NT - 07.02.1985, Síða 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?!
HRINGDU ÞA i SÍMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir alian sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • sþróttir 686495
.
Mjólkursamsalan
Góðar stundir
með MS sam-
lokum -hvar
oghvenær
sem er.
■ Slökkviliðsmenn hafa borið logandi dýnu út úr húsinu og
eru að slökkva í henni. NT-mynd: Sverrir
■ í gærmorgun var slökkvilið Hafnarfjarðar kvatt að
tveggja hæða íbúðarhúsi að Ásbúð 84 í Garðabæ. Eldur var
laus á neðri hæð hússins og var mikill reykur í íbúðinni.
íbúarnir voru hdma, þegar eldurinn kom upp, í barnaher-
bergi, en gátu þeir forðað sér áður en illa fór. Slökkvistarf
gekk greiðlega en talsvcrt tjón varð af völdum elds og sóts.
Þórður segir „hjálparkokkinn“ vera aðalmann
Að refsing sú sem William
Scohic var dæmdur til í Saka-
dómi Reykjavíkur, verði ekki
milduð, og refsing Ingvars
Þórðarsonar verði þyngd til
muna, var krafa Þórðar Björns-
sonar ríkissaksóknara í mái-
flutningi hans fyrir Hæstarétti í
gær en þar var tekið fyrir banka-
ránið þegar starfsmönnum
ÁTVR var ógnað meö afsagaðri
haglabyssu og þeir neyddir til
að láta af hendi nærri tvær
milljónir króna sem þeir voru
þá að láta í næturhólf Lands-
bankans við Laugaveg 77.
Ríkissaksóknari fór einnig
fram á þyngingu refsingar föður
Williams fyrir yfirhylmingu,
geymslu og nýtingu á ránsfengn-
um. I Sakadómi var William
dæmdur til 5 ára fangelsisvistar
fyrir stuld á hagktbyssu úr versl-
uninni Vesturröst.fyrir að ógna
leigubílstjóra með byssunni og
neyða hann til að afhenda sér
bílinn og loks sjálft pcningarán-
ið. Ingvar var í Sakadómi dæmd-
ur til 18 mánaða fangelsisvistar
fyrir þátttöku í tveim síðast-
■ Verjendur hinna akærðu í bankaránsmálinu djúpt hugsi í Hæstarétti í gærdag. Talið frá vinstri, Örn
Clausen hrl. verjandi Ingvars Þórðarsonar, Jón Oddsson hrl. verjandi Williams James Scobie og Hilmar
Ingimundarson hrl. verjandi Griffith David Scobie. ..........
töldu ákæruatriðunum og faðir
Williams, Griffith Scobie í sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir yfirhylmingu, geymslu á
ránsfengnum og að skipta ein-
hverju af fénu í dollara, að eigin
sögn sem farareyri handa Will-
iam þegar hann færi úr landi.
Þeir feðgar voru handteknir á
sínunt tíma þegar William var
að fara um borð í flugvél á leið
til Bandaríkjanna.
Verjendur sakborninga kröfð-
usl allir að dómur Sakadóms yrði
mildaður og fór verjandi Griff-
ith fram á að hann væri sýknað-
ur af öllum ákæruatriðum. Þá
fóru allir verjendur fram á að
bótakröfu áfengisverslunarinn-
ar yrði vísað frá vegna þess að
hún væri sett einhliða fram.
Stór hluti þýfisins var í ávís-
unum og eyðilagði Scobie þær.
ÁTVR leggur fram ákveðna
kröfu þar sem segir að heildar-
upphæðin hafi verið l.839.135
þúsund og þar af 368.732 í
ávísunum. Er krafist bóta fyrir
það fé sem ekki skilaði sér til
ÁTVR, vaxta af öllu fénu frá
rándegi og bóta vegna viðgerðar
á biíreið ÁTVR manna. Þessu
mótmæltu lögmenn þar sem
enginn rökstuðningur sé fyrir
þessari upphæð í kröfu ÁTVR
og ekki fordæmi fyrir því að
dómstóll viðurkenni slíka kröfu
möglunarlaust. Fyrir Sakadómi
voru sakborningarnir þrír
dæmdir til að greiða bótakröf-
una vegna ávísananna í santein-
ingu, allir fyrir einn og einn fyrir
alla.
í málflutningi sínum gerði
Þórður Björnsson mikið úr mis-
ræmi í málflutningi Ingvars
Þórðarsonar og krafðist þess að
Ingvar yrði dæmdur í þessu máli
sem aðalmaður í bæði sjálfu
ráninu og töku leigubílsins.
