NT - 07.02.1985, Blaðsíða 23

NT - 07.02.1985, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 23 íslandsgangan ■ Á haustþingi SKÍ sem haldið var á Egilsstöðum 9.-H. nóv. s.l. varákveð- ið að koma á allt að 5 trimmgöngum fyrir al- menning sern kölluðust einu nafni íslandsgangan og væri hver þeirra a.m.k. 20 km. að lengd. Ákveðið var að mót þessi færu fram á eftir- töldum stöðum árið 1985: 16/2 á Egilsstödum, Skógargangan 20 km. 9/3 á Akureyri, Lambagangan 20 km 23/3 í Reykjavík, Þingvallagangan 42 km. 13/4 á Ólafsfirði, Lavaloppet 10-20-40 km. 4/5 á Isafirði, Fossvatnsgangan 24 km. Þátttaka í íslandsgöng- unni gefurstig og eru þau reiknuð út eftir röð kepp- énda í hverju göngumóti fyrir sig skv. reglugerð SKÍ um stigaútreikning í göngu. Samanlögð stig þátttakenda úr þrem þessara göngumóta ráða úrslitum um röð hans í íslandsgöngunni. Sigurvegari hlýtur ís- landsbikarinn sem er far- andgripur en auk þess skulu verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sæti í eftirtöld- um flokkum. konur 17-34 ára konur 35 ára og eldri karlar 17-34 ára karlar 35 ára og eldri. Þátttökutikynningu skal senda til viðkomandi skíðaráða en einnig má tilkynna skráningu í síma á viðkomandi stöðum sem hér segir: Á Egilsstöðum i síma 97-1353. á Akureyri i simum 96-22722 og 96-22930. í Reykjavík i símum 91-45473, 91-687000, 91-37392. Á Ólafsfirði í símum 96-62456, 96-62270, 96-62134. Á ísafirði í símum 94-3092, 94- 4162. Skráningu í allar göngurnar í heild má einnig tilkynna til Trimmnefndar SKÍ, Hafnar- stræti 81, Akureyri sími 96- 22722. ■ Bandaríska stúlkan Diann Roffe er hér borin í gullstól af þeim stúlkum er urðu henni næstar í stórsviginu í gær. Kirchler til vinstri og Twardokens til hægri. Símamynd: polfoto Enska knattspyrnan: Mark á lokasekúndunum -Thomas skallaði Chelsea í undanúrslit Frá Heimi Bergssyni fréttarítara NT í Eng- landi: ■ Það voru 36 þúsund áhorf- endur sem komu á Stamford Bridge til að fylgjast meðsínum mönnum Chelsea komast í undanúrslit í Mjólkurbikarn- um. Chelsea tókst loks að vinna sigur á Sheffield Wednesday í gærkvöldi, 2-1. Naumur var þó Knattspyrna: Portúgalir breyta ekki leikdögum - fyrir V-Þjóðverja ■ Portúgalir hafa ákveðið að breyta ekki leikdegi sínum og V-Þjóðverja í undankeppn' heimsmeistarakeppninnar knattspyrnu. Þessi lið eru öðrum riðli og höfðu Þjóðverj ar beðið um að leikurinn yrð færður fram unr einn dag, frá 24. febrúar til 23. febrúar. Þctta var gert fyrir ítölsku liðin Ver- ona og Inter Mílanó, sem þuria annars að sjá á eftir Hans-Peter Briegel og Karl-Heinz Rum- menigge. Nú er hins vegar ljóst að þeir verða að fá frí. Portúgalir sögðu að allur undirbúningur fyrir leikinn á þessum tiltekna degi væri það langt kominn að ekki yrði snúið við. Næsti leikur Portúgala í öðrum riðli er á móti Möltu og verður hann 10. febrúar. Þjálf- ari landsliðs Portúgal, Jose Torres, hefur valið 9 leikmenn frá Portó, sem er efst í 1. deildinni í liðið fyrir leikinn. Svíar, Portúgalir og V-Þjóð- verjar eru allir með 4 stig í riðlinum en eftir mismarga leiki. Svíar eftir 4, Þjóðverjar eftir 2 og Portúgalir eftir 3 Ieiki. Handknattleikur: Þrír í kvöld ■ Ikvöld verða þrírleikir í 1. deild