NT - 28.01.1985, Side 20
IU'
Mánudagur 28. janúar 1985 20
Enska bikarkeppnin í knattspyrnu:
Arsenal slegið út
af York City!
- Dixon með fernu og Varadi með þrennu í stórsigrum Sheffield
Wednesday og Chelsea - Jafnt hjá Forest og Wimbledon - Ipswich
heppið gegn Gillingham - Pearce bjargaði Manchester Utd - Birmingham
og Norwich keppa fjórða sinni -
Frá Heimi Bergssyni fréttamanni NT i Englandi:
■ Það var bikarhelgi um helgina í Englandi, og menn voru
viðbúnir óvxntum úrslituin eins og alltaf koma upp í enskri
bikarkeppni. Það voru þó ekki ýkjamörg óvænt úrslit, en þó ein
sem tóku alla athygli, er York City úr þriðju deild lagði að velli
Arsenal, eitt af toppliðum fyrstudeildar og eitt af „milljónaliðun-
um“ á sögulegan máta. Annarrardeildarlið Wimbledon kom
Nottingham Forest enn í opna skjöldu, náði jafntefli í Nottingham,
og Ipswich mátti þakka fyrir að sleppa með sigur gegn þriðjudeild-
arliðinu Gillingham. Þá mátti Manchester United þakka mark-
verði sínum, Steve Pearce fyrir sigurinn gegn Coventry.
York-Arsenal.............1-0
Leikmenn Jórvíkurliðsins,
sem metið er á 19 þúsund
pund, tæpar 800 þúsund ísl.
krónur, börðust eins og Ijón
allan tímann, og uppskáru laun
erfiðis síns er þeir fengu víta-
spyrnu á síðustu mínútu leiks-
ins. Hinn 24 ára garnli Keith
Houchen skoraði úr spyrnunni
og felldi þar með stórstjörnulið
Arsenal, metið á 4,5 milljónir
punda, liðlega 180 milljónir ísl.
króna, út úr ensku bikarkeppn-
inni.
Houchen sagði eftirfarandi
um vítaspyrnudóminn sem
þótti vafasamur: „Við sóttum
upp hægra megin, og ég hljóp
upp að marki frá miðvellinum.
Ég var að bíða eftir að Mark
Butler sendi fyrir þegar Steve
Williams þreif í búning minn.
Dómarinn var nærstaddur og
dæmdi umsvifalaust víti." Ho-
uchen, sem bæjarhetja í Jórvík
þessa stundina, sagði um víta-
spyrnuna: „Ég hef aðeins einu
sinni tekið víti áður fyrir York,
og þá brenndi ég af. Þó mér
hafi fundist heil eilífð líða áður
en ég spyrnti á markið, var ég
öruggur um að skora."
Framkvæmdastjóri York,
Dennis Smith, var ekki síður
ánægður: „Við áttum skilið að
vinna," sagði hann. Og aðstoð-
arframkvæmdastjórinn Steve
Busby bætti við: „Stórkostlegt.
Frábær tími til að fá víti. Arsen-
al átti ekki möguleika á að rétta
úr kútnum."
Don Howe, framkvæmda-
stjóri Arsenal, var ekki eins
ánægður: „Ég varð fyrir von-
brigðum með úrslitin. Ég
kvarta þó ekki yfir frammi-
stöðu minna manna. Þetta var
alltaf leikur sem hefði átt að
enda meðjafntefli." Mikiðrétt,
leikurinn var þófkenndur nær
allan tímann, og þegar tíu mín-
útur voru eftir héldu allir að
hann mundi enda með jafntefli,
en eins og sagt var, vítaspyrna
á síðustu nrínútu leiksins
breytti öllu.
Sheffield Wed-Oldham . . 5-1
lmre Varadi var hetja þessa
leiks, skoraði þrennu. Chapm-
an og Marwood skoruðu hin.
Bowden skoraði fyrir Oldham.