Ingvar vitnar sjálfur að þar sem
hann hafi beðið Williants í bíln-
um þeirra félaga hafi hann á-
kveðið að stöðva „þessa vit-
leysu“ og gengið niður að
Landsbankahúsinu en gripið í
tómt. Síðan rekið fótinn í einn
af peningapokum ÁTVR sem
William hafði misst. Hann hafi
þá hraða sér með pokann á
brott. „Við hjá ákæruvaldinu,"
sagði Þórður Björnsson þegar
hann vék að þessu máli, „við
álítum að Ingvar hafi ætlað
að athuga hvort ránið hefði ekki
heppnast.þá hafi ákærði ætlað
að flýta sér upp í Brautarholt
aftur og aka á brott og segjast
svö ekkí hafa komið neitt nálægt
ráninu". Þessum fullyrðingum
Þórðar „um það hvað Ingvar
kunni að hafa hugsað", vísaði
Örn Clausen hrl. verjandi Ing-
vars á bug og minnti á að í þessu
NT-mynd: Sverrir
máli væri ekki við annað að
styðjast en málsskjöl.
Verjandi Williams Jón Odds-
son hrl. lagði áherslu á að hér
væri á ferðinni óharðnaður ung-
ur maður. Vitnaði hann þar í
geðrannsókn sem bendir til slæ-
legra raunveruleikatengsla og
William þar sagður barnalegur
og draumórakenndur. Þá benti
Jón á að ekki hefði verið um
eiginlegt auðgunarbrot að ræða
heldur hefði William ætlað að
hjálpa foreldrum sínum sem
áttu í alvarlegum fjárhagsvand-
ræðum og fólki unnustu sinnar í
Breiðholti. Þetta vitnaði Will-
iam strax í upphafi og þá strax
við játningu sagði Jón að hann
hafi skýrt samviskusamlega frá
öllum málavöxtum,
Málflutningi er ekki lokið.
107 andstæðingar ratsjárstöðva við Þistilfjörð:
Senda bænaskrá til
ríkisstjórnarinnar
■ „Samviska okkar, sem rit-
um nöfn okkar á þessa bæna-
skrá, neyðir okkur til að mót-
mæla framkomnum hugmynd-
um um byggingu ratsjárstöðvar
á Langanesi vegna þess m.a. að
við erum þeirrar skoðunar að
þær auki á þá vígvæðingu þjóð-
anna sem stefnir jarðarbyggð í
geigvænlega hættu.” Þannig
hljóðar upphaf bænaskrár, sem
107 íbúar við Þistilfjörð hafa
undirritað og forsætisráðherra
var aflient í gær.
í textanum segir ennfremur
að þeir sem undir hana rita
óttist að heimabyggð þeirra
verði að skotmarki verði byeg-
ing ratsjárstöðvanna leyfð. Ör-
yggi íslenskra loft- og sæfarenda
verði íslendingar að tryggja
sjálfir.
„Við álítum að voðinn felist
ekki einungis í beitingu vígbún-
aðarins, heldur ali tilvist hans
jafnframt á tortryggni, ótta og
hatri, og við óttumst að fjárfest-
ingar í umræddum stöðvum hér
á landi kalli á fjárfrekar frant-
kvæmdir annars staðar. Slíka
sjálfvirkni síaukins vígbúnaðar
ber að stöðva. Því verða góðvilj-
aðir menn nú að einsetja sér að
snúa farnaði veraldar af þessari
braut,“ segir í textanum og í
lokin er borin upp sú bæn við
ríkisstjórnina að hún leyfi ekki
uppsetningu umræddra ratsjár-
stöðva hvorki á Langanesi né
annars staðar.
Tillögur Alþýðubanda-
lagsins í húsnæðismálum:
5000 íbúðir
byggðará
fimm árum
- skattheimta aukin um
1400 milljónir á árinu
■ „Þetta er útfærsla á
slagorðinu að flytja fjár-
magn frá milliliðunum,“
sagði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubanda-
lagsins um tekjuöflun til
húsnæðismála, á blaða-
mannafundi er hann og
Steingrímur Siglusson,
þingmaður og varamað-
ur í stjórn Húsnæðis-
málastofnunar boðuöu
til í tilefni af frumvarpi
Alþýðubandalagsins um
ráðstafanir í húsnæðis-
málum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir I
að veitt verði lán, sem nemi !
75% byggingakostnaðar, fyr-
ir 1000 íbúðir á ári næstu
fimm árin. og að auki að
gerðar verði ráðstafanir
vegna þeirra sem keypt hafa,
eða byggt á síðustu árum, og
lent hafa í kröggum vegna
kjaraskerðinga og okurvaxta
á lánum.
Þá gerir frumvarpið ráð
fyrir að húsnæðissamvinnufé-
lög fái fulla aðild að hús-
næðislánakerfinu, og einnig
að Byggingasjóður verka-
rnanna fái 100 milljónir á ári,
til byggingar leiguíbúða.
I frumvarpinu er gert ráð
fyrir að fjármagns verði aflað
með tímabundnum veltu-
skatti á verslun, skipafélög
og banka. Skatti á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði, skatti
af vaxtatekjum, af innistæð-
um hærri en 4 milljónir, og
með gjaldi á viðskipti með
skulda- og verðbréf og á
þóknun fasteignasala. Þá er
gert ráð fyrir beinum fram-
lögum ríkissjóðs.
Vopnaða ránið við Laugaveg 77 fyrir Hæstarétti:
Bankaræninginn barns-
legur draumóramaður
íbúð skemmdist
mikið í eldi