NT - 23.02.1985, Blaðsíða 24

NT - 23.02.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónurfyrir hverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Vestur-þýsl Ger ta og austurríska sjónvarpið: a kvikmynd um Nor ina á Akureyri ■ Fyrirhugað er að vestur-þýska og austurríska sjón- Nonnahúsið er útlendingar, að- dáendur Nonna og lesendur sem fara í eins konar pílagrímsferð á æskustöðvar hans. Víst er um það að Jón Sveinsson er víða kunnur, því bækur hans hafa veriö þýddar á um 30 tungumál, t.d. bókin Nonni og Manni á 18 tungur. varpið ásamt e.t.v. fleiri sjónvarpsstöðvum í Mið-Evrópu, festi líf og starf rifhöfundarins og fræðimannsins Jóns Sveinssonar „Nonna“, á fllmu. Útsendarar þessara tveggja sjónvarpsstöðva ásamt Þorsteini Jónssyni kvik- myndagerðarmanni í Reykjavík voru á ferðinni á Akureyri og víðar norðanlands á síðastliðnu hausti og festu þá nokkra búta á fllmu. ■ Nonnahúsiö á Akureyri, minningasafn um Jón Sveinsson, stofnsett af Zonta-konum á Akureyri ló.nóvember 1957 á aldarafmæli skáldsins. NT-mynd: Björn P. Vogar. Mjólkursamsalan Fjármálaráðuneytið tregt á heimildir til mannaráðninga fulltrúa á svæðisskrifstofur rekstrarsvæöanna, og til að ákveða launakjör þessara starfsmanna. Þetta kom fram á blaða- mannafundi, sem iðnaðarráð- herra og forsvarsmenn Raf- magnsveitna ríkisins efndu til í gær, þar sem kynnt var eins árs reynsla af hinu nýja skipu- lagi, sem sett var eftir úttekt ráðgjafafyrirtækisins Hag- vangs á stofnuninni. Þessi dráttur á manna- ráðningum hefur haft það í för með sér, að enn hefur ekki reynst unnt að færa verkefni frá aðalskrifstofunni í Reykjavík út á svæðisskrifstofurnar, sem er eitt meginatriði hins nýja skipulags. Skipulagsbreytingarnar, sem að öðru leyti hafa tekist vel, fela það m.a. í sér, að aðalskrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins er nú skipt í tvær megindeildir, fjár- málasvið og tæknisvið. sem hvort um sig skiptist í undir- deildir, auk skrifstofu rafmagns- veitustjóra. Ein meginbreyting- in frá fyrra skipulagi er sú, að rekstrardeildin er lögð niður og verkefni hennar færð til fjár- mála- og tæknisviðs, eftir því, sem við á. A fundinum kom fram, að þeim markmiðum, sem sett voru með skipulagsbreytingun- um, þ.e. hagkvæmni í rekstri með höfuðáherslu á sparnað, hefur verið náð að verulegu leyti. Það var í ágúst 1983, að iðnaðarráðherra fól Hagvangi að gera úttekt á skipulagi og rekstri Rafmagnsveitna ríkisins. Á þeim tíma var Ijóst, að breyt- ingar voru nauðsynlegar á starf- semi fyrirtækisins vegna sam- dráttar í starfseminni, sem or- sakaðist af yfirtöku Landsvirkjun- ar á undirbúningi virkjunar- framkvæmda og byggðalínum, árið 1982, en Rafmagnsveiturn- Að sögn Stefaníu Ármanns- dóttur safnvarðar í Nonnahús- inu á Akureyri, bcndir allt til að þessir menn verði aftur á ferð- inni á vori komanda til frekari undirbúnings. Senv áður sagði voru teknar nokkrar útisenur á Möðruvöllum og Skipalóni í Hörgárdal, bernskustöðvum Nonna, svo og á Akureyri. Einnig var tekinn viðtalsþáttur við Harald Hannesson hagfræð- ing í Reykjavík, en hann er talinn manna fróðastur um öll málefni er lúta að Jóni Sveins- syni. Ennfremur sagði Stefanía að þrátt fyrir að örfáar senur yröu teknar hcr, þá