NT - 28.01.1985, Blaðsíða 23

NT - 28.01.1985, Blaðsíða 23
1 u Mánudagur 28. janúar 1985 23 l f ■1 Úrvalsdeildin í körfu: Stúdentar lögðu ÍR - í æsispennandi leik ■ Stúdentar lögðu ÍR-inga öðru sinni á þessum vetri í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gær á sögulegan máta. Sigur- karfa Stúdenta var skoruð einni sekúndu fyrir leikslok, af besta manni þeirra Guðmundi Jó- hannssyni, sem fékk draurna- sendingu frá félaga sínum Árna Guðmundssyni, alfrír undir körfunni. Annars áttu Stúdent- ar sigurinn skilinn, höfðu for- ystu nær allan tímann, nema í Enska knattspyrnan: lokin þegar ÍR hafði loks náð að jafna. Leikurinn fór jafnt af stað, en Stúdentar voru þó heldur á undan að skora. ÍS var yfir 20-17 eftir tíu mínútna leik, en ÍR náði að komast yfir og hafði yfir 26-25. Stúdentar settu þá á fulla ferð um leið og allt hrundi hjá ÍR, skoruðu 10 stig í röð, 35-26, og 16 mínútur liðnar. Stúdentar tóku svo annan kipp Liverpool sló Tottenham út Frá Heimi Bergssyni fréttamanni NT í Englandi: ■ Liverpool er komið á skrið í ensku knattspyrnunni og lagði Tottenham að velli á Anfield Road í gær, er liðin mættust í 4. umferð bikarkeppninnar við erfiðar aðstæður. Það var markamaskínan sjálf, Ian Rush, sem skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur. Garth Crooks Tott- enham fékk fyrsta færið á 7. mínútu en Grobbelaar náði af honum boltanum með út- hlaupi. Þremur mínútum síðar komst Perryman inn í vítateig Liverpool eftir fallega hælsend- ingu frá Hoddle, var felldur og dómarinn sleppti augsýnilegri vítaspyrnu. Skömmu síðar átti John Wark hörkuskot rétt yfir mark Tottenham og á 17. mín- útu kom markið. Ian Rush slapp laus í boltann sem þeim Miller og Roberts hafði mistekist að hreinsa frá. Rush lyfti boltanum yfir út- hlaupandi Ray Clemence afar snyrtilega og boltinn fór í netið. Rétt fyrir hálfleik varð Tott- Blak: enham fyrir því áfalli að Glenn Hoddle meiddist illa, fékk spark í nýrnastað. Hann varð að fara útaf. Gary Mabbutt kom inn á, og þar sem hvorki Ardiles né Hazard voru á miðj- unni, (Ardiles ekki með en Hazard meiddur) varð síðari hálfleikur lítils virði. Besta fær- ið kom er Chiedozie gaf fyrir frá endamörkum, en Grobbela- ar bjargaði með glæsilegu út- hlaupi. Um miðjan síðari hálfleik meiddist Miller í vörn Totten- ham, og haltraði um völlinn eftir það. Tottenham átti sér ekki viðreisnar von eftir þetta. Grobbelaar var besti maður Liverpool, og Whelan barðist vel. Liðið er nú að því er virðist komið á skrið og Liverpool- bragtir á því. Chiedozie var langbestur hjá Tottenham, Galvin var þokkalegur. -Tutt- ugu og tvö þúsund áhorfendur sáu leikinn í miklum kulda, og þótti gott. Snjólag var yfir vell- inum þrátt fyrir að hann væri upphitaður, og aðstæður erfið- ar. í lok hálfleiksins og leiddu 47-31 í hálfleik. Stúdentar bættu enn við í upphafi síðari hálfleiks, og náðu mest 20 sti'ga forskoti 52-32. Þá tóku ÍR-ingar, sem verið höfðu afspyrnuslappir í fyrri hálfleik, sigsaman í andlit- inu og fóru að síga á. Framan af gekk það heldur hægt, því þótt ÍR skoraði oftar, skoruðu Stúdentar oft þriggja stiga körfur. En smám saman minnkaði munurinn, og þegar ein og hálf mínútu var til leiks- loka var staðan 78-67 ÍS í hag. ÍR-ingar settu á fulla verð, Stúdentar misstu stjórn á leikn- um, og Björn Steffensen jafn- aði úr vítaskotum 9 sekúndum fyrir leikslok, 78-78. Stúdentar geystust þá í sókn, og Árni gaf á Guðmund alfrían, sem skor- aði sigurkörfuna og tíminn rann út. Guðmundur