NT - 26.03.1985, Síða 2
IU'
Þriðjudagur 26. mars 1985
Útlitsteikning af fyrirhuguðu húsi Tónlistarskólans á ísafírði.
ísafjörður:
Safna fyrir
tónlistarhúsi
- með söng, dansi og veitingum
Lokun smíðastofanna í Fellaskóla:
Félagsmálaráðuneytið
hlutaðist aðeins til
um viðræður deiluaðila
■ Einu afskipti félagsmála-
ráðuneytisins af lokun smíða-
■ Langþráð tónlistarskóla-
bygging á ísafirði mun senn rísa
af grunni.
Til styrktar byggingunni
gengst áhugafólk fyrir kabarett
sýningum í Félagsheimilinu í
Hnífsdal. Þær vcrða haldnar
fimmtudagskvöldið 28. mars,
föstudagskvöldið 29. mars og
sunnudagskvöldið 3I. mars og
hefjast kl. 20.30.
Kabarettstjóri er Samúel J.
Samúelsson og fjöldi söngvara
dansara, tónlistarmanna og
leikara rnun koma fram. Allir
gefa þeir vinnu sína og tekjurn-
ar af kabarettinum munu renna
óskiptar í byggingarsjóð tónlist-
arhússins.
Gestir munu sitja viö dekkuð
borö og njóta góðra veitinga í
hléi, en vcitingarnar cru inni-
faldar í miðaverði.
IBM-PC:
Sýna hugbúnað
- ýmsar nýjungar kynntar
■ IBM á íslandi heldur sýn-
ingu á hugbúnaði PC einkatölv-
unnar dagana 28.-30. mars nk.
I fréttatilkynningu frá IBM
segir að sýningin 'sé einkunt ætl-
uð þeint er vilja kynna sér þann
fjölda tilbúinna verkefna og
forrita sem gerður hefur verið
fyrir IBM PC einkatölvuna.
Þá verða kynntar ýmsar nýj-
ungar. Þar á meðal nýr hönnun-
ar- og tengibúnaður fyrir IBM
PC, íslensk verkefni fyrir við-
skiptafyrirtæki, stofnanir, iðnað
og skóla.
Um fimmtán aðilar taka þátt í
sýningunni sem verður í nýju
þjónustuveri IBM á jarðhæð
Skaftahlíðar 24, og verður opin
kl. 09-I8 fimmtudag og föstu-
dag, og kl. 09-16 laugardag.
Jassvakning:
Jass-hátíð í Naustinu
■ í kvöld og annað kvöld
heldur Jassvakning heil-
mikla Jass-hátíð í Naust-
inu. Hátíðin hefst klukkan
níu bæði kvöldin og stend-
ur yfir til klukkan þrjú.
Allir helstu djassleikar-
ar landsins munu mæta í
Naustið þau kvöld sem
hátíðin stendur yfir en sér-
stakur gestur hátíðarinnar
er breska blúsdrottningin
Beryl Bryden.
Beryl Bryden hefur ver-
ið syngjandi í rúma þrjá
áratugi og hefur hún á ferli
sínum sungið meö öllum
þekktustu djassleikurum
heimsins, þ.á m. Louis
Armstrong, Lionel
Hampton, Billie Holiday
og Mary Lou Williams.
Hún hefursungið inn á um
eitt hundrað hljómplötur
með 36 mismunandi
hljómsveitum og auk þess
farið í fjölmörgsöngferða-
lög um heimsbyggðina
þvera og endilanga.
Og við fáum sem sagt að
heyra í henni á djass-há-
tíðinni í Naustinu í kvöld
og annað kvöld.
■ Beryl Bryden og Guðmundur Ingólfsson, hljóm-
sveitarstjóri á Nausti. NT-mynd: Sverrir.
stofanna tveggja í Fellaskóla og
lausn málsins voru þau, að það
hlutaðist til um viðræður á milli
fulltrúa Vinnueftirlitsins og
menntamálaráðuneytisins.
Þetta kemur m.a. fram í fréfi
frá forstjóra Vinnueftirlitsins, Eyj-
ólfi Sæmundssyni, lil kennarafé-
lags Fellaskóla, vegna ályktunar
kennaranna um málið og sem
þegar hefur verið sagt frá.
í bréfinu kemur einnig fram.
að Vinnueftirlitið hafi ekki
fallið frá neinni af kröfum sínum
um úrbætur á smíðastofunum,
enda hafi þeim ekki verið
mótmælt. Lokun stofanna hafi
náð tilgangi sínum. þegar komið
hafi fram, að menntamálaráðu-
neytið myndi taka mál þetta til
meðferðar. og með yfirlýsingu
skólastjóra um, að komist yrði
hjá þeim aðstæðum, sem helstar
voru taldar varhugaverðar.
