NT - 16.02.1985, Blaðsíða 2
EE
Laugardagur 16. febrúar 1985 2
Þingvellir:
Helgarpóstsviðtal salt í sár Alþýðuflokksmanna:
Ámundi verður
aldrei fram
Sumarbústöðum fjölgað | kvæmdastjóri
eða stærri þjóðgarður
■ Skipulag ríkisins hefur nú
ööru sinni til meöferöar erindi
er varöar ráöstöfun tuttugu
hektara landsvæöis undir
sumarbústaði í Þingvallasveit,
nánar tiltekið í landi Mjóaness.
Mál þetta kom áöur til kasta
ríkisskipulagsins fyrir áramót,
en þá var erindi landeigendanna
hafnað á grundveili umsagnar
Náttúruverndarráös sem lagöist
gegn erindinu.
Hefur hreppsncfnd l’ing-
vallahrepps nú látið málið til sín
taka, og sent Skipulagi ríkis-
ins, Náttúruverndaráði og Þing-
vallancfnd, erindi sama efnis
með breytta staðsetningu
sumarbústaöalóöanna í huga.
Að sögn Þorsteins Pálssonar,
alþingismanns sem á sæti í Þing-
vallanefnd, þá er land þctta
utan þjóðgarðsins, cn þar scm
lengi hafa verið uppi áform um
að stækka þjóðgarðinn, þá var
erindi landeigcndanna ekki
samþykkt ásínum tíma. Máliðer
nú tekió upp á nýjan leik á þeim
forsendum að um nýja staðsetn-
ingu sé að ræða.
Ingólfur Guðmundsson, odd-
viti hrcppsncfndar Þingvalla-
hrepps tjáði NT að jarðanefnd
Arnessýslu og Búnaðarfélagiö
hefðu sanrþykkt erindi hrepps-
nefndar að þessu sinni, á grund-
velli nýrrar staðsetningar.
„Upphaflega hafnaði Þingvalla-
nefnd crindi okkar því þeim
þótti of mikiö að sér þrengt. Nú
höfum við boðist til að færa
landið ofar og sunnar, en upp-
haflega var áætlað og höfum við
sent Náttúruverndarráði, og
skipulagi ríkisins afrit af því
erindi", bætti hann við.
Eyþór Einarsson, formaður
Náttúruvcrndarráðs sagði í
samtali við NT, aö fyrir rúmum
áratug hafi veriö efnt til sam-
keppni um skipulag Þingvalla-
svæðisins, og þær úrlausnir sem
verðlaunaðar voru, gerðu allar
ráð fyrir stækkun þjóðgarðsins.
Þar með hefði verið tekin ák-
veðin stefna á málefnum þjóð-
garðsins, og hefði umsögn Nátt-
úruverndarráðs mótast af því.
„Við teljum að vaxandi fólks-
fjöldi á Reykjavíkursvæðinu
kalli á mun stærra svæði en
þjóðgarðurinn spannar núna.
Það hefur verið þrengt það
rnikið að honum með sumarbú-
stöðum að það er kominn tími
til að sporna gegn því.“
Samkvæmt upplýsingum Zóf-
oníasar Pálssonar, skipulags-
stjóra ríkisins, þá verður mál
þetta tekið upp á nýjan leik
næsta miðvikudag, en þó ekki
afgreitt án samráðs við Náttúru-
verndarráð og Þingvallanefnd.
Aðspurður hversvegna ekki
væri fyrir löngu búið að stækka
þjóðgarðssvæðið, úr því vilji
væri fyrir hendi, sagöi Zófonías
að á því væri engin önnur skýr-
ing en framkvæmdaleysi.
Þingvallanefnd ntun fjalla um
málið á þriðjudag.
Enn leitað að Hafþóri:
Kafað í Hvalfirðin
um um helgina
■ Leit aö Hafþóri Má Hauks-
syni er ekki lokiö og sömuleiöis
er leitaö að Kristjáni Árnasyni
af Kleppsspítala en fjórar vikur
eru nú liðnar síöan þeir báðir
hurfu. Um helgina er reiknað
ineö aö kafarar leiti í Hvalfirði
og gengnar verða fjörur þar og
í nánd við Akranes. Leitin er
sem fyrr í höndum Reykjavík-
urlögreglu en RLR hafa verið
send bæði málin til athugunar.
Hafþór Már hvarf að heiman
frá sér 20. janúar á blágrárri
Willys jeepster bifreið sinni og
hefur síðan ekkert til hans
spurst. Um mánaðamót janúar
- febrúar bárust óljósar ábend-
ingar ofan úr Borgarfirði um að
Hafþór hafi sést á ferð þar en
síðan þá hafa cngar vísbending-
ar borist.
