NT - 16.02.1985, Qupperneq 13
Nýr ta
er nýjasta vinkona goðsins og fer með hlutverk aðalkvenpersónunnar í
Rain.
li er að
ikvæmur"
uir klæðaburður
fur skapað sveiflu í
num. Hvenærskyldi
íslands?
ia Purple Rain
Appoloniu, lítur öðru vísi á
málið, þótt hun vilji lítið segja um
samband sitt við Prince. „Eg er
ekki ein af þeim sem kyssi fyrst og
kjafta svo frá,“ hefur hún sagt.
En hún er eins og aðrir samstarfs-
menn Prince bundin þagnareiði
um Prince og einkalíf hans.
Prince er mikill trúmaður og
það er haft eftir einum í hljóm-
sveitinni að fyrir hverja tónleika
láti hann alla sveitina krjúpa á
kné og fara með bæn. Hann ku
einnig hafa litla trú á þróunar-
kenningu Darwins og vill halda
sig við biblíuskýringuna gömlu
um að mannkynið sé komið af
Adam og Evu að langfeðratali.
Margir hafa lýst Prince sem
blöndu af Little Richard og Jimi
Hendrix. Hvað framtíðin ber í
skauti sér fyrir þennan listamann
er ekki gott að segja til um. Tekur
trúin völdin á sama hátt og hjá
Little Richard eða ná hinir myrku
kraftar, sem vissulega fyrirfinnast
hjá Prince, yfirhöndinni ogsteypa
honum út í ógæfuna eins og
gerðist með Jimi Hendrix? Um
það er ómögulegt að spá en árið
1984 var árið sem hann sló í gegn
á heimsmælikvarða en spurningin
er; hvar verður hann á vegi stadd-
ur 1999?
Plötulisti:
1978: For You og lítil plata „Soft
and Wet“ vekur ólgu.
1979: Prince. Lagið „I Wanna be
your Lover“ fer í 1. sæti og platan
nær gullplötumarkinu.
1980: Dirty Mind. Platan selst
verr en skapar honum nafn. Hann
hitar upp fyrir Rolling Stones á
hljómleikum en er úaður niður
eftir 15 mínútur af hvítum hljóml-
eikagestum.
1981: Controversy.Nær gullplötu-
markinu og titillagið fer í 3. sæti
á rythmblues listanum vestra.
1982: 1999 kemur út. Lagið
„Little Red Corvette“ slær í gegn
og titillagið „Corvette" er fyrsta
videoið sem sýnt er hjá MTV
netinu í USA með svörtum lista-
manni. Prince nærúttilfjöldans.
1983: Upptökur á myndinni
Purple Rain hefjast.
1984: When Doves Cry“ gefið út á
lítilli plötu og síðan fylgir stóra
platan “Purple Rain“. Seinna á
árinu kemur svo kvikmyndin sem
hefur slegið út allar fyrri rokk-
myndir, hvað aðsókn snertir, og í
lok ársins leggur Prince í hljóm-
leikaferð sem auðvitað er kölluð
Purple Rain Tour....
Laugardagur 16. febrúar 1985 13
qömul
sveifla
dÁLkUR|Nm
■ Velvet Underground ca. 1969.
Velvet underground
með plötu
■ Þótt Velvet Underground
tilheyri sögunni fyrir löngu kom
á markaðinn „ný" plata með
þeim sem gefin er út á Polydor
merkinu í vikunni.
Er þar á ferðinni fjórða plat-
an sem þeir tóku upp fyrir
Verve/MGM á árunum 1968-
1969 sem aldrei var gefin út en
upptökurnar fundust nýlega í
Bandaríkjunum. Ekkert af
lögunum hefur komið út á plötu
áður, að undanskildu lagi Lou
Reed, Andy's Chest sem var á
fyrstu sólóplötu hans The
Transformer. Nýja platan heitir
því frumlega nafni V.U.
París Texas músík á plötu
Tónlilst Ry Cooder við mynd
Wim Wenders, París Texas
þar sem Natassia Kinski og
Harry Dean Stanton fara með
aðalhlutverkin kom út á plötu í
vikunni. 10 lög eru á plötunni,
öll samin af Cooder í amerísk-
um þjóðlaga- og blúsanda.
Úr sakleysinu í alvöru
lífsins.
Madonna fylgir eftir lagi sínu
„Like a Virgin" með öðrum
smelli sem heitir „Material Girl/
Pretender", sem einnig er af
fyrstu plötunni hennar Like a
Virgin. Samtímis plötunni kom
á markaðin 18 mínútna videó
sem kallað er Madonna og er
gefið út af Warner Music Vi-
deo, Gott að vita ef einhver vill
taka dömuna með sér heim...
Þriðja lagið með ZZ Top
ZZ Top eru væntanlegir með
þriðja lagið sem tekið er af
plötu þeirra The Eliminator, á
markaðinn fyrir litlar plötur.
Heitir lagið „Legs/Bad Girl“ og
12 tommu útgáfan inniheldur
aukalag, „Fool For Your
Stockings".