Framkvæmdastjóri Odham,
Joey Royle, sem sá lið sitt
steinliggja, hafði aðeins eitt
orð yfir leikstíl þeirra Shef-
fieldmanna: „Frábært." Hann
sagði að Wednesday væri tví-
mælalaust með eitt besta liðið í
Englandi í dag, og gæti átt eftir
að gera stóra hluti: „Wednes-
day er lið sem gerir það gott í
öllum keppnum. Þeir stoppa
aldrei og það sem meira er,
þeir vita nákvæmlega hvað þeir
eru að gera." Framkvæmda-
stjóri Sheffield Wednesday,
Howard Wilkinson, var þó
meira jarðbundinn en starfs-
félagi hans, og þegar hann var
spurður um möguleika liðs síns
til að fara alla leið til Wembley,
svaraði hann dæmigerðu fram-
kvæmdastjórasvari: „Vissulega
eigum við möguleika. En það
hafa öll hin liðin líka."
Nott.For.-Wimbledon ... 0-0
Brian Clough, framkvæmda-
stjóri Nottingham Forestersvo
sannarlega búinn að fá sig full-
saddan af liði Wimbledon.
Ekki nógmeð að Wimbledon
hafi slegið lið Nottingham For-
est út úr mjólkurbikarnum á
síðasta ári, heldur gerði það
jafntefli uin helgina við Nott-
ingham í sjálfri bikarkeppninni
nú, og neyða þar með Clough
og co til að fara niður til
Lundúna í vikunni til að fá úr
því skorið hvort liðið fer í
fimmtu umferð. Clough hafði í
leikskrá dagsins varað áhorf-
endur liðsins við Wimbledon,
og sagt að þeir gætu hugsan-
lega gert Forest skráveifu. Og
ennþá einu sinni hafði Clough
rétt fyrir sér.
Barnsley-Brigton....... 2-1
Owen úr vítaspyrnu og Futc-
her skoruðu fyrir Barnsley, en
Ryan svaraði fyrir Brighton.
Everton-Doncaster .... 2-0
Everton hafði leikinn allan
tímann í hendi sér, og Trevor
Steven og Gary Stevens skor-
uðu mörkin. 38 þúsund áhorf-
endur sáu leikinn.
Grimsby-Watford ........1-3
Steve Foley kom Grimsby
yfir, ogstaðan var 1-0 í hálfleik.
En þá var hafinn kafli Luthers
Blissett, sem skoraði tvö af
mörkum Watford. Gallaghan
skoraði þriðja mark Watford.
Ipswich-Gillingham .... 3-2
Leikurinn var hörkuspenn-
andi, og Ipswich var í raun
heppið að fara með sigur af
hólmi. Mikil barátta þriðju-
deildarliðsins var aðdánunar-
verð. Ipswich komst í 2-0 með
marki Wilson og sjálfsmarki
Mel Sage í liðið Gillingham.
En Sage bætti um betur, skor-
aði næst rétturn megin og Lesl-
ey jafnaði. Táningurinn Jason
Dozzell í framlínu Ipswich
skoraði svo sigurmarkið rétt
fyrir leikslok.
Leicester-Carlisle......1-0
Smith skoraði mark Leicest-
cr.
Luton-Huddersfíeld ... 2-0
Brfían Stein og Mel Donachy
skoruðu mörk Luton í leiknum.
Manchester Utd-Coventry . 2-1
Varamarkvörður Manchest-
er United, Steve Pearce, var
hetja liðsins í þessum leik.
■Mark Hughes skoraði fyrsta
■ Kerry Dixon var á skot-
skónum um helgina, skoraði
fjögur af fímm mörkum Chels-
ea í leiknum gegn Wigan.
ENSKIR PUNKTAR
Óhappagemlingurinn Bailey...
Frá Hcimi Bergssyni frctamanni NT í Englandi:
markið fyrir United, og Paul
McGrath annað. Hughes var
síðan borinn útaf meiddur.
Terry Gibson minnkaði mun-
inn fyrir Coventry, og nokkru
síðar fékk Coventry víti sem
Gibson tók. Nú brást honum
bogalistin, Pearce varði glæsi-
lega. Og Pearce hafði ekki sagt
sitt síðasta orð, áður en leikur-
inn var úti varði hann glæsilega
mikið þrumuskot Brian Kilc-
line beint úr aukaspyrnu.
Orient-Southampton ... 0-2
Joe Jordan og Steve Moran
skoruðu mörk Southampton í
leiknum.
