NT - 23.02.1985, Page 4
IPI
Hjálparstarfið í Eþíópíu:
6 utan í gær
■ Sex manna hópur hjúkrunarfólks hélt áleiðis til
Eþíópíu í gær til starfa á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Þau Þórhallur B. Ólafsson, Bóthildur Sveins-
dóttir, Jóhanna Guðlaugsdóttir, Hildur Nílsen, Ragnhild-
ur R. Indriðadóttir og Hreinn Skagfjörð Pálsson fara til
starfa í fæðugjafastöðvum í norðurhluta landsins þar sem
þau munu vinna að skipulagningu og við almenn lækn-
ingastörf.
Annar hópur á vegum Hjálp-
arstofnunar hefur undanfarnar
vikur starfað í þremur hjálpar-
búðum í Vorgesa, sem er um 90
kílómetra í norður frá borginni
Dessie, í Wollo-héraði í
norðurhluta landsins. í þeim
hópi eru fjórar hjúkrunarkonur
og tveir hjálparsveitarmenn.
Þetta fólk hefur átt mjög
annríkt, en hefur náð góðum
tökum á verkefnum sínum og
hlotið lof fyrir.
Fiskveiðiverkefnið í Massawa
á Rauðahafsströnd Eþíópíu
hefur gengið vel. Störf Stanleys
Aðalsteinssonar og eiginkonu
hans hafa borið góðan árangur,
en til Massawa sendi Hjálpar-
stofnunin mikið _al veiðar-
t'ærum, sem komið hafa að góð-
um notum.
Hjálparstofnun kirkjunnar er
nú að kanna möguleika á því,
að samhæfa verkefni og störf
við boranir eftir heitu og köldu
vatni í Eþíópíu. Snemma í apríl
eru væntanlegir hingað til lands
fulltrúar þeirra stjórnarstofnana
í Eþíópíu, sem með þessi mál
fara. íslensk stjórnvöld og
verktakar hafa sýnt þessum mál-
um rmkinn áhuga, svo og ýmsar
hjálparstofnanir á Norðurlönd-
um. Þess má geta, að í Jarðhita-
skóla Sameinuðu þjóðanna í
Reykjavík verða ánæstaskóla-
ári 3 Eþíópar.
Með hópnum fór Árni Gunn-
arsson, sem mun halda áfram
að skipuleggja hjálparstarfið og
þau samvinnuverkefni, sem nú
eru í undirbúningi og flokkast
undir þróunarhjálp.
Laugardagur 23. febrúar 1985 4
Land-
helgis-
kortið
komið í
dreifingu
■ Landhelgiskortið sem sjáv-
arútvegsráðherra afhenti Slysa-
varnafélaginu nýlega til styrktar
starfi félagsins er nú komið í
sölu hjá ollum deildum og sveit-
um SVFÍ og kostar 750 krónur.
Auk þess hefur sjávarútvegs-
ráðherra áritað 200 tölusett ein-
tök sem seld verða innrömmuð
á 10.000 krónur stykkið.
Myndin var tekin er Halldór
áritaði eitt kortanna en honum
á vinstri hönd er Haraldur
Henrysson forseti SVFÍ og
lengst til vinstri situr Hannes
Hafstein framkvæmdastjóri
SVFÍ.
Kortið má fá keypt hjá SVFÍ
að Grandagarði 14 eða panta
það í síma 91-27000
Brotið á fiskvinnslufólki
■ í ályktun sem Samtök
kvenna á vinnumarkaöi hafa
sent frá sér segir aö lög og
samningar varðandi vinnurétt
fískvinnslufólks hafi reynst
haldlausir, og hafí tveir dómar
falliö, sem staöfesti að arðsemi
fyrirtækja skuli sitja í fyrirrúmi,
en vinnuréttur að engur hafður.
Þá segjast samtökin fagna
framkomnu frumvarpi sem nú
liggur fyrir Alþingi um breyt-
ingu á lögum um rétt verkafólks
til uppsagnarfrests. Telja sam-
tökin að frumvarpið sé spor í þá
átt að leiðrétta „hið miskunnar-
lausa réttindaleysi sem fisk-
vinnslufólk á við að búa og
beinist sérstaklega gegn
konum.“
Skák
9. umferð
afmælismóts|
Skáksam-
ibansins:
■ Skák mótsins sem auglýst var
hér í blaðinu í gær, úrslitaskákin
milli Spasskýs og Larsens varð
aðeins örfáir leikir; þegar hún
hafði staðið í um hálftíma bauð
Spasský jafntefíi, sem Larsen að
sjálfsögðu þáði, og hélt þar með
vinnings forystu sinni á inótinu
og verður varla stöðvaður úr
þessu. Larsen svaraði kóngspeðs-
byrjun Spasskýs með Petovsvörn
og þegar i byrjun skiptist upp á
drottningum. „Spasský hcfur
ekki unnið skák með þessu af-
brigði í 15 ár og samt býður hann
upp á það nú,“ sagði vonsvikinn
skákmaður meðal áhorfenda.
Það cr kannske að bcra í
bakkafullan lækinn að vera að
hneykslast á svona framkomu.