íslandsmótsins í hand- knattleik . í Laugardalshöll verða tveir þeirra; Valur og Breiðablik eigast við kl. 20.00 ogstraxáeftireðaumkl.2 1:15 þá spila KR-ingar við Þrótt. í Digranesi er áætlaður einn leik- ur (sem þó var ekki fulljóst hvort af yrði er NT fór í prentun) það er leikur Stjörn- unnar og Víkings. Hann hefst kl. 20:10. Þessir leikir koma allir eftir nokkurt hlé á deildarkeppninni vegna farar landsliðsins til Frakklands þar sem það tók þátt í sterku móti eins og kunn- ugt er. HMíMexiki: FIFA ánægt ■ Forystumenn FIFA, alþjóðaknattspyrnu- sambandsins, hafa undanfarið skoðað að- stæður í Mexíkó, þar sem heimsmeistarakeppnin fer fram á næsta ári. Þeir skoðuðu meðal annars nýjan leikvang í Queret- aro en þar er eini nýi völlurinn sem byggður verður fyrir HM. Leik- vangurinn var vígður með leik Sviss og Búlgar- íu í fyrradag en síðan léku Mexíkanar gegn Pólverjum (sjá annars staðar). Hermann Neuberger, Joseph Blatter og Joao Havelange forseti FIFA, sögðust vera ánægðir með undirbúningsvinnu Mexíkana og bjuggust við að HM myndi ganga snurðulaust, þrátt fyrir nokkrar róstur í mexí- könskum stjórnmálum. Þeir ákváðu að tryggja keppnina fyrir 100 millj- ón dollara til öryggis „ef stríð skylli á, jarðskjálfti eða annað sem hindrað gæti að keppnin gæti farið fram.“ 24 þjóðir munu taka þátt í riðlakeppninni í Mexíkó og verður Ijóst í sumar hvaða þjóðir það verða. Raðað verður í riðla í desember eftir styrkleika liðanna. sigurinn því Micky Thomas skoraði sigurmarkið er um hálf mínúta var til leiksloka, og það með skalla. Paul Conanville gaf fyrir og litli titturinn stökk hæst og skallaði í netið. Sheffield hafði náð forystu í leiknum er Gary Sheldon skor- aði strax á 11. mínútu. Pat Nevin lék síðan á rangstöðu- gildru Sheffield á 30 mínútu og gaf fyrir þar sem Speedy var staddur og hann jafnaði fyrir Chelsea. Sigurmarkið kom svo í lokin. Chelsea er nú talið vera sig- urstranglegasta liðið í Mjólkur- bikarnum og leika þeir við Sunderland í undanúrslitum en í hinum leiknum mætast Ips- wich og Norwich. Leikurinn í gær var ekta bikarleikur, harð- ur og hraður en lítið um spil. Heimsmeistarakeppnin á skíðum: Óvænt hjá bandarískum - urðu í þremur af f jórum efstu sætunum í stórsvigi i gær ■ Lítt þekkt unglingsstúlka Diann Roffe frá USA sigraði öllum á óvart í stórsvigi á heimsmeistaramótinu í Santa Catarina á Ítallíu í gær. Roff hefur aldrei náð bctri árangri áður en að lenda í 9. sæti í heimsbikarkeppninni, en í gær náði hún fyrsta sætinu eftir að hafa verið t'immta eftir fyrri umferð. Eva Twardokens frá USA sem var fyrst eftir fyrri umfcrö endaði þriðja og þriðja amer- íska stúlkan, Debbie Armstrong, varð fjórða. Elisabeth Kirchler frá Austurríki kom í veg fyrir að Bandarfkin hirtu öll verðlaunin en hún varð önnur. Svissneska liðið var alveg heillum horfið og Maria Wallis- er varfyrst af þeim en hún lenti í 8. sæti. Erika Hess, fyrrum heimsmeistari í greininni og heimsbikarhafi. varð 11_. „Ég bjóst aldrei við að standa meö gulliö í lúkunum eftir keppnina. Þegarégkom hingað voru vonirmínaraðeins bundn- ar við að komast í bandaríska liðið," svaraði Diann Roffe. Roff var valin í liðið í staðinn fyrir Cindy Nelson á síðustu