Jóhannsson var langbesti maður Stúdenta í leiknum. Árni Guðmundsson lék einnig vel, og Valdimar Guðlaugsson, ÍR-ingar voru allir jafnslappir í fyrri hálfleik, en Björn Steffensen, Karl Guð- laugsson og Hreinn og Gylfi Þorkelssynir voru mennirnir á bak við afturbatann í síðari hálfleik. Stigin: ÍS: Guðmundur 30, Árni 24, Valdimar 8, Helgi Gústafsson 6, Ragnar Bjart- mars 5, Ágúst Jóhannesson 4, og Eiríkur Jóhannesson 3. ÍR: Björn 17, Gylfi 16, Karl 16, Hreinn 15, Bragi Reynisson 6, Ragnar Torfason 5 og Jón Örn Guðmundsson 3. Úrvaldsdeildin í körfuknattleik: Úrslit um helgina: Njarðvik-KR .................83-80 Haukar-Valur.................86-93 ÍR-ÍS........................78-80 Staðan: Njardvik .. 15 14 1 1347-1120 28 Haukar.... 15 11 4 1251-1156 22 Valur...... 15 8 7 1317-1255 16 KR ........ 15 7 8 1217-1171 14 ÍR......... 15 3 12 1130-1266 6 ÍS ........ 14 2 13 1083-1374 4 Þróttur og HK áfram -enekkiátakalaust - sigruðu Fram og Víking í bikarkeppni BLÍ ■ ÞrótturogHKkomustbæði áfram í 1. umferð bikarkeppni Blaksambands íslands um helg- ina, en ekki átakalaust. Bæði þessi topplið þurftu fimm hrin- ur til að leggja botnlið fyrstu deildarinnar, Þróttur Fram, og HK Víking. Þróttarar voru heillum horfnir er þeim mættu Fram, án Guðmundar Pálssonarþjálf- ara síns, sem meiddist fyrir nokkru. Fram vann fyrstu hrin- una létt, 15-4, en Þróttur náði þeirri næstu vel eftir að Guð- mundur kom inn á, og sigraði 15-6. Fram knúði fram sigur í þriðju hrinu, 15-13, en Þróttur var sterkari í þeirri fjórðu, 15-9. Lokahrinan var svo létt hjá Þrótti, vindurinn var úr Frömurum og úrslitin 15-4. Guðmundur Pálsson var lyk- ill Þróttara að sigrinum, nær- vera hans gefur liðinu mikið öryggi. Ólafur Árni Traustason var yfirburðamaður í liði Fram- ara, og besti maður vallarins. HK byrjaði illa gegn Víkingi, minnugt tapsins í deildinni um daginn. Víkingur vann fyrstu hrinuna 15-7, en HK svaraði í sömu mynt í annari hrinu og vann 15-7. Víkingur marði svo sigur, 15-13 í þriðju hrinu, og var nú að duga eða drepast fyrir HK. Liðið dugði, náði upp sínum bestu samliggjandi hrinum í vetur, og vann 15-5 og 15-6. Sunday Times skrifar um lyfjamál: 60% landsliðsins! - nota ólögleg lyf segir Dickenson ■ Samkvæmt frétt sem breska hlaðið Sunday Tim- es birti þá notar fjöldinn all- ur af breskum frjálsíþrótta- mönnum lyf til að auka getu sína í íþróttuin. Blaðið hefur eftir Paul Dickenson sem er fyrrum sleggjukast- ari að alít að 60% af lands- liðsmönnum Breta noti ólögleg lyf. Astæðan fyrir því að fleiri nota orðið ólögleg lyf er sú að nú eru verðlaun í frjálsíþróttamótum orðin mjög vegleg en aðeins fyrir þá sem sigra, segir í Sunday Times. Nú leitar breska frjáls- íþróttasambandið að leið- uni til að koma í veg fyrir að íþróttamenn noti slík lyf sem ósækileg teljast. ■ Guðmundur Jóhannsson reyndist ÍR-ingum erfiður í gær. NT-mynd: Róbert Handboltinn: ■ Staðan í fyrstu deild karla í handknattleik eftir 23-18 sigut Vals á KR á laugardag er þessi: FH ........ 10 9 1 0 274-227 19 Valur...... 9 5 3 1 213-175 13 Víkingur .. 9 4 2 3 221-208 10 KR ........ 9 4 2 3 187-176 10 Stjarnan .. 10 3 2 5 218-224 8 Þróttur .... 10 3 2 5 234-248 8 Þór V...... 9 3 0 6 181-216 6 Breiðablik . 10 1 0 9 203-257 2 Úrslit urðu þessi í 2. deild karla um helgina: HK-ÞórAk..................20-11 Grótta-Haukar.............21-23 Fylkir-Armann.............20-23 Fram-Þór Ak...............25-22 Staðan: Fram ...... 10 8 1 1 242-200 17 KA ........ 9 8 0 1 213-175 16 HK ........ 