Spasský átti möguleika á að ná
Larsen að vinningum með því að
vinna skákina og fyrir skákunn-
endur á fslandi er litið á það sem
stóran viðburð að eiga þess kost
að sjá þessa menn leiða saman
hesta sína. Þeim var öllum gefið
langt nef í gærkvöldi. En hvað
um það, Spasský bauð jafntefli,
Larsen hlaut að þiggja það í Ijósi
stöðu sinnar í mótinu og það má
kannski liugga sig við að það er
enginn verðugri sigurvegari á
þessu móti en liann.
Margeir færðist nær stórmeist-
araáfanganum í gær með því að
gera jafntefli við Hort í skák sem
allan tímann var í jafnvægi. Nú
nægir Margeir einn vinningur úr
tveim umferðum til að hreppa
áfangann.
Hvað íslendingana varðar
verður þessa móts kannski eink-
um minnst vegna góðrar frammi-
stöðu Guðmundar Sigurjónsson-
ar, sem hefur ekki teflt lengi af
þeim styrkleika sem hann er
talinn búa yfir. Eftir tap í fyrstu
umferð var ekki búist við miklu
af honum, en eftir tapið hefur
hann teflt af miklu öryggi og er í
3.-4. sæti með Margeiri. 1 gær var
það Jóhann Hjartarson sem var
fórnarlamb Guðmundar. Jóhann
gaf skákina í gjörtapaðri stöðu
eftir 42 leiki.
Jón L. Árnason og Hansen
sömdu um jafntefli eftir að Jón
hafði virst eiga mun vænlcgri
Larsen nær öruggur um sigur
eftir jafntefli við Spasský
stöðu lengst af. Karl Þorsteins
barðist hetjulegri baráttu við Jus-
upov, en varð að láta í minni
pokann.
Þá er komið að skák Van der
Wiel og Helga. Helgi sem hafði
svart tefldi mjög djarft og lagði
mikið á stöðu sína sem lengi
virtist mjög vænleg. En Hollend-
ingurinn náði gagnfærum og drap
hrók Helga með biskupi. Helgi
lék mjög hratt en Van der Wiel
átti lítinn tíma eftir. Heigi skaut
| inn millileik í stað þess að drepa
biskupinn, en virtist yfirsjást
millileikur Hollendingsins, og í
stað þess að vera skiptamun und-
ir með góð sóknarfæri var hann
heilum hrók undir og með von-
lausa stöðu.
■ Við biðjumst afsökunar á
rangri stöðuniynd af biðstöðu
Margeirs og Jóns L. úr 8.
umferð. Hrókurinn á a4 átti að
sjálfsögðu að vera svartur.
Skákin fór í bið aftur í gær og
biðstaðan er svona:
„Úrslitaskákin" að hefjast. En Spasský tefldi til jafntefíis.
NT-mvnd Ai
Hvítt: Margeir. Svart: Jón
L. Árnason
jifirm 1
871Á
1 IBII II111 í m
1111 11111 101 1111 III*
Skák Curt Hansens og Guð-
inundar fór einnig aftur í bið í
gær. Hvítt: Curt Hansen.
Svart: Guðmundur.
Úrslit 9. umferðar:
Spasský-Larsen VnVi
Jusupov-Karl 1:0
Guðmundur-Jóhann 1:0
Van der Wiel-Helgi 1:0
Jón L.-llansen Vv.Vi
Ilort-Margeir Vv.V'.
Eins og taflan ber mcð sér lauk
ölliim skákununi í gærkvöldi, cn
tveim biðskákum úr 8. uniferð er
enn ólokið. Staðan í mótimi er
nú þannig:
1. Bent Larscn 7v.
2. Spasský 6v.
3. Van der Wiel 5‘/2 v.
4. -5. Guðmundur og Margeir
5v + biðskák.
6. Jusupov 5v.
7. Ilort 4 v.
8. Helgi 3'/2 v.
9. Jón L. 3v + biðskák.
10. -11. Jóhann og Karl 3v.
12. Curt Hansen2'/2V + biðskák.
í dag kl. 14.00 hefst 10. og
næstsíðasta umfcrðin. Þá cigast
við: Karl og Spasský, Helgi og
Jusupov, Margeir og Van der
Wiel, Hansen og Hort, Guð-
mundur og Jón L. og Jóhann og
Larsen.
Röð Vinn 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12
1 Karl Þorsteins 3 v • 1/2 0 1 0 1/2 1/2 0 0 1/2
2 Helgi Ólafsson 3V2 v. 1/2 • 0 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1/2 1/2
3 MargeirPétursson 5+b 1 1 • 1 0 Bið 1/2 1/2 0 1
4 CurtHansen 2+b 0 1/2 0 • Bið 1/2 1/2 0 0 1/2
5 Guðm. Sigurjónsson 5 +b 1 1/2 1 Bið • 0 1/2 1/2 1/2 1
6 Jón L. Árnason 3+b 1/2 1/2 Bið 1/2 • 1/2 1/2 1/2 0 0
7 V. Hort 4 1/2 1/2 1/2 1/2 • 1/2 0 1/2 1/2 1/2
8 Van der Wiel 5’/2 1 1 1 1/2 1/2 • 1 1/2 0 0
9 Jusupov 5 1 1/2 1/2 1/2 1 0 • 1/2 0 1
10 B. Spasský 6 v 1/2 1 1/2 1 1/2 1/2 1/2 • 1/2 1
11 Bent Larsen 7 v 1/2 1 1 1/2 1 1/2 1 1 1/2 •
12 JóhannHjartarson 3 1/2 1/2 0 1/2 0 1/2 1 0 0 •