NT - 07.02.1985, Blaðsíða 22
Skautar:
Þrefalt hjá
Sovétmönnum
■ Nú stendur yfir í
Gautaborg í Svíþjóð Evr-
ópumeístarainót í list-
lilaupi á skautum. Eins
og svo oft á þessum mót-
uin þá einoka austan-
tjaldsþjóðirnar nær öll
verðlaunasæti. Sovét-
menn byrja með stæl því
þeir áttu þrjú efstu pörin
í parakeppninni.
Sigurvegarar urðu El-
ena Valova og Oleg Vasi-
liev en í næsta sæti urðu
Larisa Selzneva og Oleg
Makarov.
• ■■■’
Wmm"
Fimmtudagur 7. febrúar 1985 22
Ingemar Stenmark:
■ Ingemar Stenmark (að ofan) á fullri
ferd í svigi. Hans aðalkeppinautur og sá
sem er talinn líklegastur til að vinna
svigið er Girardelli (til hliðar). Báðir eru
frábærir skíðamenn. •
Handknattleikur:
Þórarar urðu
Eyjameistarar
Frá Sigfási Guðmundvsyni fréttarilara NI í
Vestmannaeyjum.
■ Þór og Týr léku í gær seinni
leik sinn í Vestmanneyjamót-
inu í handknattleik og sigruöu
Þórarar með 22 mörkum gegn
16.
Þórarar byrjuðu betur og
komust í 3-0 en Týr jafnaði 4-4
og náði svo forystunni 7-5. Þór
jafnaði 7-7 og þannig var staöan
í hálfleik. í seinni hálfleik skor-
uðu Þórarar I5 mörk gegn 9 og
sigruðu örugglega.
Gylfi Birgisson er byrjaður
að leika ntcð Þór að nýju og
skoraði hann 6 mörk. Sigbjörn
og Sigurður geröu 4, Óskar 3
en aðrir færri. Fyrir Tý skoraði
Benedikt Guðbjartsson mest
eða 5 mörk.
Þess má geta að Signtar
Þröstur, markvörður Þórs, cr
meiddur en í hans stað léku
Viðar Einarsson og Gunnar
Leifsson sern lék í seinni hálf-
leik og varði I3 skot. Hann á
framtíðina fyrir sér, aðeins I7
ára gamall. Bræöurnir Jón
Bragi og Ingólfur skiptust á að
verja mark Týs, Jón varði ll
skot og citt víti cn Ingólfur 3 og
eitt víti.
Teksthonum
að sigra í
svigi á
Þá yrði það í fjórða sinn í röð - Girardelli
er talinn sigurstranglegastur
vinna það þrisvar i röð,“ segir
Blak:
Landsliðið valið
Leikur þrjá leiki gegn Færeyingum í næstu viku
■ Fyrirhugaðir eru 3 lands-
leikir í blaki við Færeyinga,
bæði í karla- og kvennaflokki.
Leikið verður í Færeyjum, í
Þórshöfn 13. og 15. febrúar og
í Klakksvík 14. febrúar.
Guðmundur E. Pálsson,
þjálfari karlaliðsins hefur valið
eftirtalda leikmenn til fararinn-
ar:
Hreinn Þorkelsson
Ástvaldur Arthurson
Kristján M. Unnarsson
H.K.
H.K.
Fram
Þorvarður Sigfússon Í.S.
Haukur Valtýsson Í.S.
Samúel Ö. Erlingsson Þrótti
Jón Árnason Þrótti
Leifur Harðarson Þrótti
Lárentsínus H. Ágústsson Þrótti
Guðmundur E. Pálsson Þrótti
Björgólfur Jóhannsson og
Leifur Harðarson, þjálfarar
kvennaliðsins, hafa valið eftir-
talda leikmenn:
Jóhanna Guðjónsdóttir Völsungi
Gyða Steinsdóttir j.s.
Þóra Andrésdóttir j.s.
Málfriður Pálsdóttir j.s.
Snjólaug Bjarnadótt;r Þrótti
Steina Ólafsdóttir Þrótti
Hulda Laxdai Hauksdóttir Þrótti
Sigurborg Gunnarsdóttir U.B.K.
Sigurlín Sæmundsdóttir U.B.K.
Þorbjörg Rögnvaldsdóttir U.B.K.
