NT - 26.03.1985, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 26. mars 1985 23
Bikarkeppnin í körfuknattleik:
Stóru liðin áfram
í úrslitaleikinn
Haukar sigruðu Fram og KR lagði Keflavík
Því varð ekkert óvænt, og ekki
fyrstudeildarlið í úrslitum, enda
varla von.
Fyrri hálfleikur leiks KR og
ÍBK var mjög jafn. Jafnt var á
mörgum tölum, en slæm hittni
Keflvíkinga um miðjan hálfleik-
inn færði KR forystu 25-20.
Keflvíkingar tóku sig þá á, og
höfðu yfir 32-31. KR-ingar
komust svo aðeins yfir fyrir
leikhlé, og þá var staðan 37-34
KR í hag.
En KR-ingar létu ekki við svo
búið standa, og gerðu út um
leikinn í upphafi síðari hálf-
leiks. Frábær vörn, ásamt eitr-
aðri hittni þeirra Guðna Guðna-
sonar og Birgis Mikaelssonar
breyttu stöðunni í 51-34 þegarb
mínútur voru liðnar, og þá
höfðu Keflvíkingar ekki enn
skorað körfu í hálfleiknum.
KR-ingar héldu svo uppteknum
hætti, liöfðu yfir 67-39 þegar
mest var, og leyfðu síðan vara-
mönnum að spreyta sig. Úrslit
urðu 87-69.
Matthías Einarsson lék frá-
bærlega með KR, ásamt þeim
Guðna og Birgi. Jón Kr.Gísla-
son var langbestur Keflvíkinga.
Stigahæstir KR-inga: Birgir M.
24, Guðni 22, Matthías 18,
ÍBK: Jón Kr. 24, Guðjón Skúla-
son 19. Dómarar Bob Iliffe og
Jóhann Dagur og leystu vel
auðvelt verk.
Haukar áttu í erfiðleikum
með Fram franran af í Hafnar-
firði. Framarar, með Símon
Ólafsson fremstan í flokki, áttu
rnjög góðan dag, og sýndu
Haukunum klærnar. Fyrri hálf-
leikur var rnjög jafn, en Haukar
höfðu yfir 39-32 í leikhléi. Strax
í Upphafi síðari hálfleiks juku
Haukarnir muninn í 13 stig, en
Framarar tóku þá kipp og
minnkuðu muninn í 6 stig. Þá
hrökk Pálmar Sigurðsson í gír,
skoraði fjórar þriggja stigakörf-
ur á skömmum tíma, og úrslitin
voru ráðin. Lokatölur urðu 95-
73.
Stigahæstir Hauka voru Ivar
Webster með 27 stig, Pálmar
20, Hálfdán Markússon 19 og
Henning Henningsson 15.
Símon skoraði mest Framara,
18 stig, Ómar Þráinsson 15 og
Þorvaldur Geirsson 12. Dómar-
ar Jón Otto Ólafsson og Krist-
inn Albertsson.
V-þýski handknattleikurinn:
Siggi Sveins
markahæstur
Gerði 10 mörk um helgina
Hra (lUömundi karlssyni fréttarítara NT í
V-Þýskalandi:
■ Sigurður Sveinsson er nú
markahæstur' í 1. deildinni
v-þýsku. Hann gerði 10 mörk í
síðasta leik og þar sem Alfreð
og félagar sjá svo vel um
Gummersbach þá skoraði einn
keppinautur Sigga, Neitzel bara
3 mörk.
Sigurður hefur gert 131 mark
þar af 63 úr vítum. Annar á lista
er Ehret frá Hofweir með 128
mörk,71 úrvítumogNeitzelfrá
Gummersbach er þriðji með
126 mörk, 43 úr vítum.
■ Þessi knái hópur tekur þátt
í Evrópumeistaramóti ung-
linga í badminton sem fram fer
í Pressbaum í Austurríki dag-
ana 31.mars-6. apríl. Keppt
verður í bæði liða- og einstakl-
ingskeppni á mótinu.
tslenska liðið spilar í 3 styrk-
leikahópi og er þar í riðii með
Finnum og Frökkum.
Um leið og keppnin fer fram
verður haldið Ársþing Evróptr-
sambandsins og munu tveir
íslendingar sitja það, Vildís
Guðmundsdóttir og Sigríður
Jónsdóttir.
Á myndinni eru; efri röð frá
vinstri: Jóhann Kjartansson
þjálfari, Haraldur Hinriksson
IA, Árni Þór Hallgrímsson
TBR, Snorri Ingvarsson TBR.
