NT - 16.02.1985, Síða 8
líl'
■ Kynningarfundur á Lima-
skýrslunni fyrir presta og ann-
að áhugafólk verður í Safnað-
arheimili Bústaðakrikju mánu-
daginn 18. febrúar kl. 20.30.
Ræðumaður Per Erik Person.
Guðsþjónustur í
Reykjavíkurprófasts
dæmi sunnudaginn 17,
febrúar 1985
Ásprestakall
Barnamessa kl. 11.00.
Messa kl. 2.00. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Áibæjarprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2.00.
Organleikari Smári Ólason.
Miðvikudaginn 20. febr. fyrir-
bænastund í Safnaðarheimil-
inu kl. 19.30. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Breiðholtsprestakall
Barnasamkoma kl. 11.00.
Messa kl. 14.00 í Breiðholts-
skóla. Litania. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
Bústaðakirkja
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr.
Jón Bjarman. Barnasamkoma
kl. 2.00. (Vinsamlega ath.
breytta tfma). Miövikudagur
20. febr. félagsstarf aldraðra
kl. 2-5 Föstumessa miðviku-
dagskvöld kl. 20.30. - Kynn-
ingarfundur á Lima-skýrslunni
fyrir presta og annað áhuga-
fólk verður í Safnaðarheimili
Bústaðakirkju mánudaginn
18. febr. kl. 20.30. Ræðumað-
ur: Dr. Per Erik Person. Sr.
Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastígkl.
11.00. Guðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11.00. Bibl-
íulestur í Safnaðarheimilinu
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan
Laugardag: Barnasamkoma
í kirkjunni kl. 10.30. Sr. Agnes
M. Sigurðardóttir. Sunnudag:
Messakl. 11.00. Altarisganga.
Sr. Þórir Stephensen. Messa
kl. 2.00. Sr. Hjalti Guðmunds-
son. Dómkórinn syngur, org-
anleikari Marteinn H.
Friðriksson.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 2.00. Sr.
Bjarni Sigurðsson frá Mosfelli
þjónar fyrir altari, Svavar A.
Jónsson stud. theol. prédikar.
Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
Fella- og Hólaprestakall
Laugardag: Barnasamkoma
í Hólabrekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11.00. Guðs-
þjónusta í Menningarmiðstöð-
inni við Gerðuberg kl. 14.00.
Sr. Hreinn Hjartarson.
Frikirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Ræðuefni: Þurfum við á
Gamla testamentinu að halda?
Fermingarbörn lesa bænir og
ritningartexta. Föstumessa
fimmtudagskvöld 21. febr. kl.
20.30. ErlaGígjaGarðarsdótt-
ir syngur einsöng. Biblíules-
hringur föstudagskvöld 22.
febrúar kl. 20.30 Fermingar-
börn komi laugardaginn 23.
febr. kl. 14.00. Bænastund í
Fríkikjunni virka daga
(þriðjud., miðvikud., fimmtud.
og föstud.) kl. 18.00. Sr.
Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11.00.
Messa með altarisgöngu kl.
14.00. Organleikari Árni Arin-
bjarnarson. Foreldrafundur
fermingarbarna miðvikudags-
kvöld kl. 20.30. Kvöldvaka
aldraðra fimmtudagskvöld kl.
20.00. Æskulýðsstarf föstudag
kl. 17-19. Sr. Halldór S.
Gröndal.
' 1 1 l/CIJ bóli
Uvl
Laugardagur 16. febrúar 1985
8
indur haf
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma og messa kl.
11.00. Vilhjálmur Hjálmars-
son fyrrverandi ráðherra préd.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kvöldmessa með altarisgöngu
kl. 17.00. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Kvöldbænir með
lestri passíusálma verða í
kirkjunni alla virka daga föst-
unnar nema miðvikudaga kl'.
18.00. Þriðjudag, fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30, beðið
fyrir sjúkum. Miðvikud. 20.
febr. öskudagur, föstumessa
kl. 20.30.
Landspítalinn !
Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja
Messakl. 10.00. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Messa kl.
14.00. Sr. Tómas Sveinsson.
Miðvikudagur 20. feþr. kl.
20.30 föstuguðsþjónusta. Sr.
Tómas Sveinsson.
Borgarspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr.
Tómas Sveinsson.
Kársnesprestakall
Laugardag: Barnasamkoma
í Safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11. árd. Sunnudag: Messa í
Kópavogskirkju kl. 2.00. Sr.
Árni Pálsson. Miðvikudag 20.
febr. spilakvöld á vegum þjón-
ustudeildar í Safnaðarheimil-
inu kl. 20.30.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl.
11.00. Söngur - sögur -
myndir. Sögumaður Sigurður
Sigurgeirsson. Guðsþjónusta
kl. 14.00. Prestur sr. Sigurðurl
Haukur Guðjónsson, organ-
leikari Jón Stefánsson. Sókn-
arnefndin.
Laugarnesprestakall
Laugardag: Guðsþjónusta í
Hátúni 10B, 9. hæð kl. 11.00.
Sunnudag: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Messakl. 14.00.
Altarisganga. Þriðjudag 19.
febr. bænaguðsþjónusta kl.
18.00. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson.
Neskirkja
Laugardag: Samverustund
aldraðra kl. 15.00. Ingibjörg
Marteinsdóttir söngkona og
Pétur Pétursson útvarpsþulur
koma í heimsókn. Sr. Frank
M. Halldórsson. Sunnudag:
Barnasamkoma kl. 11.00.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Orgel
og kórstjórn Reynir Jónasson.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Mánudag: Æskulýðsstarf
kl. 20.00. Fimmtudag, föstu-
guðsþjónusta kl. 20.00. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson..
Opið hús fyrir aldraða þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13-17.
(Ath. húsið opnað kl. 12).
Seljasókn.
Barnaguðsþjónusta í Öldu-
selsskólakl. 10.30. Barnaguðs-
þjónusta í íþróttahúsi Selja-
skólans kl. 10.30. Guðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 14.00.
Þriðjudag 19. febr. fundur í
æskulýðsfélaginu ' Sela kl.
20.00. Fimmtudag 21. febr.
fyrirbænasamvera kl. 20.30 í
Tindaseli 3. Sóknarprestur.
Seltjarnarnessókn
Guðsþjónusta í sal Tónskól-
ans kl. 11.00. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson prédikar.
Sóknarnefndin.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 10.30.
Einar Eyjólfsson.
Hvað getur bjórinn lagað?
■ Ég sé haft eftir fjármála-
ráðherra að ekkert annað en
bjór geti lagað það ástand sem
skapast hefur með tilkomu
„bjórlíkisins".
Þess er hins vegar ekki getið
hvað þurfi að laga eða hvernig
bjórinn getur lagað það.
Þetta þyrfti helst að koma
fram.
Myndi það breyta einhverju
sem máli skiptir ef krárnar
seldu bjór en hættu við bjórlík-
ið?
Það er gamall siður, skilst
mér, að blanda áfengi ýmis-
lega. Það þótti sumum gott að
fá brennivín út í kaffið sitt.
Menn hafa blandað sterkt vín
með vatni, blandað í kók
o.s.frv. Bjórlíkið er að því
leyti ekki neitt nýtt í veraldar-
sögunni. Hins vegar eru sterku
drykkirnir, sem blandað er í
það, væntanlega allir keyptir í
ÁTVR svo að ríkið hefur að
því leyti fengið sitt.
Eigum við von á „betri
ölvun“ ef bjórinn kemur í
staðinn fyrir bjórlíkið?
Um hvað er verið að tala?
Sagt er að bjórinn muni
auka tekjur ríkissjóðs af áfeng-
issölu. Það getur hann því
aðeins að hann auki áfengis-
neysluna í heild.
Hvað ætla menn að laga
með meiri drykkjuskap?
Við því vil ég fá hrein og
skýr svör.
Er lagfæringarvonin
kannske bundin við það að
bjórinn verði seldur í kössum?
