NT - 07.02.1985, Síða 4
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 4
48 þúsund fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll I fyrra:
Metár í flutningum
farþega milli landa
■ Rúmlega 48 þúsund fleiri
farþegar fóru um Keflavíkur-
flugvöll í fyrra, miðað við árið á
undan og nam heildarflutningur
íslenskra flugfélaga á farþegum
milli Islands og annarra landa
470.175 manns á árinu 1984. Er
það mesti fjöldi farþega sem
fluttur hefur verið á einu ári
hingað til en spáð er 9% aukn-
ingu á þessu ári og má búast við
að heildarfjöldi farþega verði
þá 512.547.
Þessi spá er byggð á þróun
farþegafjölda sl. 10 ár og kemur
fram í henni að flugfélögin hafa
náð sér að fullu eftir samdrátt-
inn sem varð árið 1981 en þá
voru aðeins fluttir 285.483 far-
þegar í millilandafluginu.
Jukust vöruflutningar um
Keflavíkurflugvöll á síðasta ári
um rúm 48 tonn og póstflutning-
ar um 136 tonn. Verkfall opin-
berra starfsmanna hafði umtals- víkurflugvöll í október en eigi umsvifamesta í farþegaflutning-
verð áhrif á umferð um Kefla- að síður var síðasta ár það um.
t'I.ÚCM ÁI.ÁSTJÓ R!i
AÆT LUM ARFLUG MÍLLI LANDA
r'AI'.ÞtLAH
10 '
:XCCC .
toc co . íl:| '
y.co oo . ; 1 íáií; .
100 co [§: 1 i ,0’ |Si;j í|i|j Lýjií || ||j
oco . íl [• ::-í S | j j: | i! ii I# U ■
vj;t. »;•.•• ii’rio lam i.’A/. i»ai tve*
■ Súlurit yfír fjölda farþega í áætlunarflugi ntilli landa s.l. 10 ár.
Meira en hundrað
hraðahindranir
■ Áttatíu og þrjár hraöahindrandi upphækkanir
eða öldur á götur Reykjavíkurborgar til viðbótar við
þær 42 seni þegar eru komnar er meðal tillagna í
nýútkomini skýrslu um umferð við skóla í borginni.
Athuganir sem þar birtast sýna að hraði ökutækja
gerir vel það að minnka um helming við uppsetningu
hraðahindrana af þessu tagi. Ennfremur vitna þeir
sem að þessum tillögum standa til þess að með því að
ökuhraði minnkaði 30% þá fækkar óhöppum um 50%
og dauðaslysum um 75u/o
Þeir nefndarmen sem að
skýrslunni stóðu segja að
hver slík hraðahindrun kosti
um 60 þúsund krónur ef
hún er ein/ sér en væru þær
settar nokkrar saman þá
kostar liver hraðahindrunin
30 þúsund krónur.Víðast er
gert ráð fyrir tveimur eða
fleiri saman. Nefndin gerir
tillögu um öldur til hraða-
hindrunar við alla skóla
borgarinnar og þegar hafa
verið settar upp 10 að beiðni
hennar.
Þá gerir nefndin tillögu
um bætta lýsingu við flesta
skólana, betri frágang á lóð-
um og uppsetningu hjóla-
grinda þar sem þær hafa enn
ekki rutt sér rúms.
Nefnd þessi var skipuð fyr-
ir ári að ósk Umferðarnefnd-
ar Reykjavíkur og sátu í
henni; Guðmundur Þor-
steinsson námsstjóri.Gunnar
H. Gunnarsson verkfræðing-
ur, Jens Sumarliðason yfir-
kennari, Páll Garðarsson
lögregluvarðstjóri og Bogi
Arnar Finnbogúson formað-
ur Samtaka foreldra og kenn-
arafélaga.
Mótorskip:
Var kaupendum kunnugt um svikin?
Þá verða þeir krafðir um aðf lutn ingsg jöld
■ I stjórn Réttarbótar aldraðra eu talið frá vinstri: Jón Hannesson, Bjarni Tómasson formaður,
Jónína Jönsdóttir og I.árus Hermannsson.
Aldraðir berjast
fyrir rétti sínum
■ Nú er verið að rannsaka
hvort verið geti að eitthvað af
þeim Toyota hifreiðum sem
Mótorskip flutti inn í nafni
kaupendanna eða með vitund
þeirra. Ef svo er, þá munu þeir
hinir sömu verða krafnir um
aðflutningsgjöld af bifreiðun-
um.
Að sögn Björns Hermanns-
sonar, tollstjóra, þá er ekki
ástæða til að ætla annað að svo
stöddu, en fyrirækið sé ábyrgt
fyrir greiðslu aðflutningsgjald-
anna, þar sem bílarnir virðast
hafa verið fluttir inn í nafni
fyrirtækisins, en ekki kaupend-
anna. Málið er hinsvegar í at-
hugun og komi annað í Ijós
Norræna félagið:
Gefur út rit
um Færeyjar
■ Gefinn hefur verið út sér-
prentaður bæklingur um mál-
efni Færeyja. Það er Norræna
félagið sem stendur að þessari
útgáfu, en umfjöllun þessi birt-
ist í síðasta tbl. af „Vi i Norden"
ársfjórðungsriti Norrænu fé-
laganna.Er þar m.a. fjallað um
heimastjórn Færeyinga, efna-
hags- og atvinnumál þeirra,
ferðamál, sjávarútveg, menn-
ingarmál o.fl.
