NT - 16.02.1985, Qupperneq 4
Laugardagur 16. febrúar 1985 4
Bjórsamlag Ámunnar:
Grindavík:
Sandgerði:
Grindvíkingar
fá íþróttahús
■ Nú í haust veröur tekið í
notkun að hluta nýtt íþrótta-
hús í Grindavík. Húsið verð-.
ur ekki fullfrágengið fyrr en
en líður á vor 1986, þar sem
áhorfendastæði verða ekkj
tekin í notkun fyrr en þá.
Að sögn Jóns G. Stefáns-
sonar, bæjarstjóra í Grinda-
vík, hefur verkið dregist von
úr viti, og nt.a. má rekja þá
töf, sem orðið hefur á fram-
kvæmdum byggingarinnar,
til peningaleysis. Einnig
benti Jón á að fjárúthlutanir
frá fjárveitingarvaldi hefðu
komið seint.
■ Nýja íþróttahúsið í Grindavík er reisulegt mannvirki, og
nú er þess ekki langt að bíða, að Grindvíkingar geti farið að
sprikla þar á fullu. NT-mynd: Árni Bjarna.
Fiskverkunarverksmiðja
í byggingu í Sandgerði
Hugsanlegir möguleikar á japönskum vinnsluaðferðum
■ Verið er að reisa verksmiðjuhúsnæði í Sandgerði, og
er húsið rúmir 2500 fermetrar að flatarmáli, á tveimur
hæðum. Óskar Árnason, skipstjóri, er eigandi húsnæðis-
ins, og í samtali við NT kom fram hjá Óskari, að framhald
framkvæmda væru háðar því hversu mikið fjármagn
fengist í verkið.
Aðspurður um hvaða starf-
semi færi fram í verksmiðjunní,
sagði Óskar að ekki væri endan-
lega búið að ákveða það, og
væru ýmsar hugmyndir á lofti.
„Ég hef mest verið að velta fyrir
mér japönskum vinnsluaðferð-
um, sem nýlega hafa verið
kynntar hér á landi. Hinsvegar
er ekkert sem segir að aðrir
möguleikar komi ekki til greina."
Ennfremur sagði Óskar að
ekki væri vitað hversu fljótlega
væri hægt að fullklára húsið fyrr
en fyrirliggjandi væri Itversu
mikið fjármagn væri hægt að
koma höndum yfir. „Ég myndi
telja að eitt ár myndi duga til
þess að koma verksmiðjunni í
fullan gang, þá miða ég við
tímann frá því að nægilegs fjár-
magns hefur verið aflað. t>að fer
nokkurn veginn hálft ár í að
koma tækjunum fyrir, og óhætt
er að reikna með öðrum eins
tíma sem færi í að prufukeyra
verksmiðjuna, áður en hægt
verður að hefja starfsemina að
fullu."
Að lokum sagði Óskar að
þegar verksmiðjan væri komin í
gagnið yrði hún mikil lyftistöng
fyrir atvinnumál í Sandgerði, og
allt eins víst að atvinnuöryggi
yrði tryggt á komandi árum.
Ratsjárandstæðingar
austan og vestan:
Steingrímur
fær sendingu
■ Andstæðingar ratsjárstöðva
á Vestfjörðum og við Þistilfjörð
hafa nú útbúið áskorun til
stjórnvalda sem prentuð er á
póstkort. Þá hafa sömu menn
gefið út í sameiningu blað undir
nafninu Ratsjá og dreift hvoru
tveggja blaðinu og eintökum af
kortinu í hvert hús í heima-
byggðum sínum.
Tvö kort með fyrrgreindri
áskorun eru látin fylgja hverju
blaði og er annað þeirra stílað á
Steingrím Hermannsson en hitt
er sendanda frjást að stíla á
hvern þann ráðamann sem hann
æskir til liðsmnis „til að firra
þjóðina brjálæði vígbúnaðar-
kapphlaupsins", eins og segir í
■ Úr Ratsjá, blaði andstæð-
inga uppsetningar bandarískra
ratsjárstöðva á Langanesi og í
Stigahlíð.
niðurlagsorðum áskorunarinn-
ar.
í blaði ratsjárandstæðinga,
Ratsjá, er að finna greinar um
friðarmál og úttektir á tilgangi
með uppsetningu ratsjárstöðv-
anna. Blaðið er 6 síður í dag-
blaðsbroti.
Lögreglan lagði hald á
bjórlíki og tækjabúnað
- í beinu framhaldi af beiðni ríkissaksóknara um opinbera rannsókn
■ Lögreglan í Reykjavík lagöi hald á tækjabúnað og
tilbúiö bjórlíki hjá Bjórsamlagi Ámunnar í gær. Þaö var
að beiðni ríkissaksóknaraembættisins að lögreglan lagði
hald á bjórlíkið og útbúnaðinn, en embættið hefur farið
fram á opinbera rannsókn á starfsemi þeirri sem fram fer
hjá bjórsamlaginu. Beiðni um opinbera rannsókn gefur
vísbendingu um það að um áfengislagabrot sé að ræða.
