NT - 28.01.1985, Side 8
Mánudagur 28. janúar 1985 8
Skoðanakönnun
Allir stjórnmálaflokkarnir tapa
og allir græða - hver f rá öðrum
- Miklar hreyfingar milli flokka í skoðanakönnun NT
■ Það er ekki nóg með það
að Alþýðuflokkurinn hafi bætt
við sig verulegu fylgi á fyrstu
stjórnarmánuðum Jóns Bald-
vins Hannibalssonar. Svo virð-
ist sem allmargir kjósendur
annarra flokka séu veikir fyrir
málflutningi Alþýðuflokksins
um þessar mundir.
Meðal þess sem spurt var
um í skoðanakönnun NT í
vikunni' sem leið, var næst
besti kosturinn í flokkaflór-
unni, þ.e. „Hvaða flokk álítur
þú næst bestan um þessar
rnundir?"
Af svörunum við þessari
spurningu má draga ályktanir
um það á hvern liátt flokkarnir
séu tengdir innbyrðis í hugum
kjósenda þeirra. Rúmlega
fjórði hver kjósandi Banda-
lags Jafnaðarmanna og tæp-
lega fjórði hver kjósandi Sjálf-
stæðisflokksins töldu Alþýðu-
flokkinn næst besta kostinn.
Sama gerði tæplega tíundi hver
kjósandi Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags og 13%
kjósenda Kvennalistans.
Alþýðuflokkurinn er þannig
afgerandi vinsælastur að þessu
leyti. Það vekur hins vegar
athygli að á móti kemur að
fylgi Alþýðuflokksins virðist
nokkru lausara í reipunum en
fylgi annarra flokka. Ef gengið
er út frá því að þeir kjósendur
sem ekki treysta sér til að
tilgreina neinn flokk sem næst
besta, myndi eins konar fasta-
fylgi, þ.e. séu ekki veikir fyrir
öðrum tlokkum, þá kemur í
Ijós að þetta fastafylgi er að-
eins 25% af fylgi Alþýðu-
flokksins á móti 30-50% hjá
öðrum flokkum.
Súlurit það hér á síðunni,
sem sýnir skiptingu kjósenda
flokkanna eftir því hvaöa flokk
þeir telja næst bestan, skýrir
þetta glögglega. Út úr því má
lesa ákveðin tengsl milli ákveð-
inna flokka. Þar kemur t.d. í
Ijós að kjósendur stjórnar-
Uokkanna hafa ríka samúð
hvorir með öðrum. 30% sjálf-
stæðismanna telja Framsókn-
arflokkinn næst bestan og
öfugt. Tengslin milli Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks
er álíka sterk. Aftur á móti
virðist örlítið meira bil milli
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks.
Bandalag Jafnaðarmanna
viröist eiga allgóða möguleika
að vinna fylgi frá Sjálfstæðis-
tlokknum en það er alls ekki
gagnkvæmt. Aðeins 4% jafn-
aðarmanna tilgreindu Sjálf-
stæðisflokkinn sem næst besta
flokk.
Svipað verður upp á ten-
ingnum þcgar hugað er að
tengslum rnilli Alþýðubanda-
lags og Kvennalista. Alþýðu-
bandalagskjósendur eru veikir
fyrir Kvennalistanum en kjós-
endur Kvennalistans skiptast
nokkuð jafnt á alla flokka
nema Framsóknarflokkinn í
þessu tilliti.
Þetta styrkir þá skoðun að
konunum sem stofnuðu til fram-
boðs Kvennalistans á sínum
Töflutexti Tafla I
Næst besti flokkurinn
Listabókstafir
Til að tákna llokka eru hér á síðunni notaðir bókstafir
og er í flestu fylgt hefðbundnum venjuni
A = Alþýðuflokkur
B = Framsóknarflokkur
C = Bandalag Jafnaðarmanna
D = Sjálfstæðisflokkur
G = Alþýðubandalag
V = Kvennalisti
Z = Aðrir flokkar og samtök
Ó = Óákveönir
Töflutexti
Tafla II
tíma hafi tekist að skapa býsna
þverpólitískt afl. Því hefur
gjarna verið haldið fram af
hálfu sumra sjálfstæðismanna
að Kvennalistann bæri fyrst og
fremst að skoða sem eins konar
útibú frá Alþýðubandalaginu
en þessar niöurstöður benda
síöur en svo til þess.
