn
ekki farinn að átta mig á
þessu,1' bætti Bogdan við.
„Leikmenn beggja liða voru
taugaspenntir í leiknum en
þeir voru jafnvel enn strekkt-
ari,“ bætti Bogdan vió.
Steinar:
„Ég bjóst alveg eins við því
að við myndum sigra. Mórall-
inn hjá okkur fyrir leikinn var
ntjög góður og ég var hvergi
smeykur," sagði Steinar Birgis-
son eftir leikinn. Hann bætti
við að hann hefði aldrei veriö
hræddur í leiknum um að Vík-
ingar myndu tapa niður forystu
sinni frá fyrri leiknum, „eftir
að við náðum að byrja vel þá
hugsaði maður aldrei um tap."
„Þeir létu okkur hálfpartinn
komast í færi þarna í lokin til
að fá boltann sem fyrst. Við
hefðum átt að nýta færin i lok
leiksins betur," sagði Steinar í
lokin.
Þorbergur:
„Ég er auðvitað yfir mig
ánægður með sigurinn," sagði
Þorbergur Aðalsteinsson eftir
leikinn. Hann bætti við að
Víkingar hefðu raunverulega
engu haft að tapa í leiknum.
„Við vorum litli maðurinn fyrir
þessa leiki og því spiluðum við
frekar afslappað." Þorbergur
bætti við að hann hefði ekki
haft áhyggjur af því að Víking-
ar myndu missa niður forskotið
í lok leiksins. „Ég vona svo
bara að við drögumst ekki á
móti Rússum í 4-liða úrslitun-
um," sagði Þorbergur að
lokum.
NT á leik FH og Herschi
Arsenal lá fyrir York
Stúdentar lögðu ÍR
íþróttir helgarinnar á bls. 19-24