NT - 26.03.1985, Blaðsíða 13
■ Það liggur við að löggan sé að takast á loft með blöðrunum.
Erfitt að halda sig við jörðina
fyrir nýtrúlofaðan manninn
■ Þetta var fyrsti dagur hans
á vakt sem götulögregluþjónn
í San Francisco, - og þá kom
dálítið fyrir, sern varð þess
valdandi, að götulögreglu-
þjónninn var nærri orðinn að
fljúgandi löggæslumanni.
Kærastan hans hafði hugsað
sér að gera smávegis at í vinin-
um fyrsta daginn - og lét verða
af því. Hún lét blása út heila
tylft af blöðrum, og svo trítlaði
hún ásamt vinkonu sinni út á
götu, þar sem lögregluþjónn-
inn gætti að umferðinni og
réttu þær honum allar blöðr-
urnar. Loftið í blöðrunum var
það mikið, að lögregluþjónn-
inn varð að berjast hetjulegri
baráttu við að halda sig við
jörðina!
Síðan hljóp kærastan í
burtu, en það fer ekki sögum
af því hvernig samkomulagið
var hjá kærustuparinu um
kvöldið.
•Hriðjudagur 26. mars 1985 13
■ Edward
Kennedy eftir
erfiðan tennis-
leik.
Eg vann!“
■ Að leika tennis í sólar-
hita kemur út á manni
svitanum. Sumir verða
milljónamæringar á því að
leika tennis, svo sem eins
og Björn Borg o.fl. at-
vinnumenn. En svo er það
stærsti hópurinn sem iðkar
tennis til að fá holla hreyf-
ingu og iosna við nokkur
pund um leið og þeir hafa
gaman af leiknum.
Öldungadeildarmaður-
inn Edward Kennedy er í
þeim hóp, sem er að reyna
aö losna við spikið, en
hann segist vcra í allt of
mörgum veislum og þykja
gaman að borða góðan
mat,
Hér sjáum við að
Kennedy heíur lagt hart að
sér við íþróttina, því það
bókstaflega talað rennur af
honum svitinn.
"".........
Sinatra
■ Frank Sinatra söngvari hefur verið vinur for-
setahjónanna, þeirra Nancý og Ronalds Reagan,
frá fyrri árum og vinskapurinn haldist gegnum árin.
Nýlega var haldið heiðurssamsæti fyrir Sinatra t
Washington og auðvitað voru forsetahjónin þar.
Sagt var að söngvarinn hefði dansað svo innilega
við forsetafrúna, að manni hennar hafi þótt nóg
unt, og fór út á gólfið og sagðist sjálfur ætla að
dansa við konuna!
Frank Sinatra eignaðist 3 börn með fyrri konu
sinni, og þau eru öll uppkomin nú. Þau mættu öll
til heiöurssumsælis föður þeirra, Nancy, Tina og
Frank yngri Sinatra.
kinin: Nancy (t.v.) o
til hægri við bróðu
Frank yngri