NT - 27.02.1985, Blaðsíða 1
Stíf fundahöld
í sjómannadeilu
Frystitogarar frágengnir og
lífeyrissjóður bátasjómanna
Tilboð í Kringlu-
mýrarbrú opnuð:
7 milljónum
undir kostn-
aðaráætlun
■ Lægst tilboöa í byggingu
brúar yfir Kringlumýrarbraut,
sem opnuö voru í gær, hljóöar
upp á 32 milljónir 153 þúsund
451 krónu og kemur frá verk-
takafyrirtækinu Hábæ. Ljóst
verður innan tíu daga hvaða
tilboði vcrður tekið en alls voru
opnuð í gær 5 tilboð sem komust
áfram úr forvali.
Bent S. Einarsson annar
framkvæmdastjóra Hábæjar sagð-
is telja líklegl að þeir fengju
verkið og þá hæfust fram-
kvæmdir í byrjun mars og yrði
lokið í desember. Kostnaðar-
áætlun Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar fyrir bygg-
ingu brúar yfir Kringlumýrar-
braut hljóðar upp á 39 milljónir
131 þúsund 809 krónur.
kanna starfsemi þeirra.
Telja bankar og sparisjóðir sig
bundna þagnarskyldu um hagi við-
skiptavina sinna.
Þetta kom fram í svari við-
skiptaráðherra Matthíasar Á.
Mathiesen við fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur um útlán banka og
sparisjóða en hún vildi fá upplýs-
ingar um ýmsa þætti bankamála
því það varðaði hag alls almenn-
ings hvernig þessar lánastofnanir
væru reknar. Spurði Jóhanna hver
hefði verið heildarfyrirgreiðsla
viðskiptabanka og þriggja stærstu
sparisjóðanna til fimm stærstu
lántakenda einstakra banka og
sparisjóða í árslok 1983 og 1984.
Einnig spurði hún hvert hefði
verið hlutfall heildarfyrirgreiðslu
hvers lánsþega um sig af eigin fé
stofnunarinnar; hvort þar sé um
að ræða lántakendur, einn eða
fleiri, sem séu svo fjárhagslega
tengdir öðrum lántakendum stofn-
unarinnar að skoða beri heildar-
fyrirgreiðslur til þeirra í einu lagi
og loks hvernig fyrirgreiðslan hafi
verið tryggð í hvert skipti.
Viðskiptaráðhcrra kvaðst hafa
sent bankaráðum þessar fyrir-
spurnir og fengið fyrrgreind svör
og hefði hann ekki neinu við þau
að bæta.
Jóhanna sagði að þessi leynd
skapaði tortryggni og þyrfti að
Hort með f jöltef li
■ Tékkneski skákmeistarinn Vlustimil Hort reyndi sig við 40
andstæðinga á fjöltefli í íþróttahúsinu í Hafnarfírði í gærkvöldi.
Þegar NT fékk síðast fréttir af gangi mála, um kl. 22.30, var engri
skák lokið, en jafnvel talið, að fjórir hefðu betri stöðu en
StÓrmeÍStarÍnn. NT-mjnd Sverrir
Jón var væntanlegur á fund
samninganefndarmanna seint í
gærkvöldi.
Ekki voru ræddir kaupliðir á
samningafundi deiluaðila í gær,
en verið var að afgreiða önnur
mál sem byrjað var að ræða í
gær.
Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari gekk á fund ráðherra í
gærdag. Ekki er vitað hvað
þeim fór á milli.
Það sem þegar hefur tekist
samkomulag um eru málefni
frystitogaranna, og ejnnig mun
faTlist á að bátasjómenn greiði í
framtíðinni af öllum launum
sínum í lífeyrissjóð.
Sjá nánar um samninga sjó-
manna bls. 4.
Bankar og sparisjóðir:
rjúfa þessa samtryggingu bank-
anna. Hægt hefði verið að svara
þessu án þess að brjóta trúnað því
ekki hefði verið spurt um nöfn.
Lagði hún til að ákvæði yrði í
nýjum bankalögum sem tryggði
að Alþingi fengi upplýsingar af því
tagi scm hér hefði verið spurt um
um stöðu banka.