10 6 1 3 205-194 13 Haukar .... 10 5 0 5 227-235 10 Ármann ... 9 4 0 5 199-197 8 Grótta .... 11 2 3 5 230-246 7 Fylkir..... 10 2 2 6 192-215 6 Þór Ak . ... 11 1 1 9 221-267 3 > . I Knattspyrna: ■ Hér á eftir fylgja úr- slit í leikjum helgarinnar í Belgíu, Portúgal og á Spáni. Eins og greina má þá heldur Anderlecht áfram sigurgöngu sinni í Belgíu, nú með sigri á Club Brugge 2-0. Þá var stórleikur í Port- úgal er Portó sigraði Ben- fica á heimavelli þeirra siðarnefndu. Sporting tapaði stigi þannig að Portó er nú með 4 stiga forystu. Á Spáni vann Barcel- ona stórsigur á Real Betis 4-0. Þeir Barcelónumenn hafa nú 9 stiga forystu. Úrslit: CS Brugge-Gent...............0-0 St. Niklaas-Waterschei.......0-2 Lokeren-Beveren..............0-1 Mechelen-Lierse .............3-0 Anderlecht-CS Brugge ........2-1 Waregem-Antwerpen............4-0 Beerschot-Kortrijk...........1-4 FC Liege-Seraing.............1-0 Standard L.-Racing J.........3-3 Staða efstu liða: Anderl....... 18 14 4 0 60-16 32 Waregem...... 18 12 2 4 40-24 26 Gent......... 18 10 4 4 41-21 24 FC Liege..... 18 9 6 3 33-17 24 FC Brugge .... 18 9 6 3 29-21 24 Beveren...... 18 9 3 6 34-18 21 Portúgal: Úrslit: Benfica-Porto................0-1 Farense-Sporting.............1-1 Setubal-Braga................0-2 Guimares-Vizela .............3-0 Salgueros-Benafiel ..........2-1 Roavista-Rio Ave.............2-3 Academica-Bellnenses ........0-0 Varzim-Portimonense..........1-1 Þór tapaði tvisvar Frá Ólafi Þór Jóhann.ssyni frcttamanni NT á Suðurnesjum: ■ Þórsarar frá Akureyri komu til Suðurnesja um helg- ina og léku tvo leiki í 1. deild karla í körfuknattleik. Þeir töp- uðu báðum, 62-66 fyrir Grinda- vík, og 91-106 fyrir Keflavík. Þá lagði Reynir Laugdæli ■ Andy King, fyrrum leikmaður Everton, hefur nú hug á að yfirgefa hollenska 2. deildarliðið SC Cambur. King sem er 28 ára miðvallar- leikmaður fór frá Everton til | Hollands í byrjun þessa keppn-1 istímabils og gerði 2 ára samn- 79-66 í Sandgerði. Nánar á morgun. Staðan: Keflavik...... 13 11 2 1172- 897 22 Fram ........ 11 8 3 866- 661 16 ReynirS ..... 14 8 6 1005-1011 16 Þór.......... 10 4 6 767- 802 8 Grindavík ... 10 4 11 677- 774 6 Laugdælir .... 9 0 9 437- 766 0 ing við 2. deildarliðið. Forseti Cambur sagði að enska félagið Wolverhamton Wanderes hefði áhuga á að ná í kappann og hefði boðið honum samning. Hollenska liðið hefur veitt King leyfi til að fara. Staða efstu liða: Porto ........ 18 16 1 1 49- 7 33 Sporting ..... 18 12 5 1 46-16 29 Benfica ...... 18 12 2 4 39-18 26 Portim........ 18 10 3 5 35-25 23 Boavista ..... 18 7 8 3 25-18 22 Spánn: Atl.Madrid-Malaga ............3-0 Hercules-R.Sociedad...........0-0 R. Valladolid-Espanol.........1-1 Racing-Real Madrid............0-0 Atl. Bilbao-R. Zaragoza.......0-3 Sporting-Osasuna .............1-0 Sevilla-Elche.................l-l Barcelona-Real Betis..........4-0 Valenvia-R. Murcia............l-l Staða efstu liða: Barcelona ... 22 15 6 1 47-16 36 Atl.Madrid 21 10 7 4 31-17 27 Real Madrid .22 9 8 5 25-19 26 Valencia .... 22 7 11 4 27-14 25 Sevilla...... 22 8 9 5 19-17 25 Sporting .... 22 6 12 4 18-16 24 R. Sociedad .. 22 7 9 6 25-20 23 King til Wolves? prv ■**/-"' ■ Þessar gullfallegu stúlkur eru allar norskar og urðu sigurvegarar í 20 km göngu kvenna í. Seefeld ( sjá bls. 21). Þær eru frá vinstri: Britt Pettersen (silfur) Inge Nykkelmo (gull) og Anette Boe (brons). Símamynd-POLFOTO

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.