NT


NT - 27.02.1985, Síða 2

NT - 27.02.1985, Síða 2
 Miðvikudagur 27. febrúar 1985 Þingsályktun um fullvinnslu sjávarafla: Gjaldeyrisaukning uppá 5,4 milljarða - segir Guðmundur J. Guðmundsson sem mælti fyrir tillögunni Silunganet lögð í vötn undir ís Álitleg búgrein og silungur til útflutnings ■ Guðmundur J. Guðmunds- son mælti fyrir þingsályktunar- tillögu um fullvinnslu sjávarafla á sameinuðu þingi í gær. Sagði Guðmundur að íslenska þjóðin ætti að setja sér sem markmið að auka hlutfallslegt verðmæti íslensks sjávarafla um V) á næstu árum en það þýddi gjaldeyris- aukningu fyrir þjóðarbúið uppá 5,4 milljarða króna. Benti Guðmundur á að auka mætti þessi verðmæti enn frekar ef varið væri meira fé til fram- kvæmda við vinnslu sjávar- afurða, veitt hagstæðari afurða- lán, rannsóknir auknar og markaðsleit efld. Hlaut tillagan mjög góðar undirtektir Gunnars G. Schram, Skúla Alexandersson- ar, Stefáns Guðmundssonar, Guörúnar Agnarsdóttur og Ólafs Þ. Pórðarsonar. Benti Ólafur á að viö flyttum inn fólk í stórum stíl til að vinna í fiski þau störf sem viö teldum okkur ekki samboðin og væri þetta einna líkast þrælainnflutningi Aþenumanna fyrr á öldum og innflutningi Svía nú á dögum. Gagnrýndi hann fólksstreymið til bankakerfisins og þjónustu- stofnananna og þá fjölmiðla- stefnu að klifa stöðugt á offjár- festingu í sjávarútveginum. Það hefði ekki veriö lengi sem menn gátu leikið sér í Aþenu eftir að þeir fóru aö flytja inn þrælana og það gæti haft afdrifarík áhril' á sjálfstæði okkar ef sú fjölmiðlastefna sem klifar á of- fjárfestingu í sjálfstæði okkar ef sú fjölmiðlastefna sem klifar á offjárfestingu í sjávarútvegi fengi að halda áfram. Guðrún Agnarsdóttir sagði að aðbúnaöur okkar að fisk- vinnslufólki jaðraði við fyrirlitn- ingu og sú þjóð sem sýndi undirstöðuatvinnuvegi sínum svo litla virðingu væri í vanda stödd. Stefán Guömundsson tók mjög í sama streng og taldi einnig fróðlegt að kanna hvort rétt væri að 40-50, jafnvel 60% af fiski sem veiddur væri færi í sjóinn aftur og það á nýjustu og. bestu skipunum. Stefán taldi eins og Ólafur það fjölmiölabá- bilju að offjárfesting í sjávarút- vegi væri að kollkeyra þjóðarbú- ið. Hann tók undir það með Guðm. J. að merkilegt væri hve fáir öfluðu mikið í okkar þjóð- arköku. Birgir ísleifur benti m.a. á það í umræðunum að það væri ferskur fiskur sem gæfi mest af sér á erlendum mörkuðum nú um stundir. Hann varpaði fram þeirri spurningu hvort ný bylt- ing væri að ganga yfir á Vestur- hveli; að menn vildu ferskan fisk en ekki frystan. Það væri áfall fyrir okkur íslendinga, sem höfum byggt upp kerfi frysti- húsa um allt land. Haraldur Ólafsson lýsti yfir stuðningi við tillöguna og beindi umræðunni einnig að útflutn- ings og markaðsmálum. Lánveitingar úr Byggingarsióði ríkisins tii umræðuáAlþingr. ■ 6440 umsóknir liggja fyrir hjá Byggingarsjóði ríkisins um lán vegna íbúöarbygginga, þar af eru 1980 þeirra um svokölluð G-lán vegna kaupa á eldra hús- næði. Tilbúin til afgreiðslu eru 750 nýbyggingarlán og 871 G- lán og verða þau greidd út 5. mars nk. Alexander Stefánsson, fé- lagsmálaráðherra, upplýsti á Alþingi í dag að óafgreiddar 6440 umsóknir liggja fyrir ■ Austur í Holtum í Rang- árvallasýslu eru þessa dagana nokkrir bændur í námi hjá þingeyskum bónda í silunga- veiði í net undir ís. Bóndi þessi hefur ferðast um norðanlands og sunnan á liðnum vetri og kennt þessa veiðiaðferð, auk verkunar á silungi og gerð silunganeta. Eru vonir bundnar við að