„Við teljum að athuguðu máli
að þarna kunni, að hafa veriö
framiö, áfengislagabrot. Þessi
ákvörðun gefur vísbendingu um
það að við teljum líklegt að
þetta gæti leitt til höfðunar opin-
bers máls á hendur forsvars-
mönnum fyrir áfengislagabrot.
Við getum að sjálfsögðu ekki
tekið endanlega ákvöröun um
málshöfðun, fyrr en viö höfum
fengið í hendurnar öll þau gögn
sem við tcljum nauðsynleg,"
sagöi Jónatan Sveinsson, sak-
sóknari, í samtali við NT. Einn-
ig kom fram hjá Jónatan að í
fyrirskipun um opinbera
rannsókn, fælist vísbending urn
það að um áfengislagabrot gæti
veriö aó ræða, og þá í formi
framleiðslu áfengis, og afhend-
ingu áfengis gegn gjaldi.
Bjarki Elíasson sagði að lagt
hefði verið hald á umtalsvert
magn af blönduðu bjórlíki, svo
og tæki sent notuð væru við
blöndunina. „Það er fyrst og
fremst vcrið að kanna hvort
þetta er lögleg starfsemi eða
ekki. Ríkissaksóknari gerir viss-
ar kröfur í málinu sem hann
óskar eftir að séu kannaðar, og
það verður síðan gert."
Guttormur Einarsson, eig-
andi Ámunnar, hefurscnt ríkis-
saksóknara bréf þess cfnis að
hann áskilji sér fullan rétt til
málsvarnar, og fer Guttormur
fram á að öllum tækjum og
blónduðu bjórlíki, sem hefur
takmarkað geymsluþol, verði
skilað strax, og einnig fer Gutt-
ormur fram á bætur á öllu því
sem kann að hafa skemmst í
meðförum lögreglunnar. Þá
gerir Guttormur kröfu um
miskabætur sér til handa vegna
ávirðingar og spjalla á við-
skiptavild fyrirtækisins, og alls
annars sem til tjóns verður metið
fyrir samlagið af völdum þessar-
ar aðfarar.
afhent
■ Menningarverðlaunahafar DV: María Sigurðardóttir f.h. Alþýðuleikhússins, Einar Jóhannessun, Álfrún Gunnlaugsdóttir, Hrafn Gunnlaugsson,
Ieikstjóri verðlaunakvikmyndarinnar, Jón Gunnar Árnason, Einar Sæmundsen, Grétar Markússon og Stefán Örn Stefánsson. i.jósm. gva
Menningarverðlaun fengu þess-
ir iistamenn: Álfrún Gunnlaugs-
dóttir hlaut bókmenntaverðlaunin
fyrir skáldsögu sína Þel, Einar
Jóhannesson. klarinettuleikari,
hlaut tónlistarverðlaunin, Jón
Gunnar Árnason, myndhöggvari.
fékk myndlistarverðlaunin. Leik-
listarverðlaunin fékk Alþýðu-
leikhúsið fvrir uppsetningu á Petru
von Kant eftir Fassbinder. kvik-
myndaverðlaunin fyrir bygginga-
list lilutu arkitektarnir Stefán Örn
Stefánsson, Grétar Markússon og
Einar Sæmundsen fyrir nýbygg-
ingu og skipulag umhverfis á Bern-
höftstorfu.
Verðlaunagripirnir voru hann-
aðir af Ofeigi Björnssyni, gull-
smiði.
■ Menningarverðlaun DV fyrir
árið 1984 voru afhent í glæsilegu
hádegisverðarboði í Þingholti
Hótels Holts á limintudag, að
viðstöddum listamönnum, dóm-
nefndum, ritstjórum DV og tleiri
gestum.
■ Erla Einarsdóttir rítstjóri.
íslensk
fyrirtæki
1985komin
á markað
■ „íslensk fyrirtæki 1985“ er
komin út en hér er um að ræða
árlega útgáfu á vegum Frjáls
framtaks.
Bókin skiptist í fjóra megin-
kafla, Fyrirtækjaskrá, Vöru- og
þjónustuskrá, Umboðaskrá og
skipaskrá.
Þá er í bókinni sérkafli á
ensku, þar sem fram koma upp-
lýsingar um íslenskt viðskiptalíf
og skýrt er frá hvernig handhæg-
ast er að nota bókina fyrir
erlenda aðila.
Ritstjóri verksins er Erla Ein-
arsdóttir.
Nikkelfjallið
í Bíóhöllinni
■ Nikkelfjallió, íslensk-
baiHlarísk kvikmynd, var
frumsýnd í gær, en ekki í
Regnhogamnn eins og
okkur varð á að segja,
heldur átti athurðurinn sér
stað í Bíóhöllinni.
Kikmyndin er gerð eftir
skáldsögu John Gardner
og er þetta í fyrsta skipti
sem íslenskir og banda-
rískir kvikmyndagerðar-
menn sameina krafta sína
við gerð leikinnar kvik-
myndar í fullri lengd.