Sérprentun þessa má fá
endurgjaldslaust á skrifstofu
Norræna félagsins í Norræna
húsinu, á meðan birgðir endast.
verða kaupendur sóttir til
ábyrgðar.
Nýlega gekk hæstaréttardóm-
ur í máli þar sem kaupandi
Mercedes Benz bifreiðar var
dæmdur til að greiða aðflutn-
ingsgjöld af bifreið sem flutt var
til landsinsáfölskum pappírum.
■ Vitað er með vissu um
a.m.k. fjórtán hundruð floga-
veika einstaklinga hérlendis, og
árlega greinast um 50-70 tilfelli.
Þetta kom m.a. fram á ráð-
stefnu sem haldin var á vegum
Landssamtaka áhugafólks um
flogaveiki (LAUF) sem haldin
var í lok síðasta mánaðar.
Framsöguerindi tluttu próf-
essor dr. med. Gunnar Guð-
mundsson, Pctur Lúðvíksson.
barnasérfræðingur í taugasjúk-
dómum, Magnús Jóhannsson,
dósent og Þórey Ólafsdóttir.
félagsráðgjafi. I máli fram-
sögumanna kom fram að í 65%
tilvika eru orsakir ókunnar en
all oft er hægt að halda floga-
veikinni niðri, einkum rneð
lyfjameðferð.
Aðal niðurstaða ráðstefnunn-
í því tilfelli var kaupandanum
kunnugt um hin ólöglegu vinnu-
brögð. Öðru máli gegnir, ef
almennir neytendur kaupa
ódýra vöru á þeim forsendum
að hún sé löglega fengin.
ar var sú, að stórauka þarf
fræðslu fyrir flogaveika, að-
standendur og almenning. í
framhaldi af því vilja samtökin
koma á framfæri nokkrum al-
mennum leiðbeiningum þar sem
áhersla er lögð á að fólk haldi ró
sinni yfir flogaveikisjúklingi
með krampa. Men skulu ekki
reyna að troða neinu milli tanna
hins flogaveika. eða reyna að
stöðva krampann eða vekja ein-
staklinginn til meðvitundar t.d.
með því að reyna að gefa honum
að drekka þar eð krampinn
gengur yfir af sjálfu sér og hinn
flogaveiki er hvorki kvalinn né
í lífshættu. Þá er fólki bent á að
sporna við óþarfa ágangi og
forvitni fólks, og að yfirgefa
ekki þann flogaveika fyrr en
hann er orðinn sjálfbjarga.
■ Fyrir skömmu var slofnað í
Reykjavík félagið Réttarbót
aldraðra. Tilgangur félagsins er
að stofna samtök til að berjast
fyrir rétti aldraðra og bæta hag
þeirra sem höllustum fæti standa
í þessum aldurshópi. Einnig eru
uppi hugmyndir um að setja á
stofn upplýsingamiðstöð þar
sem aldraðir geta leitað sér
upplýsinga um réttarstöðu sína
og fengið ráðgjöf við að ná fram
sínum málum, en að sögn
stjórnarmanna er oft erfítt fyrir
aldraða að framfylgja sínuin
málurn í „kerfinu".
Eitt af megin atriðum til að
tryggja öryggi aldraðra er að
því er þau telja að efla Almenna
lífeyrissjóðinn, sem stofnaður
var samkvæmt tilskipun ríkisins
1970 fyrir þá sem ekki borguðu
í aðra sjóði, með frjálsum fram-
lögum og öðrum leiðum og að
liann yrði þá í framtíðinni sá
valkostur sem flestir hyrfu að,
þar sem einn sterkur sjóður
tryggði best öryggi í þessum
málum.
Framhaldsaðalfundur verður
haldinn í kvöld kl. 16.00
í Alþýðuhúsinu á horni Hverfis-
götu og Ingólfsstrætis.
Gjaldgengir í félagið Réttar-
bót aldraðra eru allir 60 ára og
eldri.
Könnun á vegum flugmálastjórnar:
Hvernig nýta íslend-
ingar innanlandsflug?
■ Flugmálastjórn og flug-
málanefnd eru að fara af stað
með könnun meðal farþega í
innanlandsflugi þar sem
spurt er um í hvaða tilgangi
ferðalag er farið, hversu oft
ferðast sé með innanlands-
flugi og hvaða ferðamáti er
helsti valkostur farþeganna.
Þá er og spurt um hvort
farþegar hafi einhvern tím-
ann fundið fyrir flughræðslu
og hvað farþegum þyki um
þjónustu viðkomandi flugfé-
lags. Einnig er spurt um
hvort farþegar notfæri sér
möguleika á vöruflutningum
með flugi og hversu góð sú
þjónusta sé hjá viðkomandi
flugfélagi.
Könnun þessi er gerð til að
öðlast betri þekkingu á flug-
venjum íslendinga en niður-
stöður verða ekki tiltækar
fyrr en á næsta ári. Þó má
vænta niðurstaðna úr fyrsta
úrtaki um miðjan þennan
mánuð.
Flogaveiki á íslandi:
50 - 70 tilfelli árlega