NT - 16.02.1985, Page 1
Hæstiréttur dæmir í ÁTVR ráninu:
William Scobie dæmdur
í fimm ára fangelsi
- Ingvar Heiðar fékk tveggja og hálfs árs fangelsi
■ Hæstiréttur dænrdi í
gær Williant James Scobie
til fimin ára fangelsisvistar
fyrir að hafa rænt tæpum
tveim milljónum króna af
starfsmönnum ÁTVR fyr-
ir utan útibú Landsbank-
ans við Laugaveg fyrir
tæpu ári. Þetta var stað-
festing á dórni Sakadóms
Reykjavíkur en aðstoðar-
maður Willianrs, Ingvar
Heiðar Þórisson var hins-
vegar í Hæstarétti dæmdur
í tveggja og hálfs árs fang-
elsi en í sakadómi var
hann dæmdur til 18 mán-
aða fangelsisvistar.
Faðir Williams. Griffith
Scobie. var dæmdur í sex
mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir yfirhylmingu
en það var einnig staðfest-
ing á dómi sakadóms.
Skaðabótakröfur ÁTVR
vegna ávísana sem eyðí-
lagðar voru, voru einnig
teknar til greina í Hæsta-
rétti.
Nánar veröur gerð grein
fyrir dómi Hæstaréttar og
forsendum hans eftir helg-
ina.
Lét sig hverfa úr
sendiferð í banka
með 300 þús. kr.
■ Maður sem fyrir
nokkrum dögum stakk af
nteð 300 þúsund krónur
sem honuni hafði verið
falið að konta í banka var
handtekinn af lögreglu í
fyrrinótt. Enn cr ekki
vitaö hversu miklu cf
nokkru af þýfinu ntaður-
inn hefur eytt.
Málavextir eru þeir aö
afgreiöslumaður í blóma-
búö bað umræddan mann
að konta pcningum, hátt
á þriðja hundrað þúsund
króna, fyrir sig til geymslu
í banka. Mennirnir tveir
þekktust vel en engu að
síður lét sendisveinninn
sig hverfa og fannst nú
nokkrum döguni eftir
stuldinn.
Að sögn Arnars Guð-
mundssonar hjá RLR
verður væntanlega farið
frant á um það bil 10
daga gæsluvarðhald yfir
manninunt. Maðurinn er
á þrítugsaldri og hefur
áður komið við sögu lög-
reglu.
Nýjar samþykktir stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins:
Ríkið hætti að styrkja
íbúðarhallarbyggjendur
■ Yegir liggja til
allra átta, enginn ræð-
ur för. Það er nú ekki
alveg víst aö þessi
stúlka ráði ekki sinni
för, því allavcga stefn-
ir hún upp á við, í ekki
ómerkari byggingu en
nýju hugvísindastofn-
un Háskóla íslands.
■ „Stórhýsabyggjendur“ verða
hér eftir að byggja „hallir" sínar
án lánafyrirgreiðslu Byggingar-
sjóðs ríkisins ef nýjar samþykktir
stjórnar Húsnæðismálstofnunar
ríkisins, sem sendar hafa verið til
félagsmálaráðherra, verða að
veruleika. Samkævmt heimildum
NT hljóta þeir húsbyggjendur ein-
ir full nýbyggingarlán sem byggja
hús/íbúðir innan ákveðinna stærð-
armarka. Lánin skerðast síðan
hlutfailslega með aukinni íbúða-
stærð og fari íbúð yfir ákveðin
stærðarmörk fær viðkomandi ekk-
ert lán. Þannig verður „vísitölu-
fjölskyldan" (2ja-4ra manna) hér
eftir að byggja innan við 120
fermetra íbúð til að eiga rétt á
fullu láni. Fermetramálið er þá
miðað við innanmál útveggja.
Stjórn Húsnæðisstofnunarhefur
lagt til, að hluti af því fjármagni
sem komi til með að sparast með
setningu hinna nýju stærðarreglna
verði notaður til að hækka sérstak-
lega lán til þeirra sem eru að
eignast sína fyrstu íbúð.
Stjórn Húsnæðisstofnunar mun
ganga út frá þrent stærðum fjöl-
skyldna og íbúðarstærða varðandi
rétt til hámarksláns. Full lán til
einstaklinga miðast við íbúð undir
85 fermetrum, til 2ja-4ra manna
fjölskyldna undir 120 fermetrum
og til stærri fjölskyldna íbúðir
undir 140 fermetrum. Lánsréttur-
inn skerðist síðan unt 10-25% fyrir
hverja 10 fermetra sem bætast við
íbúðastærðina-því meiri skerðing
sem stærra er byggt - uns lánsrétt-
ur fellur að fullu niður. Þannig fær
einstaklingur sem byggir 145 ferm.