- Breytingar
frá kosningum
Þriðji hver kjósandi Banda-
lags Jafnaðarmanna í síðustu
kosningum myndi fremur
kjósa Alþýðuflokkinn ef kosið
væri nú. Þetta kemur í Ijós
þegar sanran eru borin svör við
tveimur spurningum um þessi
efni í skoðanakönnun NT frá
síðustu viku. Nærri 60% af
kjósendum BJ eru nú ákveðnir
í að yfirgefa þann flokk og
kjósa annað. Auk þeirra 33%
sem ætla yfir til Alþýðuflokks-
ins segjast 10% ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, önnur
10% Alþýðubandalagið og 5%
hyggjast styðja Kvennalistann.
Framsóknarflokkurinn hlaut
hins vegar ekki náð fyrir aug-
Texti og töflur
Jón Daníelsson blm.
um þessara kjósenda. Ekki
einn einasti ntyndi greiða hon-
um atkvæði ef kosið væri nú.
Kjósendur nýju flokkanna
tveggja á þingi hafa áberandi
minni tilhneigingu til að kjósa
„sinn flokk" aftur en kjósend-
ur annarra flokka. 42% kjós-
enda Kvennalistans hafa
reyndar ákveðið að kjósa list-
ann aftur en jafnmargir eru
óráðnir í því hvað gera skuli.
Þær hreyfingar sem orðið
hafa milli tlokka má lesa'út úr
töflum og súluritum hér á síð-
unni.
Rétt er að taka fram að
þegar svör við spurningunni
um síðustu kosningareru borin
saman við úrslit síðustu kosn-
inga til Alþingis, kemur í Ijós
nokkur misvísun, sem virðist
geta bent til þess að Alþýðu-
bandalagið gæti kornið heldur
betur út úr kosningum en
niðurstöður könnunarinnar
gefa til kynna en Framsóknar-
flokkurinn heldur verr. Ekki
er þó liægt að fullyrða neitt um
þetta. þar eð svo margir voru
óákveðnir eða neituðu að
A 56
O
O
0
27
58
O
26
A 25
20
14
23
14
C 33
O
38
10
10
O
36
30
1 1
D 8
62
0
19
C 26
0
48
13
O
0
66
1 1
D 24
28
10
33
8
0
42
0
42
16
33
27
O
40
60
V 13
13
13
17
40
Ó 19
8
8
32
16
14
Taflan er lesin lárétf. Þannig vilja 25% af kjósendum Alþýðuflokksins ekki nefna neinn næsta Taflan er lesin lárétt. 56% af þeim sem kusu Alþýöuflokkiun í síðust kosningum mundu gera það
besta flokk, 20% nefna Framsóknarllokkinn, 23% Sjálfstæðisflokkinn o.s.frv. aftur nú. 5% myndu liins vegar kjósa Framsóknarflokkinn og 7% Bandalag Jafnaðarmanna.
n n
B C D G V 2 Ó
Alþyðubandalag
Tl i~r~n
A B C D G V Z
Kvennalisti
A B C D G V Z
Oakveðnir (kusu ekki,
nýjir o.sfrv.)
Tl n
ABCDGVZÓ
Alþyöuflokkur
~l—I—I
A BCDGVZÓ
Framsóknarílokkur
n n
ABCDGVZÓ
Bandalag Jafnaðarmanna
0=d
—j i
ABCDGVZÓ
Sjátfstæöisflokkur
Þessi súlurit sýna hvernig kjósendur flokkanna í síðustu kosningum skiptast nú á milli flokka.
Eins og sjá má eru mestar tilfærslur hjá Bandalagi Jafnaðarmanna en hlutfallslega flestir óákveðnir
hjá Kvennalistanum.