færu upp- tökur að mestu fram í stúdióum erlendis. Auk þess sem sjón- varpsstöðvar í Mið-Evrópu, ættu mikið af heimildum um Góðar stundir með MS sam- lokum -hvar og hvenær sem er. 1 100 áraídag ■ Húnvetnskur höfðingi - Björn Guðmundsson frá Reyn - hólum í Miðfirði er 100 ára í dag. Björn fæddist á Þverá í Núpsdal 23. febrúar 1885. Fyrstu búskaparár sín bjó hann víðs vegar um Miðfjörð, en fluttist síðan að Reynhólum 1933 og bjó þar síðan þar til hann brá búi 1966, þá kominn á níræðisaldur. Kona Björns var Ingibjörg Jónsdóttir frá Huppahlíð. Þau áttu 7 börn sem öll eru á lífi. Er Björn brá búi tók Elís sonur hans við búinu á Reynhólum, en síðar annar sonur Björns, Jóhannes hreppstjóri á Reyn- hólum. Þrátt fyrir 100 ár að baki er Björn andlega hress og stál- minnugur, en nokkuð farinn að tapa sjón. Björn dvelur nú á sjúkra- og dvalarheimili ald- raðra á Hvammstanga. Ef veður leyfir mun Björn halda upp á aldarafmælið í stórum hópi af- komenda og húnvetnskra vina í félagsheimilinu Ásbyrgi á af- mælisdaginn. Mvnd Brynjólfur Sveinbcrgsson Nonna, m.a innimyndir úr Nonnahúsinu. Þrenns konar hugmyndir eru uppi, og gæti jafnvel fariö svo að þær yrðu allar að veruleika. í fyrsta lagi er um að ræða heimiidamynd um líf og starf Jóns Sveinssonar, í öðru lagi leikna kvikmynd er byggð yrði á einhverri eða einhverjum af bókum Nonna. í þriðja lagi er svo unt að ræða röð sjónj ■varpsþátta sem yrði blanda af hinu tvennu. Það er ekki að undra að Þjóðverjar og aörir Mið-Evr- ópubúar liafi áhuga á Jóni Sveinssyni, því þar um slóðirer hann vel þckktur bæði fyrir fyrirlestra sína, og ekki síður sem rithöfundur. Um helmingur þeirra gcsta er árlega heimsækja ■ Framkvæmd skipulags- breytinga þeirra, sem gerðar voru á Rafmagnsveitum ríkisins í fyrra og tóku gildi 15. febrúar 1984, hafa gengið hægar en Framkvæmdin gengið hægar en áætlað var stefnt var að. Ástæður þess eru fyrst og fremst þær, að erfiðlega hefur gengið að fá heimild fjármálaráðuneytisins til að ráða fjármálafulltrúa og tækni- ar höfðu áður haft þessi verkefni með höndum. Kostnaður við gerð úttektar- innar er rúmar tvær milljónir króna. er þetta appelsína með 8946 títuprjónum í. Þetta er afrakstur „heimsmetahóps" sem starfaði á Imbrudögum Fjölbrautaskólans í Garðabæ en þar unnu nokkrir starfshópar að ákveönum verkefnum, m.a. útvarpi, bakstri, handavinnu og skák. Heimsmetahópurinn er að vonum ánægður með árangurinn á þess- ari mynd og nú er að bíða og sjá hvort afrekið kemst á spjöld Heims- metabókar Guinness. NT-mynd: Róbert Dalvík: Nýr forstöðumaður Dalbæjar ■ Sjö sóttu um stöðu forstöðu- manns Ualbæjar, dvalarheimilis aldraðra á Dalvík. Ólafur B. Thoroddsen hlaut stööuna, og tekur hann við af Gunnari Bergmann núverandi forstöðu- manni í maflok. í Dalbæ starfa nú um 25 starfsmenn við umönnun 43 vistmanna. Hvert rúm er skipað og nærri lætur að annað eins sé á biðlista. Stækkun dvalar- heimilisins stendur þó ekki fyrir dyrum, þrátt fyrir húsnæðisekl- una, og í raun eru engar frekari framkvæmdir í sjónmáli. nema ef vera skyldi að hluta heimilis- ins yrði breytt í sjúkradeild. Brýn þörf er fyrir slíka deild, en enn er ekki ljóst hvort af þessum breytingum verður.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.