íbúð eða stærri ekkert lán. Hjá
2ja-4ra manna fjölskyldu fellur
lánsréttur niður við 180 fm. eða
stærra og hjá 5 manna fjölskyldu
eða stærri er hámarkið um 200
fermetra íbúð.
Sömuleiðis ntun framvegis gert
ráð fyrir að þeir sem áður hafa
fengið full nýbyggingarlán úr
Byggingarsjóði ríkisins eða Bygg-
ingarsjóði verkamanna, og eiga
íbúð sem telst fullnægjandi miðað
við framangreindar stærðarreglur
fái að hámarki % nýbyggingarláns
á hverjum tíma og þau lán verði
síðan skert eftir sömu stærðarregl-
um og að framan greinir. Lánstími
til þessa hóps verður jafnframt
styttur niður í 15 ár. •
Rætt um nýtt til<
boð útgerðarmanna
■ Á fundi samninganefnda
sjómanna og útgerðarmanna
var í gærkvöldi rætt saman á
grundvelli tilboðs þess sem út-
gerðarmenn lögðu fram varð-
andi kaupliði og kauptryggingu
sjómanna um kvöldmatarleytið
í gærkvödli. Að sögn ríkissátta-
semjara er þarna um að ræða
erfiðasta þáttinn af þeim sem
enn er ósamið um. Taldi hann
framhaldið því velta mjög á því
að samningar takist um þessi
atrfði.
Miðað við ganginn í samn-
ingamálunum að undanförnu
var Kristján Ragnarsson hjá LIÚ
nokkuö bjartsýnn á að sjó-
mannadeilan muni leysast áður
en til verkfalla komi.
Samningar um lífeyrissjóða-
málin voru komnir í höfn í gær.
Kristján sagði lífeyris-
greiðslurnar verða af öílum
launum sjómanna að nokkrum
tíma liðnum - tímamörkin færu
eftir samningstímanum.
Heimsmeistaraeinvígi
lokið án sigurvegara
■ „Þetta kemur mér kyndug
lega fyrir sjónir og býst ekki virt
að ég sé einn um það,“ sagði
Friðrik Ólafsson skrifstofu-
stjóri Alþingis og fyrrum for-
seti Alþjóðaskáksambandsins,
FIDE, í samtali við NT í gær.
Campomanes, forscti FIDE
ákvað í gær að heimsmcistara-
einvíginu í Moskvu, sem staöið
hefur yfir síðan í september
skyldi frestað til scptember á
komandi hausti.
Ákvörðun Campomanesar
mun ekki eiga sér hliðstæðu í
skáksögunni, en hann hefur
látið boð út ganga um að ein-
vígið í haust skuli vera hámark
24 skákir, en til þess að breyta
cinvígisreglunum þarf meira en
ákvörðun forsetans, þing FIDE
þarf að samþykkja þær.
Fregnir frá Moskvu herma
að Kasparov og aðstoðarmenn
hans hafi tekið frestuninni með
mikilli reiði og Kasparov mun
hafa stormað út af blaða-
mannafundi í gær. Karpov
mætti þar hins vegar öllum á
óvart og hafði uppi spaugsyrði.
„Fregnir um andlát mitt eru
stórlega ýktar," sagði heims-
meistarinn.
En verður litið á hann sem
raunverulegan hcimsmeistara
eftir þetta? „Karpov er verðug-
ur alls trausts og stendur fyrir
sínu, en það verður tæplega
hægt að segja að hann komist
með sóma frá þessu og þess
vegna er alls ekki búið að skera
úr um það hvor sé verðugri
heimsmeistari," sagði Friðrik
Ólafsson.
Kísilmálm-
verksmiðjan og
Voest Alpine:
Góður tónn í
viðræðunum
■ „Tónninn var mjög
góður. eins og alltaf et' í
viðræðum á frumstigi,"
stigöi Geir A. Gunnlaugs-
son framkvæmdastjóri
Kísilmálmvinnslunnar í
fyrradag, eftir viðræöur
við fulltrúa austurríska
fyrirtækisins Voest Alpine
um hugsanlega þátttöku
þess í kísilmálmverk-
smiöju á Reyðarfirði. Aö
öðru leyti viidi hann ekki
tjá sig um hvaö þeim fór á
milli.
Geir sagöi, að Austur-
ríkismennirnir hefðu feng-
iö upplýsingar um fyrir-
hugaöa verksmiðju, sem
þeir rnyndu síöa'n skoöa.
Austurríkismennirnir
fóru austur á Reyðarfjörð
í gær til þess aö skoða
verksmiöjustæöið, en
heim halda þeir í dag.