NT - 23.02.1985, Síða 1
Skiphóll sviptur
vínveitingaleyfi
■ Veitingastaðurinn Skip-
hóll í Hafnarfírði, hefur nú
verið sviptur vínveitinga-
leyfí, og var eiganda staðar-
ins birt fógetabréf þess efnis,
rétt fyrir opnun staðarins í
fyrradag.
Leyfissviptingin sem er
samkvæmt tilskipun fógeta,
mun m.a. vera byggð á áliti
matsnefndar vínveitingahúsa
en forsendur hennar að öðru
leyti „óljósar", að sögn Birg-
is Tómassonar, eiganda stað-
arins.
„Þeir komu hingað frá
matsnefndinni á óheppileg-
asta tíma, rétt eftir dansleik,
þegar átti eftir að ræsta
húsið," sagði Birgir, að-
spurður um ástæður fyrir lok-
uninni. Kvaðst Birgir sjálfur
hafa kallað til matsmann frá
heilbrigðiseftirlitinu
skömmu síðar til að gera
úttekt á húsinu, og hefði sú
úttekt verið jákvæð,
Pað er bæjarfógetinn í
Hafnarfirði sem hefur mál
þetta undir höndum, en ekki
náðist samband við fulltrúa
fógeta í gærkvöldi.
Stúkumenn
skora á
ölkneyfara
- bls. 5
Sjórán á
atómöld
- bls. 21
Sjómenn
ítreka kröf-
ur sínar
- bls.2
Ekki breyt*
ing á með-
ferð drátt-
arvaxta
— 4% frá l.mars
■ Seðlabankinn hef-
ur fallið frá fyrirhuguð-
um breytingum á með-
ferð dráttarvaxta.
Verður því áfram heim-
ilt að beita vöxtum
heils mánaðar, þótt
vanskil hafi aðeins
staðið í brot úr mán-
uði.
Vanskilavextir verða
eftirleiðis tengdir skulda-
bréfavöxtum og endur-
skoðast mánaðarlega. Frá
1. mars verða vanskila-
vextir 4% á mánuði.
Kröfuhöfum er að sjálf-
sögðu heimilt að beita
lægri vöxtum, t.d. dag-
vöxtum. En frá mánaðar-
mótum verða hæstu van-
skilavextirnir sem sagt
48% á ári, séu vaxtavextir
reiknaðir á 12 mánaða
fresti.
Stóriðjunefnd:
Magnesíumverksmiðja
byggð á Grundartanga?
Hráefni fæst innanlands
■ Stóriðjunefnd hefur fengið
til umfjöllunar skýrslu, þar sem
ræddir eru möguleikar á bygg-
ingu magnesíumverksmiðju á
Grundartanga. Hráefni til verk-
smiðjunnar myndi að verulegu
leyti fást innanlands, þ.e. kísil-
járn frá járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga og súrál
frá álverinu í Straumsvík. Þriðja
hráefnið við framleiðslu
magnesíumsins er bergtegundin
dólómít, sem þyrfti að flytja
inn. Þeim möguleika er þó velt
fyrir sér að nota í staðinn skelja-
sand.
í skýrslunni er talað um 7
þúsund tonna framleiðslugetu á
ári annars vegar og 14 þúsund
tonn hins vegar. Utreikningar
sýna, að miðað við núverandi
aðstæður er 17% hagnaður af 7
þúsund tonna verksmiðju, áður
en skattar og arður eru greiddir,
en 28% af 14 þúsund tonna
verksmiðju. Kostnaður við
byggingu 7 þúsund tonna verk-
smiðju er áætlaður 22 milljónir
bandaríkjadala og 32 milljónir
dala fyrir 14 þúsund tonna verk-
smiðjuna.
Magnesíum er sambærilegur
málmur og ál, en hann er léttari
og sterkari, miðað við þyngd.
magnesíumið er notað í ál-
blöndur og aðrar málmblöndur.
Rarik verður að
hækka gjaldskrá
ef ekki kemur til
skuldbreyting
■ Gjaldskrá Rafmagns-
veitna ríkisins verður að
hækka um 10-15% ef skuldir
fyrirtækisins verða ekki
framlengdar innan tíðar og
greiðslum af afborgunum
frestað fram yfir árið 1992.
Þessar upplýsingar komu
fram á fundi með forsvars-
mönnum Rarik og iðnaðar-
ráðherra í gær. Það kom
fram í máli Kristjáns Jóns-
sonar rafmagnsveitustjóra,
að Rarik er bundið við lán-
tökur úr Orkusjóði og hefur
þar af leiðandi ekki tök á að
ráða þeim sjálft. Það hefði
orsakað, að fyrirtækið hefði
fengið óhagstæð lán og
bráðabirgðalán.
„Við teljum, að við fengj-
um betri stýringu á fjármál-
um fyrirtækisins, ef við gæt-
um sjálfir tekið lán í gegnum
viðskiptabanka okkar, líkt
og Landsvirkjun gerir,“ sagði
Kristján Jónsson.
Með því gætu Rafmagns-
veitur ríkisins stýrt greiðslu-
byrði sinni betur og jafnað
sveiflur á milli ára og trúlega
fengið betri vaxtakjör. Raf-
magnsveitur ríkisins borga á
þessu ári tæpar 408 milljónir
króna í vexti óg afborganir af
lánum.
■■■■