Halldór Árnason stjórnarmaður Kísilmálmvinnslunnar:
Kísilmálmverksmiðjan
verði reist sem fyrst
- og ekki beðið lengur eftir útlendingum
■ Halldór Árnason stjórnar-
maöur í Kísilniálmvinnslunni
lagði það til á fundi stjórnarinn-
ar í gær, að hún skoraði á
iðnaðarráðherra að leita nú
þegar heimildar ríkisstjórnar-
innar til að hefja byggingu
kísilmálmverksmiðju á Reyð-
arfirði á grundvelli núgildandi
laga, þannig, að unnt væri að
hefja framkvæmdir á komandi
vori. Þá lagði Halldór til að
kannaður yrði áhugi innlendra
aðila, annarra en ríkisins, á
eignaraðild að verksmiðjunni.
„Það, sem mér finnst skipta
máli, þegar rætt er um kísil-
málmverksmiðjuna, er að
endurteknir útreikningar og at-
huganir sýna, að hún getur
verið vænlegur orkunýting-
arkostur. Fjárfestingar vegna
' kísilmálmverksmiðjunnar eru
samtals um 110 milljónir
bandaríkjadala, þar af um 50
milljónir í raforkuframleiðsl-
unni. Við höfum þegar fjárfest
í raforkukerfinu, en það er
hikað við að fjárfesta í verk-
smiðjunni sem er nauðsynleg
forsenda fyrir arðsemi fjár-
festingar á raforkunni. Með
þetta í huga eru veigamikil
þjóðhagsleg rök fyrir að gang-
setja verksmiðjuna sem fyrst,"
sagði Halldór í samtali við NT
í gær.
Halldór sagði, að tillaga hans
hefði ekki fengið undirtektir
hjá öðrum stjórnarmönnum,
sem vildu bíða eftir úrslitum úr
könnun á vilja erlendra aðila til
að eiga og reka fyrirtækið með
okkur. Hins vegar sagðist Hall-
dór meta þær upplýsingar, sem
hann hefði á þann hátt, að
sáralitlar líkur væru á því, að
erlendur eignaraðili fyndist á
næstu mánuðum.
NEI - Engar upplýsingar
■ Það var allsérstakur farþegi sem tók sér
far með einni af flugvélum Arnarflugs í
gærkvöldi. Þessi farþegi var selur sem villtist
upp að ströndum Hollands fyrir nokkru.
Fyrirhugað er að fljúga með selinn til Akur-
eyrar og sleppa honum þar á næstunni. Þetta
er í annað sinn sem hollenski selaspítalinn
sendir sel til íslands, þar sem honum er sleppt.
NT mynd: Svcrrir
Mannslátið á
Grettisgötu:
Konan játar
ryskingar
Maðurinn ber
aðra sögu
■ Konan sem hundtekin
var vcgna rannsóknar á
dánarorsök Sigurðar
Breiðfjörð Ólafssonar ber
við vitnaleiöslur að kunn-
ingi hennar sem jafnframt
situr inni vegna málsins
hafi lcnt í ryskingum við
Sigurö á föstudagskvöld.
Maöurinn neitar sann-
leiksgildi þeirrar frásagnar
aftur á móti alfarið og er
enn ekki Ijóst hvcrnig
áverkar þeir sem lík Sig-
urðar bar liafa komiö. Þá
hefur krufning enn ekki
leitt í Ijós hver raunveru-
leg dánarorsök er.
Yfirheyrslur vegna
þéssa ntáls héldu áfram í
gærkvöld.
■ Samningafundur sjómanna
og útgerðarmanna stóð enn yfir
þegar NT fór í prentun í nótt.
Illjóðið í samningamönnum var
gott, og sögðu viðmælendur NT
að eitthvað hefði miðað í samn-
ingsátt þó að hægt færi.
Jón Sigurðsson fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar í viðræðum við
samninganefndirnar hafði átt
fundi með forvígismönnum
samninganefndanna. í samtali
NT við Jón varðist hann allra
frétta af gangi viðræðnanna. En
Háskólaút'
varp sent
í nefnd
■ Nefndarálit undir-
búningsnefndar fyrir
Háskólaútvarp var lagt
fyrir Stúdcntaráð í gær, og
vísaði ráðið því til mennta-
málanefndar sinnar.
Þá verður álitið lagt fyr-
ir fund Háskólaráðs á
fimmtudag, og kannað
hvort vilji er hjá hásköla-
I yfirvöldum til aðeigasant-
' vinnu við stúdenta um
slíkan útvarpsrekstur.
■ Bankar og sparisjóðir neita ail
upplýsa Alþingi um starfsemi sína
og tclja sér livorki heimilt eða
skylt að svara fvrirspurnum frá
einstökum þingmönnum eða
nefndum Alþingis nema skipaðar
séu sérstakar rannsóknarnefndir
af löggjafarsamkomunni til að