Hafþór hvarf frá heimili sínu
og foreldra sinna í Reykjavík ■
um hádegisbil á sunnudaginn
20. janúar, heimsótti þá einn
kunningja sinn og stóð þar stutt
við. Skömmu síðar hringdi hann
í annan vin sinn og ræddust þeir
við. Ekki er vitað hvaðan sú
hringing barst og eru þetta síð-
ustu öruggu heimildirnar sem
borist liafa af Hafþóri. Jeepster
bifreið Hafþórs er blágrá að lit
með svörtum toppi og er skrá-
setningarnúmerið X-5571.
Hafþór sem er ÍH ára iðnnemi,
er meðalmaður á hæð með Ijóst
hrokkið hár og var klæddur í
svört leðurföt þegar hann hvarf
að heiman.
Kristján Árnason hvarf af
Kleppsspítala 19. janúaroghef-
ur borist vitnisburður um að
hann hafi sést um borð í Akra-
borginni á leið norður en ekkert
til hans spurst síðan.
Afmælismótið:
Larsen einn
í efsta sæti
■ Bent Larsen ernúeinn
í efsta sæti á afmælismóti
Skáksambandsins, þegar
þrem umferðum og öllum
biðskákum er lokið. Lar-
sen vann biðskák sína við
Margeir Pétursson í gær
og hefur því hlotið 2'/:
vinning. Biðskák Jusu-
povs og Guðmundar úr
annarri umferð endaði
með jafntefli. Sömuleiðis
endaði skák Jóns L. Arna-
sonar og Horts með jafn-
tefli, en hún var tefld í gær
eftir að hafa verið frestað
úr fyrstu umferð.
I öðru til þriðja sæti eru
Van der Wiel og Spasský
með 2 vinninga og síðan
kom í einum hnapp með
l'h vinning þeir Helgi,
Margeir, Jón L., Jóhann,
Jusupov og Hort. Guð-
mundur Sigurjónsson og
Karl Þorsteins hafa emn
vinning og lestina rekur
Curt Hansen með (ó
vinning.
■ Mikill hiti er í mönnum
innan Alþýöullokksins
vegna viðtals sem Helgar-
pósturinn átti við Ámunda
Ámundason sem titlaöi sig
framkvæmdastjóra flokksins
í viötalinu. Sem kunnugt er
var Kristínu Guömundsdótt-
ur, framkvæmdastjóra
flokksins sagt upp störfum
nýverið og starf hennar lagt
niður. Sú ráðstöfun var væg-
ast sagt umdeild innan
flokksins, en yfirlýsing
Ámunda varö til þess að upp
úr sauö.
Ámundi Ámundason sem
starfar sem umboðsmaður
skemmtikrafta, var af fram-
kvæmdastjórninni ráðinn
sem útbreiðslustjóri
flokksins, eins og það heitir,
en í því felst að honum er
ætluð ýmis konar fjáröflunar
og skipulagningarstarfsemi á
vegum flokksins. Þegarhann
sjálfur titlar sig fram-
kvæmdastjóra opinberlega
þykir ýmsum sem hann sé að
gefa í skyn að skipulags-
breytingin hafi ekki verið
annað en fóðrun á þeim
gjörningi að reka Kristínu
og setja Ámunda í störf
hennar.
„Ámundi verður aldrei
ráðinn framkvæmdastjóri
flokksins og það er mikill
hiti í mönnum út af þessu,"
sagði framkvæmdastjórnar-
maður í samtali við NT í
gær. Ekki náðist í Guðmund
Oddsson formann fram-
kvæmdastjórnarinnar, né
Ámunda Ámundason í gær-
kvöldi.
Kvennalistinn
„hryggbrýtur“
Allaballana!
Enginn grundvöllur fyrir viðræðum
■ Kvennalistinn hefur hafnað
öllum viðræðutilboðum Al-
þýðubandalagsins um „sam-
stöðu um nýtt landstjórnarafl1-
eins og það var orðað í bréfi
bandalagsins.
Telur Kvennalistinn enga þá
stefnubreytingu hafa orðið inn-
an Alþýðubandalagsins eða
annarra stjórnmálaflokka sem
gefi tilefni til þátttöku Kvenna-
listans í viðræðum og hafnar
þeim því. í bréfi sem Kvenna-
listinn hefur sent Alþýðubanda-
laginu er gert heldur lítið úr
þessum viðræðutilboðum og
bent á að Kvennalistinn sé nýtt
afl í íslenskum stjórnmálum,
orðinn til vegna þess að konur
vilji sjálfar reka sína kvenna-
pólitík sem byggir á reynslu og
viðhorfum kvenna.