A drykkjumenningin að byggj-
ast á því að menn geti flutt
hann í kössum heim til sín eða
á vinnustað svo sem Danir
iðka? Er bjórnum ætlað að
laga eitthvað með þeim hætti?
Er þá betra að menn fari
með kassana á heimili og
vinnustaði en að þeir verði að
fara á krárnar og takmarka sig
við það sem þeir rúma á
staðnum?
Hvað á bjórinn að laga?
Og hvað getur hann lagað?
Sá spyr sem ekki veit.
Halldór Kristjánsson
Eigum við von á „betri ölvun“ ef bjórinn kemur í staðinn fyrir bjórlíkið?
Við lifum á
9. áratugnum
Kæra lesendasíða:
■ Ég cr einn af þeim sem
vilja eiginlega leyfa flest í notk-
un íslensks máls. Þó er eitt
atriði, sem greinilega veldur
ruglingi, og væri e.t.v. eðlilegt
að við reyndum að koma okkur
saman um notkun á. Þetta eru
heiti áratuganna.
Eða er áratugurinn frá 1970-
80 sjöundi eða áttundi ára-
tugurinn? Bæði heitin virðast
vera notuð, ekki síst í opinber-
unt skýrslum. Sjálfum finnst
mér eðlilegt að kalla þennan
áratug þann áttunda, og yfir-
standandi áratug þá þann ní-
unda. Með þessu móti verður
fyrsti áratugurinn sá fyrsti.
Gætir þú ekki leitað álits
einhvers málfróðs manns á
þessu atriði.
Lesandi
Svar um hæl
Prófarkalesarar NT eru í
hópi málfróðari manna, svo
sem kunnugt er. Þeir kváðust
bréfritaranum hjartanlega
sammála og væri engu við
þetta að bæta.
Skrifíð til:
NT
Lesendasíðan
Síðumúla 15 108 Reykjavík
viii eða hringið í síma686300
milli kl. 13og 14
■ Þú varst heppin, Anna. Við áttum mynd af Wham.
Hryllings-
búðin og Wham
■ Anna hringdi:
Ég fór að sjá litlu hryllings-
búðina um daginn og ég verð
að segja að það var vel fimm
hundruð króna virði. Stelpurn-
ar þrjár, Laddi, Edda Heiðrún
og Leifur voru alveg frábær og
plantan sömuleiðis. Aftur á
móti fannst mér Gísli Rúnar
ekki eins góður.
Mig langar til að biðja þá
sem eru að skrifa í blöðin um
það hversu Wham og Duran
Duran séu ömurlegar hljóm-
sveitir, að hætta því. Hver og
einn verður nefnilega að ráða
sínum smekk.
Að lokum langar mig til að
biðja NT að birta mynd af
Wham.
Of bágborið lestrarlag
■ Stundum gengur alveg
fram af mér, þegar ég hiusta á
barnaefni í útvarpinu. Núna
áðan var ég að hlusta á ævintýri
með ungum syni mínum, en
þetta var eitt af hinum sígildu
Grímms Ævintýrum. En lest-
urinn var svo bágborinn að
erfitt var að halda hann út. Og
svo kórónar útvarpið þetta
með því að leika eitthvert
lagskrípi með Stuðmönnum á
eftir sögunni fyrir litlu börnin.
Er til of mikils mælst að
betur sé vandað það sem gert
er fyrir yngstu kynslóðina í
útvarpinu? Margt hefir okkur
líkað vel t.d. sum leikritanna,
en lestrarlag eins og þetta í
dag, nær ekki nokkurri átt í
fjölmiðli. Það má aldrei kasta
til höndunum, þegar verið er
að vinna fyrir börn, það þarf
að vanda það betur en flest
annað, en því er verr að oft er
mikill misbrestur á að vel sé
lesið fyrir börnin. Þar ber oft
mikið á Ieiðinlegum röddum
og leiðinlegu lestrarlagi.
Með þökk fyrir birtinguna.
Þriggja barna móðir.