Það er nú aðeins um mán-
uður þar til Ingcmar Stenmark
verður 29 ára og samt segist
kappinn, sem keppt hefur í
meira en áratug, vera tauga-
strekktur fyrir öll mót. Er ég
var um tvítugt þá hvarf þessi
spenningur að mestu. Nú þcgar
ég er orðin 28 ára er ég spennt-
ari en fyrr vegna þess að ég hafði
tapað svo mörgum mótum að
undaförnu. Ég Finn líka spenn-
una vegna þess að nú er ég í
heimsmeistarakeppni og henni
fylgir alltaf spennaþ sagði
Stenmark.
Stenmark vann sigur í heims-
bikarkeppninni alls þrívegis.
Hann vann bæði svigin í heims-
meistarakeppninni árið l978og
aftur 1980 þá vann hann svigið
í keppninni 1982.
„Þetta er alltaf að verða
erfiðara og erfiðara. Það er
orðið nær ómögulegt að fylgja
þessum ungu skíðamönnum
eftir. Þeir ná alltaf meiri og
meiri hraða," bætir Stenmark
við. Hann vonast þó til aó ná
sér í gullverðlaun á heims-
meistaramótinu í Bormio.
„Vonandi tekst mér að vinna
svigið, því mér hefur tekist að
Knattspyrna:
Stórsigur Mexíkana
- á taugaóstyrkum Pólverjum
■ Mexíkanar gjörsigruðu
taugaóstyrka Pólverja sem léku
langt undirgetu, í vináttulands-
leik í knattspyrnu í Queretaro
í Mexíkó í fyrradag. Lciknum
lauk með 5-0 sigri Mexíkana
sem með þesstlm sigri sýna að
þeir verða engin lömb að leika
sér viö úrslitum heimsmeistara-
keppninnar sem fram fer í Mex-
íkó á næsta ári.
Manuel Negrete, miðvallar-
leikmaðurin stórgóði hjá Mex-
íkó átti miðjuna og stjórnaði
leik liðs síns vel og var pottur-
inn og pannart í frjóuin sókriar-
leik Mexíkana. Vörnin var einn-
ig mjög örugg og þetta kunnu
42.000 áhorfendur sannarlega
vel aö meta.
Negrete skoraði 2 mörk í
leiknum, á 13. rnínútu eftir að
markvörður pólska liðsins
hafði hikað og hitt skoraði
hann með skalla á 65. mínútu
óvaldaður í vítateignum.
Framherjinn Tomas Boy
skoraði fyrsta markið og einnig
það glæsilegasta. Eftir 9 mín-
útna leik þrumaði hann af 25
metra færi úr aukaspyrnu 1
framhjá varnarveggnum og í
blá hornið. Hin mörkin voru
bæði skallamörk. Varnarmað-
urinn Felix Cruz á 27. mínútu
og varamaðurinn Luis Flores á
60. mínútu.
Markverði Pólverja Jacek
Karzimiensky var skipt út af á
73. mínútu. Pólverjarnir sökn-
urðu Bonieks sáran, en hann
fékk ekki ifrí hjá Juventus til
aðspila leikinn.
Lárentsínus Ágústsson Þrótti er einn landsliðsmannanna.
Jan Molby hjá Liverpool:
Metnaður minn er mikill
Vill frekar spila með landsliðinu en
verma bekkinn hjá Liverpool
Frá Samuel Krni í Kaupannahöfn:
■ Jan Molby, danski atvinnu-
knattspyrnumaðurin sem leik-
ur með Liverpoo! er orðinn
óþolinmóður, enda þurft að
verma varamannabekkinn
lengi undanfarið og stundum
ekki verið í liðinu.
Jan Molby í búningi Liverpool. Fer hann burt fljótlega?
„Ég vil frekar leika með
landsliði Danmerkur í heims-
meistarakeppninni heldur en
að vera varamaður í Liver-
pool,“ sagði Molby í viðtali við
danska blaðið „Extrabladet" í
gær.
Eftir tvo daga getur hann
flutt inn í nýja húsið sem Li-
verpool hefur látið honum í té.
Hann hefur haft nógan tíma til
þess að innrétta og koma sér
fyrir því liðið hefur ekki notað
hann síðasta mánuðinn.
Þetta hefur Mólby mátt þola
ásamt mörgum stórstjörnum
hjá Liverpool, meðal annars
Sammy Lee sem á að baki tugi
landsleikja fyrir England.