silungaveiði geti orðið álitleg aukabúgrein margra bænda auk þess sem á sumum jörð- um er að líkindum hægt aö byggja afkomu á veiðinni einni. Silunginn má meðal annars selja á erlendan markað. Héðinn Sverrisson, bóndi á Geiteyjarströnd við Mývatn, er kennari bænda í þessari atvinnugrein. í sam- tali við NT kvaðst hann álíta að víða gætu bændur byggt afkomu sína að verulegu leyti á þessari atvinnugrein og þá um leið dregið úr hinum hefðbundna búskap. Nefndi hann sem dæmi tvo bændur sem lært höfðu fagið hjá honum fyrir áramót og fiskuðu núna yfir tonn af silungi á mánuði en kílóið er selt á um eða yfir 90 krónur til útflutnings. Mál þetta kom fyrir Bún- aðarþing þar sem góður róm- ur var gerður að silungsveiði sem búgrein. Að sögn Árna G. Péturssonar, hlunninda- ráðunauts, er talið að silungs- veiði sé á um 1700 jörðum í landinu. væru 350 umsóknir þar sem húsnæði væri fokhelt en vottorð vantaði, 830 umsóknir sem bár- ust á tímabilinu I. jan.-l. febr., 1920 umsóknir vegna ýmissa breytinga á nýbyggingum, 1109 umsóknir vegna eldra húsnæðis, 100 umsóknir vegna leiguíbúða aldraðra, 350 umsóknir vegna íbúða aldraðra, 200 umsóknir vegna orkusparandi aðgerða og 10 umsóknir vegna minni við- gerða. Þormóður rammi: Nýr f ramkvæmdastjóri og nýtt skipulag ■ Ingólfur Arnarson, sjávar- útvegsfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fisk- vinnslufyrirtækisins' Þormóðs ramma á Siglufirði frá og með 1. mars næstkomandi, en þá gengur í gildi nýtt skipulag fyrir- tækisins. Róbert Guðfinnsson, framleiðslustjóri, hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmda- stjóri frá sama tíma. Ingólfur mun annast mark- aðsmál fyrirtækisins, fjármál og stýringu veiða og vinnslu. Ró- bert mun hafa með höndum stjórnun á framleiðslu og um- sjón með rekstri togara fyrir- tækisins, jafnframt sem hann verður staðgengill frani- kvæmdastjóra. Einar Sveinsson, núverandi framkvæmdastjóri, lætur af störfum í lok mars og fer þá til Sjólastöðvarinnar í Hafnarfirði. Sundurliðun Alexanders var svar við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur um lánveitingar úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna. Hjá Byggingarsjóði verka- manna eru umsóknir frá 23 sveitarfélögum vegna 108 íbúða auk óafgreiddra umsókna vegna 282 leiguíbúða. Alexander neitaði því að taka ætti fjármagn til að leysa vanda húsbyggjenda af nýbyggingarfé, það mætti eins taka það af heildarfjárntagninu og deila því niður á lánaflokkana en þessi mál ætti eftir að taka fyrir í Húsnæðismálastjórn ríkisins. Jóhanna Sigurðardóttir lýsti því yfir að það vantaði 700 milljónir í Byggingarsjóð ríkisins og Byggingarsjóð verkamanna til þess að geta staðið við skuld- bindingar þeirra og samkvæmt bráðabirgðaáætlun fyrir sjóðina árið 1985 væri um töluverða skerðingu á ráðstöfunarfé að ræða frá árinu 1984. Þá hefðu sjóðirnir haft til umráða 1552 milljónir króna en ráðstöfunar- féð fyrir árið 1985 væri um 11-1200 milljónir þegar búið væri að draga frá 175 milljónirn- ar sem nota ætti til þess að bjarga vanda húsbyggjendanna. Samtök um kjarnorkuvopnalaust Ísland: Stofnfundur á sunnudag ■ Anker Jörgensen, fyrrum for- sætisráðíierra Danmerkur, og Erlendur Patursson grænlenskur fulltrúi á komandi Norðurlanda- ráðsþingi í Reykjavík, flytja erindi á stofnfundi Samtaka um kjarn- orkuvopnalaust ísland-friðlýst land á sunnudaginn. Þessi samtök munu berjast fyrir því að Alþingi lýsi yfir að á Islandi verði aldrei staðsett kjarnorkuvopn, þau verði