Hárlakk
gegn lús
■ Ein allra blómlegasta
greinin á meiði íslenskra lands-
byggðarblaða er Víkurblaðið
á Húsavík og höfum við
Dropateljarar á NT oft notið
góðs af þessum kollegum í
norðri. Nýlega birtust þar „18
húsráð gegn lús og maur“ -
misgóð eins og gengur. Hér er
átt við óværuna á stofublómum
(enda norðlenskar húsmæður
sjálfsagt löngu búnar að gefast
upp á því að aflúsa bændur
sína.)“
Það áttunda er orð í tínia
töluð nú þegar allir berjast
fyrir reyklausu landi: „Rcyktu.
Púaðu á blómin uns lýsnar
drepast. Þegar þú hefur reykt
þannig á ein 40 blóm ferð þú
sömu leið og lýsnar." Og svo
höldum við áfranr í röðinni:
„9. Leitaðu ráða hjá Baunan-
um sem á verslunina „Rósin" í
Glæsibæ.
10. Stráðu neftóbaki á blómin
og lýsnar deyja úr hnerra.
11. Ráð frá blómabónda í
Hveragerði: Hentu blómunum
og kauptu þér ný.
12. Raðaðu eldspýtum í pott-
ana og hótaðu að kveikja á
þeim. Vegna eldhræðslu flýja
maurarnir og láta ekki sjá sig
framar.
13. Úðaðu hárlakki á blómin
og moldina. Þú ert laus við lýs,
maura og blóm...
17. Safnaðu sígarettustubb-
um dagsins í ílát með vatni.
Notaðu síðan gruggið til að
hella í skálarnar undir blóma-
pottunum. Blómin sjúga eitrið
í sig en halda lífi. Lýsnar
drepast úr nikótínskorti þegar
meðferð er lokið eftir nokkra
daga.
18. Leyfðu þessum greyjum
að vera. Þau láta þig í friði."
Þá vitum við það.reyndar
slepptum við einum 11 ráðum
og jú, eitt þerra var ansi gott;
„5. Settu óhreina pípuhreins-
ara í blómapottana."
Henríetta,
Rósamunda
og Elli!
■ Auglýsingabransinn
harðnar og má vel vera að
brátt harðni á dalnum hjá
gömlu auglýsingastofunum því
þær stöllur, Helga Thorberg
og Edda Björgvinsdóttir, - þið
munið hann Ella, - hasla sér
nú völl í baráttunni. Þær hafa
semsagt stofnað hlutafélag, í
félagi við tvo Ella sem leika
aukahlutverk, og skal tilgang-
ur þess vera að veita „alhliða
ráðgjöf og hugmyndasmíð
varðandi auglýsingar í fjöl-
miðlum“.
Og þá er það nafnið, félag
þetta heitir Henríetta og Rósa-
munda hf.. Hlutafé þess er 20
Skyldi hann ekki eiga til „bjórost“, Nonni minn?
þúsund krónur og voru 17 Lögbirtingur
þúsundir þegar greiddar þegar prentun.
síðasti fór
Semsagt,
stelpur.
til hamingju
Fáir mættir
en f jölmennt
■ Blaðamenn geta oft ekki
stillt sig um að stríða kollegum
sínum þegar þeim verða á
meinleg mistök. Þannig kom
púkinn upp í Dropateljara
þegar hann opnaði föstudags
DV-ið og renndi yfir skáksíð-
una. Þar er að finna tvær
stuttar fréttir af skákmótinu á
Loftleiðum. í annarri var talið
upp hverjir merkismenn hefðu
mætt til þess að fylgjst með en
ofar á síðunni var létt
„stemmnings“-frétt af mótinu.
Sú síðarnefnda hófst með svo-
felldum orðum:
„Það var heldur daufur andi
sem sveif yfir vötnunum á af-
mælismóti Skáksambands ís-
lands í gærkvöldi. Fáir til þess
að gera voru mættir...“ Síðan
komu langar skýringar á fá-
menninu og leiknum í Höllinni
helst kennt uni.
En hin fréttin var öllu líflegri
því þar var fysta málsgrein.:
„Það var margt um manninn á
Hótel Loftleiðum í gær..."
En hver gerir ekki mistök.
y'