Neðri röð frá vinstri: Sigríður
Jónsdóttir fararstjóri, Guðrún
Júlíusdóttir TBR, Helga Þóris-
dóttir TBR, Ása Pálsdóttir ÍA
og Vildís Guðmundsdóttir for-
maður BSÍ.
■ Það voru „stóru liðin“ sem
komust áfram í bikarkeppni
KKÍ í karlaflokki í gærkvöld, en
þá voru leiknir báðir leikir í
undanúrslitum keppninnar.
Haukar sigruðu Fram í Hafnar-
firði 95-73, og KR-ingar lögðu
Keflvíkinga í Hagaskóla 87-69.
■ Keflvíkingar komust ekki í gegnum vörn KR-inga langtímum saman í gærkvöld. Hér er þjarmað
að Jóni Kr. Gíslasyni. NT-mynd: Svcnír
Landsflokkaglíman 1985:
Hörð keppni og jöfn
- Pétur Ingvarsson vann yfirþyngdarflokkinn
■ Landsflokkaglíman 1985
var haldin í íþróttahúsi Mela-
skóla í gær og að þessu tóku 38
keppendur þátt í henni. Þingey-
ingar voru mjög sigursælir í
eldri flokkunum, en KR-ingar í
þeim yngri. Raunar má heita að
KR-ingar hafi verið þeir einu
sem tóku þátt í keppni yngstu
flokkanna.
íslandsmeistari í yfirþunga-
flokki varð Þingeyingurinn Pét-
ur Yngvason, hlaut þrjá vinn-
inga og vann alla sína keppend-
ur. Helsti keppinautur Péturs,
Ólafur Haukur Ólafsson, KR,
var meiddur og gat ekki tekið
þátt í Landsflokkaglímunni að
þessu sinni. Rögnvaldur Ólafs-
son, KR, vann í milliþyngdar-
flokki, sigraði Helga Bjarnason,
KR, í úrslitaglímu, en athygli
vakti að allir keppendur í þess-
úm flokki voru í KR. Þá sigraði
Hjörtur Þráinsson, HSÞ, í létt-
þyngdarflokki, lagði alla sína
andstæðinga og hlaut 5 vinn-
inga.
Úrslit á Landsflokkaglímunni
urðu sem hér segir.
Yfirþyngd:
1. Pétur Yngvason, HSÞ 3 vinninga
2. Árni Þór Bjarnason, KR IV2 vinning
3. Marteinn Magnússon, KR lV2VÍnning
MILLIÞYNGD
1. Rögnvaldur Ólafsson, KR 3V2vinning
2. Helgi Bjarnason, KR 3Vz vinning
3. Ásgeir Víglundsson, KR 2 vinninga
LÉTTÞYNGD
1. Hjörtur Þráinsson, HSÞ 5 vinninga
2. Hjörleifur Pálsson, KR 4 vinninga
3. Geir Arngrímsson, HSÞ 2V2 vinning
UNGLINGAFLOKKUR
1. Davíð Jónasson, HSÞ 1 vinning
2. Arngrímur Jónsson, HSÞ 0 vinning
PILTAFLOKKUR
1. Trausti Sverrisson, HSÞ 5 vinninga
2. Lárus Björnsson, HSÞ 4 vinninga
3. Kjartan Ásmundsson HSK 3 vinninga
DRENGJAFLOKKUR YFIR 6B kg.
1. Gauti Þ. Ástþórsson KR 5 vinninga
2. Hördur Ó. Guðmundss. HSK 3 vinninga
3. YngviR.KristjánssonHSÞ 3vinninga
DRENGJAFLOKKUR UNDIB 65 kg.
1. Reynir Jóhannsson, KR 2V2 vinning
2. Jón Birgir Valsson KR 2 vinninga
SVEINAFLOKKUR
1. Sævar Sveinsson KR 2 vinninga
2. Garðar B. Þorvaldsson KR 1 vinning
3. Jóhann B. Jónsson KR 0 vinning
HNOKKAFLOKKUR
1.-2. Ingvar Snæbjörnsson KR V2 vinning
1.-2. Jón Oddur Jónsson KR V2 vinning
Opna belgíska
meistaramótið
í júdó:
Kolbeinn
þriðji
■ Kolbeinn Gíslason,
júdókappi úr Ármanni,
varð um helgina í þriðja
sæti í +95 kg flokki á
opna belgíska meistara-
mótinu í júdó. Mótið var
allsterkt, en ekki hefur
tekist að fá nánari fréttir
af keppni Kolbeins, né
því hverjir urðu fyrir
framan hann í röðinni.