ekki framleidd á íslenskri grund, tilraunir með þau ekki leyfðar og óheimilt verði að flytja þau um íslenska lögsögu. Aðrir sem flytja erindi á stofnfundinum verða Sól- veig Georgsdóttir og sr. Gunnar Kristjánsson. Á blaðamannafundi í gær þar sem þessi samtök voru kynnt kom fram að hugmyndin hefði komið frá fólki úr ýmsum friðarhreyfing- um eftir Friðarpáskana í Norræna húsinu í fyrra og samþykkt fær- eyska lögþingsins um friðlýsingu Færeyja gegn öllum kjarnorku- vopnum og yfirlýsingu grænlenskra Lögþingsins í sama dúr. Fundarboðendur sögðu að kröf- ur í þessum anda væru ef til vill þær raunhæfustu, sem hægt væri að setja fram í dag með árangri, þær hefðu mikið almannafylgi og á hinum Norðurlöndunum styddu stærstu stjórnmálaflokkar Noregs og Svíþjóðar lýsingu kjarnorku- vopnalauss svæðis á Norður- löndunum og í Finnlandi og Sví- þjóð væri lýsing slíks svæðis ríkis- stjórnastefna. Þeir undirstrikuðu þó að hér væri um alíslenska hreyfingu að ræða, óháða stjórn- málaflokkum og opna öllum ein- staklingum sem áhuga hefðu á að leggja málinu lið án tillits til þess hvort þeir væru aðilar að einhverri friðarhreyfingu eða ekki. Stofnfundurinn á sunnudaginn verður á Hótel Borg og hefst kl. 14.00. Auk fyrrgreindra erinda mun Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanóleikari leika einleik og Elísa- bet F. Eiríksdóttir syngja einsöng. Fundarstjórar verða Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Ásgeir Haraldsson læknir. Opinber leyniskjöl ■ Eitthvað virðist það vefj- ast fyrir norskum yfirvöldum að sanna sekt Arne Treholts svo óyggjandi sé. Sjálfur heldur Treholt því blákalt fram að hann hafi ekki gefið aðrar upplýsingar en þær sem þegar höfðu verið birtar op- inberlega eða á annan hátt voru öllum augljósar. Menn velta því að vonum fyrir sér hvaða 66 skjöl það hafi verið sem norska örygg- islögreglan fann í tösku Treholts, þegar hann var handtekinn á sínum tíma. Það skyldi þó aldrei vera að hér hafi verið um að ræða fréttatilkynningar frá norska utanríksiráðuneytinu - en þá væntanlega aðeins ætlaðar vestrænum fréttamönnum! Margt leyni- legt í Noregi ■ í framhaldi af þessum vangaveltum minnast menn gjarna málaferla sem urðu í Noregi ogSvíþjóðgegn Bret- anum Owen Wilkes sem um hríð vann að rannsóknum við sænsku friðarrannsókn- arstofnunina, SIPRI. í Noregi var Wilkes dæmd- ur fyrir skýrslu sem hann samdi og talin var stofna öryggi norska ríkisins í hættu. Það kom aumingja Wilkes að engu haldi þótt hann gæti sannað fyrir rétti að allar upplýsingar í skýrsl-' unni voru fengnar úr opin- berum pappírum og uppi- staða skýrslunnar var reynd- ar samin upp úr norsku síma- skránni. ... og í Svíþjóð ■ Ekki hafði Owen Wilkes fyrr verið dæmdur í Noregi fyrir að „stela" leynilegum upplýsingum úrsímaskránni, en það rann upp fyrir sænsku öryggislögreglunni að hér fór maður sem vissara var að hafa gætur á. Þeir piltar voru ekkert að tvínóna við hlutina en gerðu óðar húsrannsókn í skrif- stofuherbergi Wilkes í húsa- kynnum SIPRl í Stokk- hólmi. Og viti menn, - þar fundust ljósmyndir af hern- aðarmannvirkjum á Got- landi. Nú höfðu myndirnar að vísu allar með tölu verið teknar af þjóðveginum og sýndu því þessi hernaðar- mannvirki frá nákvæmlega sama sjónarhóli og þau hafa blasað við augum sænskra og erlendra ferðamanna árum saman, en Gotland er einmitt helsta sumarleyfisparadís Svía. En þetta gerði ekkert til. Wilkes var dæmdur samt.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.