Mólby gerði stjórn Liverpool
fyrir stuttu grein fyrir því að
hann vildi fara til annars liðs
sem hefði ekki 18 stórstjörnur
til að keppa um 11 sæti, heldur
færri stjörnur og hann gæti
fengið að spila.
Stjórn Liverpool tók ekki
meira mark á þessu en svo að
þeir hafa enn ekki svarað
honum, enda vanir að eiga við
unga leikmenn sem eru óþolin-
móðir og vilja komast í liðið.
Joe Fagan, framkvæmda-
stjóri hefur margoft lýst því yfir
að Mölby sé mjög góður
leikmaður, en það dugir ekki
til þegar þar eru 18 stjörnur,
hver annarri betri.
„Eg vil fara því ég er sann-
færður um það að Sepp Piontek
hættir að velja mig í danska
landsliðið ef ég er ætíð vara-
skífa hjá Liverpool. Ég vil
frekar leika 8 heimsmeistara-
keppninni með danska landslið-
inu, þó ég viti að það þýðir
talsvert mikið tekjutap, þ\í ég
fæ ekki eins góðan samning
annars staðar. En metnaður
minn sem knattspyrnumaður
er ríkari peningaþörfinni. Ég
vil ná árangri og taka framför-
um með því að spila fótbolta.
Vissulega væri gaman að fá
aftur tækifæri hjá Liverpool til
að sanna getu mína en ég er
hræddur um að það tækifæri
komi ekki," sagði Jan Mólby.
Stenmark.
Hann veit að einn af aðal-
keppinautum hansverðurMarc
Girardelli. Austurríkismaður-
inn sem keppir fyrir Lúxem-
borg. „Girardelli veit ekki hvað
raunveruleg spenna er, hann
hefur aldrei keppt á heims-
meisfaramóti né á ólympíuleik-
um. Hann er þó sá sigurstrang-
legasti og hann mun skíða vel,"
segir Stenmark.
Stenmark hefur ekki enn á-
kveðið hvort hann leggi skíða-
keppnir til hliðar cftir þetta
keppnistímabil. „Það getur
verið að ég fari að snúa mér
eingöngu að svigi og hætti þátt-
töku í hinum greinunum, en
það kemur í Ijós," segir
þessi lifandi sænska goðsögn.
Ingemar Stenmark.
Nýr þjálfari
hjá Brössum
■ Knattspyrnusamband
Brasilíu hefurráðið Evar-
isto Macedo aðalþjálfara
landsliðsins fyrir heims-
mcistarakeppnina sem
framundan er.
Macedo þáði boð
knattspyrnusambandsins
eftir að Ijóst var að knatt-
spyrnufélagið Al-Ahli í
Saudi-Arabíu neitaði að
láta Tele Santana lausan.
Brasilíuinenn hafa
reynt allt hvað af tekur
að fá arabíska liðið til að
slíta sániningi sinum við
Santana svo hann geti
byrjað strax með lands-
liðið sem á að leika í
undankeppninni í sumar.
Það tókst ekki og þcgar
ekki reyndist heldur unnt
að fá Mario Zagalo, sem
leiddi Brasilíu til sigurs í
hcimsnieistarakeppninni
árið 1970, til starfans
af fjölskyldu ástæð-
um var ákveðið að tala
viö Maccdo.
Macedo sagöi á blaða-
mannafundi að hann
niyndi hefja störf strax.
„Ég hef frest fram í apríl
til að tilkynna 22 manna
landsliöshóp. Það er allt-
of sncmnit að segja nokk-
uð strax“ sagði hann.
„Brasilíumenn sem leika
á Ítalíu verða valdir eftir
því hvernig þeir standa
sig með liðum sínum.
Enginn verður valinn í
hópinn af frægðinni einni
saman. Ég mun velja þá
sem leika vel á þeim tíma
sem undirbúningurinn fer
frain“.
Brasilíumenn leika í 3
riðli með Bólivíu og Par-
aguay í undankeppninni í
Suður-Ameríku.
Knattspyrna:
Sovét-sigur
■ Sovétmenn sigruðu á
knattspyrnunióti sem fram
fór í Indlandi um helgina.
Þeir sigruðu Júgóslava i
úrslitaleik 2-1. Keppnin
hét Jawaharlal Nehru
Gull-kcppnin.