Héraðsvaka Rangæinga:
Sýning sex rang-
æskra listamanna
- daglega sitthvað til fróðleiks og skemmtunar
■ Sýning á verkum sex rang-
æskra myndlistarmanna stendur
nú yfír í Héraðsbókasafni Rang-
æinga í tengslum við Héraðs-
vöku Rangæinga dagana 23. til
30. mars. Myndlistarmennirnir
eru: Dóra Halldórsdóttir,
Hermann Dsterby, Klara Har-
aldsdóttir, Meyvant Þórólfsson,
Sigurður Oskarsson og Stefán
Lárusson. Sýningin er opin frá
kl. 15.00 til 18.00 meðan á Hér-
aðsvöku stendur.
Á dagskrá Héraðsvöku í dag,
þriðjudaginn26. mars.erkvöld-
vaka að Heimalandi þar sem
skemmt verður með leikþátt-
um, upplestrum og söng. N.k.
fimmtudagskvöld verður fróð-
leiksvöld í Héraðsbókasafni.
Fræðarar eru: Friðrik Guðni
Þorleifsson, Oddgeir Guðjóns-
son og Þórður Tómasson, en
einnig verður harmonikuleikur
og söngur barnakórs.
Föstudagskvöldið er helgað
unglingaskemmtun á Hvoli, þar
sem fram fer m.a.; break-
danskeppni, tískusýning barna
og unglinga og karatesýning, en
síðan mun hljómsveitin Status
leika fyrir dansi til kl. 1.00.
Lokaskemmtun Héraðsvöku
verðar í Njálsbúð á laugardag. Á
dagskránni eru: Ávörp, hljóð-
færaleikur, leikþáttur og mikill
og fjölbreyttur söngur. Hljóm-
sveitin Staccato leikur síðan fyr-
irdansiframeftirnóttu.
Kýrnar eða
bændurnir
■ Lágnytíslenskakúastoíns-
ins var meðal þess sem Reynir
Kristinsson frá Hagvangi gerði
að umtalsefni í erindi á aðal-
fundi Osta- og smjörsölunnar
um framtíð mjólkurbúskapar í
landinu. Benti Reynir þar á
hversu há nyt væri úr þeim 20
hæstu í landiriu og meðaltalið
gæti því eðlilega þokast eitt-
hvað upp á við.
Nokkrar umræður urðu úti i
sal um þctta og varpaði einn
fulltrúanna á fundinum því
fram að einstaklingarnir væru
jú misjafnir. Ræðumaður sló
því strax á létta strengi og
svaraði á móti:
„Eru það kýrnar eða eru
það bændurnir?"
Og var ekki frekar um mis-
muninn rætt.
Nýtt svar?
Svo við höldum áfram að
vitna í Reyni þá benti hann
meðal annars á vankanta í
markaðsmálum. Sjálfur sagð-
ist hann aldrei vera almenni-
lega sáttur við þá verðtilfærslu
að léttmjólk væri jafndýr og
nýmjólk. Hún ætti að vera að
minnsta kosti svo sem krónu
ódýrari.
Þetta gæfi bændum líka
styrkari stöðu og vissulega
þjónaði þetta betur markaðin-
um.
„Nú og þá losnum við líka
við eina blaðagrein frá ákveðn-
um aðila sem hefur verið að
tönglast á þessu atriði," bætti
Reynir við og þá var kominn
næsta skotheldur rökstuðning-
ur.
Það skyldi þó ekki vera að
það væri þetta sem átt væri við
þegar bændur tala um að svara
verði neikvæðum skrifum í
þeirra garð?
Hvenær hætta konur að
vera fólk?
Dropateljara þætti íróðlegt
að fá úr því skorið hjá Mjólk-
urdagsnefnd hvaða fólk það er
sern hún flokkar í hópinn:
„Fólk á efri árum".
„Það ættu allir að drekka
mjólk," auglýsir Mjólkurdags-
nefnd á breiðsíðum í blöðun-
um þessa dagana. í auglýs-
ingunni er talið upp hvað
hinir ýmsu aldursflokkar
fólks, svo og ófrískar konur,
sérstaklega, ættu heilsu sinnar
vegna að svelgja mikla mjólk á
dag. Stórdrykkjuhópurinn er:
„Konur 60 ára og eldri" - 4-5
glös á dag. Hins vegar eru
glösin ekki nema 2-4 fyrir :
„Fólk á-efri árum." Er þetta
Svona Branda mín, það fæst hvort eð er ekkert fyrir þig hjá S.S.
vegna þess að Mjólkurdags-
nefnd heldur að hún móðgi
konur yfir sextugt með því að
kalla þær „fólk á efri árurn"?
Eða hætta konur að teljast
með „fólki" þegar þær koinast
yfir sextugt? Eða hve langt yfir
sextugt þurfa konur að komast
til að tilheyra flokknum „fólk
á efri árum" og geta þá minnk-
að mjólkurskammtinn úr 4-5
glösum niður í 2-4 glös? Eða
eru „konur" kannski ekki tald-
ar með „fólki" svona almennt
hjá Mjólkurdagsnefnd?
Dropateljara þætti afar vænt
um að fræðast nánar um hug-
myndir Mjólkurdagsnefndar í
sambandi við „konur" oe
„fólk".