Bjarni Friðriksson fé-
lagi Kolbeins í Ármanni
og bronsverðlaunahafí á
síðustu Ólympíuleikum
ætlaði að keppa á þessu
móti, en komst ekki. Þeir
Bjarni og Kolbeinn munu
keppa á opna þýska
meistaramótinu um
næstu helgi.
Korac-bikarinn í körfuknattleik:
ítalir sigruðu ítali
■ Olimpia Simac frá Milanó
sigraði annað ítalskt lið, Pall
Varese 91-78 í úrslitaleik Korac-
keppninnar í körfuknattleik
sem fram fór f Brussel um
helgina. í hálfleik var staðan
41-33.
Olimpia er núverandi ítal-
fumeistari og með liðinu leika
þrír Bandaríkjamenn: Joe
Barry Carroll, Mike D’Antoni
og Russ Schoene. Þeir voru
heldur betur atkvæðamiklir í
úrslitaleiknum og skoruðu
samtals 50 stig, þar af skoraði
Schoene 31. Romeo Sachetti
skoraði 28 stig fyrir Pall Varese,
Riccardo Caneva gerði 17 og
Bandaríkjamaðurinn John De-
vereaux 14.
Þingvallagangan:
Hressilegir 40 km
■ Skíðafélag Reykjavíkur
gekst fyrir Þingvallagöngu um
helgina. Gengnir voru um 40
km, frá Hveradölum til Þing-
valla.
Gangan gekk vel og lögðust
margir á eitt til að svo yrði.
Björgunarsveitin Mannbjörg í
Þorlákshöfn fylgdist með kepp-
endum alla leiðina, tilbúnir til
að aðstoða ef eitthvað brygði út
af. Mjólkursamsalan gaf hress-
ingu á leiðinni. Fyrirtækið G.G.
lánaði gám við endamarkið til
að hægt væri að hressa sig er á
leiðarenda kom og komast í
skjól. Verðlaunaafhending fór
fram í Eden í Hveragerði og
hlaut sigurvegarinn Toyota-
bikarinn.
Úrilit:
Karlar 17-34 ára:
Gottlieb Konráðsson........... 2:49,40
Haukur Eiríksson.............. 3:05,16
Haukur Sigurðsson............. 3:07,48
Karlar eldri en 35 ára:
Björn Þór Ólafsson.......... 3:47,40
Halldór Matthíasson......... 4:11,49
Viggó Benediktsson ......... 5:16,55
Veður var ekki hið besta
meðan á göngunni stóð, skóf
dálftið og gerði blint.
Tennis:
Martina vann
■ Martina Navratilova
bætti enn einum sigrinum
í safn sitt um helgina er
hún sigraði á móti í New
York. Hún vann Helenu
Sukova frá Tékkó 6-3,
7-5 og 6-4 í úrslitaleikn-
um.
Þessi sigur tryggði
Navratilovu 500 þúsund
krónur í verðlaun.
Nykaenen bestur
■ Finninn Matti Nykaenen
innsiglaði sigur sinn í heimsbik-
arkeppninni í skíðastökki er
hann sigraði á móti í Tékkósl-
óvakíu í gær. Þá var keppt í
stökki af 90 metra palli og hlaut
Nykaenen 225,9 stig fyrir 111,5
og 115 m stökk sín. Á laugar-
Getraunir
■ í 30. leikviku Getrauna
komu fram 42 raðir með 12
réttum leikjum og var vinn-
ingur fyrir hverja röð kr.
10.020.- en 11 réttir reyndust
vera í 724 röðum og var
vinningur fyrir röðina kr.
249.00
dag sigraði hann í keppni af 70
m palli, sveif þá 85 og 88,5 m
og hlaut 219,6 stig.
Ernst Vettori, Austurríki
varð annar í gær með 225,3 stig,
en hann stökk 115,5 og 109,5 m.
Landi hans Richard Schallert
varð þriðji með 216,2 stig (114
og 107 m ).
í keppni af 70 m palli varð
Richard Schallert í öðru sæti
með 219,6 stig (84 og 87,5 m) og
Norðmaðurinn Vegard Opaas
varð þriðji með 218,4 stig (86 og
86,5 m ).
Lokastaðan í heimsbikarkeppninni i
stökki varð þessi:
1. Matti Nykaenen............219 stig
2. Andreas Felder .......... 198 stig
3. Ernst Vettori ........... 156 stig
4. Jens Weissflog.......... 151 stig
5. Jiri Parma................139 stig