Wigan-Chelsea..........0-5
Kerry Dixon var aldeilis á
skotskónum í þessum leik,
skoraði heil fjögur mörk! Da-
vid Speedy skoraði eitt. Wigan
gat ekki verið mjög heppið
tvisvar í röð, var heppið er
þessi lið mættust í fyrra skiptið,
en þetta var önnur viðureign
liðanna í þriðju umferð. Chel-
sea mætir Millwall heima í
fjórðu umferð.
Blackburn-.Portsmouth . . 2-1
Quinn skoraði bæði mörk
\*-*t*iá
Blackburn, en Kennedy svar-
aði fyrir Portsmouth. Þetta var
önnur viðureign liðanna í
þriðju umferð. Blackburn leik-
ur úti gegn Oxford í fjórðu
umferð.
Birmingham-Norwich ... 1-1
Þetta var þriðja viðureign
liðanna, og þau mætast aftur á
mánudag fjóðra sinni í þriðju
umferð bikarkeppninnar. Stað-
an var 0-0 eftir venjulegan
leiktíma, og 1-1 eftir framleng-
ingu. Geddis skoraði fyrir
Birmingham, og Mendham fyr-
ir Norwich.
Morton-Rangers..........3-3
Þetta var eini merkilegi
leikurinn í skosku bikarkeppn-
inni. Morton kom á óvart með
því að ná jafntefli, en liðin
mætast aftur í Glasgow. Fyrir
Rangers skoruðu Svíinn Prytz,
McPearson og McDonald. Fyr-
ir Morton skoraði Robertson
tvö og Clinging eitt.
ÚRSLIT ÚRSLIT
■ NEWCASTLE hefur
áhuga á að fá Watfordleik-
manninn George REILLY til
liðs við sig og hefur þegar
spurst fyrir um verð. Watford
er þó líklega ekki á þeim bux-
unum að selja Reilly, og New-
castle er því með einn leikmann
í sigtinu til vara. Sá er Colin
WEST frá Sunderland...
... AÐSTOÐ ARFRAM-
KVÆMDASTJÓRI WBA,
Normann Hunter, hefur
undanfarið fylgst með hinum
unga og stórefnilega Stewart
McCALL frá Bradford. Sá
mun vera undir smásjá flestra
fyrstudeildarliða um þessar
mundir...
...LEIKMÖNNUM NOTT-
INGHAM FOREST var sagt
að borga 100 pund hver. ef þeir
vildu fara til Tenerife til æfinga,
og losna þannig við frostið í
Englandi í bili, amk. Nokkrir
leikmenn, svo sem Kenny
Swain. Johnny MetgodogGary
Birtles ákváðu frekar að láta
sér verða kalt í Nottingham
frekar en fara með Brian
Clough til Tenerife...
... HINN SKOSKI MIÐ-
VALLARSPILARI LEEDS
United, John DONNELLY, er
líklega á förum norður eftir.
Hann mun hafa átt í viðræðum
við DUNFERMLINE nú um
helgina...
... PETER NICHOLAS,
velski landsliðsmaðurinn sem
hefur leikið með Crystal Pal-
ace, mun- líklega skrifa undir
samning við LUTON Town í
vikunni. Samningurinn mun
vera uppá 125 þúsund pund...
...EINS OG ALLIR VITA,
hefur MANCHESTER Utd
verið á höttunum eftir góðum
miðverði. Nú ku þeir vera á
höttunum eftir efnilegum mið-
verði, og er unglingalandsliðs-
maðurinn Mike FORSYTHE
frá West Brpmwich Albion í
sigtinu þessa stundina.
GARY BAILEY, mark-
vörður Manchester United á
ekki sjö dagana sæla þessa
dagana. Bailey hefur ekki get-
að leikið með Mancesterliðinu
að undanförnu vegna meiðsla,
en var síðan kominn í form og
átti að leika fyrsta leikinn með
liðinu að nýju í bikarkeppninni
gegn Coventry um helgina. Það
gekk þó ekki, því á síðustu
æfingu fyrir leik fór litli fingur
annarrar handar Bailey úr liði.
- Óhappagemlingur, Bailey.