stundu og enginn bjóst við henni sem sigurvegara. Borðtennis: Reykjavíkurmót -fyrir árið 1984 ■ Reykjavíkurmótið í borð- tennis 1984 var haldið í Laugar- dalshöll á laugardaginn en ekki tókst að halda mótið á tilsettum tíma á síðasta ári. Keppt var í unglingaflokkum 17 ára og yngri og í llokki öldunga. Úrslit urðu þannig: Einliðaleikur öldunga: I. Halldór Haralz, Erninum 2. Jóhann Örn Sigurjónsson og 3. Gunnar Hall báðir í Erninum. Tvíöliðaleikur öldunga: 1. Halldór Haralz og Gunnar Hall, Erninum 2. Jóhann Örn Sigurjónsson og Þórður Þor- varðarson, Erninum 3. Árni Siemsen og Thomas Bartlet, Erninum. Drengir yngri en 13 ára: I. Sigurður Bollason Víkingi 2. Ólafur Stephensen Víkingi. Drengir 13-15 ára: I. Valdi- mar Hannesson KR 2. Kjartan Briem KR 3. Eyþór Ragnars- son KR. Drengir 15-17 ára: I. Hcr- mann Bárðarson Víkingi 2. Snorri Briem KR 3. Magnús Þorsteinsson KR. Stúlkur yngri en 17 ára: I. María Hrafnsdóttir Víkingi 2. María Sigmundsdóttir Víkingi 3. Hjördís Þorkelsdóttir Vík- mgi. Tvíliöaleikur drengja yngri en 15 ára: 1. Valdimar Hannes- son og Kjartan Briem KR 2. Ragnar Árnason og Eyþór Ragnarsson KR. Tvíliðaleikur drengja 15-17 ára: 1. Stefán Garðarsson KR og Jón Karlsson Erninum. 2. Friðrik Berndsen og Hcrmann Bárðarson Víkingi 3. Magnús Þorsteinsson og Snorri Briem KR. Tvíliðaleikur stúlkna: I. María Hrafnsdóttir og Hjördís Þorkelsdóttir Víkingi. 2. Hrafnhildur Sigurðardóftir og María Sigmundsdóttir Víkingi. Tvenndarleikur unglinga: 1. Birgir Ragnarsson KR og Mar- ía Hrafnsdóttir Víkingi. 2. Friðrik Berndsen og Hjördís Þorkelsdóttir Víkingi 3. Her- mann Bárðarson og Hrefna Halldórsdóttir, Víkingi. Reykjavíkurmótið gekk vel fyrir sig og var hart barist í öllum flokkum og keppnin mjög spennandi að mati þeirra sem fylgdust með. Síðar verður haldið Reykjavíkurmót 1984 fyrir karla og kvennaflokk. Reykjavíkurmótið 1985 verður væntanlega haldiö næsta haust. ■ Knattspyrnusnillingur- inn frá árum áður Sir Stanley Matthews, sem lcngi spilaði með Stoke og Blackpoo|, varð sjötugur um daginn. Kappinn heldur sér í fínu formi og var hinn hressasti er hann tók á móti gestum á hóteli í Tórontó í Kanada. Alls mættu um 1000 manns til að heiðra hann. Sir Stanley spilaði í ensku 1. deildinni allt til fimmtugs, alls 33 keppnistímabil. Þá lék hann 88 landsleiki fyrir England,spilaði í þremur úr- slitaleikjum í ensku bikar- keppninni og tók þátt í tveimur heimsmeistara- keppnum. Hann segir að ein helsta ástæðan fyrir hressleika sínum sé sú að hann reykti aldrei og smakkaði aldrei sterk vín. Þá hefur hann haldið sér í líkamlegri þjálfun allan þennan tíma. Skiði: Andrés Önd í Hlíðarfjalli ■ Andrésar Andar- lcikarnir í ár fara fram á Akureyri dagana 24.-27. apríl næstkomandi. Keppt verður í Hliðar- fjalli en þátttakendur munu búa í Lundarskóla. Þátttökutilkynningar skulu berast til fram- kvæmdanefndar leikanna í pósthólf 706 á Akureyri fyrir 9. apríl. Keppt verð- ur í eftirtöldum greinum: Svig og stórsvig: 7, 8,9,10,11 og 12 ára drengir og stúlkur Ganga: 12ára drengir og stúlkur 2,5 km llára — — 2,0 km lOára — — 1,5 km 9ára — — 1,0 km Stökk: 9,10,11 og 12 ára drengir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.