Bassaleikari ZZ Top, Dusty
Hill, sem skaut sig í magann á
dögunum mun vera búinn að
ná sér og þessa stundina
vinna þremenningarnir við að
leggja síðustu hönd á væntan-
lega stóra plötu.
Ný stytta af Marley
Það vakti litla hrifningu
rastafara á Jamaica þegar
stjórnvöld létu gera styttu af
Bob Marley, gúrú raggieunn-
enda um allan heim. Styttan
var sett upp í Kingston í garði
þjóðhetjanna í fyrra og við
afhjúpunina brutust út ólæti
því fólki líkaði ekki styttan,
þótti hún ekki gefa rétta mynd
af Marley. Styttan var fjarlægð
í flýti en nú hafa
embættismenn þurrkað mestu
eggjasletturnar af jökkum sín-
um og ráðist í það þrekvirki að
fá aðra styttu. Listamaðurinn
sem er að móta hana heitir
Alvin Mariott, 82 ára gamall
Jamaicabúi, sem hefur unnið
sér það til frægðar að gera
styttur af Micael Manley fyrrum
forsætisráðherra eyjunnar og
styttu Ólympíuleikanna í Hels-
inki árið 1952. Er vonandi að
honum takist betur upp en fyrri
listamanninum en það ku
valda honum vissum erfiðleik-
um að hann þjáist af Parkinson
veiki...
Fleiri rokkarar styðja námu-
menn
Frankie Goes To Holly-
wood, John Peel og Mari Wil-
son hafa farið að dæmi Style
Council, Aswar og UB40 og
styðja baráttu breskra náma-
manna sem búnir eru að vera
í verkfalli í 10 mánuði. Hafa
þessir listamenn tekið þátt í
auglýsingaherferð sem hrint
var af stað til þess að safna fé
til styrktar fjölskyldum námu-
verkamanna.
Fyrir jólin söfnuðust
400.0002 sem notuð voru til
að kaupa mat og gjafir handa
börnum verkamannanna og
einkunnarorð söfnunarinnar nú
eru: Yfirgefum þá ekki núna,
og vonast aðstandendur henn-
ar til að þeim safnist meira fé.
■ Bob og Alvin. Vonandi að styttan falli raggieunnendum í geð.
Utkall —
unglingablad
■ Út er komið annað tbl.
unglingablaðsins Útkalls. Rit-
stjóri er Sigurður B. Stefáns-
son, formaður Hrannar.
Efni Útkalls er fjölbreytt og
á að geta höfðað til sem flestra.
„*Útvarpið er mitt aðaláhuga-
mál,“ segir Ásgeir Tómasson,
plötusnúður hjá Rás 2, í opnu-
viðtali. „Rás 2 er algjört
hneyksli!" fullyrðir Jens Kr.
Guð, höfundur Poppbókarinn-
ar, i viðtali. HvernigvarðDur-
an Duran til? er yfirskrift
greinar um þessa vinsælu
hljómsveit. Jafnframt er birt
plakat af Duran Duran. Þá er
í þessu öðru tbl. Útkalls
skemmtileg grein eftir Eðvarð
Ingólfsson, ritstjóra Æskunnar
og umsjónarmann Frístundar
hjá Rás 2.
Útkall kemur út á þriggja
mánaða fresti.
Lesenda,,popp“
■ Ung stúlka sem var í Traff-
ic á dögunum hringdi í blaðið
og hafði cftirfarandi um Duran
Duran málið að segja:
Það er með hann Jón Axel.
Hann sagði að það hefði verið
plötusnúðurinn, sem sagði að
lagið ætti að komast á toppinn,
en það var hann sjálfur, sem
átti upptökin að þessu. Hann
var í Traffic og spurði krakk-
ana: - Ég stóð þarna beint fyrir
framan hann - „Hvaða lag
verður á toppnum á sunnudag-
inn?“ Þá sögðu náttúrlega
allir „Save a Preyer“ eins og
gefið mál er. Hann var voða
ánægður með svarið. Svo segir
hann í blaðinu að það sé ekki
hann sem sé að koma þessu á
framfæri, það sé plötusnúður-
inn, sem síðan er rekinn fyrir
það sem Jón gerir sjálfur!
Það var ekki fyrr en eftir að
Jón Axel hafði sagt þetta sem
plötusnúðurinn fór að tala um
þetta líka.
Síðan með hann Ásgeir
Tómasson. Eitthvert fólk gæti
alveg tekið sig saman og hringt
í Rás 2 og sagt: „Ég hef orðið
varviðaðkrakkart.d. íGarða-
bæ hafa safnast saman fyrir
framan símann og hringt öll og
komið lagi á toppinn." Þetta
gæti þess vegna verið gabb en
síðan tækju starfsmenn Rásar
2 lagið af listanum, af því þeim
líkaði það ekki. Ég hélt að
lögin á Rás 2 væru valin af
hlustendum Rásar 2 en ekki af
starfsmönnum!
■ Simon LeBon alveg í „rusli“ yfir Duran Duran svindlinu á Rás 2.