England:
1. DEILD:
WBA-QPR...................0-0
2. DEILD:
Shrewsbury-Fulham.........3-1
Notts C-Charlton .........0-0
Sheff. Utd.-Wolves........2-2
3. DEILD
Bolton-Rotherham..........2-0
Bournemouth-Playmouth .... 1-0
Bradford-Swansea.......... 1-1
Brentford-Newport ........2-5
Bristol C-Cambridge.......3-0
Millwall-Walshall ........0-0
Reading-Bristol R ........3-2
4. DEILD:
Chester-Southend ......... 5-1
Chesterf.-Scunthorpe ..... 1-0
Colchester-Bury........... 1-0
Crewe-Mansfield............ 1-1
Exeter-Aldershot.......... 3.0
Peterbo-Wrexham............ 2-1
Port Vale-Torquay.........2-2
Swindon-Tranmere..........2-1
Bikarkeppnin:
3. UMFERÐ:
í annað sinn
Blackburn-Portsmouth.......2-1
(Black. úti gegn Oxford í 4. umf.)
Wigan-Chelsea..............0-5
(Chelsea heima gegn Millwall í 4.
umf.)
í þriöja sinn:
Birmingham-Norwich........ 1-1
(Aftur í Norwich á mánudag;)
4. UMFERÐ:
Barnsley-Brighton..........2-1
Everton-Doncaster .........2-0
Grimsby-Watford............ 1-3
Ipswich-Gillingham.........3-2
Leicester-Carlisle......... 1-0
Luton-Huddersfield.........2-0
Man Utd.-Coventry..........2-1
Nott. Forest-Wimbledon.....0-0
Orient-Southampton.........0-2
Sheff.Wed-Oldham .......... 5-1
York-Arsenal .............. 1-0
SKOSKI BIKARINN
3. UMFERÐ:
Ayr-Keith .................3-1
Brechin-East Fife.......... 1-1
Morton-Rangers.............3-3
Raith-Clyde................2-2
Staðan...Staðan...
1. deild Everton : 24 15 4 • 5 53 29 49 2. deild: Blackburn 24 14 6 4 47 23 48
Tottenham 24 14 5 5 49 25 47 Oxford 21 14 4 3 51 18 46
Man. Utd 24 12 5 7 46 30 41 Man. City 25 13 7 5 40 20 46
Sheff. Utd. 24 11 8 5 39 24 41 Birmingham 23 14 4 5 33 21 46
Arsenal 24 12 4 8 44 31 40 Portsmouth 24 11 9 4 39 32 42
Liverpool 24 10 8 6 33 22 38 Leeds 24 12 4 8 45 29 40
Southampton 24 10 7 7 29 28 37 Grimsby 24 11 4 9 47 40 37
Chelsea 24 9 9 6 40 29 36 Huddersfield 24 11 4 9 33 35 37
Nott. Forest 23 11 3 9 36 34 36 Barnsley 22 9 9 4 25 15 36
Norwich 25 10 6 9 31 34 36 Brighron 23 10 6 7 24 17 36
West Brom. 25 10 5 10 37 36 35 Fulham 24 11 3 10 43 44 36
Aston Villa 24 8 7 9 34 38 31 Shrewsbury 24 9 8 7 43 36 35
West Ham 23 8 7 8 30 34 31 Wimbledon 24 9 4 11 42 51 31
Q.P.R. 25 7 10 8 32 39 31 Carlisle 23 8 4 11 24 34 28
Watfcrú 23 7 8 8 45 42 29 Sheffield 25 5 10 10 37 42 25
Leicester 24 8 5 11 42 45 29 Oldham 23 7 4 12 25 43 25
Newcastle 24 7 7 10 37 49 28 Charlton 24 6 6 12 31 37 24
Sunderland 23 7 5 11 29 35 26 Middlesbro 24 6 6 12 28 38 24
Coventry 25 7 4 14 26 45 25 Crystal Pal. 22 5 8 9 27 34 23
Ipswich 23 5 7 11 21 33 22 Wolves 25 6 5 14 30 51 23
Luton 23 5 6 12 27 43 21 Notts 25 4 5 16 21 49 17
Stoke 24 2 6 16 17 52 12 Cardiff 23 3 4 16 25 51 13